Morgunblaðið - 09.05.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015
Ráðamönnum í Reykjavíkur-borg er annt um sálarheill
barnanna. Af umhyggju sinni hafa
þeir bannað hvers kyns auglýs-
ingaskrum í grunnskólum. Bannað
er að gefa börnum
hjálma til að bera á
höfði þegar þau
hjóla ef nafn gef-
andans er á þeim.
Ekki má gefa börn-
um tannbursta og
tannkrem til að ýta
undir betri tann-
hirðu vegna þess að vörurnar eru
merktar framleiðanda. Grunn-
skólabörn mega ekki fá gleraugu
til að horfa á sólmyrkva til eignar
vegna þess að þau eru merkt fram-
leiðanda.
Þá hefur verið gripið til ýtrustuaðgerða til að vernda börnin
gegn trúarboðskap.
Í allri þessari umhyggju hefurgleymst að vernda börnin fyrir
pólitísku skrumi.
Stjórnmálamönnum finnst gottað baða sig í sviðsljósinu. Ekki
er verra þegar fréttin er jákvæð
og best er þegar hægt er að stilla
sér upp meðal barna.
Í Morgunblaðinu í gær sást SkúliHelgason afhenda fulltrúum
Laugarnesskóla í Reykjavík hvatn-
ingarverðlaun skóla- og frístunda-
ráðs fyrir verkefnið Umhverfið
mitt fyrir hönd borgarinnar. Á
myndinni eru börn.
Sennilega finnst fæstum þettatiltökumál, en vilji meirihlut-
inn í borginni vera sjálfum sér
samkvæmur hlýtur hann að sjá að
samkvæmt skilgreiningum hans
sjálfs eru slíkar uppákomur óboð-
legar fyrir viðkvæmar og ómót-
aðar sálir og framvegis sýna að-
gát.
Skúli Helgason.
Skrum og sálarlíf
grunnskólabarna
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 8.5., kl. 18.00
Reykjavík 3 skýjað
Bolungarvík -1 alskýjað
Akureyri 1 snjókoma
Nuuk 0 alskýjað
Þórshöfn 6 léttskýjað
Ósló 11 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 heiðskírt
Stokkhólmur 12 heiðskírt
Helsinki 7 léttskýjað
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 18 heiðskírt
Dublin 7 skúrir
Glasgow 11 heiðskírt
London 15 skúrir
París 17 heiðskírt
Amsterdam 17 heiðskírt
Hamborg 16 heiðskírt
Berlín 17 heiðskírt
Vín 23 skýjað
Moskva 17 heiðskírt
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 25 léttskýjað
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 22 léttskýjað
Aþena 22 léttskýjað
Winnipeg 1 skýjað
Montreal 22 léttskýjað
New York 27 heiðskírt
Chicago 25 skýjað
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
9. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:33 22:16
ÍSAFJÖRÐUR 4:18 22:42
SIGLUFJÖRÐUR 3:59 22:25
DJÚPIVOGUR 3:58 21:51
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Fyrrverandi stjórnarmenn í Kaupþingi báru í
gær vitni fyrir héraðsdómi í stóra markaðs-
misnotkunarmálinu. Þar kom fram að lítið virðist
hafa verið rætt um viðskipti eigin viðskipta bank-
ans eða einstaka lán innan stjórnar, þótt stjórn
hafi verið upplýst um stærstu lántaka árlega.
Meðal þeirra sem rætt var við voru þeir Lýður
Guðmundsson, Gunnar Páll Pálsson og Bjarn-
freður Ólafsson. Bjarnfreður sagði við vitna-
leiðslur að ekkert hefði verið rætt um kaup eigin
viðskipta, nema almennar spurningar stjórn-
armanna um hvort menn væru ekki innan marka.
Engar umræður um tap deildarinnar
Engar umræður hefðu verið um tap deild-
arinnar af viðskiptum og ekkert um einstaka
þætti í lánveitingum, t.d. til félagsins Holts, sem
ákært er fyrir í málinu. Staðfesti hann að milli-
fundasamþykki hefðu oft verið veitt milli lána-
nefndarfunda, en gat ómögulega munað hvort
það hafi átt við í þeim atriðum sem ákært er fyrir.
Gunnar Páll sagði að einstaka lánveitingar
hafi ekki verið ræddar í stjórn. Aðeins hafi verið
farið yfir stærstu skuldara á árlegum fundi. Að-
spurður hvort staða skuldara hafi verið rædd
sérstaklega rifjaði hann upp að árið 2008, þegar
óveðursský hafi verið farin að hrannast upp,
hafi staða einhverra skuldara verið rædd á
fundunum. Nefndi hann sérstaklega í því sam-
hengi stöðu Baugssamstæðunnar. Aðspurður
hvort gengi bankans hefði sérstaklega verið
rætt sagði hann það hefði að sjálfsögðu komið til
umræðu.
Lýður bar vitni í gegnum síma frá London, en
hann svaraði svo gott sem öllum spurningum
saksóknara með þeim orðum að hann vísaði til
fundargerða. Saksóknari hafði spurt alla stjórn-
armenn álíka spurninga en gafst fljótlega upp á
þessum svörum Lýðs og sagðist hafa lokið
spurningum.
Mikið lánað til Péturs og Páls
Þá kom einnig fram að árið 2008 var mikið
lánað til „Péturs og Páls úti í bæ“ til kaupa á
hlutabréfum í Kaupþingi með veði í hlutabréfum
bankans. Eftirlit áhættustýringar vegna þessara
viðskipta virkaði ekki og sviðið skipti sér ekkert
af þessum lánveitingum nema að litlum hluta.
Þetta kom fram í samantekt frá yfirheyrslu
sérstaks saksóknara yfir Lilju Steinþórsdóttur,
fv. yfirmanns í innri endurskoðun Kaupþings,
sem sýnd var þegar Lilja kom og bar vitni í gær.
Aðeins rætt almennt um eigin viðskipti
Fyrrverandi stjórnarmenn í Kaupþingi báru vitni fyrir héraðsdómi í gær
Lítið virðist hafa verið rætt um viðskipti eigin viðskipta innan stjórnar
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Vitni Bjarnfreður Ólafsson sagði stjórn ekki
hafa rætt eigin viðskipti bankans sérstaklega.
Isavia og Lands-
bankinn hafa
komist að sam-
komulagi um að
Landsbankinn
sinni áfram fjár-
málaþjónustu í
Flugstöð Leifs
Eiríkssonar þar
til útboð hefur
farið fram. Um
leið hafa allar
uppsagnir starfsmanna verið
dregnar til baka en ákvörðun um
uppsögn tólf starfsmanna í flug-
stöðinni frá og með 1. febrúar síð-
astliðinn var varúðarráðstöfun af
hálfu bankans vegna óvissu um
framhald starfseminnar þar. Þetta
er meðal þess sem kemur fram í til-
kynningu frá Landsbankanum. Að
sögn Kristjáns Kristjánssonar, upp-
lýsingafulltrúa Landsbankans, er
ekki ljóst hvenær útboðið verður.
Uppsagnir hafa ver-
ið dregnar til baka
Sátt Landsbankinn
áfram í Leifsstöð.