Morgunblaðið - 09.05.2015, Page 24
AFP
Sigurvegarinn David Cameron forsætisráðherra og kona hans, Samantha, á tröppum Downing Street 10 í gær.
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Íhaldsmenn fengu meirihluta á
breska þinginu í kosningunum í
fyrradag og úrslitin eru mikill sigur
fyrir leiðtoga þeirra, David Cameron
forsætisráðherra, sem tókst að auka
fylgi flokksins þrátt fyrir erfiðar
sparnaðaraðgerðir til að minnka fjár-
lagahallann. Þetta hlýtur að teljast
talsvert afrek í ljósi þess að aðeins
einu sinni áður í nútímasögu Bret-
lands hefur stjórnarflokki tekist að
styrkja stöðu sína á þinginu. Fyrra
skiptið var á níunda áratug aldar-
innar sem leið þegar Margaret
Thatcher var við völd.
Cameron sætti gagnrýni í Íhalds-
flokknum eftir kosningarnar árið
2010 þegar honum tókst ekki að ná
meirihluta á þinginu og þurfti að
mynda stjórn með Frjálslyndum
demókrötum. Margir flokksbræður
hans efuðust um að hann væri fær
um að auka fylgi flokksins nógu mik-
ið til að ná meirihluta á þinginu. Úr-
slitin ættu því að styrkja stöðu hans í
flokknum.
Hætta á uppreisnum
Til að ná hreinum meirihluta þurfti
Íhaldsflokkurinn að fá 226 sæti og
hann fékk 331. Meirihlutinn er naum-
ur og tiltölulega fámenn uppreisn í
þingliði flokksins gæti því stofnað
stjórninni í hættu.
Fráfarandi stjórn var með alls 363
þingsæti á bak við sig og Cameron
þurfti stundum að reiða sig á stuðn-
ing Frjálslyndra demókrata þegar
þingmenn úr röðum íhaldsmanna
risu upp gegn stjórninni. Líklegt er
því að andstæðingar ESB-samrun-
ans í flokknum verði í betri aðstöðu
til að knýja Cameron til að taka harð-
ari afstöðu gegn Evrópusambandinu.
Cameron hefur sagt að hann hygg-
ist aðeins gegna embætti forsætis-
ráðherra í tvö kjörtímabil og það
gæti aukið líkurnar á því að öflugur
stjórnmálamaður bjóði sig fram gegn
honum í leiðtogakjöri í flokknum síð-
ar á kjörtímabilinu. Boris Johnson,
borgarstjóri Lundúna, og George Os-
borne fjármálaráðherra hafa verið
nefndir sem hugsanlegir eftirmenn
hans.
Cameron áréttaði í gær að hann
hygðist efna til þjóðaratkvæða-
greiðslu um aðild Bretlands að Evr-
ópusambandinu fyrir lok ársins 2017.
Hann hefur sagt að hann sé hlynntur
aðildinni, að því gefnu að sam-
komulag náist um breytingar á
tengslum Bretlands við Evrópusam-
bandið. Talið er að samningaviðræð-
urnar við ESB verði erfiðar, m.a.
vegna áforma Camerons um að tak-
marka innflutning fólks frá aðildar-
löndum Evrópska efnahagssvæðis-
ins. Leiðtogar margra annarra
ESB-ríkja og framkvæmdastjórnin í
Brussel segja að það myndi ganga í
berhögg við regluna um frjálst flæði
vinnuafls, eina af meginreglum innri
markaðar Evrópusambandsins.
Fréttaveitan AFP hefur eftir
stjórnmálaskýrendum að óvæntur
kosningasigur Íhaldsflokksins geti
styrkt stöðu Camerons í viðræðunum
við ESB og aukið líkurnar á því að
Bretland verði áfram í sambandinu.
„Hættan á að Bretar gangi úr Evr-
ópusambandinu hefur snarminnkað,
vegna þess að Cameron hefur fengið
fullt umboð kjósenda og styrkt stöðu
sína í flokknum,“ hefur AFP eftir
hátt settum stjórnarerindreka ESB-
ríkis í Brussel.
Mikið í húfi
Komandi kjörtímabil gæti reynst
afdrifaríkt fyrir Bretland því það get-
ur ekki aðeins ráðið úrslitum um að-
ild Bretlands að ESB heldur hafa
einnig vaknað spurningar um
framtíð Sameinaða konung-
dæmisins vegna stórsigurs
Skoska þjóðarflokksins sem fékk
56 af 59 þingsætum Skot-
lands. Það verður því mjög
spennandi að fylgjast með
framgöngu Camerons á
kjörtímabilinu og mikið í
húfi.
Styrkir Cameron á
afdrifaríku tímabili
Sigurinn styrkir samningsstöðu Breta í viðræðum við ESB
Samkvæmt lokatölum í gær
Skipting þingsætanna
Heimild: BBC
Íhalds-
flokkurinn
UKIP (Breski
sjálfstæðis-
flokkurinn)
Verkamanna-
flokkurinn
Græn-
ingjar
Frjálslyndir
demókratar
Skoski þjóðarflokkurinn
ENGLAND
SKOTLAND
WALES
NORÐUR-
ÍRLAND
LUNDÚNIR
Aðrir
Flokkar íWales
og áN-Írlandi
SKOTLAND
Hjaltland
Orkneyjar
211
56
232 331
1
8
Græningjar
Íhaldsflokkurinn
UKIP
Verkamannaflokkurinn
Frjálslyndir demókratar
Aðrir
Skoski
þjóðar-
flokkurinn
Skv. lokatölum
Íhaldsflokkurinn fékk meirihluta
Heimild: BBC
650
sæti
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015
Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, óskaði í gær
eiginmanni sínum, Stephen Kinnock, til hamingju með þingsæti sem
hann fékk í kosningunum í Wales í fyrradag. Kinnock er 45 ára, sonur
Neils Kinnock, fyrrverandi leiðtoga Verkamannaflokksins.
Breskir fjölmiðlar hafa lýst Stephen Kinnock sem einum af
„rauðu prinsunum“ svonefndu, þ.e. sonum áhrifamanna í Verka-
mannaflokknum sem hafa verið valdir í framboð fyrir flokkinn í
öruggum kjördæmum. Hann fékk þingsæti bæjarins Aberavon í
Suður-Wales með miklum meirihluta atkvæða.
Rauði prinsinn komst á þing
EIGINMAÐUR FORSÆTISRÁÐHERRA DANMERKUR SIGRAÐI
Stephen
Kinnock