Húnavaka - 01.05.1987, Síða 32
30
HUNAVAKA
ég var unglingur, og þá spurði hann mikið eftir hvar Lögmannsholt
væri. Faðir minn gat bent honum á það hér milli Sveinsstaða og
Steinness. Matthías fór þangað og sá þar rústir sem eru þar jú og sagði
að þetta væru áreiðanlega tíðabúðarústir Þangbrandar prests. En um
þetta veit ég ekki annað. Þetta er á svipuðum slóðum og bardaginn var
háður sem nefndur er Sveinsstaðafundur.
%r
ÁTTI SJÖ DRAUGA
Jón Sigurðsson hefur maður heitið. Hann bjó að Sæunnarstöðum i Hallárdal og var
langafi Guðrúnar Blöndal. Jón átti sjö drauga og geymdi þá i skála einum fram i
bænum. Þótti mönnum hark að heyra í skálanum er gengið var fyrir á kvöldin. Rifu
þeir upp steina og stokka og börðust með. Var það vandi Jóns er honum þótti fram úr
keyra að hann gekk að skáladyrum og sagði: „Hafið þið ekki grjótið i gamninu,
piltar,“ og hættu þeir þá.
Þá bjó Sigríður, ekkja nokkur, á Vakursstöðum. Hún var fátæk og félítil. Það var
einn sumardag að hún var ein heima með barni, en annað fólk á engjum, veit hún ekki
fyrri til en hún heyrir öskur mikil og veit að þar muni kominn boli Jóns á Sæunnar-
stöðum, sem var mannýgur og illur viðureignar. Tók hún þá það ráð að hún lokaði
bænum, en batt barnið upp um sperru í baðstofunni, en sjálf fól hún sig í skoti einu.
Boli mölvaði brátt bæjarhurðina og rauk inn, en er hann sá enga manneskju sneri
hann út aftur. En er boli þrengdist út um bæjardyrnar tók Sigríður orf með ljá er reis
upp við i bæjardyrunum og rak ljáinn á hol í kviðinn á bola. Tók hann síðan á rás með
orfið, en féll dauður niður skammt frá bænum.
Þessu tiltæki Sigríðar reiddist Jón og sendi henni einn drauginn, sem kallaður var
Háleiti-Bjarni. Kvaldi hann Sigríði bæði dag og nótt svo hún hafði hvergi frið þangað
til hún flutti að Syðri-Ey. Þar bjó þá Finnur langafi Magnúsar Pálssonar er þessa sögu
sagði, og gat hann varið hana þegar hún lá fyrir ofan hann í rúminu, en annars staðar
ekki. Finnur hafði kálfa undir baðstofupallinum, en það gagnaðist þó ekki þvi Há-
leiti-Bjarni drap þá alla. Einhverju sinni var Finnur við járnsmíði fram á kvöldvöku
og bóndinn á Ytra-Hóli var í smiðju með honum. En er þeir komu út um kvöldið og
bóndi ætlaði heim til sin sáu þeir eldglæringar miklar fram á götunum milli bæjanna.
Mættust þeir þar þá Háleiti-Bjarni og Snæringur, draugur framan úr Svínadal. Varð
þar ekki af kveðjum, heldur hlupu þeir undir eins saman og varð ekki milli séð. Réði
þá Finnur bóndanum að vera hjá sér um nóttina og verða ekki á vegi þeirra
kumpána.
Þjóðsögur Jóns Árnasonar.