Morgunblaðið - 11.04.2015, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 11.04.2015, Blaðsíða 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2015 Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Gestum Hafnarborgar, menningar- og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar, gefst á morgun kostur á að kynnast áhugaverðum ferli Jónínu Guðna- dóttur leirlistarkonu. Sýning á verk- um hennar, Vörður, stendur nú yfir í Sverrissal Hafnarborgar og leitar Jónína í verkunum aftur til bernsku sinnar og mótunarára. Segir hún að innblásturinn sé því sóttur til fyrsta áratugar íslenska lýðveldisins. Jónína er menntuð á Íslandi og í Svíþjóð og á að baki fjölda einka- og samsýninga víða um lönd. Verk hennar eru í eigu allra helstu safna á Íslandi auk safna í Þýskalandi. Ferillinn spannar tæp 50 ár Núverandi forstöðumaður Hafn- arborgar, Ólöf K. Sigurðardóttir og fyrrverandi forstöðumaður, Pétrún Pétursdóttir, hyggjast á morgun sýna myndir af verkum Jónínu frá öllum ferlinum og ræða við listakon- una um þær hugmyndir sem að baki liggja en málstofan hefst klukkan 14. Listaferill Jónínu hófst með námi hennar við Myndlista- og handíða- skóla Íslands við upphaf sjöunda áratugar síðustu aldar og verður allt listatímabil hennar, þar til dagsins í dag, til umfjöllunar í málstofunni. „Það verður farið yfir þetta laus- lega,“ segir Jónína en hún hefur um árabil verið í framvarðarsveit ís- lenskra leirlistamanna og vakti hún snemma athygli fyrir einstaka nytja- hluti. Hún hefur jafnframt þróað sjálfstætt myndmál í listaverkum sem bera þekkingu hennar á leirn- um gott vitni um leið og einstakt formskyn og hugmyndaauðgi eru áberandi. Jónína hefur verið iðin við ýmis fé- lagsstörf í gegnum ævina. Hún var til að mynda fyrsti formaður Leir- listarfélagsins, stofnfélagi Sam- bands íslenskra myndlistarmanna og félagi í Myndhöggvarafélaginu. Sýningin á verkum hennar, Vörð- ur, sækir titil sinn til meginverks sýningarinnar. „Vörður er gólfverk og spannar fyrstu tíu ár ævi minnar. Fyrstu tíu ár lýðveldisins,“ segir Jónína en hún er fædd árið 1943. Hún finnur hugmyndum sínum sem til sýningar eru form í skúlptúrum og veggverkum þar sem saman fer fjölbreyttur efniviður á borð við steinsteypu, gler og leir. Mannfólkið, rándýr og goggar Á sýningunni má finna tvö önnur verk auk „Varða“, miðverks sýning- arinnar. Annars vegar er það verkið „Finkur Darwins“ sem að hennar sögn fjallar um breytileika tegund- anna. Verkið er nákvæm eftirlíking af ýmsum finkugoggum en með við- bótum Jónínu. Hins vegar er það verkið „Íslensk rándýr“. Það er lágmynd og byggð upp á píramída, segir hún. Verkið rekur villt íslensk rándýr; fugla, refi og minnka, ásamt mannfólkinu sem situr undir þessu öllu, segir Jónína. Sýningin var opnuð hinn 28. mars sl. og stendur yfir í tæplega mánuð til viðbótar, eða til 10. maí. Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar Jónína segir að málstofan verði þannig upp byggð að stoppað verður við hvert verk þannig að farið verður yfir þróunina í verkum hennar á ferlinum „Af hverju og hvers vegna munu þær Ólöf og Pétrún spyrja mig,“ segir Jónína en hún segir að málstofan hafi komið til í kjölfar þess að verið var að spá í bókaútgáfu með verkum hennar. „Mig langaði til að byrja á því að tjá mitt eigið efni og þær aðferðir sem ég nota í minni myndlist,“ segir hún. Finna má verk eftir Jónínu, sem var útnefnd bæjarlistamaður Hafna- fjarðar árið 2007, víða. Meðal verka hennar er „Hringiða“ við Kára- hnjúkastíflu Landsvirkjunar sem var vígt árið 2009. Verkið stendur við aðalstíflu Hálslóns á útsýnisstað og er í raun útsýnispallur þar sem sér yfir stóran hluta Hálslóns, til Snæfells, yfir stíflumúrinn og niður í Jökulsárgljúfur. Þá má finna annað verk eftir hana hjá kvikmyndafyrirtækinu True- north en Jónína hannaði verðlauna- grip Útflutningsverðlauna forseta Íslands á síðasta ári. Sótt til fyrstu ára lýðveldis Morgunblaðið/Ómar Listakonan „Það verður farið yfir þetta lauslega,“ segir Jónína Guðnadóttir um málþingið um verk hennar en fer- illinn spannar tæp 50 ár. Málþingið hefst klukkan 14 í Hafnarborg á morgun, sunnudag.  Sýningin Vörður eftir Jónínu Guðnadóttur stendur nú yfir í Hafnarborg  Gestir geta kynnt sér feril hennar á morgun Eyþór Franzson Wechner heldur orgeltónleika í Langholtskirkju á vegum Lista- félags kirkjunnar á morgun, sunnu- dag, kl. 17. Á efnisskrá eru verk eftir m.a. J.S. Bach, Diet- rich Buxtehude, Louis Couperin, John Stanley og Vincent Lübeck. Eyþór lauk BA-gráðu frá Hoch- schule für Musik und Theater, Felix Mendelssohn Bartholdy, í Leipzig í Þýskalandi 2012 og MA-gráðu 2014. Hann hefur starfað sem organisti við Kristskirkju í Landakoti og sem aðstoðarorganisti í Hallgrímskirkju og Fella- og Hólakirkju. Orgeltónleikar í Langholtskirkju Eyþór Franzson Wechner Kór Menntaskólans við Hamrahlíð fer í tónleika- ferðalag á Suðausturlandi í dag sem stendur til mánu- dags. Í dag kl. 15 syngur kórinn í félagsheimilinu Hofgarði í Öræfum en á morgun heldur kórinn tvenna tónleika, í Hafn- arkirkju í Hornafirði kl. 14 og í Djúpavogskirkju kl. 20 auk þess sem hann syngur á Heilbrigðisstofnun Suður- lands, Hornafirði. Á mánu- dag heldur kórinn þrenna tónleika, skólatónleika fyrir nemendur í Grunnskóla Hornafjarðar kl. 10 í Hafnarkirkju og kl. 11:30 fyr- ir Framhaldsskólann í A-Skaftafellssýslu. Þá heldur kórinn tónleika í Skógum kl. 20. Efnisskráin er svo fjölbreytt að kórinn flytur ólík verk eftir því hvort um er að ræða t.d. kirkjutónleika eða skólatónleika. Aðgangur er ókeypis á alla tónleikana. Á þessari vorönn er Kór Menntaskólans við Hamrahlíð skipaður 83 nemendum á aldrinum 16-20 ára. Stjórnandi kórsins er Þor- gerður Ingólfsdóttir. Tónleikaferðalag um Suðausturland Stjórnandinn Þorgerður Ingólfsdóttir. Morgunblaðið/Kristinn Billy Elliot (Stóra sviðið) Lau 11/4 kl. 19:00 aukas. Sun 3/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00 Sun 12/4 kl. 19:00 13.k Þri 5/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00 Fim 16/4 kl. 19:00 14.k Mið 6/5 kl. 19:00 Fös 22/5 kl. 19:00 Fös 17/4 kl. 19:00 15.k Fim 7/5 kl. 19:00 Mán 25/5 kl. 19:00 Sun 19/4 kl. 19:00 aukas. Fös 8/5 kl. 19:00 Mið 27/5 kl. 19:00 Mið 22/4 kl. 19:00 Lau 9/5 kl. 19:00 Fös 29/5 kl. 19:00 Fim 23/4 kl. 19:00 Sun 10/5 kl. 19:00 Lau 30/5 kl. 19:00 Fös 24/4 kl. 19:00 Mið 13/5 kl. 19:00 Sun 31/5 kl. 19:00 Sun 26/4 kl. 19:00 Fim 14/5 kl. 19:00 Mið 3/6 kl. 19:00 Mið 29/4 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00 Fim 30/4 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Lína langsokkur (Stóra sviðið) Lau 11/4 kl. 13:00 Lau 18/4 kl. 13:00 Lau 25/4 kl. 13:00 Sun 12/4 kl. 13:00 Sun 19/4 kl. 13:00 Sun 26/4 kl. 13:00 Síðustu sýningar leikársins Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið) Lau 11/4 kl. 20:00 7.k. Fim 23/4 kl. 20:00 13.k Fös 8/5 kl. 20:00 19.k Sun 12/4 kl. 20:00 8.k. Fös 24/4 kl. 20:00 aukas. Lau 9/5 kl. 20:00 20.k. Þri 14/4 kl. 20:00 aukas. Sun 26/4 kl. 20:00 14.k Sun 10/5 kl. 20:00 21.k Mið 15/4 kl. 20:00 9.k Mið 29/4 kl. 20:00 15.k Þri 12/5 kl. 20:00 aukas. Fim 16/4 kl. 20:00 10.k Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Mið 13/5 kl. 20:00 22.k. Fös 17/4 kl. 20:00 11.k Sun 3/5 kl. 20:00 17.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k. Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Mið 6/5 kl. 20:00 aukas. Fös 15/5 kl. 20:00 aukas. Mið 22/4 kl. 20:00 12.k Fim 7/5 kl. 20:00 18.k Sun 17/5 kl. 20:00 Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 18/4 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni Beint í æð (Stóra sviðið) Lau 18/4 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Sýningum fer fækkandi Hystory (Litla sviðið) Lau 11/4 kl. 20:00 3.k. Fös 24/4 kl. 20:00 5.k. Fim 14/5 kl. 20:00 Sun 12/4 kl. 20:00 4.k. Mið 29/4 kl. 20:00 6.k. Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Fös 8/5 kl. 20:00 Nýtt íslenskt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl. leikhusid.is Konan við 1000° – ★★★★ „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“ – Morgunblaðið HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS Fjalla - Eyvindur og Halla (Stóra sviðið) Lau 11/4 kl. 19:30 6.sýn Fös 17/4 kl. 19:30 8.sýn Fös 24/4 kl. 19:30 10.sýn Fim 16/4 kl. 19:30 7.sýn Lau 18/4 kl. 19:30 9.sýn Lau 25/4 kl. 19:30 11.sýn Eitt magnaðasta verk íslenskra leikbókmennta í uppsetningu Stefan Metz. Sjálfstætt fólk - hetjusaga (Stóra sviðið) Sun 19/4 kl. 19:30 Aukas. Allra síðasta aukasýning. Segulsvið (Kassinn) Lau 11/4 kl. 19:30 8.sýn Fös 17/4 kl. 19:30 9.sýn Lau 18/4 kl. 19:30 10.sýn Nýtt leikverk eftir Sigurð Pálsson Konan við 1000° (Stóra sviðið) Sun 12/4 kl. 19:30 Aukas. Allra síðasta aukasýning. Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan) Sun 12/4 kl. 13:30 Sun 19/4 kl. 13:30 Sun 12/4 kl. 15:00 Sun 19/4 kl. 15:00 Kuggur og félagar geysast nú upp á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn! Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is Carroll: Berserkur (Mörg rými Tjarnarbíós) Lau 11/4 kl. 20:00 Þri 14/4 kl. 20:00 Fim 16/4 kl. 20:00 Sun 12/4 kl. 20:00 Mið 15/4 kl. 20:00 Fös 17/4 kl. 20:00 Macho Man Saving History (Salurinn) Sun 3/5 kl. 20:00 Sviðslistahátíð Assitej (Salurinn) Þri 21/4 kl. 17:00 Fim 23/4 kl. 12:00 Lau 25/4 kl. 13:00 Mið 22/4 kl. 9:30 Fim 23/4 kl. 15:00 Lau 25/4 kl. 16:00 Mið 22/4 kl. 17:00 Fös 24/4 kl. 9:00 Lau 25/4 kl. 18:00 Síðbúin rannsókn (Aðalsalur) Mán 11/5 kl. 20:00 Þri 12/5 kl. 20:00 Fös 15/5 kl. 20:00 Both Sitting Duet og Body Not Fit For Purpose (Salurinn) Lau 30/5 kl. 20:00 The Border (Salurinn) Mán 18/5 kl. 20:00 Þri 19/5 kl. 20:00 Endatafl (Salurinn) Fös 1/5 kl. 20:00 Fim 14/5 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00 Fim 7/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00 Fös 8/5 kl. 20:00 Sun 24/5 kl. 20:00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.