Morgunblaðið - 11.04.2015, Side 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2015
Tvær sýningar verða opnaðar í
Listasafni ASÍ við Freyjugötu í dag,
laugardag, klukkan 15. Í Ásmund-
arsal er sýning Ívars Brynjólfs-
sonar ljósmyndara, Sýn á virkni
þrívíðra rýma í tvívíðum miðli.
Í sölunum á neðri hæð safnsins
hefur Anna Rún Tryggvadóttir sett
upp sýninguna Innbyrðis. Í tilkynn-
ingu segir að innri virkni hlutanna,
bindiefni þeirra, samspil og um-
breyting séu viðfangsefni Önnu
Rúnar, sem sýnir rýmisverk og
teikningar.
Ívar og Anna Rún opna í Listasafni ASÍ
Reyndur Ívar Brynjólfsson sýnir í Ás-
mundarsal og veltir fyrir sér virkni rýma.
Danski leikarinn Sejer Andersen flytur ein-
leikinn Vitus Bering eftir Gregers Dirck-
inck-Homfeld í Sjóminjasafninu á Eyrar-
bakka í dag kl. 15 og á morgun kl. 17.
Vitus Bering (1681-1741) var danskur
landkönnuður sem starfaði sem siglinga-
fræðingur og höfuðsmaður í rússneska sjó-
hernum þar sem hann lagði grunninn að
landnámi Rússa við Alaskastrendur, en
Beringssund er kennt við hann. Einleik-
urinn, sem Andersen hefur sýnt um víða
veröld, er leikinn á dönsku, en íslenskum
texta varpað á vegg.
Aðgangur er ókeypis.
Vitus Bering leikinn á Eyrarbakka
Vitus Bering Sejer Andersen í
hlutverki sínu sem landkönnuður.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@gmail.com
Warpaint er fjögurra manna
hljómsveit frá Los Angeles, sem
gaf út aðra og samnefnda breið-
skífu sína í fyrra. Hún hefur upp-
skorið mikið lof fyrir það verk og
hefur verið áberandi í tónlistar-
miðlum undanfarin misseri. Um-
talið eiga meðlimir líka skuld-
laust, á plötunni tókst þeim nánast
að fullkomna þennan gotneska
4AD hljóm sinn en hún hljómar oft
eins og síðari tíma Cocteau Twins
séu að leika sér með Joy Division-
lög. Hér er ég einfaldlega að
reyna að skjóta upp mynd af
hljóðheiminum, Warpaint-stúlkur
eru síst einhverjar hermikrákur
og hafa einmitt, hægt og sígandi,
náð að draga fram athyglisverð
sérkenni með þessum tilvísunum
sínum.
Síðpönk
Hafandi fylgst nokkuð náið
með sveitinni síðastliðið ár gekk
ég eðlilega spenntur inn í O2 ABC
tónleikahöllina í Glasgow. Sal-
urinn var vel fullur og allir hip-
sterar Glasgow og frændur þeirra
líka voru mættir. Eftir sérdeilis
hörmulegt upphitunarband stigu
stúlkurnar loks á svið og fólk
Upp á yfirborðið
Svalar Warpaint í allri sinni dýrð, keikar bæði og klárar.
fagnaði innilega. Þær hentu strax
í spánnýtt lag, „I’ll Start Belie-
ving“, sem kom út á smáskífu fyr-
ir stuttu. Settið, sem var til-
tölulega stutt, samanstóð svo af
lögum af samnefndu plötunni og
þeirri sem kom út þar á undan,
The Fool (2010). Að fylgjast með
þessari sveit á sviði var unaður og
algerlega í takt við það sem ég
hef séð á sjónvarpsklippum. Þetta
er „inn-í-sig“ tónlist, meðlimir
hlykkjuðust um sviðið í hálf-
gerðum transi, týndir í tónlistinni
sem er hægstreym, dulúðug og
hjúpast einhvern veginn um þig.
Sveimkennt flæðið var brotið upp
með skerandi gítar sem er laug-
aður upp úr síðpönksstíl þeim sem
P.I.L., Gang of Four o.fl. kynntu
til sögunnar á sínum tíma. Maður
fann, sá og heyrði að kvartettinn
hefur tiltölulega jafna verkaskipt-
ingu og það byggir undir mjög svo
lokkandi stemningu. Trymbillinn,
Stella Mozgawa, var síðasta púslið
í spilið á sínum tíma og hún límir
framvinduna saman með eftirtekt-
arverðri lipurð og bassaleikarinn
Jenny Lee Lindberg leggur til
snákslegar bassalínur (hún var
kölluð Jenny Wobble í eina tíð, til
heiðurs hinum mikla meistara,
Jah Wobble úr P.I.L.). Gítarleik-
ararnir tveir eru nokkuð ólíkir,
Emily Kokal er hlédræg og virðist
ágætis tónlistarmaður en seint
væri hægt að kalla Theresu Wa-
yman góðan gítarleikara í hefð-
bundnum skilningi þess orðs.
Sköpunargleði
En spilamennska á pari við þá
sem heyra má í útskriftarprófum
FÍH er ekki málið. Warpaint snýst
um spila- og sköpunargleði, að
búa eitthvað til í sameiningu frem-
ur en fingraæfingar. Andlegir for-
verar Warpaint, The Slits og The
Raincoats t.a.m., fylgdu „það er
ekki málið hvað þú getur heldur
hvað þú gerir“-heimspeki Einars
Arnar fram í fingurgóma og þetta
má heyra í tónlist Warpaint einn-
ig. Söngnum er þá skipt syst-
urlega yfir alla sveitina, enginn
sérstakur forsöngvari var merkj-
anlegur og sú nálgun, ef svo má
segja, er enn ein rós í hnappagat
þeirra stríðsmáluðu. Í inngangi
tala ég um að þetta fereyki sé til
fyrirmyndar og hvað meina ég nú
með því? Jú, í afskaplega karllæg-
um poppheimi hefur Warpaint
siglt sinn kúrs með heilindi að
vopni. Í upphafi voru þær mynd-
aðar uppstilltar í hvítum kjólum
og slíku en eftir að þær lögðu það
fyrir róða, fóru að íklæðast skít-
ugum gallabuxum og strigaskóm
var eins og sveitin tæki að vaxa.
Það er samt ekki svo að þær séu
að rembast við að vera ókvenlegar
(vonandi misskilst þetta ekki),
maður fær einfaldlega á tilfinn-
inguna að þær séu raunverulega
að gera þetta á eigin forsendum,
séu raunverulega að brjótast gegn
því sem til er ætlast. Og það er
eins og það gerist fyrst náttúrlega
þegar fólk sleppir tökunum og fer
að standa með sér, keikt og klárt.
» Andlegir forverarWarpaint, The Slits
og The Raincoats t.a.m.,
fylgdu „það er ekki mál-
ið hvað þú getur heldur
hvað þú gerir“-heim-
speki Einars Arnar
fram í fingurgóma.
Hljómsveitin Warpaint lék í Glasgow
í liðinni viku Fyrirmyndarfereyki
sem er á miklu flugi um þessar mundir
Hljómsveitakeppnin Wacken Metal
Battle Iceland fer fram í Norður-
ljósum í Hörpu í kvöld kl. 18, en
húsið verður opnað kl. 17.30. Sveit-
irnar Auðn, Churchhouse Cree-
pers, In The Company of Men,
Narthraal, ONI og Röskun keppa
um að komast á Wacken Open Air.
Sérstakar gestasveitir kvöldsins
verða The Vintage Caravan, Op-
hidian I og Aeterna. Áhorfendur og
dómnefnd sjá um að velja sigur-
sveitina, en í dómnefnd sitja m.a.
Árni Matthíasson blaðamaður, Stef-
án Magnússon, aðalskipuleggjandi
Eistnaflugs, Matti Riekki, ritstjóri
Inferno Magazine í Finnlandi, Tom
O’Boyle, blaðamaður hjá Metal
Hammer í Bretlandi, Greg Moffitt,
blaðamaður hjá Iron Fist Magazine
í Bretlandi, og Yngve Christiansen,
aðalskipuleggjandi Blastfest í Nor-
egi, blaðamaður hjá Metal Hammer
í Noregi og söngvari Blood Red
Throne og Grimfist. Miðasalan er á
harpa.is og midi.is.
Wacken Metal Battle Iceland í kvöld
Barátta Allt verður lagt í sölurnar í kvöld
þegar keppt verður til úrslita í Hörpu.
ÍSLENSKUR TEXTI
ÍSLENSKT TAL
SÝND Í 2D OG 3D
WILL FERRELL OG KEVIN HART
HAFA ALDREI VERIÐ BETRI.
ÓDÝRT KL. 2 OG 5
800 KR. BARNAVERÐ FYRIR ALLA
HÖRKUGÓÐ
SPENNUMYND
FRÁ LEIKSTJÓRA
TAKEN
I
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS OG
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR VIÐ HLIÐINA Á
- bara lúxus