Morgunblaðið - 09.05.2015, Page 10

Morgunblaðið - 09.05.2015, Page 10
Bókstöfum og táknum sleppt lausum Ljósmynd/Guðlaug María Lewis Fjör Það var nóg um að vera á opnuninni og krakkarnir voru að vonum spennt yfir hátíð sem er tileinkuð þeim. Svanhildur Eiríksdóttir Reykjanesbær Listahátíð barna var sett í10. sinn sl. fimmtudag ensetning hennar markarupphaf Barnahátíðar ár hvert. Hátíðin hefur tekið á sig margvísleg form frá upphafi, enda þemað breytilegt frá ári til árs. Listasal Duus safnahúsa hefur verið breytt í himingeim og haf og hátíðargestum var boðið í afmæli í fyrra þegar Reykjanesbær fagnaði 20 ára afmæli. Nú er viðfangsefnið bækur og undraheimur þeirra sem rímar vel við stefnumótun bæj- arins í fræðslumálum þar sem lest- ur og læsi er meðal áhersluþátta. Auk þess að bjóða upp á heimatilbúnar bækur og sögur á margvíslegu formi hefur bók- stöfum og táknum verið sleppt lausum og leiða þau hátíðargesti um sali safnahússins þar sem finna má margvísleg verk eftir grunn- skólabörn og yfir í Bíósalinn þar sem sýningin „Þetta vilja börnin sjá“ er hýst. Á þeirri sýningu eru sýndar myndskreytingar úr ís- lenskum barnabókum sem gefnar voru út árið 2014 og Menningar- miðstöðin Gerðuberg hefur staðið fyrir í 13 ár. Til þess að auka við upplifun barnanna hefur Bókasafn Reykjanesbæjar lánað á sýninguna bækur sem hanga við myndskreyt- ingar úr bókinni. Einnig gefst börnum kostur á að flatmaga á gólfinu með bókaormi og bók eða sitja í kjöltu og hlusta á sögu. Framhaldsskólanemendur með í fyrsta sinn Listahátíðin er uppskeruhátíð í listnámi barna í Reykjanesbæ. Vinna við undirbúning hátíðar- innar hefur staðið yfir lengi og auk bókanna, læsisins og stafanna sýna grunnskólabörn afrakstur vinnu í margvíslegum smiðjum þar sem saumur, leirlist, smíði og mál- un eru stunduð, svo nokkur list- form séu nefnd. Yfirskrift sýn- ingar grunnskólabarna er „Listaverk í leiðinni“. Þá koma nemendur Fjölbrautaskóla Suð- urnesja í fyrsta sinn að hátíðinni með sýningu á verkum útskrift- arnema á listnámsbraut í risi Bryggjuhússins, sem ber heitið Mygla. Listahátíðin stendur til 25. maí og er opin á sama tíma og Du- us safnahús. Guðlaug María Lewis, verk- efnisstjóri hátíðarinnar, sagði ein- staklega ánægjulegt að sjá fleiri koma að hátíðinni og leiðir að því líkur að flestar fjölskyldur í bæn- um tengist Barnahátíðinni á einn eða annan hátt. „Við erum að fá Tónlistarskólann og dansskólana í bænum með í ár og komu nem- endur þaðan fram á mikilli hæfi- leikahátíð sem haldin var í Stapa í gær í bland við úrval árshátíðar- atriða úr grunnskólunum. Það er ekki síður ánægjulegt að geta boð- ið upp á stærri sýningu í Duus safnahúsum en verið hefur hingað til,“ sagði Guðlaug. Fjölbreyttir viðburðir og allt ókeypis Barnahátíðin hefur alla tíð fengið mikla og jákvæða athygli, bæði vegna fjölbreyttra dagskrár- liða en ekki síður vegna þeirrar staðreyndar að frítt er á alla við- burði. Skessan í hellinum, sem er gestgjafi hátíðarinnar, tekur á móti gestum núna í morgunsárið og þeir hraustustu eru hvattir til að kíkja á hreystibrautina við Vatnaveröld, en grunnskólabörn í Reykjanesbæ hafa staðið sig frá- bærlega í Skólahreysti á und- anförnum árum. Svo má bregða sér í ratleik, námskeið í bókagerð, spurningakeppni, útileiki, á fiska- sýningu, listasmiðju, að hitta rit- höfunda og bregða sér á leik- fangasölu, svo nokkur atriði séu nefnd. „Þegar hamagangurinn stendur sem hæst má búast við karamelluregni og hafa sumir brugðið á það ráð að hafa reið- hjólahjálm í fórum sínum til þess að varast regnið,“ sagði Guðlaug. Hápunktur sunnudagsins er barnaóperan Hans og Gréta sem Óp hópurinn setur upp í Hljóma- höll. Óperan var sett upp í Salnum í Kópavogi í mars í fyrra og hlaut góðar viðtökur. Tónlistin er eftir Humperdincks og textinn eftir systur hans, Adelheid Wette, og hafa þau sett þetta klassísk og vel þekkt verk í ógleymanlega skond- inn búning sem vekur fólk jafn- framt til umhugsunar um lífið og tilveruna, eins og kemur fram í kynningu. Dagskrá barnahátíðar má nálgast í heild sinni á vefsíðunni: www.barnahatid.is. Barnahátíð stendur nú yfir í Reykjanesbæ með skemmtilegum viðburðum víðsvegar um bæinn. Hún hófst með setningu listahátíðar barna á fimmtudag, þar sem bækur eru í fyrirrúmi og nær hámarki í dag. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Opnun Það var freistandi að stíga dans á bókstöfum og táknum sem hafði verið sleppt lausum og margt að skoða. Ljósmynd/Guðlaug María Lewis Neyðin á jarðskjálftasvæðinu í Nepal er gríðarleg og söfnun enn í fullum gangi. Hægt er að styrkja neyðar- söfnun UNICEF á Íslandi með því að senda sms-ið UNICEF í númerið 1900 og gefa þannig 1.500 krónur. Einnig er hægt að leggja frjáls framlög inn á söfnunarreikning 701-26-102040, kt. 481203-2950, og styrkja með kredit- korti á heimasíðunni www.unicef.is Framlögin fara í að útvega hreint vatn og hreinlætisaðstöðu, tjöld, teppi, sálræna aðstoð fyrir börn, tímabundna kennsluaaðstöðu og vatnshreinsitöflur, svo eitthvað sé nefnt. UNICEF hefur auk þess hafið gríðarlega umfangsmikið bólusetn- ingarátak og einsetur sér að bólu- setja ásamt samstarfsaðilum hálfa milljón barna hið fyrsta. Það er gert til að reyna að koma í veg fyrir misl- ingafaraldur. Hvert einasta framlag héðan frá Íslandi skiptir máli. Talið er að meira en 90% skóla í þremur héruðum (Gorkha, Sindhu- palchock og Nuwakot) hafi eyðilagst í jarðskjálftanum. Á sumum svæðum, t.d. í höfuðborginni Katmandú, hafa níu af hverjum tíu skólum verið nýttir sem neyðarskýli. Búist er við að ástandið í menntamálum landsins muni versna enn frekar á komandi dögum og vikum þegar eyðilegging í afskekktari héruðum landsins kemur í ljós. Í neyðarástandi skiptir skóla- hald afar miklu máli, jafnvel þótt það fari einungis fram í bráðabirgða- skýlum eða tjöldum. Að fara í skólann hjálpar börnum líka að vinna úr reynslu sinni og gefur þeim fastan punkt í tilverunni. Endilega … … leggið lið í neyðinni í Nepal © UNICEF/NYHQ2015-1104/Panday Bólusetning Hér fær Zoffin Nakarmi bólusetningu gegn mislingum. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015 Á vorsýningu Myndlistaskólans í Reykjavík, sem opnuð verður kl. 14 í dag, verða sýnd verk eftir nemendur í sjónlistadeild og diplómanámi í ker- amik, teikningu og textíl. Um 50 út- skriftarnemendur sjónlistadeildar sýna sjálfstæð lokaverkefni og 42 nemendur í diplómanámi brot af af- rakstri vetrarins. Nemendur í ker- amik sýna m.a. verk úr postulíni steypt í gifsmótum og ýmsar til- raunir með postulín og fleiri efni. Nemendur teiknideildar sýna úrval verkefna vetrarins, m.a. módelteikn- ingu og teiknidagbækur, en áherslan hefur verið á myndræna frásögn, og nemendur textíldeildar sýna verk unnin á námskeiðum í ullarvinnslu, vefnaði, skapandi prjóni, litun, mynsturgerð og þrykki. Vorsýningin er á jarðhæð JL- hússins, Hringbraut 121, en Mynd- listaskólinn er til húsa á 2. og 3. hæð í sama húsi. Sýningin verður opin 14- 17 í dag, en kl. 13-18 aðra daga. Henni lýkur 17. maí. Myndlistaskólinn í Reykjavík Morgunblaðið/Eggert MIR Kristinn Guðbrandur Harðarson kennari og Áslaug Thorlacius skólastjóri. Vorsýning á afrakstri vetrarinsStyrktarfélagið Göngum saman efnir til fjölskylduvorgöngu víða um land á mæðradaginn, á morgun sunnudag kl. 11. Í Reykjavík verður gengið frá Háskólatorgi þar sem íslenskir vís- indamenn, sem þegið hafa styrki fé- lagsins, kynna störf sín. Einnig verður gengið í Borgarnesi, Stykkishólmi, Patreksfirði, Ísafirði, Hvammstanga, Siglufirði, Akureyri, Vopnafirði, Egilsstöðum, Neskaup- stað, Fáskrúðsfirði, Höfn, Vest- mannaeyjum og Selfossi. Nánari upp- lýsingar eru á heimasíðunni: www.gongumsaman.is. Mæðradagsganga Vorganga fyrir fjölskylduna Gjaldfrjáls ganga Varningur frá Göngum saman verður til sölu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.