Morgunblaðið - 09.05.2015, Síða 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Leiðtogar þriggja flokka í Bretlandi
– Verkamannaflokksins, Frjáls-
lyndra demókrata og UKIP – sögðu
af sér í gær eftir bresku þingkosn-
ingarnar.
Ed Miliband tilkynnti afsögn sína
sem leiðtogi Verkamannaflokksins
sem fékk 232 sæti á breska þinginu,
26 færri en í síðustu kosningum árið
2010. Flokkurinn tapaði 40 sætum í
Skotlandi en vann 14 sæti í Englandi
og Wales.
Frjálslyndir demókratar guldu
mikið afhroð eftir að hafa verið í
stjórn með Íhaldsflokknum á síðasta
kjörtímabili. Flokkurinn missti 49 af
57 þingsætum sínum.
Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra
demókrata, náði endurkjöri á breska
þingið en sagði af sér sem leiðtogi
flokksins. „Úrslitin voru miklu verri
fyrir flokkinn en mig hefði getað ór-
að fyrir,“ sagði hann.
Fylgið jókst um tæpt prósent
Nigel Farage sagði af sér sem leið-
togi UKIP, Breska sjálfstæðis-
flokksins, sem missti annað af þing-
sætum sínum. Farage tókst ekki að
ná kjöri á þing í sjöundu tilraun og
hafði lýst því yfir að hann myndi ekki
fara fyrir flokknum kæmist hann
ekki á breska þingið.
Farage lagði til að Suzanne Evans,
varaformaður UKIP, færi fyrir
flokknum þar til nýr leiðtogi yrði
kjörinn. Að sögn breska ríkis-
útvarpsins er þó hugsanlegt að Far-
age gefi kost á sér í leiðtogakjörinu.
Samkvæmt síðustu tölum fékk
Íhaldsflokkurinn 36,9% atkvæðanna,
0,8 prósentustigum meira en í síð-
ustu kosningum.
Verkamannaflokkurinn fékk
30,5% fylgi, 1,5 prósentustigum
meira en í kosningunum árið 2010.
UKIP fékk 12,6% atkvæðanna og
fjórfaldaði fylgi sitt frá síðustu kosn-
ingum þegar hann fékk 3,1%.
Frjálslyndir demókratar fengu
7,8% og fylgi þeirra minnkaði um 15
prósentustig frá síðustu kosningum.
Kjörsóknin var um 66%, sam-
kvæmt síðustu tölum. Hún var ívið
meiri en í síðustu kosningum og sú
mesta frá árinu 1997.
Kannanirnar rannsakaðar
Úrslitin eru ekki aðeins áfall fyrir
Verkamannaflokkinn og Frjálslynda
demókrata, heldur einnig fyrirtæki
sem annast skoðanakannanir og
vinna úr niðurstöðum þeirra. Fyrir-
tækin höfðu mánuðum saman sagt að
Íhaldsflokkurinn og Verkamanna-
flokkurinn væru hnífjafnir eða að lít-
ill munur væri á fylgi þeirra. Daginn
fyrir kosningarnar voru birtar ellefu
kannanir sem allar bentu til þess að
kosningarnar yrðu mjög jafnar.
Samtök breskra skoðanakönnuða
sögðust í gær ætla að hefja rannsókn
á því hvort ónákvæmni kannananna
mætti rekja til þess að tilhögun
þeirra hefði verið ábótavant.
Tony Travers, prófessor í stjórn-
málafræði við London School of
Economics, segir að hugsanlega
megi rekja ónákvæmnina til fylgis-
sveiflu á endaspretti kosningabarátt-
unnar, gallaðra könnunaraðferða,
eða tregðu fylgismanna Íhalds-
flokksins til að segja frá því að þeir
hygðust kjósa hann. Breskir skoð-
anakönnuðir virðast stundum van-
meta fylgi flokksins vegna þessarar
tregðu „feiminna íhaldsmanna“.
Þrír flokksleiðtogar sögðu af sér
Ed Miliband og Nick Clegg draga sig í hlé vegna ósigra Verkamannaflokksins og Frjálslyndra
demókrata Nigel Farage tókst ekki að ná sæti á breska þinginu og vék því sem flokksleiðtogi
AFP
Sagði af sér Ed Miliband og kona hans, Justine Thornton, við höfuðstöðvar Verkamannaflokksins í Lundúnum.
Galt afhroð Nick Clegg, leiðtogi
Frjálslyndra demókrata.
Komst ekki á þing Nigel Farage,
forystumaður UKIP.
Umhverfis-
skýrslan er
opin öllum
Kynntu þér starfsemi og áherslur
Landsvirkjunar í umhverfismálum á
umhverfisskyrsla2014.landsvirkjun.is
Í ár eru 50 ár frá stofnun Landsvirkjunar. Kröfur
til umhverfismála eru sífellt að aukast og er það
markmið okkar að vera í fararbroddi á því sviði.
Í skýrslunni er meðal annars fjallað um upp
byggingu á Þeistareykjum, niðurstöður fjöl-
breyttra umhverfisrannsókna og sjálfbæra
nýtingu auðlinda.
Umhverfisskýrsla Landsvirkjunar er eingöngu gefin út
á rafrænu formi.
Landsvirkjun.is