Morgunblaðið - 09.05.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015
VITA er lífið
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444
Skráðu þig í netklúbbinn -VITA.is
Verð frá 74.900 kr.
eða 25.900 kr. ámánuði vaxtalaust í 12mánuði*
m.v. 2 fullorðna og 2 börn.
*Innifalið 3,5% lántökugjald – enginn aukakostnaður!
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
74
29
3
04
/1
5
Sólarvika í Calpe
5.–12. júní
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Í rekstrar- og aðgerðaáætlun sem
unnin var af RÚV í samráði við
starfshóp þriggja ráðuneyta er ein
forsenda þess að rekstur RÚV kom-
ist í jafnvægi án verulegra breytinga
á þjónustu sú að lífeyrissjóðsskuld-
bindingar hverfi úr efnahag félags-
ins. Meðal þess sem lagt er til er að
ríkið yfirtaki lífeyrisskuldbindingar
en þær voru 3 milljarðar í haust.
Morgunblaðið hefur undir hönd-
um greinargerð fjárlaganefndar Al-
þingis um fjárhag RÚV en þar er
fjallað um umrædda áætlun. Grein-
argerðin var samþykkt 28. apríl.
Spá 1,5 milljarða hagnaði
Samkvæmt áætluninni verður
rekstur RÚV í jafnvægi á þessu sex
ára tímabili miðað við gefnar for-
sendur. Þannig verður 1.540 milljón
króna hagnaður af rekstri RÚV
rekstrarárið 2015-2016 þar sem gert
er ráð fyrir að lóðasala skili 1.400
milljónum króna á árinu. Gert er ráð
fyrir að tap yfirstandandi árs verði
33 milljónir. Samkvæmt áætluninni
mun eiginfjárhlutfall í efnahag RÚV
aukast úr 4% rekstrarárið 2014-2015
í 68,5% á yfirstandandi ári. Það ger-
ist fyrst og fremst með því að lang-
tímaskuldir fara úr 4,45 milljörðum
niður í 402 milljónir króna. Fram
kom í blaðinu í gær að fjármálaráðu-
neytið hefði samþykkt áætlunina.
Hagrætt á ýmsum sviðum
Magnús Geir Þórðarson útvarps-
stjóri vill ekki ræða einstaka þætti í
áætluninni. Málið sé á viðræðustigi.
Þó liggi fyrir að RÚV hafi þegar hag-
rætt mikið í starfsemi sinni og undir-
búi nú sölu byggingarréttar í Efsta-
leiti. Mennta- og menningar-
málaráðherra hyggist leggja til við
Alþingi að seinni hluti lækkunar út-
varpsgjalds gangi ekki eftir um
næstu áramót. Þá liggi fyrir að þrátt
fyrir þessa fjárhagslegu endurskipu-
lagningu sé félagið enn yfirskuld-
sett. Afstaða stjórnar RÚV sé sú að
taka verði á þeim uppsafnaða
skuldavanda til að tryggja sjálf-
bærni í rekstrinum.
Spurður hvenær ákvörðunar sé að
vænta um til hvaða aðgerða eigi að
grípa til að minnka skuldsetningu
segir Magnús Geir að fjárhagsleg
endurskipulagning félagsins hafi
staðið yfir undanfarna mánuði og
„gengið vel, í góðu samráði við ráðu-
neytið“. „Það þarf að fást botn í
þennan þátt sem allra fyrst – en það
gerist í samstarfi ýmissa aðila.“
Ákvörðun ekki verið tekin
Spurður um þá tillögu að ríkið
yfirtaki lífeyrisskuldbindingar RÚV
segir Illugi Gunnarsson, mennta- og
menningarmálaráðherra, að ekki sé
búið að taka ákvörðun um það.
„Stjórn Ríkisútvarpsins horfir
mjög til þessa þáttar og það er skilj-
anlegt. Það er ekki búið að taka
neina ákvörðun þar að lútandi hjá
þeim sem slíka ákvörðun þurfa að
taka. Það er eitthvað sem snýr að
fjármálaráðuneytinu, okkur [í ráðu-
neytinu] og svo þinginu.“
Yfirtaki lífeyrisskuldir RÚV
Í áætlun RÚV og ráðuneyta er lagt til að ríkið yfirtaki 3 milljarða af skuldum
Menntamálaráðherra segir skiljanlegt að RÚV horfi til þessara skuldbindinga
Fari til greiðslu skulda
» Magnús Geir segir að tekjur
af lóðasölu í Efstaleiti fari til
niðurgreiðslu skulda.
» Þær eru metnar 1,4 ma. í
áætlun RÚV og ráðuneyta.
» Skv. úttekt PWC í haust
nema vaxtaberandi skuldir
RÚV 5,5 milljörðum króna, þar
af nemur skuldabréf vegna
lífeyrisskuldbindinga um 3
milljörðum króna.
Kristján Þórður
Snæbjarnarson
var endurkjörinn
formaður Rafiðn-
aðarsambandsins
til næstu fjögurra
ára á 18. þingi
sambandsins sem
hófst á fimmtu-
dag en lýkur í
dag. Á þinginu
var í gær sam-
þykkt ályktun þar sem samtökin
krefjast þess að dagvinnulaun
hækki. „Kröfur rafiðnaðarmanna
miða að því að framleiðni fyrirtækja
aukist samhliða hækkun dagvinnu-
launa. Með þeim hætti má koma í
veg fyrir að þjóðin missi tök á verð-
bólgu hér á landi,“ segir m.a. í sam-
þykkt sambandsins.
Kristján
áfram
formaður
Kristján Þórður
Snæbjarnarson
Krefjast hækkunar
dagvinnulauna
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Árleg mótorhjóla- og fornbílasýning
Rafta og Fornbílafélags Borgar-
fjarðar verður í Borgarnesi eftir há-
degi í dag og á meðal farartækja
verður Soffía, um 75 ára nýuppgerð
30 manna rúta, sem fékk skoðun í
fyrradag.
„Þetta er stórkostlegt,“ segir
Elínborg Kristinsdóttir, eigandi rút-
unnar. Guðni Sigurjónsson, eigin-
maður hennar, og Guðmundur Kjer-
úlf smíðuðu rútuna í Reykholti í
Borgarfirði á fyrstu árum sjöunda
áratugar liðinnar aldar og notuðu
árgerð 1940 af Bedford sem grunn.
„Fyrsta ferðin var í Öræfasveit um
páska 1963,“ rifjar Elínborg upp.
Rútunni var lagt 1986 eftir að hafa
verið notuð sem skólabíll í Reykholti
og til fjallaferða í rúma tvo áratugi.
„Nú verður hún fjölskyldubíll og fyr-
ir vini,“ segir hún.
Draumur varð að veruleika
Guðni átti sér alltaf þann draum
að gera rútuna upp en féll frá áður
en til þess kom. Farartækið grotnaði
niður og Elínborg segir að hvergi
hafi verið hægt að fá húsnæði fyrir
rútuna á viðráðanlegu verði fyrr en
sonur hennar og félagar hans hjá
Alefli byggingaverktökum í Mos-
fellsbæ hafi skotið skjólshúsi yfir
gripinn. Nokkrir menn hafi unnið
við að gera rútuna upp og starf
þeirra sé ómetanlegt. Þeir hafi mætt
tvisvar í viku eftir vinnu og alla laug-
ardaga í eitt og hálft ár. „Ég held að
ég hafi ekki enn gert mér grein fyrir
því að þetta sé orðið veruleiki,“ segir
Elínborg, sem var með mönnunum
við verkið og eldaði fyrir þá meðan á
vinnunni stóð. „En nú er það jómfrú-
ferðin,“ segir hún.
Arnar og Sigurjón, synir El-
ínborgar og Guðna, unnu við end-
urgerðina ásamt Kristni Snæ, syni
Sigurjóns, Steindóri Rafni Theó-
dórssyni og fleirum. „Hann var okk-
ar aðal-hjálparhella,“ segir Elínborg
um Steindór. „Hann er þúsundþjala-
smiður og án hans hefði þetta ekki
orðið að veruleika, en allir sem að
þessu hafa komið eiga skilið óend-
anlegt þakklæti frá mér.“
Kristinn Snær segir að á fyrstu
rútunni, sem afi hans og Guðmundur
smíðuðu 1955, hafi verið sleði uppi á
stýrishúsinu merktur Soffía og hafi
nafnið fest við rúturnar þrjár, sem
þeir smíðuðu. „Svo mikil saga teng-
ist rútunni og því vildum við gera
hana upp,“ segir hann.
Soffía nýuppgerð 75
ára fjölskyldurúta
Morgunblaðið/Kristinn
Rútan Soffía Frá vinstri: Arnar Guðnason, Kristinn Snær Sigurjónsson og Elínborg Kristinsdóttir. Á myndina
vantar Sigurjón og Steindór Rafn Theódórsson. Soffía hefur farið víða og verður nú fjölskyldubíll.
Jómfrúferðin á bílasýningu í Borgarnesi í dag
Breyting á
útgáfudögum
Sú breyting hefur nú verið
gerð á helgarútgáfu Morg-
unblaðsins að blað með at-
vinnu- og raðauglýsingum
fylgir nú laugardagsblaði, en
það hefur til þessa verið hluti
af sunnudagsútgáfunni. Þá
færist Barnablað frá laug-
ardegi yfir í sunnudagsblað.
Loftrýmisgæsla Atlantshafs-
bandalagsins við Ísland er nú í full-
um gangi en hún hófst að nýju 13.
apríl sl. Að þessu sinni er það flug-
sveit bandaríska flughersins sem
sinnir verkefninu og gáfu sumir
hermannanna sér tíma til að
hreinsa rusl úr fjörum á Suður-
nesjum.
Sendiráð Bandaríkjanna hér á
landi birti í gær færslu á Facebook-
síðu sinni þar sem segir að her-
mennirnir hafi tekið höndum sam-
an við Tómas Knútsson í Bláa
hernum. Vitnað er til orða Tómasar
sem taldi að hópurinn hefði borið
þrjú tonn af rusli frá ströndinni.
Hermenn hreinsuðu
Suðurnesjastrandir
Í gær lauk
tveggja daga
fundi Íslands,
Grænlands og
Noregs um
loðnusamning
ríkjanna. Sam-
komulag náðist
um nokkuð
breytt skilyrði í
samningi fyrir
vertíðina 2015 –
2016. Það er milli ríkjanna þriggja,
en einnig var gert sérstakt sam-
komulag milli Íslands og Græn-
lands annars vegar og Íslands og
Noregs hins vegar.
Strandríkin ákváðu að taka upp
nýja aflareglu, með aðlögun nú í
sumar, sem er í samræmi við nýj-
ustu ráðgjöf Alþjóðahafrannsókna-
ráðsins og Hafrannsóknastofnunar.
Reglan mun leiða til minni heildar-
afla í upphafi vertíðar vegna var-
úðarsjónarmiða.
Samkvæmt samningnum getur
Grænland á næstu vertíð veitt allt
að 35.000 tonn við suður- og vest-
urströndina en hafði áður heimild
til að veiða 23.000 tonn. Ákveðið
var að Noregur geti veitt allar sín-
ar aflaheimildir innan íslensku lög-
sögunnar, en hingað til hafa Norð-
menn haft heimild til að veiða 35%
aflaheimilda sinna innan íslensku
lögsögunnar.
Ný aflaregla vegna
loðnu samþykkt
Loðna Breytt
skilyrði veiða.