Morgunblaðið - 11.04.2015, Síða 42

Morgunblaðið - 11.04.2015, Síða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2015 HHrefna Pálsdóttir er sérfræðingur hjá Rannsóknum oggreiningu sem hafa aðsetur í Háskólanum í Reykjavík. Húner lýðheilsufræðingur að mennt og er í doktorsnámi að rannsaka kynjamun með áherslu á líðan og námsgengi drengja. Hrefna vinnur við að greina niðurstöður úr rannsóknum á ungu fólki. „Þetta eru spurningalistakannanir um hagi og líðan ásamt vímuefnanotkun unglinga. Við mælum árlega nemendur í 8. og 10. bekk, annað hvert ár nemendur í 5.-7. bekk og þriðja hvert ár 16 til 20 ára ungmenni. Það hefur náðst undraverður árangur í ölv- unardrykkju. Neyslan mælist í kringum 5%, þ.e. ölvunardrykkja síð- ustu 30 daga en var 42% í kringum 1998, meðal nemenda í 8.-10. bekk. Við mælum einnig íþrótta- og tómstundaiðkun og samskipti við vini, samverustundir foreldra og barna, ásamt fjölmörgum öðr- um þáttum. Mikilvægust er almenn líðan ungmennanna. Þetta eru flottir unglingar sem við eigum, en það sem ég hef áhyggjur af er skjánotkunin, að vera stöðugt í símanum. Utan vinnu þá reyni ég að vera dugleg að hreyfa mig, er að lyfta og reyni að gera það þrisvar til fjórum sinum í viku, ég eyði einnig miklum tíma með dætrum mínum tveimur og svo finnst mér skemmtilegt að hitta vini í spjall og góðan mat ásamt því að lesa góðar bækur þegar tími gefst til. Þetta eru gæðastundir.“ Hrefna ætlar að vera með dömuboð í kvöld. „Ég býð heim til mín hóp af skemmtilegum og flottum konum og gef þeim gott að borða og drekka.“ Hrefna Pálsdóttir er fertug í dag Ferming Hrefna ásamt dætrum sínum, Helgu Kristínu Sigurðar- dóttur, sem fermdist 28. mars sl., og Heklu Karlsdóttur 3 ára. Flott ungmenni sem við eigum Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Í dag, 11. apríl, er Jón Þ. Sveinsson, tækni- fræðingur og fyrrverandi forstjóri Stálvíkur hf., 90 ára gamall. Jón fæddist að Butru í Fljótshlíð en ólst upp að Uxahrygg í Rangárvallasýslu. Hann nam tækni- fræði í Köbenhavns Teknikum og í framhaldi stofnaði hann og rak skipasmíðastöðina Stál- vík þann tíma sem hún starfaði. Eiginkona Jóns er Þuríður Hjörleifsdóttir og eiga þau tvær dætur, tengdasyni og þrjú barnabörn. Jón fagnar afmælinu með fjöl- skyldu og vinum. Árnað heilla 90 ára F riðbert fæddist á Akur- eyri 11.4. 1965 en var þar aðeins í nokkra daga áður en hann fór til síns heima, sem þá var á Svalbarðströnd. Fyrstu sporin steig hann við Eyjafjörðinn en aðeins nokkurra ára gamall flutti hann til Reykjavíkur: „Við fluttum í Faxa- skjólið og ég ólst upp í Vestur- bænum. Það var góður staður til að slíta barnsskónum, næg leiksvæði og vinahópurinn þéttur. Þar kynntist ég líka skátastarfinu. Ég var virkur í Ægisbúum fram á unglingsár og var síðar virkur í starfi Íslenska Alpa- klúbbsins og Björgunarsveitinni Ing- ólfi.“ Friðbert fór hefðbundna leið Vest- urbæingsins í skólagöngu. Hóf náms- ferilinn í Melaskóla, síðan í unglinga- deildina í Hagaskóla, klassískt menntaskólanám, stundaði síðar nám við University of Wales í vörustjórn- un og flutningum, auk MBA náms hjá EIPM í Frakklandi. Fyrsta launaða vinnan var hins vegar úti á landi: „Ég fékk sumar- vinnu í fiski á Suðureyri við Súganda- fjörð þegar ég var 12 ára og bjó hjá ömmu minni sem var ómetanlegt og frábær tími. Þar fékkst ég við ýmis störf hjá Fiskiðjunni Freyju, sem er því miður ekki lengur starfandi, en hún var drjúg sumarhýran sem fylgdi mér suður um haustið.“ Fiskurinn kom aftur við sögu hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur en því næst lá leiðin í sumarstarf hjá Lands- banka Íslands áður en hann gerðist uppvaskari og aðstoðarmaður í eld- húsi á Horninu og síðar næturvörður, bílstjóri og peningaflutningamaður hjá Iðnaðarbankanum í Lækjargötu. Enn eitt bankastarfið kom til sög- unnar þegar hann starfaði í erlendum viðskiptum hjá hinum nýstofnaða Ís- landsbanka, sem hafði orðið til við sameiningu Útvegsbanka Íslands, Iðnaðarbankans, Alþýðubankans og Verzlunarbanka Íslands. Friðbert hóf síðan störf hjá Víf- ilfelli 1990. Þar var hann síðast fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs: „Ég Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu hf. – 50 ára Heima er best Friðbert með konu sinni, Soffíu Huld og dætrunum tveimur, Sólveigu Önnu og Salvöru Sesselju. Frá Coce í bílabransa Í vinnuferð Friðbert í Þýskalandi í einni af sínum fjölda viðskiptaferða. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Nú færðu ab mjólk frá Mjólku í nýjum handhægum 1 lítra umbúðum. abmjólk í nýjum umbúðum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.