Morgunblaðið - 09.05.2015, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 09.05.2015, Qupperneq 15
ardier Q400 vélar – sem skipt verð- ur út fyrir þá þær fimm Fokker 50 vélar sem nú eru í rekstri. Eru Bombardier-vélarnar, sem keyptar verða notaðar, væntanlegar hingað undir lok þessa árs og á því næsta og þá flýgur síðasti íslenski Fokk- erinn endanlega út í bláinn. En hvernig hefur fólkinu í land- inu – farþegunum – líkað þessar vélar? Sjónarmiðin eru sjálfsagt mörg, en í meginatriðum er um- sögnin jákvæð. „Þetta eru ferða- vænar vélar og það fer vel um fólk. Víða úti á landi er flugið lífæð byggðanna. Hér áður fyrr var land- leiðin til Ísafjarðar ekki fær nema hálft árið og norðanverðir Vestfirð- ir voru sem eyja í landinu. Þá varð að stóla á flug og að Fokkerinn næði vestur var og er á vissan hátt birtingarmynd þess hvernig leikar í lífinu standa. Koma dagblöðin, brauðið og aðrar lífsnauðsynjar, fást varahlutir í báta og fiskvinnslu og nær fólk suður vegna nauðsyn- legra erinda? Fokkerinn er fastur punktur,“ segir Arnór sem starfað hefur í flugafgreiðslunni á Ísafirði í 38 ár. Vísa Valgeirs Það segir jafnan sitt að fólki líki allskonar fyrirbæri, hlutir, fólk og fleira þannig, vel þegar um slíkt spinnast þjóðsögur, skrýtlur og fleira skemmtilegt. Ljósmyndurum finnst gaman að filma Fokker sem hefur líka orðið andans mönnum að yrkisefni. Valgeir Guðjónsson hefur í lögum og ljóðum oft náð að fanga stemningu samfélagsins og í laginu Bíldudals grænar baunir með söng- tríóinu Jolly og Cola yrkir Valgeir. „Sjáðu Fokkerinn fljúga yfir / frænka Önundar kannski um borð / þú bölvar duglega í hljóði/ og held- ur heim og mælir ekki orð.“ Við þessa vísu Stuðmannsins er engu að bæta. Þetta er kjarni máls- ins - ekkert minna! Morgunblaðið/Úr myndasafni yfir Farþegar Á malarflugvelli úti á landi fyrir fjölda ára. Vélarnar hafa dugað vel við erfiðar aðstæður. Ísafjörður Reykurinn stóð aftan úr flugvélinni eftir að hreyfillinn sprakk. Hundruð manna horfðu á, af skíðasvæðinu á Seljalandsdal. FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015 SKRÁNING Á VEF SA RJÚFUM ÍSLANDSMÚRINN AFNÁM HAFTA – HVENÆR OG HVERNIG? Opinn fundur Samtaka atvinnulífsins þriðjudaginn 12. maí kl. 8.30-10 í Silfurbergi í Hörpu. Boðið verður upp á létta morgunhressingu frá kl. 8.15. Framsöguerindi: Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA Heiðar Guðjónsson, hagfræðingur og fjárfestir Ásgeir Jónsson, dósent við Háskóla Íslands Jón Daníelsson, prófessor við London School of Economics Að loknum framsöguerindum mun Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA, stýra pallborðsumræðum. Fundarstjóri: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, forstöðumaður mennta- og nýsköpunarsviðs SA „Ég átti allt efnið, ljósmyndir og texta, allt meira og minna tilbúið. Því var nokkuð fljót- legt að taka sögu þessara flugvéla á Íslandi saman og ég er sáttur við útkomuna,“ segir Baldur Sveinsson. Bók hans, Fokker í 50 ár á Íslandi, kemur út eftir helgina og þar er farið yfir hinn langa feril í myndum. Á hálfri öld hefur alls 21 flugvél af þess- ari tegund verið í útgerð á Íslandi. Fokker F-27-vélarnar voru við lýði í 27 ár, frá 1965 til 1992, en Fokker 50-gerðin eftir það. Bókin er 104 blað- síður í A4-broti með rúmlega 130 myndum og óhætt að segja að hún sé afar vel úr garði gerð. Baldur Sveinsson hefur fylgst með fluginu á Íslandi í áratugi og skráð sögu þess með ljósmyndum. „Fokker- vélarnar hafa verið í ýmsum merkjum og litum. Mér hefur tekist að ná flestum út- gáfum þess, en sumar mynd- ir hafa góðir félagar í hópi ljósmyndara lagt mér til,“ segir Baldur sem birtir með- al annars myndir af vél FÍ sem fórst Færeyjum fyrir 45 árum. „Fokker hefur verið verið þarfasti þjónninn, flugvélar sem hafa haldið uppi teng- ingu milli höfuðborgarinnar og byggðanna úti á landi,“ segir Baldur Sveinsson sem á undanförnum árum hefur gefið út fjölda bóka með myndum úr fluginu á Íslandi. Er myndirnar frá ýmsum tím- um og afrakstur starfs sem spannar marga áratugi. 21 flugvél á hálfri öld SAGAN Í BÓK BALDURS Baldur Sveinsson Reykjavík Fokker F-27 yfir borginni fyrir um 30 árum. Sterkbyggðir vinnuþjarkar og þægilegt starfsumhverfi áhafnar. Þetta segir Þórunn Tryggvadóttir, flugmaður hjá Flugfélagi Íslands, þegar hún er beðin um að lýsa Fok- ker 50 vélunum sem hún hefur flogið síðasta ár- ið. „Þótt vélarnar séu stórar þá eru þær mjög léttar í stýri og láta vel að stjórn. Fokker hentar líka afar vel við íslenskar aðstæður, til dæmis ef eitt- hvað er að veðri, eins og þær hafa sannað í gegnum árin,“ segir Þórunn sem hefur verið viðloða flugið um langt árabil. Var flugkennari í nokkur ár, en hefur lengst starfað hjá FÍ, til dæmis við afgreiðslu, flugumsjón, var flug- freyja í nokkur ár og á síðasta ári náði hún loksins því markmiði sínu að verða flugmaður. „Að verða flugmaður var alltaf takmarkmið. Mig langaði þetta mest af öllu,“ segir Þórunn sem er ein þriggja kvenna í hópi flugmanna FÍ. Þórunn segir flugmönnum FÍ líka vel við Fokker 50, enda eigi þeir flestir langan starfsaldur að baki. „Flugstjórarnir sem ég starfa með hafa því miklu að miðla þegar maður spyr út í vélina, eiginleika hennar, styrk og aðstæður,“ segir Þórunn sem eftir eitt ár er komin með 500 flognar stundir á Fokker 50. Og verkefnin eru fjölbreytt, það er ferðir til áfangastaðanna þriggja úti á landi og það er ekki heldur langt til Grænlands. Ferðir þangað eru tíðar - og til Kulusuk til dæmis er að jafnaði um tveggja tíma flug úr Reykjavík. „Þetta síðasta ár sem flugmaður á Fokker hefur verið mjög skemmtilegt – rétt eins og ég hlakka til að fara í þjálfun á Bomb- ardier Q400 vélunum sem eru vænt- anlegar,“ segir Þórunn Tryggva- dóttir.  Vinnuþjarkar sem hafa sannað sig vel í áranna rás Léttar og láta vel að stjórn Þórunn Tryggvadóttir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flugtak Kaffivélin til Akureyrar tekur á loft til norðurs. Loftleiðahótelið og flugturninn fremst. Flugmennirnir vögguðu vængjum líkt og í kveðjuskyni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.