Morgunblaðið - 11.04.2015, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.04.2015, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2015 Jóhann Ólafsson joo12@hi.is „Gerviliðir í hálshrygg er tækni sem hefur fleygt fram undanfarin 20 ár. Ég tók þátt í að þróa ákveðinn hluta af því þegar ég var í Svíþjóð við nám og vinnu,“ segir Björn Zoëga bækl- unarskurðlæknir. Flytur hann er- indi um þróun gerviliða í hálshrygg síðustu 20 ár á vísindaþingi Skurð- læknafélags Íslands sem haldið er í Hörpu um helgina. „Við höfum stundað þessar að- gerðir hér á landi í sjö ár og á þeim tíma er búið að setja gerviliði í háls 175 sjúklinga. Fyrst fylgdist ég með hvernig þetta gekk hjá félögum mín- um erlendis áður en við hófumst handa hér. Með þessu höfum við sýnt að við getum verið í fremstu röð. Sjúklingunum hefur verið fylgt eftir og lífsgæði þeirra könnuð. Þetta er eins og best gerist erlend- is.“ Yngra fólk í aðgerðirnar Björn segir að þróunin í þessum aðgerðum hafi ekki verið mikil síð- ustu tíu ár. Það sem hafi þróast sé tæknin við framkvæmd aðgerðanna og hvaða hópi fólks þessar aðgerðir henti. „Yngra fólki, undir fimmtugu. Þetta er þá fólk sem fær brjósklos í hálshryggjarliðina og því fylgja auð- vitað óþægindi. Þetta er ekki eins og með gerviliði í mjöðmum eða hné, sem henta frekar eldra fólki.“ Bend- ir Björn á að gamla leiðin vegna meiðsla í hálshrygg hafi verið ágæt en langtímaáhrifin hafi ekki verið jafn góð. Núna geti fólk fengið eðli- lega hreyfingu í hálsinn, sem ekki hafi verið hægt áður. Helena Brisby, prófessor á Sa- hlgrenska sjúkrahúsinu í Gauta- borg, flutti einnig erindi á þinginu. „Ég vann með henni úti. Við byrj- uðum á sama tíma í Gautaborg, stunduðum rannsóknir saman og höfum haldið því rannsóknarsam- starfi áfram. Ferill hennar er glæsi- legur. Hún er fyrsta konan til að verða prófessor í bæklunar- skurðlækningum í Svíþjóð, á virt- asta bæklunarspítala Norðurlanda.“ Kjörið svið fyrir unglækna Á vísindaþinginu eru nýjungar í skurðlækningum kynntar ásamt því að erlendir og íslenskir aðilar kynna það sem er að gerast. „Svo er þetta auðvitað ákveðið tækifæri fyrir unga lækna til að kynna sínar rannsóknir. Það er mjög gott fyrir þau að sjá og heyra hvað er í gangi en mikið er að gerast bæði í rannsóknum og gæða- eftirliti.“ Á laugardeginum er keppni um besta vísindaerindi ungs læknis en þeir fá þar gott tækifæri til að spreyta sig og flytja vísindaerindi fyrir framan fagfólk. „Ég hélt mín fyrstu vísindaerindi á skurðlækna- þingi hér á landi árið 1991. Vonandi finna unglæknarnir fyrir stressi, þannig fá þau drifkraft til að gera vel. Stressið lætur þau vanda sig í starfi,“ segir Björn Zoëga. 175 fengið gervilið í háls á 7 árum  Vísindaþing Skurðlæknafélags Íslands kjörin leið fyrir unglækna til að kynna rannsóknir sínar  Hreyfigeta í hálsi eðlileg að lokinni aðgerð  Á pari við aðgerðir framkvæmdar erlendis Morgunblaðið/Eggert Skurðlæknaþing Björn Zoëga flytur ræðu um þróun gerviliða í hálshrygg undanfarin 20 ár í Hörpu um helgina. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, for- sætisráðherra og formaður Fram- sóknarflokksins, sagði m.a. í ræðu sinni á flokksþingi Framsóknar- flokksins í gær að öllum mætti vera ljóst „að grípa þarf til varna fyrir Reykjavíkurflugvöll og koma í veg fyrir að borgaryfirvöld grafi stöðugt undan flugvellinum og beiti brögðum til að losna við hann.“ Líkt og fram hefur komið í frétt- um, er ætlunin að hefja framkvæmdir á Hlíðarenda á mánudag, en Reykja- víkurborg, Knattspyrnufélagið Valur og Valsmenn hf. skrifuðu undir samning við verktaka á miðvikudag. Hanna Birna Kristjánsdóttir, þá- verandi innanríkisráðherra, sendi Isavia bréf, hinn 30. desember 2013, þar sem Isavia var falið að hefja und- irbúning að lokun svonefndrar neyð- arbrautar, brautar 06/24 á Reykja- víkurflugvelli. „Rétt er að ítreka að flugbrautinni skal þó ekki lokað eða aðrar ákvarð- anir teknar sem leiða til þess að flug- braut 06/24 verði tekin úr notkun á meðan verkefnastjórn, sem nú starf- ar undir forystu Rögnu Árnadóttur skv. samkomulagi ríkisins, Reykja- víkurborgar og Icelandair Group, er enn að störfum og ákvörðun á grund- velli tillagna hennar liggur ekki fyr- ir,“ segir í bréfi innanríkisráðuneytis, fyrir hönd ráðherra, til Isavia. Friðrik Pálsson, annar formaður stuðningssamtaka Reykjavíkurflug- vallar, Hjartans í Vatnsmýrinni, sagði í fréttum Stöðvar 2 í fyrrakvöld að með því að hefja framkvæmdir á Hlíðarenda væri verið að brjóta allar brýr sáttaferlis, sem meðal annars væri verið að vinna að innan svokall- aðrar Rögnunefndar. Hjartað í Vatnsmýrinni skoraði á Alþingi og innanríkisráðherra í fyrra- dag að stöðva framkvæmdir Reykja- víkurborgar og Valsmanna hf. á Hlíð- arenda. Friðrik hafnaði því að Valsmenn gætu vísað fjárhagslegri ábyrgð á aðra og sagði að Valsmenn hefðu fyr- ir löngu verið komnir í milljarða- skuldir. Brynjar Harðarson, framkvæmda- stjóri Valsmanna, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær um orð Friðriks Pálssonar um skuldastöðu Vals- manna: „Ég harma það að menn skuli leggjast svo lágt að segja vísvitandi ósatt. Friðriki Pálssyni er fullkunn- ugt um það að hver einasta króna af skuldum Valsmanna er eingöngu til- komin vegna lóðarkaupa á Hlíðar- endareit.“ Valsmenn hafi tekið hálfan milljarð að láni fyrir 10 árum til að greiða bygginganefnd Reykjavíkurborgar og Vals. Þær skuldir séu nú í kring- um tveir milljarðar króna. Brynjar telur að bréf fyrrverandi innanríkisráðherra hafi ekki gildi til þess að framkvæmdir verði stöðvað- ar. Valsmenn hafi háð sína baráttu í gegnum lögformlegar leiðir og loka- skrefið á þeirri vegferð hafi verið formlegt samþykki Skipulagsstofn- unar ríkisins á gildistöku deiliskipu- lagsins. Tölvuteikning/Alark Hlíðarendi Hjartað í Vatnsmýrinni skorar á Alþingi og innanríkisráðherra að stöðva framkvæmdir sem eiga að hefjast á mánudaginn kemur. Segir að grípa þurfi til varna  Enn tekist á um 06/24 flugbrautina Friðþór Ey- dal, upplýs- ingafulltrúi Isavia, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær, að þáttur Isavia í und- irbúningi að lokun braut- arinnar 06/ 24 hefði verið sá að láta gera áhættumat, sem nú lægi inni hjá Samgöngustofu til sam- þykktar. „Það er fyrsta skrefið í undirbúningnum og meira höfum við ekki gert. Áhættu- matið snýst um það hvaða mótvægisaðgerða er þörf, til þess að hægt sé að loka braut- inni,“ sagði Friðþór. Hann sagði að það væri ekki á valdsviði Isavia að taka ákvörðun um lokun, heldur væri það á valdsviði innanrík- isráðherra. Ekki á vald- sviði Isavia FRIÐÞÓR EYDAL Friðþór Eydal Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is Heilsu Qigong 5helstu ástæður þess að iðka qigong Qigong (borið fram “tsí-gong”) er yfir 5.000 ára gamalt æfingakerfi í heilsurækt þarsem saman fer qi, semmerkir “lífskraftur”, og gong, semmerkir “nákvæmar æfingar”. 1. Aukin vellíðan og lífsþróttur Minnkar blóðþrýsting, bætir hjarts- og æðastarfsemi, jafnar hjartsláttartíðni og minnkar kólesteról. 2. Dregur úr þrálátum sársauka Með hjálp sjónar og stjórn hugar og líkama getur þú dregið úr þrálátum sársauka frá liðagigt. 3. Betra blóðstreymi Með sérstökum öndunaræfingum getur þú aukið súrefnisflæði í líkamanum. 4. Dregur úr spennu Með því að minnka viðbrögð við spennuvekjandi álagi. Hjálpar gegn þráhyggu- og áráttuhegðun, þunglyndi og kvíða og persónuleikaeinkennum af A-gerð. 5. Byggir upp sjálfsvirðingu Með því að leyfa þér að líða vel og þægilega. Skráning í síma 5538282 ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 MIKIÐ ÚRVAL AF SÆNGUM OG KODDUM 24.995 kr. Sæng. 135 x200cm. 85% fjaðrir og15%dúnn. Sængin er saumuð í 4 x6 ferninga til að hiti dreifist jafnt umsængina. 24.995kr. Dream-sæng Snorri Óskars- son, oft kenndur við söfnuðinn Betel, var í gær sýknaður í hér- aðsdómi af kröf- um Akureyr- arbæjar þar sem bærinn krafðist þess að úrskurð- ur innanrík- isráðuneytisins frá 4. apríl 2014 yrði felldur úr gildi. Innanrík- isráðuneytið úrskurðaði að upp- sögn Snorra frá störfum við Brekkuskóla þann 12. júlí 2012 væri ólögmæt. „Í fyrsta lagi var ekki um brot í starfi að ræða. Í öðru lagi þá er það ekki lögbrot að halda kristn- um sjónarmiðum fram, hvort sem það er í grunnskóla eða í blogg- færslu. Ég á samkvæmt lögum að starfa eftir kristnum gildum og þá voru orð mín og rökræða rétt miðað við það,“ sagði Snorri við mbl.is. Snorri í Betel var sýknaður Snorri Óskarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.