Morgunblaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Sýningin hefur verið opin í allan dag.
Það er mikill léttir og allir ánægðir,“
sagði Björg Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Kynningarmiðstöðvar
íslenskrar myndlistar, seinnipartinn í
gær þar sem hún var í mannþröng við
íslenska sýningarskálann í Feneyj-
um. Óljóst var allt fram að opnun sýn-
ingar Christophs Büchel, Moskan –
Fyrsta moskan í sögulega hluta Fen-
eyja, hvort af henni gæti orðið þar
sem borgaryfirvöld höfðu ekki gefið
leyfi fyrir framkvæmdinni, en Mosk-
an er í afhelgaðri kirkju í borginni.
Björg sagði að einhverjir teldu að
formlegt leyfi væri fengið hjá yfir-
völdum í Feneyjum fyrir sýningar-
haldinu en sú væri þó ekki raunin.
„Við fengum annað bréf frá þeim í
morgun,“ sagði hún. „Við höfum enn
ekki fengið formlegt leyfi og nú er tal-
ið upp ýmislegt sem við megum ekki
gera. Við munum svara því í sam-
vinnu við lögfræðinga okkar; þetta er
áframhaldandi samtal til að reyna að
halda sýningunni opinni,“ segir hún.
„Í bréfinu segjast yfirvöld líka vilja
halda samtalinu áfram en við getum
ekki sætt okkur við sum skilyrðin sem
þeir setja, enda tengjast þau verkinu
ekki neitt.
Þetta verk snýst um samtal og nú
erum við í samtali við yfirvöld hér,
það er hluti af ferlinu.“
Yfirvöld höfðu sagst þurfa að hafa
góða löggæslu við skálann, vegna
hættu á mögulegri árás trúaröfga-
manna. Björg sagði lögreglumenn þó
ekki hafa sést við hann í gær.
Sýningin hófst með því að flutt voru
erindi, meðal annars töluðu Eiríkur
Þorláksson, fulltrúi menningarmála-
ráðuneytisins og formaður stjórnar
Kynningarmiðstöðvarinnar, Amin Al
Ahdab, formaður Félags múslima í
Feneyjum, og Ibrahim Sverrir Agn-
arsson, formaður Félags múslima á
Íslandi. Þá var leikin tónlist, kallað til
bæna og eftir bænastund múslima
nutu gestir sameiginlegrar máltíðar.
„Moskan var stútfull af gestum í
dag. Það var mikil og stór blanda,“
sagði Björg. „Íslenski skálinn hefur
aldrei fengið jafn mikla fjölmiðlaum-
fjöllun og með þessu verki.“
Hún segir spurningar fréttamanna
ólíkar, þeir ítölsku velti gjarnan leyf-
um og slíku fyrir sér og birtast
áhyggjur af innflytjendamálum og ísl-
am í þeirri samræðu. Fréttamenn
annarra landa horfi, að sögn Bjargar,
hins vegar af meiri víðsýni á verk
Büchel og hugmyndirnar að baki því.
Sýningin opnuð í
Feneyjum án leyfis
Íslenski skálinn hefur aldrei fengið jafn mikla umfjöllun
Opnunin Við opnun sýningar Christophs Büchel í gær var m.a. leikin tónlist og kallað til bæna. Margir sóttu sýn-
inguna heim, að sögn Bjargar Stefánsdóttur, framkvæmdastjóra Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar.
Ljósmynd/Guðmundur Oddur Magnússon
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður
Strandveiðar hafa farið vel af stað
í Grundarfirði. Rúmlega 20 bátar
eru gerðir út héðan og þessa fyrstu
viku hafa flestir náð skammtinum
þrátt fyrir norðan kaldaskít. Þorsk-
urinn sem bátarnir landa er stór og
fallegur. Fyrstu bátarnir eru að
koma að landi upp úr kl. 2 á daginn
með skammtinn og síðan koma þeir í
hollum fram eftir degi, segir hafn-
arstjórinn Hafsteinn Garðarsson.
Í kjölfar vaxandi ferðamanna-
straums á Snæfellsnes með viðkomu
í Grundarfirði hefur framboð á veit-
ingastöðum verið að aukast. Auk
Hótels Framness og veitingastað-
arins Rúbens var í vetur opnað veit-
ingahúsið Kaffi Láki í næsta ná-
grenni við hafnarsvæðið. Þar er
einnig afgreiðsla Láka Tours sem
gerir út á hvalaskoðun ásamt fugla-
skoðun og sjóstangveiði. Nýtt veit-
ingahús, Bjargarsteinn, verður síð-
an opnað í sumarbyrjun og er það
fremst á Framnesinu og mun það
státa af ægifögru útsýni út Grund-
arfjörðinn með Kirkjufellið í for-
grunni.
Skipulagsmál hafa verið að
þvælast fyrir fyrirhuguðum stór-
framkvæmdum í Grundarfirði en
svo virðist sem valdsvið skipulags-
mála hafi færst til Reykjavíkur þrátt
fyrir að málaflokkurinn tilheyri
verkefnum sveitarfélaga. Allt útlit
er fyrir að tafir á afgreiðslu skipu-
lagsbreytinga verði til að seinka
framkvæmdum við stækkun Hótels
Framness um eitt árið enn. Þá er
haft eftir Guðmundi Smára Guð-
mundssyni, framkvæmdastjóra
GRUN hf., í síðasta tbl. Skessu-
horns að erfitt sé að tímasetja fyr-
irhugaða stækkun fiskvinnslufyr-
irtækis GRUN hf. vegna þess að
skipulagsmálum sé stjórnað frá
Reykjavík.
Nýverið sótti Mikligarður ehf.um
tvær lóðir í miðbæ Grundarfjarðar
og fyrirhugar að reisa þar lágvöru-
verðsverslun. Umhverfisnefnd
Grundarfjarðarbæjar samþykkti að
taka lóðirnar frá í þrjá mánuði og
óskaði eftir viðræðum um bygging-
aráform Miklagarðs á svæðinu áður
en lóðunum verður úthlutað.
Nokkur óvissa ríkir nú í skóla-
málum í Grundarfirði þar sem skóla-
stjóri og aðstoðarskólastjóri grunn-
skólans, sem komu nýir til starfa sl.
haust, munu hverfa á braut í lok
þessa skólaárs. Þá hefur bæjarráð
samþykkt að leggja til við bæjar-
stjórn að ráðist verði í skipulags-
breytingar á Tónlistarskóla Grund-
arfjarðar í kjölfar rekstrarúttektar á
skólanum.
Strandveiðarnar hafa
farið vel af stað í vor
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Strandveiðarnar Jón Emil Svanbergsson var fyrstur að landi á fimmtudag.
Verslunareigendur hafa gagnrýnt
harðlega nýja könnun, sem verð-
lagseftirlit ASÍ birti á fimmtudag á
verði raftækja. Að sögn ASÍ benti
könnunin til þess að verð hefði ekki
lækkað á heimilistækjum í sam-
ræmi við afnám vörugjalda og
lækkun virðisaukaskatts um ára-
mótin.
Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar
og þjónustu, segir gagnrýni á
vinnubrögð ASÍ við gerð könnunar-
innar snúa fyrst og fremst að
tveimur þáttum. Könnunin miði við
verðþróun frá október á síðasta ári
til apríl á þessu ári en mörg fyr-
irtæki hafi lækkað verð strax eftir
að fjárlagafrumvarpið var lagt
fram í september þar sem boðað
var að vörugjöldin yrðu afnumin
um áramót. Þá hafi ASÍ ekki tekið
tillit til gengisáhrifa í könnun sinni.
„Öll fyrirtæki sem við töluðum við
eru hörð á því að þau hafi skilað
lækkuninni áfram,“ segir Andrés.
Kristjana Birgisdóttir, verkefn-
isstjóri verðlagseftirlits ASÍ, segir
könnunina hafa verið gerða með
hefðbundnum hætti, starfsmaður
hafi farið í verslanir og borið sam-
an vöruverð í tvígang yfir tiltekið
tímabil. Staðfestir hún að margar
verslanir höfðu auglýst verðlækkun
þegar verðkönnunin hófst og að til-
boð í verslunum við upphaf tímabils
geti því hafa haft áhrif á niður-
stöður. „Tilboð getur því að sjálf-
sögðu haft áhrif, það getur verið að
einhverjar vörur komi illa út en
ólíklegt að það eigi við um línuna,“
segir Kristjana.
Hún harmar að fullyrðingar um
stöðugt gengi krónunnar hafi fylgt
með skýrslunni á vefsvæði ASÍ og
segir það hafa verið fyrir mistök.
Einungis sé um að ræða samanburð
og ekki litið til annarra þátta. Ekki
sé hægt að verða við kröfu versl-
unareigenda um að skýra hvaða
vörutegundir hafi verið skoðaðar
þar sem fyrirhugað sé að gera aðra
úttekt á vörunum og sjá hvort
verslanir hafi leiðrétt verð hjá sér.
Sjónvörp Vörugjöld féllu niður.
Gagnrýna verð-
könnun ASÍ
Segja ekki tekið tillit til lækkana í fyrra