Morgunblaðið - 09.05.2015, Page 26

Morgunblaðið - 09.05.2015, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fáir spáðufyrir umþau úrslit sem urðu í kosn- ingunum í Bret- landi á fimmtudag og allra síst þeir sem helst gefa sig út fyrir slíka spádóma með vísindalegum mælingum á af- stöðu kjósenda. Þegar horft var til þeirra mælinga virtist allt í járnum á milli stóru flokk- anna tveggja, Íhaldsflokksins og Verkamannaflokksins. Svo komu útgönguspárnar í fyrra- kvöld og þá virtist ljóst að íhaldsmenn ynnu góðan sigur þó að þeim væri enn ekki spáð meirihluta. Mikil spenna ríkti því áfram en þegar leið á kosn- inganóttina og árla morguninn eftir var orðið ljóst að David Cameron þyrfti ekki stuðning annarra flokka til að sitja áfram í Downingstræti 10. Íhaldsflokkurinn hampaði hreinum meirihluta í einum óvæntustu kosningum síðari tíma. Spennan var slík að blöðin biðu fram undir morgun með prentun og þegar þau komu út leyndi sér ekki að úrslitunum var misjafnlega tekið. „Fimm fjandans ár í viðbót (e. Five more damned years),“ var upp- slátturinn á svartri forsíðu Daily Mirror, en öllu léttara var yfir Daily Mail: „Hallelúja! Bretland greiðir atkvæði með heilbrigðri skynsemi (e. Hal- lelujah! Britain votes for sa- nity).“ Hægt er að hafa ýmsar skoð- anir á því hvers vegna Íhalds- flokkurinn fékk miklu betri kosningu en spáð hafði verið en eitt er einmitt athyglisvert og það er afstaða bresku dagblað- anna. Þau höfðu í vaxandi mæli fylkt sér að baki Íhalds- flokknum síðustu dagana fyrir kosningar. Fyrir utan Daily Mirror var það aðeins The Guardian sem studdi Verka- mannaflokkinn, The Independ- ent og Financial Times studdu óbreytta ríkisstjórn frjáls- lyndra og íhaldsmanna, en nánast öll önnur blöð sem ein- hvers mega sín studdu íhalds- menn. Svo sterkur stuðningur dag- blaðanna kann að hafa haft mikil áhrif á lokametrunum og er það athyglisvert, ekki síst í ljósi þess að umræðan er stundum á þann veg að nýir miðlar hafi tekið við og að vægi blaða sé lítið orðið. En fleira hefur vitaskuld ráðið á lokametrunum. Í ár- angursríkri kosningabaráttu Bills Clintons fyrir rúmum tveimur áratugum notaði hann óvenjulegt slagorð, „Það er efnahagurinn, asninn þinn“ (e. It’s the economy, stupid), og lagði með því George Bush eldri. Efnahagsmálin eru alltaf þýðingarmikil í kosningum og að þessu sinni kann að vera að þegar á hólminn var komið hafi fólk verið þokkalega sátt við efnahags- ástandið í Bretlandi, ekki síst þegar það horfði yfir sundið til meginlandsins, og ekki viljað hætta á að gefa Verkamanna- flokknum tækifæri til að koma stefnu sinni í framkvæmd. Þar kann einnig að hafa skipt verulegu máli að ljóst þótti að sá flokkur gæti aðeins stýrt með aðstoð skoskra þjóð- ernissinna, sem Englendingum þótti ekki álitlegur kostur. Úrslitin norðan skosku landamæranna eru raunar kapítuli út af fyrir sig, þar sem þjóðernissinnar fengu 56 af 59 þingsætum og nánast þurrk- uðu út Verkamannaflokkinn í Skotlandi sem löngum hefur getað gengið að góðu fylgi þar vísu. Skoski þjóðarflokkurinn fær fleiri þingmenn en efni standa til ef horft er á fylgi á landsvísu og þegar hann er til dæmis borinn saman við Breska sjálf- stæðisflokkinn, UKIP, er mun- urinn sláandi. Sá skoski fékk sína 56 þingmenn með innan við 5% fylgi en UKIP fékk einn þingmann með tæplega 13% fylgi. Þetta er ein af afleið- ingum kosningakerfisins breska, sem tryggir flokkum ekki þingstyrk í réttu hlutfalli við stuðning, en tryggir al- mennt stöðugleika í stjórn- arfari og að auðveldara er fyrir kjósendur að draga stjórn- málamenn til ábyrgðar. Slæm niðurstaða UKIP kom þrátt fyrir mikla fylgisaukn- ingu flokksins, en aðra sögu er að segja um Frjálslynda demó- krata, sem máttu þola fækkun þingmanna sem var sanngjörn með hliðsjón af miklu fylgis- hruni. Haft var eftir Cameron á kosninganótt að sigurinn hefði verið sætur en síðan hefur hann lagt áherslu á að verk- efnið sé að sameina Stóra- Bretland enda telja ýmsir að úrslitin í Skotlandi þýði enda- lok ríkisins í óbreyttri mynd. Forsætisráðherrans bíða mörg önnur verkefni, til að mynda að standa við það að leyfa Bretum að greiða at- kvæði um hvort þeir vilja vera áfram í Evrópusambandinu. Þingkosningarnar eru öðrum þræði sigur þeirra sem hafa efasemdir um aðild Bretlands að ESB og ætli Cameron sér að eiga þokkalega möguleika á að endurtaka leikinn í næstu kosningum er brýnt fyrir hann að leysa spurninguna um ESB á farsælan hátt. Hann hefur ekki sýnt mikla tilburði í þá átt hingað til. Óvænt úrslit í Bretlandi vekja ýmsar spurningar} Sætur sigur P assaðu þig á börnunum,“ sagði Egill á eftir kærastanum sínum Daníel þegar hann skaust á litla Yarisnum út í Ísbúð Vesturbæjar fyrir þá. Egill var nefnilega meðvitaður um að á Íslandi hefur almenningsálitið fyrir löngu breyst þannig að fórnarlömbum er ekki lengur kennt um það sem hendir þau, heldur er sökin lögð á gerandann. Þess vegna ætlast Egill ekki til þess að foreldrar leggi ábyrgðina á umferð- arslysum á börnin sín, sem yfirleitt eru lítið sem ekkert varin í umferðinni gegn risavöxn- um reykspúandi morðkössunum sem þeysast um borgina, ökumenn þeirra oft of seinir, í sím- anum, reykjandi, þreyttir, pirraðir og al- gjörlega ómeðvitaðir um umhverfi sitt. Þrátt fyrir málmbúrið sem umlykur þá, og fríar þá þar með frá öllum hættum þegar þeir keyra niður fótgangangi kjötpoka, fyrir utan ævarandi vanlíðan, er krafan sú að þeir sem hætta sér varnarlitlir út í umferð- ina beri höfuðábyrgð á eigin öryggi, ekki þeir sem myndu valda skaðanum. Það er eitthvað mjög bogið við þetta. Umræða um hjólreiðahjálma kviknaði þegar Hjálmar Sveinsson gerðist svo djarfur að hjóla hjálmlaus. Þvílík hneisa. Allir vita að hjálmar bjarga mannslífum. En þeir bjarga ekki bara lífum hjólreiðamanna. Rannsóknir benda til að höfuðáverkar á ökumönnum og farþegum bíla séu margfalt algengari en höfuðáverkar hjólreiðamanna. Eðli- lega, því fólk ferðast miklu fleiri kílómetra í bíl. Sé hins vegar leiðrétt fyrir þessa breytu, þá eru höfuðáverkar hjólreiðamanna og þeirra sem nota bíl jafn- algengir. Hins vegar dytti engum í hug að krefja ökumenn og farþega um að ferðast með hjálm. Þrátt fyrir það er viðkvæðið að við sem hjólum hjálmlaus séum að stofna lífi okkar í óþarfa hættu, en ekki þeir sem hætta sér á Yaris að kaupa Vesturbæjarís. Við erum í jafn- mikilli hættu. Gamlir hundar setjast samt seint og kerlingabækur eru þykkari en skyn- semin. En hvað um hættuna sem við sköpum fyrir aðra? Einn hjálmlaus ég á hjóli á 30 kílómetra hraða niður Túngötuna myndi örugglega stór- slasa lítið barn sem hlypi í veg fyrir mig. Ef ég næði að bregðst við í tíma þá myndi ég örugg- lega stórslasa sjálfan mig í leiðinni við að reyna að forðast áreksturinn, hruflast á höndum og jafnvel missa nokkrar tennur. En við myndum sennilega bæði lifa og ná fullum bata. Skriðþungi minn, hjólsins míns og bakpoka er kannski margfeldi af 100 kíló- um. Yarisinn sem Daníel er á er hins vegar 10 sinnum þyngri. Þar þyrfti ekki að spyrja að leikslokum. Daníel væri hins vegar ósár á líkama, en ísinn hefði sennilega sullast út um allt. Eins og til að bæta gráu ofan á svart virðist sem öku- menn sýni hjólreiðamönnum með hjálma almennt minna tillit en þeim hjálmlausu, því þeir virðast berskjaldaðri. Besta vörn mín gegn stærstu hættunni á vegunum, frek- um og ótillitssömum ökumönnum, væri því kannski að hjóla nakinn. gunnardofri@mbl.is Gunnar Dofri Ólafsson Pistill Passaðu þig á börnunum STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Stórsigur Skoska þjóðar-flokksins (SNP) í breskuþingkosningunum í fyrra-dag eykur líkurnar á því að leiðtogar flokksins beiti sér fyrir öðru þjóðaratkvæði um hvort Skot- land eigi að lýsa yfir sjálfstæði. Skoski þjóðarflokkurinn fékk 56 af 59 þingsætum Skotlands á breska þinginu og bætti við sig 50 sætum. Verkamannaflokkurinn galt afhroð í Skotlandi, tapaði 40 sætum og fékk aðeins eitt. Frjálslyndir demókratar töpuðu tíu sætum, fengu eitt, og Íhaldsflokkurinn hélt eina þingsæti sínu í Skotlandi. Þetta er langbesta útkoma Skoska þjóðarflokksins í sögu kosninga til breska þingsins. Flokkurinn vann stærsta sigur sinn til þessa í október 1974 og fékk þá ellefu þingsæti. Nicola Sturgeon, leiðtogi flokks- ins, lýsti sigrinum í fyrradag sem mestu fylgissveiflu í breskum þing- kosningum frá árinu 1835. „Þetta er einstæð viljayfirlýsing frá skosku þjóðinni. Skoska ljónið hefur öskrað yfir allt landið,“ sagði Alex Salmond, fyrrverandi leiðtogi Skoska þjóðarflokksins. Salmond var á meðal þeirra sem fengu sæti á breska þinginu, en hann sagði af sér sem leiðtogi flokksins eftir að Skotar höfnuðu sjálfstæði í þjóðaratkvæði í september. Um 55% kjósendanna greiddu atkvæði gegn sjálfstæði. Telur upplausn Bretlands raunhæfan möguleika Sturgeon sagði í gær að flokkur- inn myndi starfa í þágu allra Skota, ekki aðeins þeirra kjósenda sem greiddu atkvæði með sjálfstæði. Stjórnmálaskýrendur telja þó úrslit kosninganna auka líkurnar á því að Skoski þjóðarflokkurinn beiti sér fyrir nýju þjóðaratkvæði um sjálf- stæði, einkum ef flokkurinn vinnur annan stórsigur í kosningum til skoska þingsins á næsta ári. Skoska þingið var stofnað sam- kvæmt lögum, sem sett voru 1998 og veittu því víðtækt löggjafarvald í innanlandsmálum. Breska þingið fer þó áfram með utanríkis- og varnar- mál fyrir hönd Skotlands og heldur valdinu til að leggja á skatta. Fjár- veitingar til opinberra verkefna koma því frá breska þinginu. Alex Salmond sagði að David Cameron, forsætisráðherra og leið- togi Íhaldsflokksins, hefði ekki feng- ið umboð frá skoskum kjósendum til að stjórna Skotlandi. Sturgeon sagði að næsta ríkisstjórn kæmist ekki hjá því að taka tillit til stórsigurs skoskra þjóðernissinna sem eru and- vígir þeirri stefnu Íhaldsflokksins að minnka útjöld ríkisins til að eyða fjárlagahallanum. „Skotland hefur sett traust sitt á SNP og reiðir sig á að hann láti rödd Skotlands heyrast, láti í ljósi skýran vilja til að binda enda á sparnaðaraðgerðirnar, bæta opinberu þjónustuna og framfylgja framsæknari stefnu á breska þinginu.“ Annabel Goldie, fyrrverandi leið- togi Íhaldsflokksins í Skotlandi, tel- ur að sigur SNP verði til þess að flokkurinn boði nýtt þjóðaratkvæði um sjálfstæði í stefnuskrá sinni fyrir kosningarnar til skoska þingsins á næsta ári. James Kirkup, aðstoðarstjórn- málaritstjóri The Telegraph, telur að eitt af meginverkefnum stjórnar Camerons á næsta kjörtímabili verði að afstýra því að Bretland leysist upp. Svo kunni að fara að stjórn Íhaldsflokksins þurfi að verða við nánast öllum kröfum skoskra þjóð- ernissinna til að koma í veg fyrir að Skotland lýsi yfir sjálfstæði. „Líta ber á upplausn Bretlands sem raun- hæfan möguleika.“ Gæti aukið líkur á upplausn Bretlands AFP Gleði Nicola Sturgeon, leiðtogi Skoska þjóðarflokksins, fagnar sigrinum. Flokkurinn fékk 50% atkvæðanna í Skotlandi en nær öll þingsætin. Tvítug námskona, Mhairi Black, var kjörin á breska þingið og er yngsti þingmaður þess frá árinu 1667. Black nemur stjórnmála- fræði við Glasgow-háskóla og sigraði Douglas Alexander, tals- mann Verkamannaflokksins í utanríkismálum, í Paisley og Renfrewshire South með 23.548 atkvæðum gegn 17.864. Á meðal annarra sem misstu þingsæti voru Jim Murphy, leið- togi Verkamannaflokksins í Skotlandi, og Charles Kennedy, fyrrverandi leiðtogi Frjálslyndra demókrata. Yngsti þing- maður í 348 ár ÞINGLIÐ SKOTA GERBREYTT AFP Yngst Mhairi Black, yngsti þingmaður Bretlands frá 1667.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.