Morgunblaðið - 11.04.2015, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.04.2015, Blaðsíða 16
allan sólarhringinn svo vikum skipti. Mjög erfitt tíðarfar einkenndi ver- tíðina og sérkennileg hegðun loðn- unnar sem m.a. veiddist fyrir vest- anverðu Norðurlandi í janúar sem ekki hefur gerst áður. Heimaey VE er aflahæsta Eyjaskipið með rúm 25.000 tonn.    Systurnar Anna Dóra og Jó- hanna Jóhannsdætur stofnuðu Hressó-líkamsræktarstöð fyrir 20 árum og eru enn við stjórnvölinn á skútunni. Hægt en örugglega hefur þeim tekist að bæta við framboð í þjálfun og í dag eru tímar í spinning, crossfit, jóga í sérsal, almennri leik- fimi auk einkaþjálfunar. Það eiga margir framtaki þeirra mikið að þakka en þær eru líka þakklátar fyr- ir þann stuðning sem þær hafa feng- ið og alla viðskiptavinina sem haldið hafa tryggð við þær í gegnum árin. Þær minntust afmælisins með myndarlegri árshátíð. Núna sýnir Leikfélag Vest- mannaeyja hinn geysivinsæla söng- leik Litlu Hryllingsbúðina sem Stef- án Benedikt Vilhelmsson leikstýrir. Viðtökur hafa verið mjög góðar en aðalleikendur eru Ævar Örn Krist- insson, Sindri Freyr Ragnarsson, Ágústa Halldórsdóttir og Ólafur Freyr Ólafsson.    Í vetur náðu nemendur Fram- haldsskólans í Vestmannaeyjum öðru sæti í Boxinu, keppni sem Sam- tök iðnaðarins, Háskólinn í Reykja- vík og Samband íslenskra fram- haldsskólanema stóðu að. Markmið keppninnar er að kynna og vekja áhuga á tækni, verk- og tækninámi og störfum í iðnaði. Annar hópur frá skólanum varð svo í öðru sæti í Pet- roChallenge-olíuborunarverkefninu sem er alþjóðlegt og fór fram í London. Þar sigraði Noregur en í Boxinu var það MR. Morgunblaðið/Ómar Garðarsson Handbolti Konurnar í meistaraflokki í handbolta eru komnar í undanúrslit og allir yngri flokkar ÍBV einnig. Loðna og handbolti eru stóru málin í Eyjum ÚR BÆJARLÍFINU Ómar Garðarsson Vestmannaeyjum Loðna og handbolti eru stóru málin í Eyjum. Þegar þetta er skrifað er ekki komið í ljós hvort Íslands- og bik- armeistarar ÍBV eiga möguleika á að komast í undanúrslit Íslands- meistaramótsins í handbolta. Töp- uðu fyrsta leiknum gegn Aftureld- ingu á útivelli og hafi Eyjamenn ekki náð að svara fyrir sig í gærkvöldi eru þeir komnir í sumarfrí. En lífið hefur að stórum hluta verið hand- bolti í vetur hjá Eyjamönnum. Kon- urnar í meistaraflokki komnar í und- anúrslit og allir yngri flokkar ÍBV í úrslitum.    Nú er lokið einni af betri loðnu- vertíðum seinni ára og losar heildar- afli Eyjaskipa 100.000 tonn. Mikil vinna var í landi og unnið á vöktum 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2015 Evrópusambandið mun ekki sækjast eftir því að rifta samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og breyt- ingar á honum eru ekki á dagskrá. Finnist mönnum samningurinn ekki lengur virka sem skyldi eða aðilar standi ekki við heit sín gæti hann þó aftur komist til umræðu. Þetta segir Andreas Schwab, Evrópu- þingmaður sem unnið hefur að skýrslu um EES- samninginn og samskipti ESB og Sviss fyrir þingið. Schwab hélt erindi á opnum fundi um ástand og áskoranir EES á egum Alþjóðamálstofnunar Háskóla Ís- lands í gær. „EES-samningurinn er mjög sér- stakur samningur sem ESB myndi líklega aldrei gera aftur. Hann var hins vegar gerður og við höldum okkur við það sem við höfum lofað. Við eigum von á því að aðildarríkin að honum, þar á meðal Ísland, haldi áfram að styðja meginlínur hans,“ segir Schwab. Kostirnir minnki Í skýrslu sinni fjallar Schwab um vandamál sem hljótast af því að að- ilar að samningnum innleiði reglur ESB ekki nógu hratt. „EES og ESB byggjast á þeim grunni að við trúum því að sameig- inlegar reglur geri okkur sterkari saman. Þess vegna þurfa báðir aðilar að halda sig við skuldbindingar sem þeir hafa tekið á sig. Á þessu stigi eru viss vandamál með innleiðingu reglnanna innan EES-ríkjanna og það er eitthvað sem verður metið á gagnrýninn hátt í skýrslu minni.“ Þetta segir hann þó ekki vera vandamál sem sé eingöngu bundið við EES-ríkin heldur hafi aðildar- lönd Evrópusambandsins sjálfs ver- ið of lengi að leiða reglur þess í landslög. „Þetta er almennt vandamál en við verðum að leysa það því ef við gerum það ekki þá verða kostir sameigin- lega markaðarins mun minni. Þá gætu borgararnir spurt sig til hvers var af stað farið. Það er raunveruleg nauðsyn til að gera flýta innleiðingu innan ESB en einnig inn EES- ríkjanna,“ segir Evrópuþingmaður- inn. kjartan@mbl.is Stendur ekki til að breyta EES  Aðilar EES og aðildarríki ESB þurfa að innleiða sameiginlegar reglur hraðar Morgunblaðið/Golli ESB Ríki þurfa að innleiða reglur ESB hraðar, að sögn Schwab. Hindranir í innleiðingu » Schwab er þýskur og hefur setið á Evrópuþinginu fyrir hóp kristilegra demókrata frá árinu 2004. » Hann vinnur nú að skýrslu til þingsins um hindranir í inn- leiðingu reglna ESB í tengslum við EES-samninginn. Andreas Schwab Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hafrannsóknastofnun telur að hægt sé að leyfa allt að 20 þúsund tonna eldi í sjókvíum í Arnarfirði og 10 þús- und tonn í Dýrafirði. Er þetta fyrsta mat á burðarþoli sem gert er eftir breytingar á lögum um fiskeldi sem samþykktar voru í fyrra. Í lögunum er kveðið á um að burð- arþolsmat Hafrannsóknarstofnunar þurfi að fylgja umsóknum fiskeldis- fyrirtækja um rekstrarleyfi fyrir sjó- kvíaeldi. Metið er þol svæða til að taka við auknu lífrænu álagi, án þess að það hafi óæskilegt áhrif á lífríkið. Styrkur til Berufjarðar Fiskeldisfyrirtækjum er gert að greiða gjald í Umhverfissjóð sjókvía- eldis og er honum ætlað að standa undir rannsóknum vegna mats á burðarþoli. Sjóðurinn hefur úthlutað fyrstu styrkjum og fékk Hafrann- sóknastofnun styrk til að rannsaka burðaþol Berufjarðar. Það verður unnið á næstu mánuðum. Til að flýta þessu starfi fékkst á síð- asta ári styrkur úr AVS-rannsóknar- sjóði sjávarútvegs og Þróunarsjóði fiskeldis til að meta burðarþol Arn- arfjarðar þar sem eitt fyrirtæki er með fiskeldi og áformar stækkun og tvö önnur eru með áform um stórfellt sjókvíaeldi. Bráðabirgðaniðurstöður benda til þess að fjörðurinn þoli 20 þúsund tonna eldi. Jafnframt er farið fram á að áfram verði fylgst með súr- efnismagni í firðinum og fleiri þátt- um. Sólveig Rósa Ólafsdóttir, sviðs- stjóri sjó- og vistfræðisviðs Hafrannsóknastofnunar, tekur fram að enn sé unnið að endanlegum rann- sóknarskýrslum. Í Dýrafirði er einkum stundað eldi á regnbogasilungi. Telur Hafró unnt að leyfa allt að 10 þúsund tonna eldi á ári. Í báðum tilvikum er tekið fram að endanleg burðaþolsmörk fyrir ákveðna firði eða svæði verði seint gefin út. Vakta þurfi eldið til að fá raunveruleg áhrif starfseminnar fram og það skapi grunn til endur- skoðunar matsins. Unnið í fleiri fjörðum Hafrannsóknastofnun vinnur einn- ig að mati á burðarþoli Patreksfjarð- ar og Tálknafjarðar en þar er þegar töluvert sjókvíaeldi. Það er unnið samkvæmt gögnum sem safnað var í rannsókn sem unnin var í samvinnu við heimamenn. Hafrannsóknastofnun er ætlað að gera slíkar rannsóknir á þeim svæð- um sem sjókvíaeldi er heimilað. Sól- veig telur að það taki nokkur ár að ljúka verkinu. Arnarfjörður ber 20 þúsund tonna eldi  Fyrsta burðarþolið metið samkvæmt nýjum lögum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sjókvíar Burðarþol svæða um allt land verður metið á næstu árum. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. Verð í tveggja manna herbergi kr.98.900,- Innifalið: Flug, skattar, hótel með morgunmat, íslensk fararstjórn og rúta til og frá flugvelli. Trans Atlantic sérhæfir sig í ferðum til Eystrasaltslanda. Upplýsingar í síma 588 8900 Úrval veitingahúsa, verslana (m.a.H&M) og kaffihúsa. Næturlíf eins og það gerist best. Riga Lettlandi Stórfengleg borg Beint flug frá Keflavík og Akureyri 14.-17. maí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.