Morgunblaðið - 09.05.2015, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015
Illugi Gunnarsson, menningar- og
menntamálaráðherra, hefur fallist
á að skipaður verði samráðshópur
vegna sameiningar Iðnskólans í
Hafnarfirði og Tækniskólans ehf.
Illugi átti í vikunni fund með
Haraldi Líndal, bæjarstjóra Hafn-
arfjarðar, um málið. Rósa Guð-
bjartsdóttir, formaður bæjarráðs
Hafnarfjarðar, segir óljóst hverjir
taka sæti í þessum hópi en trúlega
verði hann skipaður fulltrúum frá
ráðuneytinu, bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar og Tækniskólanum.
„Þetta er nýr hópur sem á að
stofna um framtíð Iðnskólans í
Hafnarfirði og bærinn myndi eiga
fulltrúa í honum. Það sem er okkur
fyrst og fremst í huga er að Iðn-
skólinn og þetta iðnnám sem boðið
hefur verið upp á haldist í bæjar-
félaginu. Okkur er öllum í mun að
styrkja og styðja iðnnám og starfs-
nám í landinu öllu, þessi aðgerð á
að vera liður í því og við viljum
koma þar að máli,“ segir Rósa.
Samráðs-
hópur um
sameiningu
Fjallar um iðnnám
í Hafnarfirði
Morgunblaðið/Ómar
Hafnarfjörður Bæjaryfirvöld hafa
áhyggjur af iðnnámi í bænum.
Malín Brand
malin@mbl.is
Slátrun á svínum hófst í gær eftir
að undanþágur voru veittar svína-
ræktendum í vikunni. Engin heil-
brigðisskoðun hefur átt sér stað á
sláturafurðum svínaræktenda í tæp-
ar þrjár vikur vegna verkfalls dýra-
lækna hjá Matvælastofnun. Var und-
anþágan veitt af
dýraverndarsjónamiðum þar sem
þröngt var orðið um dýrin í eldishús-
unum. Afurðirnar má ekki selja fyrr
en að verkfalli loknu og fara þær því
í frysti.
Um hundrað og þrjátíu svínum frá
búunum í Haga og Laxárdal á Suð-
urlandi var slátrað hjá Sláturfélagi
Suðurlands í gærmorgun sem eru
töluvert færri svín en slátrað er að
jafnaði í viku hverri hjá félaginu.
„Til að koma til móts við bændur og
vegna dýravelferðarsjónarmiða
ákváðum við að gangast undir þess-
ar kröfur,“ segir Guðmundur Svav-
arsson, framleiðslustjóri hjá Slát-
urfélaginu, og vísar þar til
kröfunnar um að kjötið færi ekki á
markað. „Við teljum raunar að vafi
leiki á lögmæti þeirrar kröfu.“
Á Norðurlandi er staðan önnur
því ekki tókst að afgreiða undanþág-
urnar í tæka tíð til að hægt væri að
slátra fyrir helgina. Erik Jensen,
framkvæmdastjóri B Jensen ehf. á
Akureyri, annast slátrun fyrir allt
Norðurland og gerir hann ráð fyrir
að slátra 130 svínum á mánudag og
130 á þriðjudag en lengur gildir
undanþágan ekki og þarf þá að
sækja um að nýju, standi verkfall
enn og ekki vinnur tíminn með
svínaræktendum þar sem bið eftir
afgreiðslu umsókna hefur gengið
hægt fyrir sig og einnig er almennur
frídagur næsta fimmtudag. „Við
vorum fyrst að fá staðfestinguna í
gegn núna en fáum að slátra á
mánudaginn,“ sagði Erik í samtali
við blaðið eftir hádegið í gær. Eins
og staðan er núna bíða um fimm þús-
und grísir slátrunar því alla jafna er
um 1.800 slátrað á viku á landsvísu
sem gefur á bilinu 150-160 tonn af
kjöti.
Engum svínum slátrað fyrir norðan
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Bið Um 5.000 grísir bíða slátrunar.
Slátrun hafin á Suðurlandi Um 5.000 grísir bíða slátrunar vegna verkfalls
Félagsmenn í
Lands-
sambandi bak-
arameistara
efna til sölu á
brjóstabollum í
bakaríum um
allt land um
mæðradagshelgina 8.-10. maí.
Bollusalan er til stuðnings styrkt-
arfélaginu Göngum saman sem
styrkir grunnrannsóknir á brjósta-
krabbameini og úthlutar styrkjum í
október ár hvert. Þetta er í fimmta
sinn sem Landssamband bakara-
meistara styrkir Göngum saman
með þessum hætti og hafa hingað
til alls safnast hátt í fimm milljónir
króna sem hafa runnið óskiptar til
grunnrannsókna á brjóstakrabba-
meini.
„Brjóstabollan í ár er gómsæt
rjómabolla með berjafyllingu. Í til-
efni verkefnisins verða búðir fé-
lagsmanna skreyttar með bleikum
blöðrum og veggspjöldum um
mæðradagshelgina,“ segir í til-
kynningu.
Bakarar selja
brjóstabollur