Morgunblaðið - 11.04.2015, Síða 37

Morgunblaðið - 11.04.2015, Síða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2015 ✝ Siguveig Jónas-dóttir fæddist 2. júní 1949 á Sjúkrahúsinu á Húsavík. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík 2. apríl 2015. Foreldrar henn- ar voru Rannveig Júlíusdóttir, hús- móðir á Húsavík, f. 30. apríl 1923, d. 15. desember 1955, og Jónas Sigurjónsson, sjó- maður og verkamaður frá Flatey á Skjálfanda, f. 27. desember 1918, d. 29. janúar 1987. Sig- urveig átti einn bróður, Júlíus Jónasson, vélstjóra á Húsavík, f. 11. nóvember 1947, giftur Krist- ínu Sigurðardóttur verkakonu, f. 29. mars 1953. Sigurveig giftist 18. október 1969 Sigmundi Óla Eiríkssyni, starfsmanni Mjólkursamlagsins á Húsavík. Hann er f. 16. júní 1943 á Húsavík. Foreldrar Sig- mundar voru Anna Kristbjörg Frímannsdóttir, f. 30. apríl 1912, d. 22. október 1985, og Eiríkur Friðbjarnarson, f. 13. mars 1904, d. 22. nóvember 1970. Sigurveig og Sigmundur eignuðust tvo syni. 1. Jóhannes rafmagns- tæknifræðingur, búsettur í Eyja- firði, f. 12. júní 1969. Sambýlis- kona hans er Anna Ársælsdóttir bókari, f. 25. janúar 1971. Áður var Jóhannes giftur Sigrúnu Kjartansdóttur, starfsmanni í gæðaeftirliti, f. 24. október 1970. Þau eiga tvö börn a) Veigar Þór nemanda í Verkmenntaskól- anum á Akureyri, f. 23. janúar 1997 og b) Magneu Björt, f. 20. maí 2005. 2. Rúnar Hrafn, tækni- maður, búsettur í Noregi, f. 13. júlí 1974. Útför Sigurveigar fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 11. apríl 2015, og hefst athöfnin kl. 14. Ung að árum fór Sigurveig í fóstur til móðursystur sinn- ar, Guðrúnar Júl- íusdóttur húsfreyju, f. 6. maí 1913, d. 21. apríl 1988, og Jó- hannesar Helgason- ar bifreiðarstjóra frá Broddanesi við Steingrímsfjörð, f. 12. ágúst 1910, d. 8. apríl 2004. Sigurveig bjó allan sinn aldur á Húsavík. Hún tók gagnfræða- próf frá Gagnfræðaskóla Húsa- víkur og nam eitt ár við hús- mæðraskóla í Danmörku. Auk húsmóðurstarfa stundaði Sig- urveig ýmis störf á Húsavík. Hún vann í mörg ár hjá Kaupfélagi Þingeyinga, lengst af í söluskála Esso. Í dag verður Sigurveig, eða Veiga eins og hún var oftast köll- uð, lögð til hinstu hvílu. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að vera tengdadóttir hennar í hartnær 20 ár. Það var alltaf jafngott að koma til þeirra hjóna Veigu og Simma, fyrst á Uppsalaveginn og síðar á Álfhólinn. Hjartahlýjan og væntumþykjan einkenndi Veigu og ást hennar og stolt á barnabörnunum var óendanlegt. Minningarnar eru óteljandi og eru þær flestar tengdar þeim. Ófáar eru ferðirnar í berjamó rétt út fyrir bæinn eða veiðiferð- irnar með ömmu og afa þar sem amma Veiga sat stundum bara inni í bíl og prjónaði á meðan afi og börnin drógu spriklandi fisk á land. Stórt skarð hefur verið höggv- ið í litlu fjölskylduna og er það einlæg ósk mín að tíminn lækni hjartasár ástvina Veigu. Elsku Veiga, takk fyrir allt sem þú varst mér og börnunum mínum. Hvíl í friði. Til þín ég hugsa, staldra við. Sendi ljós og kveðju hlýja. Bjartar minningarnar lifa ævina á enda. (Hulda Ólafsdóttir) Sigrún Helga. Heimili er bústaður þar sem einstaklingur eða fjölskylda býr sér samastað með tilheyrandi húsgögnum og áhöldum. Hver manneskja hefur sinn persónu- leika og með honum gefur hún heimilinu svip og markar það sinni menningu oftast eftir áhugamálum, efnahag eða að- stæðum. Mágkona mín Sigurveig Jónasdóttir bjó seinustu árin að Álfhóli 3 ásamt eiginmanni sín- um, Sigmundi Eiríkssyni. Hún hefur nú kvatt okkur og við njót- um ekki lengur gestrisni hennar eða velvilja. Veiga var myndarleg húsmóð- ir og þau hjónin sköpuðu sér ein- staklega fallegt og snyrtilegt heimili. Þar eru málverk og myndir á veggjum. Í bókahillum eru bækur eftir okkar bestu rit- höfunda, innlenda sem erlenda og á náttborði Veigu voru alltaf nokkrar bækur því hún var sann- kallaður lestrarhestur og naut þess að ræða um innihald hverrar bókar við vini sína og ættingja. Veiga var mikil hannyrðakona og hafði prjónana sína eða útsaum gjarnan við höndina. Hún var vandvirk og prjónaði alltaf falleg- ar flíkur sem gaman var að eiga, því Veiga var gjafmild og vildi gjarnan gefa smáfólkinu eitthvað sem hún hafði sjálf unnið. Veiga var skemmtileg kona, glettin og glaðlynd að eðlisfari. Hún var sérstaklega gestrisin og til hennar var gott að koma. Hún bar fram kaffi og eitthvað gott með og veitingarnar voru alltaf góðar og þeim fylgdi ætíð sérstök hlýja og góðvild sem svo sann- arlega var Veigu í blóð borin. Hún var ákveðin og átti gott með að tjá skoðanir sínar. Hún var fróðleiksfús og lét sig gjarnan varða málefni samfélagsins, hlut- skipti Húsvíkinga og velferð þeirra sem að henni snéru. Syn- irnir tveir, þeir Jóhannes og Rún- ar, voru henni kærir og svo komu barnabörnin þau Veigar Þór og Magnea Björt, af þeim var hún ætíð stolt. Hún naut þess að fylgjast með þeim og segja frá af- rekum þeirra. Það var sama hvar Veiga og Simmi bjuggu, hjá þeim var alltaf gestkvæmt. Þangað komu vinir og vandamenn og þau nutu heim- sóknanna. Fyrir um tuttugu ár- um kom samt óvelkominn gestur á heimili þeirra. Hann settist þar að og stuggaði burtu glettninni og glaðværðinni. Þessi vágestur hefur nú numið Veigu á brott með sér af okkar tilverustigi. Hennar verður sárt saknað og líf- ið verður öðruvísi þegar hún er ekki á meðal vor. Allir sem til þekkja hafa séð hversu vel Simmi hefur staðið við hlið eiginkonu sinnar í gegnum veikindi hennar. Ég votta Simma, Jóa og Rúnari og öðrum aðstandendum innilega samúð mína. Kristín Sigurðardóttir. Hinn 2. apríl síðastliðinn kvaddi vinkona mín Sigurveig Jónasdóttir þennan heim langt um aldur fram. Veiga, eins og við vinir hennar kölluðum hana, var búin að glíma við erfið veikindi í langan tíma. Veiga missti móður sína mjög ung og var alin upp af móðursyst- ur sinni, Guðrúnu Júlíusdóttur, og manni hennar Jóhannesi Helgasyni sem reyndust henni afar vel. Kynni okkar Veigu hóf- ust stuttu eftir að ég fluttist til Húsavíkur fjögurra ára gömul. Veiga átti rautt tvíhjól sem var algert nýnæmi fyrir svona sveita- stelpu sem ég var. Ég fór í kennslustund hjá Veigu og lærði að hjóla og þar með hófst okkar vinátta. Við urðum samferða grunnskólann á enda, fórum á stúkufundi og síðar komu Bítl- arnir og sveitaböllin. Í minning- unni var alltaf sólskin. Eftir grunnskóla fórum við vinkonurnar til Danmerkur í hús- stjórnarskóla. Þar líkaði okkur vistin vel og vildum því ekki fara heim að skólavist lokinni. Réðum við okkur í vinnu á hóteli í Kaup- mannahöfn og komum heim að hausti. Eftir heimkomuna tóku við önnur verkefni hjá okkur vinkon- unum. Ég fór suður en Veiga varð eftir á Húsavík, hún kynnt- ist Simma sínum sem var mikið gæfuspor. Saman eignuðust þau synina Jóhannes og Rúnar Hrafn. Þrátt fyrir fjarlægðina hélt vinátta okkar áfram. Elsku Simmi, Rúnar, Jói og fjölskylda, við Óli sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Anna Finnsdóttir. Þegar við fluttum á Uppsala- veginn 1972 voru Veiga, Simmi og Jói þegar búin að koma sér fyrir í næsta húsi. Auðvitað var ekkert sjálfgefið að það yrði sam- gangur, hvað þá vinátta. En það fór nú samt svo. Þarna mætti okkur vingjarnlegt, opið og traust fólk. Húsfreyjan þar fremst í flokki að sjálfsögðu. Þannig virkar þetta. Böndin treystust enn þegar jafnaldrarnir, Halla Rún okkar megin og Rúnar Hrafn hjá þeim, bættust í hópinn. Opin hús á báða vegu fyrir börnin, sameiginlegar útilegur og hin stórkostlega hóp- ferð fjölskyldnanna til Danmerk- ur 1981. Að ótöldum öllum leikj- unum okkar barnanna, hversdagsspjalli foreldranna og kaffifundum mæðranna. Þannig virkar þetta. Við munum öll eftir hinni kyrru, hlýju nærveru Veigu. Vel- vilja og fallegri návist. Þar leið okkur öllum vel. Við heyrum rödd hennar. Síðar kom að því að dást að æðruleysi og þreki hennar við að glíma við veikindi, laga sig að breyttum aðstæðum, halda áfram. Halda áfram að vera Veiga. Styrkur hennar í því stríði er til að dást að, muna eftir og taka sér til fyrirmyndar. Nú er því lokið. Eftir stöndum við hvert með annað og minningarnar. Þannig virkar þetta. Fallegt orð, „nágrannar“. Fólkið sem stendur okkur nær. Þau sem hafa þýðingu. Fólkið sem við finnum fyrir þegar það fer. Þannig er Veiga fyrir okkur, fjölskyldunni í næsta húsi. Elsku Simmi, Jói, Rúnar og fjölskyldur. Samúðarkveðjur til ykkar allra yfir fallega hrauns- tallinn milli Uppsalavegar 28 og 30. Tryggvi, Halla, Hjördís og Þorgeir. Við kveðjum þig Veiga í kvöld kynni við þökkum með trega söknuður okkar nú öll hefur völd er burtu þú hverfur til ókunnra vega. Við biðjum að guð vel þig geymi gefi þér bústað því liðinn er dagur þegar burt þú ert horfin úr heimi huggunin okkar er draumur svo fagur. Draumur að eiga þig alltaf í huga eiga í minningu mynd sem er tær að muna þig Veiga, okkur verður að duga alltaf þú varst okkur indæl og kær. Elsku Simmi, Rúnar, Jói og fjölskylda, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hvíl í friði, elsku vinkona, Kristín og Svana. Sigurveig Jónasdóttir Það eru þrjú gildi sem eru mikilvæg í umgengni okkar við annað fólk: heiðarleiki, virðing og umburðarlyndi. Okkur tekst misvel að tileinka okkur þessa góðu kosti en flest erum við að reyna – höfum fyrirheit um að lifa lífinu með þau að leiðarljósi. Tengdapabbi lifði svo sannar- lega lífinu samkvæmt þessum gildum. Líkt og margir hafði hann hinsvegar svo sterkar skoðanir á fólki og málefnum, auk þess að hafa ríkt vestfirskt skap, að það kom fyrir að það braut á. Heið- arleikinn var hinsvegar klappaður svo rammlega í sál hans að sá klettur stóð af sér öll áhlaup. Þessi gildishlaðna tilvera varð hins vegar uppspretta heimspeki- legra kappræðna sem gleymast seint og fylla mig söknuði eftir þeirri íþrótt. Oftar en ekki varð maður undir en fór jafnan frá borði betri og með ríkari réttlæt- iskennd. Sumir sögðu að pólitíkin þvældist fyrir Gunnari – aldrei gat ég samþykkt það. Gunnar var einfaldlega gegnheill jafnaðar- maður sem lá aldrei á skoðunum sínum um samfélagsmál í sinni víðustu mynd. Gunnar varð fyrir því áfalli að fá heilablóðfall fyrir rétt um 10 ár- um. Fyrst um sinn var hinn stað- fasti jafnaðarmaður samur við sig Gunnar Herbert Jónsson ✝ Gunnar Her-bert Jónsson fæddist 25. desem- ber 1927 á Ísafirði og lést á Heilbrigð- isstofnun Vest- fjarða á Ísafirði 17. mars 2015. Útför Gunnars fór fram 4. apríl 2015. og barðist fyrir bata sínum af sama eld- móði og öðrum rétt- lætismálum. Hin síð- ari ár hallaði undan fæti og smátt og smátt fór hann leiða hjá sér allt dægur- þras enda er það til að æra fullhrausta menn nú á dögum. Árin sem Gunnar átti ólifuð liðu með þeirri reisn sem honum sæmdi og liðu með Lillu, samferðakonu sína í farsælu hjónabandi, sér við hlið til síðasta dags. Gunnar er eiginlega minn að- almentor í lífinu – eða a.m.k. sá skemmtilegasti. Það voru ótal stundirnar sem við brölluðum saman. Ýmist var það í leik og ekki síður í starfi. Hjálpsemi var honum svo eðlislæg að ég gerði mér fljótlega grein fyrir því að ég gæti aldrei endurgoldið hana. Þær eru ógleymanlegar allar þær stundir sem við áttu saman, t.d. við að breyta gömlu kúabúi í íbúð- arhús fyrir dóttur hans og fjöl- skyldu. Ekki kom hann með úr- tölur þegar óskað var eftir ráðleggingum um þá gölnu hug- mynd að kaupa mannvirkið í upp- hafi. Vissulega spillti ekki að mannvirkið er eitt af mörgum minnismerkjum Ísafjarðarkrat- anna. Gunnar var fagurkeri fram í fingurgóma og naut lista af ein- lægni. Hann gat verið svo hrif- næmur að þegar hann heyrði fal- lega tónlist eða snjallan texta varð hann gagntekinn. Hann flutti líka texta betur en flestir og var góður söngmaður með fallega bassa- rödd. Mér varð oft hugsað til þess að hans hilla í lífinu hefði átt að vera við listsköpun en það var sjaldnast í boði í innréttingum hans kynslóðar. Gunnar og Lilla eða Lilla og Gunnar er sú hrynjandi sem flest- um í stórum vinahópi er tömust. Samrýndari hjónum hef ég ekki kynnst. Lífsskoðanir þeirra fóru saman en það var kannski blæ- brigðamunur á framsetningu þeirra. Þetta fullkomna samspil hjóna verður til þess að erfitt er að fjalla um Gunnar án þess að eft- irlifandi lífsförunautur fái þar sinn sess. Það voru forréttindi að koma úr Laugarnesinu og fá að deila lífinu með svona fólki í blíðu og stríðu. Ég kveð vin með þökk í hjarta. Jón Sigurpálsson. Örlögin höguðu því svo að ég hafði verið sendur forsendingu vestur í „pólitíska útlegð“ til að stofna menntaskóla á Ísafirði 1970. Gallinn var sá, að umsókn- arfrestur um skólavist var liðinn. Ég auglýsti, en það sótti enginn um. Rétt fyrir lok vinnudags var knúið dyra. „Ung stúlka með háa landsprófseinkunn var þarna í fylgd með föður sínum …“, eins og segir í „Sögu Menntaskólans á Ísafirði“, eftir Björn Teitsson. Þannig byrjaði ævintýrið um MÍ. Þau sem knúðu dyra, voru Margrét Gunnarsdóttir, fyrsti nemandinn sem innritaður var í MÍ og brautskráð fjórum árum síðar sem dux scolae, og faðir hennar, Gunnar Jónsson, síðar kennari við skólann. Þetta var upphafið að vináttu okkar Gunn- ars. Gunnar var einn af „vitringun- um þremur“, eins og við Bryndís nefndum þá okkar í milli. Þeir heimsóttu okkur á Vesturgötuna (ásamt öðrum) og vildu fá okkur vestur til að gróðursetja hinn nýja skóla. Hinir tveir voru Jón Páll Halldórsson, forstjóri Norður- tangans (og nú margra bóka höf- undur) og Gunnlaugur Jónasson bóksali, kenndur við Sunnukór og Einherja. Þeir voru að leita að manni í brautryðjandastarfið „sem ætti rætur að rekja vestur“, eins og segir í sögu MÍ. Þeir voru gamlir nemendur Hannibals. Hann hafði flutt frum- varp til laga á Alþingi um stofnun menntaskóla á Ísafirði þegar árið 1946. Það tók aldarfjórðung að láta drauminn rætast. Margir lögðu hönd á plóginn. En það er á engan hallað þótt sagt sé að „vitr- ingarnir þrír“ voru fremstir meðal jafningja í að fylgja málinu eftir. Uppgjöf var ekki til í þeirra orða- bók. Hvað réði gerðum þeirra? Klíkuskapur eða mannþekking? Að fenginni reynslu þurfum við ekki að velkjast í vafa um svarið. Gunnar, vinur minn, Jónsson var jafnaðarmaður í húð og hár. Pólitískt skilgetið afkvæmi „Rauða bæjarins“, útskrifaður úr hinum þingeyska Samvinnuskóla og „Co-operative College“ enskra jafnaðarmanna. Starfsvettvangur hans fyrstu áratugina var á veg- um Kaupfélags Ísfirðinga, sem var hluti af hreyfingu vestfirskra jafnaðar- og samvinnumanna. Á áttunda áratugnum tókum við Gunnar höndum saman um að bæta fyrir mistök forvera okkar og sameina jafnaðarmenn á ný til áhrifa í bæjarstjórn Ísafjarðar. Þar var Gunnar bæjarfulltrúi okkar á uppgangsárum og við góðan orðstír. Í því starfi nutu mannkostir hans sín vel: Heiðar- leiki, skyldurækni og vandvirkni – með hæfilegum skammti af gam- ansemi í bland. Það gat engum dulist, sem eignaðist vináttu Gunnars og Jón- ínu, að milli þeirra lifðu ástir sam- lyndra hjóna, í meira en 60 ár. Toppiði það! Reyndar finnst mér Gunnar, þegar ég hugsa til baka, alltaf hafa verið umvafinn kven- fólki. Það er af því að ég sá hann yfirleitt á góðra vina fundum, í góðu yfirlæti, með Jónínu, Mar- gréti og Elísabetu. Þær dekruðu við hann, og hann sá ekki sólina fyrir þeim. Á kveðjustundinni verður okk- ur Bryndísi hugsað til kvenna- skarans og Jóns Ottós, fjöl- skyldna þeirra, frændgarðs og vina, með hlýhug og þakklæti. Jón Baldvin. „Til Dýrafjarðar fórum við með fjör í stórum stíl í sterkum kassabíl.“ Mínar fyrstu minningar um góðan vin og skátabróður, Gunnar Jónsson, eru þær að hann var for- ingi okkar ylfinganna ásamt Gunnlaugi Jónassyni og stýrði söngvum, eins og þessum hér að ofan, og gáskafullum leikjum í gamla Skátaheimilinu við Mjallar- götu á Ísafirði. Þeir félagar voru góðir uppalendur ungra stráka. Þó að Skátaheimilið væri miðstöð- in þar sem söngvar og leikir voru æfðir, próf eins og sárfætlinga- prófið, fyrsta og önnur stjarna og ýmis sérpróf þreytt þá barst starfið út um víðan völl. Gengið var á fjöllin kringum Ísafjörð, keppt á skíðum í göngu, svigi og stökki á Seljalandsdal og farið í útilegur í skátaskálann Valhöll í Tungudal. Margir voru þreyttir er þangað var komið með þunga bakpoka sem innihéldu svefnpoka og nesti. En þreytan hvarf fljótt er sest var við arineldinn, drukkið kakó og sungið af hjartans lyst. Þá var Gunnar í essinu sínu að rífa upp stemninguna með söng og gamansögum. Kvöldin enduðu með magnaðri draugasögu. Á skátamóti í Dýrafirði ritstýrði hann mótsblaðinu „Trippinu“ sem sagði daglegar fréttir og skemmti skátunum með græskulausu gamni. Gunnar var einn þessara hæfi- leikaríku manna sem gaman var að kynnast og því urðu hlutverk hans í okkar góða bæ mjög fjöl- þætt. Margir muna hann eflaust sem „Gunnar í Kaupfélaginu eða Gunnar á Brunabót“. Kaupfélagið og Brunabótafélagið voru hans vinnustaðir. Félagsstörf hans voru þó ekki síður merk. Auk þess að vera virkur skáti alla tíð var hann góður leikari og söngvari og tók sem slíkur þátt í öflugu starfi Leikfélags Ísafjarðar og starfi ís- firsku kóranna. Var í sóknarnefnd Ísafjarðarkirkju, frímúrararegl- unni, og á tímabili umboðsmaður þess ágæta félags Loftleiða. Um árabil sat hann í bæjarstjórn Ísa- fjarðar og valdist til að vera for- ystumaður þar. Leiðir okkar Gunnars lágu saman víðar en í skátastarfi. Við völdumst ásamt fleirum til að hafa forystu um risaverkefni á Ísafirði. Það var að reisa hótel sem hæfði nútímakröfum. Ég var yngstur í hópnum sem hafði úr að spila broti af þeim fjármunum sem til þurfti. Verkefnið varði í heilan áratug og var erfiður brimróður allan tímann. Formennskan var í mínum höndum og þá var ómetan- legt að hafa mann eins og Gunnar Jónsson með sér í liði. Hann stóð sem klettur að baki mér þegar mest á reyndi. Duttu mér þá í hug hin fleygu orð: „Ber er hver að baki nema sér bróður eigi.“ Það var sárt að sjá þennan trausta vin ganga í gegnum lang- an veikindakafla síðustu æviárin en ég mun geyma með mér allar góðu minningarnar um hann. Ég lét syngja honum til heiðurs lagið Alouette á jólaskemmtun sem ég stýrði nýverið. Það lag kenndi hann okkur ungum strákum og var það án efa fyrsta frönskunám okkar allra. Því miður verð ég á fjarlægri strönd er hann leggur í sína hinstu ferð. Ég sendi Jónínu, hans kæru eiginkonu, börnum þeirra, barnabörnum og vensla- fólki öllu innilegar samúðarkveðj- ur. Kæri vinur, far þú sæll meira að starfa Guðs um geim. Ólafur Bjarni Halldórsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.