Morgunblaðið - 09.05.2015, Side 12

Morgunblaðið - 09.05.2015, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015 SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Ég tel allar líkur á því að við höf- um fundið rústir klaustursins,“ segir Steinunn Kristjánsdóttir fornleifa- fræðingur. Hún hefur ásamt íslensk- um og breskum samstarfsmönnum sínum leitað ummerkja hins forna klausturs í Þykkvabæ í Álftaveri. Er það liður í allsherjarrannsókn á ís- lenskum miðaldaklaustrum. Benda gögn sem fengust úr viðnámsmæli fyrr í þessari viku eindregið til þess að rústir Þykkvabæjarklausturs sé að finna steinsnar frá núverandi kirkju, en á allt öðrum stað en áður var talið, svokölluðu Fornufjósi þar sem menn héldu að fjós klaustursins hefði staðið. Trúar- og lærdómssetur Myndin sem viðnámsmælirinn birtir af rústunum bendir til þess að þarna sé um verulega stóra bygg- ingu að ræða, um 1.500 til 1.800 fer- metrar að grunnfleti. Til saman- burðar segir Steinunn að heildar- grunnflötur Skriðuklausturs, sem hún rannsakaði á síðasta áratug, hafi verið um 1.500 fermetrar með kirkjugarðinum, en 800 fm ef ein- göngu er miðað við byggingarnar á staðnum. Traustar ritheimildir eru um stofnun og starfrækslu Þykkva- bæjarklausturs í Veri frá því að það var stofnað árið 1168 og þar til það leið undir lok við siðaskiptin. Það var af Ágústínusarreglu, auðugt og áhrifamikið, í senn trúarleg stofnun og lærdómssetur. Þar bjuggu margir nafnkunnir menn úr íslenskri kirkju- og bókmenntasögu. Þorlákur helgi var fyrsti ábótinn en síðar gegndu til dæmis Hallur Gissurarson, Brandur Jónsson og Sigvarður Árnason emb- ættinu. Talið er að Eysteinn Ás- grímsson munkur hafi dvalið í klaustrinu þegar hann orti hið fræga kvæði Lilju sem „allir vildu kveðið hafa“. Þá er sennilegt að Brandur Jónsson hafi snúið Alexanders sögu í klaustrinu, en hún er talin meðal gimsteina íslenskrar frásagnarlistar á miðöldum. Einnig er talið að til rit- stofu klausturins megi rekja ein- hverjar Íslendingasögur, til dæmis Svínfellinga sögu og Hrafnkels sögu. Gróf upp Skriðuklaustur Steinunn, sem er prófessor í forn- leifafræði við Háskóla Íslands og sérfræðingur við Þjóðminjasafnið, hefur undanfarin ár einbeitt sér að rannsóknum á íslenskum klaustrum í kaþólskri tíð. Starfar nokkur hópur fornleifafræðinga með henni að þessu verkefni. Rannsóknirnar hóf- ust með hinum umsvifamikla upp- greftri klaustursins sem rekið var á Skriðu í Fljótsdal frá 1493 til 1554. Sá uppgröftur leiddi í ljós að klaustr- ið bar svipmót annarra klaustur- bygginga í Evrópu. Það samanstóð af þyrpingu vistarvera og veglegri kirkju sem byggð voru við skýrt af- markaðan klausturgarð með brunni. Í ljós kom að hlutverk Skriðu- klausturs virðist hafa verið sambæri- legt við það sem var í öðrum kaþ- ólskum klaustrum erlendis. Þar fór fram ræktun mat- og lækningajurta. Þar var einnig jarðað en af þeim beinagrindum sem voru grafnar upp má ráða að í Skriðuklaustri hafi verið rekinn spítali. Samtals voru grafnar upp tæplega 300 beinagrindur í kirkjugarði Skriðuklausturs. Helm- ingur þeirra voru bein sjúklinga. Heildarrannsókn á klaustrum Sumarið 2013 hófu Steinunn og samstarfsmenn hennar vinnu við nýja fornleifarannsókn sem miðar að því að skrá minjar allra klaustranna sem rekin voru á Íslandi fyrir siða- skiptin 1550. Þau voru alls fjórtán að tölu. Ætlunin er að greina ástæður stofnunar hvers klausturs fyrir sig, kanna rekstrargrundvöll þeirra og sögu en ekki síst að finna nýjar vís- bendingar um gerð þeirra, hlutverk og innra starf með aðferðum forn- leifafræðinnar. „Stóra markmiðið er síðan að skoða áhrif klaustranna og umsvif í íslensku miðaldasamfélagi,“ segir Steinunn. Vinnunni hefur miðað vel og er hægt að kynna sér vettvangs- skýrslur frá sex klausturstöðum á heimasíðu rannsóknarinnar á netinu. Á síðunni er einnig að finna margs konar fróðleik sem safnað hefur ver- ið um gömlu klaustrin, ritheimildir um þau, örnefni á klausturstöðum og um muni og minjar sem þeim tengj- ast. Áður en viðnámsmælingarnar voru gerðar í Veri töldu sumir að rústir klaustursins væri að finna sunnan við kirkjuna sem þar er, en kirkjan hefur alltaf staðið á sama stað. Árni Magnússon handritasafn- ari kannaði á sínum tíma staðhætti og taldi sig sjá móta þar fyrir rúst- unum. Steinunn segir að aðrir hafi talið klaustrið hafa staðið norðan við kirkjuna þar sem nú er minnismerki sem Kristján Eldjárn þjóðminja- vörður lét setja upp. Þar stóð bærinn sjálfur lengst af, en var fluttur á síð- ustu öld á núverandi stað. Líkist klaustrinu á Skriðu „Við mældum bæði þessi svæði og sáum miklar rústir norðan við kirkju en þær eru líklega af bænum. Sunn- an við kirkju fundust aðeins garðlög – tvöföld – trúlega vegna stækkunar. Það var allt og sumt þar, engar rúst- ir beinlínis. Síðan mældum við rúst- ina Fornufjós sem sagt er að sé rúst af fjósi bræðranna, en þeir áttu yfir 100 kýr. Þá kom þessi mikla bygging í ljós, sem var ferköntuð með minni rýmum (40x45 m á kant allt í allt). Hún líkist mjög klaustrinu á Skriðu en þetta þarf að kanna með skurði eða skurðum en ekki er víst að það fáist vegna þess að rústin er friðlýst sem fjós,“ segir Steinunn. „Sé grunur okkar réttur – að þarna hafi klaustrið staðið – þá lítur út fyrir að tvær kirkjur hafi verið í Álftaveri, klausturkirkja og sókn- arkirkja. Á Skriðuklaustri voru einn- ig klausturkirkja og heimakirkja samtímis. Mér þykir ekki ólíklegt að svo hafi verið víðar vegna þess að klausturkirkja hefur öðru hlutverki að gegna en heima- eða sókn- arkirkja. Þá finnst mér líklegt að klaustrin hafi staðið sér og nokkuð frá bæjunum, eins og var á Skriðu- klaustri og virðist vera á Þykkva- bæjarklaustri.“ Klaustrið í Þykkvabæ fundið  Byggingin allt að 1.800 fermetrar að grunnfleti  Tvær kirkjur voru á staðnum  Klaustrið þar sem Eysteinn orti Lilju og Brandur ábóti sneri Alexanders sögu  Líkist klaustrinu á Skriðu Þykkvabæjarklaustur Þetta er myndin sem viðnámsmælir fornleifafræðinganna birtir af rústunum neðanjarðar í Álftaveri. Þær eru sláandi líkar rústum Skriðuklausturs hér til hliðar. Hver reitur er 20x20 m að stærð. Skriðuklaustur Teikning af rústum klaustursins á Skriðu í Fljótsdal. Stein- unn stjórnaði þeim uppgreftri sem fram fór á síðasta áratug. Morgunblaðið/Styrmir Kári Stjórnar Steinunn Kristjánsdóttir stýrir klausturrannsóknunum. Ljósmynd/Steinunn Kristjánsdóttir Viðnámsmæling Fornleifafræðingar með tæki sín við Fornufjós þar sem rústir hins forna Þykkvabæjarklausturs er að öllum líkindum að finna. Ljósmynd úr viðnámsmæli Grampus Heritage and Training Ltd. Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Glæsileg óperuferð til Veróna, einnar fallegustu og elstu borgar Norður-Ítalíu með Elsu Waage óperusöngkonu í broddi fylkingar. Gestum gefst tækifæri á að sjá heimsfrægar óperusýningar í þriðja stærsta hringleikahúsi veraldar, en einnig verður siglt á Gardavatni og ekið um vínhéruð Ítalíu. Verð: 158.500 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Sp ör eh f. Fararstjóri: Elsa Waage 8. - 13. júlí Óperutónar í Veróna Sumar 10

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.