Morgunblaðið - 09.05.2015, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015
Fjölbreytileikanum í borginni verð-
ur fagnað í sjöunda sinn í Reykjavík
laugardaginn 9. maí á árlegum fjöl-
menningardegi borgarinnar. Hátt í
10.000 manns sóttu hátíðina í fyrra,
sem er met.
Borgarstjóri setur hátíðina stund-
víslega kl. 13.00 á Skólavörðuholti,
að því loknu fer skrúðgangan af
stað og endar við Ráðhúsið. Fjöldi
fólks hefur ár hvert tekið þátt í
göngunni og ræður litagleðin ríkj-
um.
Þegar í Ráðhúsið kemur verður
opnaður fjölþjóðlegur markaður
þar sem gestir og gangandi geta
kynnt sér menningu ýmissa þjóð-
landa og á boðstólum verða þjóð-
legir réttir, listmunir og annar varn-
ingur. Í Tjarnarbíói og Iðnó verður
boðið upp á skemmtidagskrá þar
sem ýmsir listamenn koma fram.
Fjölmenningardagur
í höfuðborginni
STUTT
Hreinsunardagur verður haldinn á
Seltjarnarnesi í dag, laugardaginn
9. maí.
Opið verður á Eiðistorgi milli 10
og 14 þar sem Baldur Gunnlaugs-
son kynnir moltugerð og Steinunn
Árnadóttir garðyrkjufræðingur
gefur góð ráð.
Á hreinsunardeginum gefst bæj-
arbúum kostur á að setja saman-
bundnar trjágreinar og jarðvegs-
úrgang í pokum út á gangstétt.
Starfsmenn bæjarins munu svo
hirða upp úrganginn næstu daga.
Hreinsunardagur á
Seltjarnarnesi
Fjölmargar borgir í Evrópu standa
fyrir hreinsunarátaki helgina 8.-10.
maí bæði til að fegra umhverfið og
vekja fólk til umhugsunar um
neysluvenjur. Reykjavíkurborg
tekur þátt í Evrópskum hreins-
unardögum. Markmiðið er að fegra
ásýnd borgarinnar með því að taka
til í hverfinu sínu og finna leiðir til
að draga úr sóun með breyttum
venjum. „Helgin er kjörin fyrir
íbúa, húsfélög, íbúasamtök og heilu
göturnar til að fegra umhverfi sitt
fyrir sumarið með því að safna rusli
í svarta plastpoka,“ segir í tilkynn-
ingu. Starfsfólk Reykjavíkurborgar
fer um hverfin mánudaginn 11. maí
og tínir pokana upp.
Hreinsunarhelgi í höfuðborginni
Á morgun, laugardag, munu EVEN
rafbílar frumsýna Tesla Model S
P85D. Verður einn slíkur bíll til
sýnis í Smáralind og annar fyrir
framan Vetrargarðinn. Af því til-
efni verður boðið upp á reynslu-
akstur, grill og gos. Með hverjum
seldum rafbíl fylgir sólarlandaferð
fyrir tvo til Costa Brava á Spáni.
AFP
Rafbíll Hin aflmikla Tesla Model S P85d.
Tesla frumsýnd í
Smáralind
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við erum þaulvön þessu hér á Norð-
austurlandi. Ég held að ég geti rifjað
upp býsna mörg ár þar sem allt fé
var inni til 20. maí. Það fer ennþá
enginn hrollur um okkur,“ segir Ein-
ar Ófeigur Björnsson, bóndi á Lóni 2
í Kelduhverfi og forystumaður í fé-
lagsmálum bænda.
Sauðburður er hafinn um allt land
en ekki viðrar vel til þess víða um
norðan- og austanvert landið. Kalt er
á þessum svæðum og enn frost á
daginn. „Það var stórhríð á köflum
hér í gær og nú er snjór yfir öllu,“
sagði Einar Ófeigur í gær. Hann tók
fram að snjórinn væri ekki mikill og
hyrfi um leið og eitthvað færi að
hlýna.
Tæp vika er síðan sauðburður
hófst fyrir alvöru á Lóni 2 og voru í
gær um 100 ær bornar af um 500.
Einar segir að sauðburðurinn gangi
ágætlega. Ekki er viðlit að hleypa
fénu út í snjó, kulda og hagleysu
enda segir Einar Ófeigur að flestir
bændur á þessum slóðum hafi nægt
húspláss til að klára sauðburðinn
inni. Menn geti alltaf átt von á þess-
um aðstæðum. Einstaka bóndi gæti
þó lent í vandræðum.
Ljósmóðir til hjálpar
Einar Ófeigur og kona hans, Guð-
ríður Baldvinsdóttir, hafa verið ein
við sauðburðinn til þessa. Í gær-
kvöldi áttu þau þó von á fólki til að-
stoðar. Systir Einars ætlaði að
koma. „Ég vona að það verði ekki
túlkað sem verkfallsbrot,“ segir Ein-
ar en systir hans er ljósmóðir í verk-
falli BHM.
Það hjálpar mörgum bændum á
Norðausturlandi að þeir eiga mikil
hey eftir gott heyskaparsumar í
fyrra. Einar Ófeigur tekur þó fram
að sprettan hafi verið svo góð að
bændur ekki alltaf náð að slá grasið
nógu snemma. Því sé ekki allt fóðrið
eins gott.
Það fer ennþá enginn
hrollur um okkur
Bændur á Norður-
landi vanir sauðburði
í köldum vorum
Ljósmynd/Guðríður
Bóndinn Mörg handtök eru við sauðburðinn. Einar Ófeigur í fjárhúsunum.
Lón Sinubrúskar standa upp úr snjó en gróður ekkert farinn að lifna við.
Veðurfarið norðaustanlands hefur
verið fuglum erfitt á þessu vori, en
flestir eru þeir þó duglegir að bjarga
sér. Þannig er varp byrjað hjá álft,
en líklega seinkar varpi hjá gæs,
sem enn má sjá í stórum hópum á
túnum fyrir norðan, að sögn Að-
alsteins Snæþórssonar, líffræðings
hjá Náttúrustofu Norðausturlands á
Húsavík.
Hann segir að til dæmis heiðlóa,
hrossagaukur og stelkur sjáist tals-
vert í fjörum þar sem fuglarnir kom-
ist helst í æti. Eins megi sjá hrossa-
gauka víða við læki þar sem
frostlaust er. Minni fuglar eins og
þrestir njóti þess að fólk sé duglegt
að gefa þeim og sjá megi þá í hópum
í görðum fólks og heima við bæi.
Ekki er allur stofn þessara farfugla
kominn á sumarslóðir sínar á Norð-
urlandi og virðist sem hægt hafi á
fari þeirra.
Ekki eru jarðbönn á þessum slóð-
um, en skaflar og víða þunn snjóhula
á túnum. Frost hefur verið undan-
farið, en sólin er komin hátt á loft og
nær að hita þegar hún skín. Austar á
landinu er hins vegar meiri snjór.
Sjaldgæfir flækingar
Á vefnum fuglar.is má sjá að und-
anfarið hafa nokkrar mjög sjaldgæf-
ar tegundir komið til landsins þrátt
fyrir norðlægar áttir, en þar er
greint frá mjallgæs, fagurgæs, bog-
nef, flotmeisu og kolönd. Algengast
er að sjaldgæfar tegundir komi
hingað að vori og hausti þegar far er
á fuglum og þá einkum í suðaust-
anátt.
Aðalsteinn telur líklegt að gæs-
irnar hafi slegist í för með gæsum af
öðrum tegundum. Um flotmeisuna
segir hann að í vetur hafi tveir slíkir
fuglar dvalið á Egilsstöðum og verið
á gjöf frá fólki.
aij@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Kuldakast Það er ekki nýtt að kalt sé í veðri í maímánuði. Á myndinni reyn-
ir jaðrakan að bjarga sér í hreti í síðari hluta maí fyrir tíu árum.
Bjarga sér í kuldanum
Varp byrjað hjá álftum fyrir norðan
Heiðlóa og hrossagaukur leita í fjöruna
Mæðradagurinn
er á morgun
Gleðjum mömmu með blómum!