Morgunblaðið - 11.04.2015, Síða 22

Morgunblaðið - 11.04.2015, Síða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2015 SÉRSTAKAR ÞARFIR. EINFALDAR LAUSNIR. FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST. Dreifing: HÁR EHF s. 568 8305 | har@har.is REDKEN Iceland á vertu vinur SÖLUSTAÐIR REDKEN FAGFÓLK HJÁ DÚDDA HÖFUÐLAUSNIR KÚLTÚRA LABELLA MEDULLA MENSÝ N-HÁRSTOFA OZIO PAPILLA SALON VEH SCALA SENTER REDKEN hárvörurnar gera hárið heilbrigt, fallegt og fyllir það lífi Blonde Idol FYRIR LJÓST HÁR All Soft FYRIR ÞURRT HÁR Curvaceous FYRIR KRULLAÐ HÁR Smooth Lock FYRIR ÚFIÐ HÁR Color Extend Magnetics FYRIR LITAÐ HÁR Body Full FYRIR FÍNGERT HÁR Diamond Oil FYRIR LÍFLAUST/ SKEMMT HÁR High shine FYRIR LÍFLAUST/ FÍNGERT HÁR Cerafill FYRIR HÁRLOS OG ÞUNNT HÁR Extreme FYRIR SKEMMT HÁR Color Extend Sun FYRIR HÁR Í SÓL OG SJÓ Clear Moisture FYRIR ÓLITAÐ HÁR Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á SVIÐSLJÓS Margrét Kr. Sigurðardóttir margret@mbl.is Mikill vöxtur er í útgefnum fyrir- framgreiddum greiðslukortum hjá fyrirtækinu iKort en 19% vöxtur hefur verið að meðaltali á milli mán- aða síðustu 12 mánuði. Fyrsta iKort- ið kom á markað í nóvember 2013 og eru nú um 3.300 slík kort í notkun samkvæmt upplýsingum frá fyrir- tækinu. „Þetta er sú tegund korta í heiminum sem vex hvað hraðast,“ segir Ingólfur Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri og einn eigenda iKorta. Aðrir eigendur eru Viktor Ólason og Kjartan Gunnarsson. Ekki í gegnum bankakerfið IKortin eru ýmist gefin út á nafn eða nafnlaus eftir því sem viðskipta- vinir velja. Ingólfur segir að það séu margir ánægðir með að geta haft þann valmöguleika að þurfa ekki að fara í gegnum bankakerfið með hefð- bundin kort. En hver er ástæðan fyrir þessari aukningu? „Við erum með mjög fjölbreyttan viðskipta- vinahóp sem er ánægður með að geta haft kort út af fyrir sig þar sem ekki þarf að kanna fjárhagslegar upplýsingar þeirra sem fá kortin og viðskiptin eru ekki skráð á kenni- tölu. Það kom okkur á óvart hversu margir eru óánægðir með bankana og við höfum notið góðs af því. Sumir nota kortin þannig að þeir leggja launin sín á kortið og skuldfæra af því með boðgreiðslum öll útgjöld heimilisins.“ Kortin eru gefin út af Prepaid Financial Services (PFS) í Bretlandi og lítur skilmálum MasterCard um útgáfu alþjóðlegra korta og tiltekn- um staðli um kortaviðskipti. Útgáfan er undir eftirliti breska fjármálaeft- irlitsins og lýtur lögum Evrópusam- bandsins um peningaþvætti. Fyrir nokkru gerðu iKort og Íslandspóst- ur samning um að hægt væri að nálgast kortin á öllum afgreiðslu- stöðum Íslandspósts auk þess sem hægt er að leggja inn á kortin þar. Erlendis er búist við 22% vexti Þessi mikli vöxtur er í takti við það sem gerist erlendis í fjölgun þeirra sem vilja nota fyrirframgreidd greiðslukort. Samkvæmt Master- Card má búast við um 22% vexti í slíkum kortum á alþjóðavísu til árs- ins 2017. Velta í fyrirframgreiddum kortum var 210 milljarðar dollara á árinu 2010. Búist er við að veltan nærri fjórfaldist og verði orðin 822 milljarðar dollara á árinu 2017. Vin- sældir fyrirframgreiddu kortanna er helst rakin til þess að margir vilja vera utan hins hefðbundna banka- kerfis, notkunin sé gagnsæ og að það sé hagkvæmt að nota kortið í stað seðla. Auk þess eru margir sem nýta kortin í tiltekin útgjöld eins og ferða- lög og innkaup á netinu. Vöxtur í greiðslukortum utan bankakerfisins Morgunblaðið/Golli Kortanotkun Margir nota fyrirframgreidd kort til að gera netinnkaup.  3.300 iKort komin í notkun  19% vöxtur milli mánaða síðustu tólf mánuði „Við kaup á félaginu var ávallt stefnt að því að gera það skráning- arhæft eins fljótt og mögulegt væri,“ segir Jón Diðrik. Spurður hvort nýtt hlutafé verði gefið út segir hann að farið verði yfir til- lögur ráðgjafa en ákvörðunin liggi svo hjá hluthöfum, hvort þeir hygg- ist selja eða auka sinn hlut. „Nú eru bara ráðgjafarnir komnir inn í þetta hjá okkur og munu leggja fram sínar tillögur. Nú er félagið komið það langt í breytingarferli að við getum gert það skráning- arhæft. Í framhaldinu kemur end- anleg niðurstaða og ákvörðun,“ segir Jón Diðrik. vidar@mbl.is Skeljungur hyggst skrá hlutabréf félagsins á markað og hefur ráðið Íslandsbanka og Arion banka til að gera félagið tilbúið til skráningar og undirbúa hlutfjárútboð. Jón Dið- rik Jónsson, stjórnarformaður Skeljungs, segir að endanleg ákvörðun um hvenær bréfin verði sett á markað liggi ekki fyrir. „Ís- landsbanki mun vinna að undirbún- ingi og ef af skráningu verður mun Arion banki sjá um sjálfan sölufer- ilinn,“ segir Jón Diðrik. Hann segir að málið verði unnið fram á haust en ómögulegt sé að segja nákvæmlega til um það hve- nær félagið verður skráningarhæft. Skeljungur tekur stefnuna á markað  Íslandsbanki og Arion til ráðgjafar Morgunblaðið/Júlíus Á markað Skeljungur stefnir að skráningu félagsins á hlutabréfamarkað. ● Gistinætur á hótelum voru í febrúar síðastliðnum194.800 talsins og fjölgaði því um 21% miðað við febrúar árið á undan. Gistinætur erlendra gesta voru 87% af heildarfjölda gistinátta í mán- uðinum en þeim fjölgaði um 25% frá viðmiðunartímabili síðasta árs. Fjöldi gistinátta Íslendinga hélst svipaður milli ára. Gistinóttum á hótelum fjölgaði mikið í febrúar                                    ! !! "! "!" #"" $% ##" !% $" $ &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 % !  !"% %# "! #"$ $ #  !!$ $% !% %"  " ! $ !$$ ## %" #%# $! $ $ $%$ Guðný Rósa Þor- varðardóttir hef- ur verið ráðin framkvæmda- stjóri ein- staklingssviðs hjá N1 og mun hún jafnframt taka sæti í fram- kvæmdastjórn fé- lagsins. Hún tek- ur við af Ingunni Sveinsdóttur sem hætti hjá fyrir- tækinu í byrjun síðasta mánaðar. Guðný Rósa hefur verið fram- kvæmdastjóri Parlogis frá árinu 2009. Við starfi Guðnýjar Rósu hjá Par- logis tekur Hálfdán Gunnarsson en hann hefur verið forstöðumaður inn- kaupa- og rekstrarþjónustu Orku- veitu Reykjavíkur frá árinu 2009. Guðný Rósa fer til N1 Guðný Rósa Þorvarðardóttir  Hálfdán Gunnarsson tekur við Parlogis ● Koma þarf á fót sérstakri starfsein- ingu innan stjórnsýslunnar sem fer með yfirstjórn í upplýsingatæknimálum og markar stefnu í málaflokknum, sam- kvæmt nýrri greiningu á upplýsinga- kerfum ríkisstofnana sem Capacent vann fyrir fjármála- og efnahagsráðu- neytið. Fram kemur í greiningu Capacent að auka þurfi gagnasamskipti milli stofn- ana, m.a. með samnýtingu fjárfestingar í vefþjónustu. Huga eigi að sameig- inlegum rekstri upplýsingakerfa ríkisins og móta stefnu um tölvuský, sem felur í sér geymslu gagna í netþjóni. Í fjármála- og efnahagsráðuneytinu hefur verið komið á fót ráðgjafarhópi um upplýsingatæknimál sem hefur m.a. það hlutverk að vinna úr skýrslunni. Verður hafist handa við að skoða sam- eiginleg kaup ríkisins á tölvubúnaði í samræmi við nýjar áherslur í inn- kaupum ríkisins. Þörf á starfseiningu í upplýsingatæknimálum Stjórnsýslan þarf skýrari UT-stefnu. STUTTAR FRÉTTIR ...

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.