Morgunblaðið - 11.04.2015, Side 35

Morgunblaðið - 11.04.2015, Side 35
og láta ekki amstur og daglegt stress lífsins trufla mann. Ég ætla að enda þetta á þökk- um til þín, amma mín. Takk fyrir alla ástina sem þú sýndir mér, all- an skilninginn, öll skiptin sem þú passaðir mig, hjálpaðir mér, studdir og leiðbeindir. Í hjarta mínu geymi ég þær ómetanlegu stundir sem við áttum saman, ým- ist tvö eða ásamt öðrum, og veit hversu heppinn ég var að þú varst hluti af lífi mínu. Sigurður Pétur Ólafsson. Okkur systur langar að minn- ast móðursystur okkar í örfáum orðum. Hún var hlý og glaðlynd og svo afskaplega gestrisin. Það var alltaf mikið líf og fjör þegar fjölskylduboð voru haldin. Minn- umst við sérstaklega áramóta- veislnanna á Seljalandsveginum hjá Róslaugu og Bía þar sem okk- ur fannst hápunkturinn vera þeg- ar allir settust niður til að horfa á sirkus Billys Smarts. Það var virkilega gott að koma í kaffi til frænku þar sem rædd voru fjöl- skyldumál og kræsingarnar voru ekki af verri endanum. Róslaug og Bíi voru mömmu okkar stoð og stytta eftir að pabbi lést og eftir að hún veiktist, við erum eilíflega þakklátar fyrir það. Umhyggja og ræktarsemi var alltaf til staðar, sama hversu lasin Róslaug var bar hún ávallt hag annarra fyrir brjósti. Innilegar samúðarkveðjur til allra aðstandenda. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Jóhannes úr Kötlum) Guðrún, Þuríður, Auður og Ósk. Nú grætur dalurinn okkar. Þessi orð komu upp í hug minn við fráfall okkar elskulegu Rós- laugar. En það var fyrir tæpum tuttugu árum á við hjónin komum í kaffi í Dalbæ og Róslaug benti okkur á að bústaðurinn sem næst stóð við þeirra, Arnarhóll, væri til sölu og við skyldum kaupa hann. Það gerðum við og höfum ekki séð eftir því, því sambýlið við þau hjón Róslaugu og Bía hefur verið frá- bært, barnabörnin okkar sameig- inlega getað hlaupið á milli og matarboðin hvert hjá öðru svo ég tali nú ekki upp sameiginlegar grillveislur. Ekki má gleyma ein- um besta rabarbaragraut sem ég hef smakkað en hann gerði Rós- laug og bauðst hún til að gera hann fyrir brúðkaup okkar sem var auðvitað haldið í dalnum. Hin síðustu tvö sumur hafa verið henni mjög erfið að geta ekki verið í sælureit þeirra hjóna eins mikið, en henni leið þar vel að sitja úti í sólinni á pallinum með börn og ekki síst barnabörnin í kringum sig það voru þeirra bestu stundir. Barnabörnin voru þeim hjón- um alveg sérstaklega trygg og góð og verður söknuður þeirra hvað mestur því amma var klett- urinn í þeirra lífi. Hún naut þess að dunda í moldinni í blómunum en hann í trjáræktinni, og oft var diskúterað hvort þetta eða hitt myndi lifa, eða þola flutning. Við eigum eftir að sakna þess að þau komi ekki eða fara til þeirra í kvöldkaffi við sólarlagið í Arnardal, en vonandi verður Bíi duglegur að koma við í sínum ferðum í dalinn okkar. Elsku Bíi, við Diddi vottum þér og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð við fráfall okkar elskulegu Róslaugar. Hafi hún þökk fyrir samfylgdina. Blessuð sé minning hennar. Ég vil gjarnan lítið ljóð láta af hendi rakna. Eftir kynni afargóð ég alltaf mun þín sakna. (Guðrún V. Gísladóttir.) Kristjana Sigurðardóttir. MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2015 ✝ Bragi Björg-vinsson fæddist á Skriðu í Breiðdal 17. júní 1934. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi 1. apríl 2015. Foreldrar hans voru Björgvin Magnússon frá Skriðu í Breiðdal, f. 18.4. 1903, d. 31.12. 1984 og Marey Björg Guðlaug Jónsdóttir, f. 23.3. 1906, d. 6.2. 1940. Alsystir Braga er Marey Stefanía, f. 19.6. 1939, maki, Þórður Þor- grímsson, f. 16.3. 1930. Bragi á sex hálfsystkini. Af fyrsta hjóna- bandi Björgvins föður hans og Stefaníu Sigurborgar Hann- esdóttur, f. 27.9. 1901, d. 5.12. 1929, voru Hannes, f. 12.11. 1925, d. 5.10. 2005. Maki, Kristín S. Skúladóttir, f. 2.5. 1934 og Aðalbjörg Sigrún Björgvins- dóttir, f. 13.6. 1927, d. 17.1. 2013. Maki Helgi Þorgrímsson f. 21.11. 1918, d. 17.10. 1983. Af þriðja hjónabandi Björgvins og Ragnheiðar Hóseasdóttur, f. 3.6. 1921, eru hálfsystkini Braga; Ingibjörg, f. 28.2. 1949, maki, Kristbjörn Hans Eiríksson, f. 22.4. 1945, Björn, f. 24.9. 1950, Skriðu í Breiðdal en árið 1940 er flutt í Höskuldsstaðasel. Snemma byrjaði Bragi sveita- störfin og tók þátt í öllu sem þurfti að vinna á heimilinu. Hann hafði áhuga á námi og var á bændaskólann á Hólum í tvo vetur. Sú menntun kom sér vel við bústörfin og átti stóran þátt í að byggja upp búrekstur heim- ilsins. Með búinu sótti Bragi til- fallandi vinnu og meðal annars var hann tvo vetur á vertíð í Vestmannaeyjum. Bragi tók al- farið við búinu í Höskulds- staðaseli 1985 eftir lát föður síns. En sex árum síðar kom upp riða í bústofninum sem varð til þess að öllu fénu var slátrað. Það var honum áfall að þurfa að ganga í gengum þann nið- urskurð. Bragi tók ekki kindur aftur, en var markavörður Suð- ur-Múlasýslu til margra ára. Einnig sá hann um rekstur bens- ínstöðvarinnar á Breiðdalsvík í nokkur ár og frá þeim tíma bjó hann með maka sínum Eddu Björgu Björgmundsdóttur og Guðbjarti syni hennar á Breið- dalsvík. Hugur Braga var oft í Höskuldsstaðaseli. Daglegur akstur síðustu árin inn á dal til vinnu á jörðinni og líka til að sjá sveitina sína. Bragi greindist með krabbamein í janúar síðast- liðnum eftir að hafa ekki verið heill heilsu síðustu árin. Útför Braga verður gerð frá Heydalakirkju í Breiðdal í dag, 11. apríl 2015, og hefst athöfnin klukkan 14. Baldur, f. 29.12. 1951, maki, Nanna S. Svansdóttir, f. 13.10. 1956, Unnur, f. 17.7. 1956, maki, Guðmundur Björg- ólfsson, f. 9.3. 1950. Maki Braga er Edda Björg Björg- mundsdóttir, f. 22.9. 1941. Synir hennar eru 1. Páll Gunnarsson, f. 28.12. 1961, d. 16.5. 2006. 2. Ein- ar Már Gunnarsson, f. 17.6. 1963 maki, Elísa Eydís Gunn- arsdóttir, f. 1.2.1966. Börn þeirra eru; a) Edda Marín Ein- arsdóttir, f. 22.1. 1987, maki Elís Traustason, f. 29.8. 1985. Börn Eddu Marínar og Elísar eru; Hjörtur Páll Elísson, f. 12.1. 2012, Tryggvi Már Elísson, f. 12.1. 2012. b) Gunnar Páll Ein- arsson, f. 23.5. 1991. 3) Guð- bjartur Guðmundsson, f. 16.1. 1980, maki, Sigurbjörg Júl- íusdóttir, f. 1.6. 1979. Börn þeirra eru; Þorbjörg Þula Guð- bjartsdóttir, f. 18.8. 2007, Aron Sölvi Guðbjartsson f. 24.9. 2010, d. 24.9. 2010 og Garðar Hugi Guðbjartsson, f. 24.9. 2010, d. 24.9. 2010. Bragi fæddist og ólst upp á Ég man eins og gerst hafi í gær þegar þú komst inn í líf mitt, þá tók veröldin aðra stefnu, góða stefnu. Ég var nú frekar óstýrilátur krakki þannig að það þurfti að siða mig aðeins til. Ag- inn var mikill og mér var gert að hlýða, ég var nú kannski ekki alltaf sammála þér til að byrja með en ég veit nú að þú vildir mér allt það besta og gerðir þú mig að þeim manni sem ég er í dag. Margt brölluðum við sam- an, hvort það sem það var girð- ingavinna inni í Seli, vinna sam- an á bensínstöðinni eða bara sitja saman við eldhúsborðið heima og ræða dægurmálin þá var alltaf eins og ég gæti sagt þér allt án þess að það færi nokkuð lengra og þú sagðir mér strax hvort það sem ég hafði til málanna að leggja væri vitlegt eða ekki. Sem dæmi þá studdir þú mig heilshugar og hvattir mig mikið til að fara í eigin rekstur þegar sú umræða kom upp. Það er tómlegt til þess að hugsa að samtölin okkar verði ekki fleiri, við áttum jú flest okk- ar samskipti í gegnum símann þar sem oft leið langt á milli ferða okkar fjölskyldunnar í sveitina og ekki eyddir þú lengri tíma í höfuðborginni en nauðsyn krafðist. Heimsóknir í sveitina voru alltaf tilhlökkunarefni. Þar varst þú á heimavelli, þekktir hverja þúfu og hvern stein og hafðir óteljandi sögur að segja frá gamalli tíð. Þú þekktir sveit- ina þína eins og lófann á þér, enda búið þar alla tíð og unnir henni afar heitt. Það er okkur ómetanleg minning þegar þið Sibba fóruð í ykkar fyrsta og eina reiðtúr saman sumarið 2013, hún á Funa og þú berbakt á henni Perlu. Ekki var túrinn langur, rétt inn dalinn eftir þjóðveginum og nið- ur að Breiðdalsánni. En við brostum hringinn allan tímann því það var svo gaman að sjá þig á baki og eignast um leið þessar góðu minningar. Litla afastelpan þín saknar þín sárt, hún man svo vel eftir hestunum og hvað þú varst óþreytandi við að teyma undir henni. Það eru góðar minningar sem hún geymir um þig og sveitina. Það var erfitt að fylgjast með því þegar heilsan tók að gefa sig á síðustu árum, æ erfiðara var að sinna öllum þeim verkum sem sveitin kallaði á og það átti nú ekki við þig að geta ekki sinnt öllu því sem hugurinn vildi jafn hratt og örugglega og áður. Nú liggur þín síðasta ferð heim í Breiðdalinn þar sem hjartað sló, þar sem hugurinn dvaldi og þar sem höndin þín hlúði að. Við kveðjum þig með þakklæti og söknuð í hjarta. Guðbjartur Guðmundsson, Sigurbjörg Júlíusdóttir og Þorbjörg Þula Guðbjartsdóttir. Þá var heilsan á þrotum og þú hefur kvatt. Að kveðja þig er erf- itt, mér þótti mjög vænt um þig, elsku frændi minn. Í hugann koma minningar frá Seli, þær eru margar og dýrmætar. Að koma til þín og ömmu og fá að vera heilu sumrin og í páskafrí- um er ég þakklát fyrir. Þú pass- aðir vel upp á mig og það sem þú nenntir að leyfa mér að þvælast með þér. Aldrei man ég eftir að þú hafir skammast í mér, verið reiður eða reynt að siða mig til. Þú tókst mér nákvæmlega eins og ég er og alltaf höfum við átt einstakt samband, þar sem hrein væntumþykja hefur ráðið ríkj- um. Það er sérstaklega eitt atvik sem lýsir þér svo vel og er mér minnisstætt; þegar páskaeggið mitt bráðnaði í sólinni inni á Sel- nesi eina páskana. Þvílík reið- arslag og áfall fyrir barnið mig. Ég var varla búin að þurrka tár- in og jafna mig þegar elsku Bragi hafði frétt um áfallið og renndi í hlað. Þú færðir mér nýtt páskaegg, að sjálfsögðu stærra en það sem bráðnaði. Þessu gleymi ég aldrei. Ég vil þakka fyrir allar sam- verustundirnar, fyrir hlýjuna og áhugann sem þú hafðir á því sem ég tók mér fyrir hendur og að finnast flest, eða örugglega allt, fyndið og skemmtilegt sem ég sagði eða gerði. Ég vil þakka fyrir að hafa ver- ið svo lánsöm að þekkja þennan yndislega mann. Það eru mikil forréttindi að hafa átt stað í hjarta þínu. Hafðu þökk fyrir allt og ég bið að heilsa Snabba. Vertu bless elsku frændi minn. Hugur minn er hjá ykkur elsku Edda, Guðbjartur og föl- skylda. Elsku amma í Seli og systkini Braga, ég sendi ykkur hlýjar kveðjur. Þín Tinna Baldursdóttir. Bragi Björgvinsson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Útfararþjónusta síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn Elsku móðir okkar og tengdamóðir, MÁLFRÍÐUR ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR, kennari, Barmahlíð 39, er látin. Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 14. apríl kl. 15.00 . Ingunn Sæmundsdóttir, Elías Gunnarsson, Sigurbjörg Sæmundsdóttir, Guðrún Sæmundsdóttir, Eiríkur Sigurðsson, Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORSTEINA SIGURÐARDÓTTIR, Hrafnistu í Reykjavík, áður Njörvasundi 6, Reykjavík, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 27. mars. Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 13. apríl kl. 15. . Hafliði Benediktsson, Ingibjörg Skarphéðinsdóttir, Helga Benediktsdóttir, Jónas R. Jónsson, Ingibjörg Benediktsdóttir, Haukur Hauksson, Erna Benediktsdóttir, Steindór Gunnarsson, Birna Benediktsdóttir, Daníel Guðbrandsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg dóttir, móðir, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, JÓHANNA VILHJÁLMSDÓTTIR sjúkraliði, Fellsmúla 5, Reykjavík, lést mánudaginn 6. apríl. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 16. apríl kl. 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins. . Bergþóra Skarphéðinsdóttir, Berglind Bjarnadóttir, Bjarni Fannar Bjarnason, Arna Sif Bjarnadóttir, Sigurður Árni Jónsson, Sigríður Gunnarsdóttir, Einar Gylfi Haraldsson, Birgir Héðinn Gunnarsson, Gertrud Maria Gunnarsson, Björk Níelsdóttir, María Fanney, Karen Sif, Gabríel Máni, Viktor Bjarki, Sævin, Arnar Logi og fjölskyldur. Ástkær sambýlismaður, bróðir, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GARÐAR GUÐMUNDSSON skipstjóri og útgerðarmaður, Ólafsfirði, verður jarðsunginn frá Ólafsfjarðarkirkju sunnudaginn 12. apríl kl. 14. . Helga Torfadóttir, Halldór I. Guðmundsson, Halldóra Garðarsdóttir, Maron Björnsson, Þuríður Sigmundsdóttir, Ólöf Garðarsdóttir, Barði Jakobsson, Hannes Garðarsson, Steinunn Aðalbjarnardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBORG JAKOBSDÓTTIR, lengst af til heimilis að Álftröð 7 í Kópavogi, lést miðvikudaginn 1. apríl á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útförin fer fram miðvikudaginn 15. apríl kl. 13 frá Kópavogskirkju. . Arnar Halldórsson, Margrét Valtýsdóttir, Valdís Arnarsdóttir, Guðmundur Hrafnkelsson, Halldór Arnarsson, Borghildur Sigurðardóttir, Sigurborg Arnarsdóttir, Helgi Ólafsson og langömmubörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, sonur, tengdasonur, afi og langafi, JÓN VILHJÁLMSSON málarameistari, sem lést laugardaginn 4. apríl, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 14. apríl kl. 15. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningargjafasjóð Landspítalans. . Guðrún Jóna Þorbjörnsdóttir, Erla Þorbjörg Jónsdóttir, Kristmundur Gylfason, Vilhjálmur Jónsson, Kristín S. Konráðsdóttir, María Rós Jónsdóttir, Karl Georg Ragnarsson, Jóhannes Oddur Jónsson, Guðrún Lína Thoroddsen, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.