Morgunblaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015 Grasið verður grænna og garðurinn fallegri með góðri og jafnri áburðargjöf Áburðardreifarar ModelWE-B Rafhlöðuknúinn kastdreifari. Vinnslubreidd allt að 2,5 m Sérstaklega hentugur fyrir minni garða ModelWE-330 Áburðardreifari. Rúmtak 15 lítrar. Vinnslubreidd 41 cm ModelWE-430 Áburðardreifari Rúmtak 20 lítrar. Vinnslubreidd 43 cm ÞÓR HF Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Í draumalífinu væri frábært að geta komist út á Sund og róið 4-5 sinnum í viku,“ segir Klara Bjart- marz, sem á síðasta varð Íslands- meistari kvenna í róðri á sjókajak og var í kjölfarið valin kajakkona ársins af Siglingasambandinu. Róðurinn hefur þó orðið að víkja að verulegu leyti hjá Klöru þetta vorið því annir eru ævinlega á skrifstofu Knatt- spyrnusambandsins í upphafi leik- tíðar, en í vetur tók hún við starfi framkvæmdastjóra þessa stærsta sérsambands íþróttahreyfingar- innar. „Því miður hef ég ekki komist oft til að róa undanfarið með þeirri und- antekningu þó að ég var á námskeiði í Wales um síðustu helgi og það var frábært að komast á kajak fjóra daga í röð,“ segir Klara. Hún keypti sinn fyrsta bát árið 2009 og gerir út frá Geldinganesi, eins og aðrir fé- lagar í Kayakklúbbnum. Skoða fuglana í návígi Starfsemi klúbbsins er öflug og hefur farið ört vaxandi. Félagar eru nú um 500 og um 400 þeirra virkir. Á vegum klúbbsins eru vikulegir fé- lagsróðrar allt árið og nokkrar skipulagðar kajakferðir á hverju sumri. Þá heldur klúbburinn úti öfl- ugri heimasíðu, stendur fyrir mótum og námskeiðum og heldur sérstakan öryggisdag árlega. „Mér finnst fátt meira spennandi en að fara út á kajak,“ segir Klara. „Það er fínt að hafa einhverja öldu og nokkur vindstig að norðan eru bara hressandi. Á námskeiðinu í Wales var þung alda alla dagana, sem var frábært og mikið að gerast. Svo er líka æðislegt að róa í kringum Lundey í spegilsléttum sjó. Fugl- arnir eru ekki hræddir við gestina á þessum litlu bátum og hægt að skoða þá í návígi. Í veðrinu undan- farið hefur hins vegar lítið verið af fugli og heldur kalt.“ Breytingar urðu á högum Klöru 1. mars í vetur er hún tók við starfi framkvæmdastjóra KSÍ af Þóri Há- konarsyni, en áður hafði Klara starf- að sem skrifstofustjóri KSÍ. Fjöl- mörg verkefni eru á borði fram- kvæmdastjórans í upphafi leiktíðar, en meðal þess sem mestur þunginn fer í er undirbúningur fyrir landsleik Íslands og Tékklands á Laugardals- velli 12. júní og úrslit í Evrópu- keppni stúlkna hér á landi í lok júní- mánaðar. Styttist í miðasölu „Þessa dagana er þetta alls ekki átta tíma vinnudagur og það hjálpar ekki til að ég sit enn uppi með sum af mínum gömlu verkefnum,“ segir Klara. „Þetta er mikil vinna og mikil ábyrgð, en líka skemmtilegt þó svo að dagarnir geti orðið langir. Reynd- ar hef ég ekki trú á mjög löngum vinnudögum og því að fólk skili miklu eftir 10 tíma törn. Ég er held- ur ekki hrifin af löngum símtölum eða löngum fundum. Ég finn vel fyrir því að það er mik- ill spenningur fyrir fótboltasumrinu framundan og ekki síst landsleikn- um við Tékka á Laugardalsvelli 12. júní, enda hefur árangur landsliðs- ins verið frábær. Það er farið að styttast í miðasölu og við erum að leggja lokahönd á þann undirbúning. Það er líka mikið spurt um Hol- landsleikinn ytra í haust, en ég hef ýtt honum á undan mér, en þegar miðasala og annar undirbúningur vegna Tékkaleiksins verður komið í ferli þá snúum við okkur að næstu landsliðsverkefnum. Það tekur eitt við af öðru,“ segir Klara. Hressandi vindstig að norðan  Næg verkefni hjá Klöru Bjartmarz, framkvæmdastjóra KSÍ, í upphafi leiktíðar  Róðurinn hefur þurft að víkja fyrir boltanum hjá kajakkonu síðasta árs  Fátt meira spennandi en að róa á kajak Ljósmynd/Jónas Guðmundsson Á góðum degi Hvort sem veður er stillt eða einhver öldugangur finnst Klöru fátt meira spennandi en að róa á kajak. Myndin er tekin Kvígindisfirði í Reykhólahreppi, áður Múlasveit. Morgunblaðið/Kristinn Boltinn á lofti Mikilvæg verkefni eru framundan hjá KSÍ í sumar. Vorhátíð Kayakklúbbsins verður í dag við aðstöðu klúbbsins á eiðinu við Geldinganes. Há- punktur hátíðarinnar er keppnin um Reykjavíkurbikarinn sem nú verður háð í 19. sinn, en klúbb- urinn í Reykjavík var stofnaður vorið 1981. Aðalkeppnin er 10 kílómetra róður en einnig er keppt í 3 km róðri. Skráning í keppni hefst klukkan níu en keppnin sjálf klukkan 10. Á vorhátíðinni geta þeir sem vilja fengið að prófa sjókajaka. Byrjendur hafa þar tækifæri á að prófa að setjast upp í sjókajak og róa stuttan spöl undir leiðsögn kennara. Nytjamarkaður fyrir notaðan kajakbúnað verður starfræktur og árar og ýmis kajakbúnaður fær þar endurnýjun lífdaga. Að lokinni keppni verður boð- ið upp á léttar veitingar og fulltrúar í ferða- og keppnis- nefnd sitja fyrir svörum. Nánari upplýsingar um klúbbinn og vorhátíðina má finna á heima- síðu Kayakklúbbsins, http:// www.kayakklubburinn.is. Vorhátíð við Geldinganes KEPPNI OG KYNNING Veiðimálastofnun og Fiskistofa hafa sett saman myndir sem eiga að geta nýst veiðimönnum við að þekkja al- geng útlitseinkenni á eldislöxum. Reiknað er með að leiðbeiningar verði settar upp í veiðihúsum en þær má einnig finna í prentvænni útgáfu með texta bæði á íslensku og ensku á veidi.is. Eldislax getur verið án áberandi ytri einkenna, þó að al- gengara sé að sjá megi skemmdir á uggum, tálknbörðum og/eða lögun trjónu. Eldislaxar eru oft kubbs- legir, með minni straumlínulögun, segir á myndinni. Á síðustu árum hefur laxeldi í sjókvíum aukist hér við land. Umtalsverður fjöldi laxa af uppruna kynbættra norskra eldis- laxa eru því í eldiskvíum hér við land. Brýnt er að eldisbúnaður og verkferlar við eldið sé með þeim hætti að laxar haldist í kvíum og sleppi ekki úr þeim. Ef það gerist geta eldislaxar gengið í ár og bland- ist íslenskum laxi og þar með haft áhrif á erfðir og aðlögunarhæfni villtra laxastofna,“ segir m.a. á vef Veiðimálastofnunar. Myndir auðvelda greiningu á eldislaxi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.