Morgunblaðið - 09.05.2015, Side 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015
Það er kominn nýr strákur í leikskólann minn sem heitir mjögskrýtnu nafni – sagði lítill hnokki við kvöldverðarborðið.–Hann heitir Guðmundur, sagði hann svo og bjóst við að sjáundrunarsvip á áheyrendunum og vissulega urðu þeir
klumsa en ekki af sömu orsökum og sá stutti. Eins og alþjóð veit hefur
nafnið Guðmundur verið með þeim algengustu á Íslandi öldum saman
en samkvæmt þessum nýju tíðindum þykir það tíðindum sæta í leik-
skólum.
Engum blöðum er um að fletta að mörg góð og gegn íslensk nöfn
hafa vikið fyrir nýrri nafnatísku. Þegar ég var að alast upp heyrði til
undantekninga að börn væru ekki skírð í höfuðið á afa og ömmu og
vissulega olli það fábreytni í nafngiftum. Með mér í skóla voru yfirleitt
allmargar Guðrúnar að ekki sé minnst á Jóna, Guðmunda, Sigríðar og
aðra fulltrúa rammíslenskra nafnasiða, en einstaka foreldrar höfðu
voru þó verið svo djarfir að
bregða út af venjunni og
þess vegna heyrðust stund-
um nöfn eins og Erna, Edda,
Sóley, Vignir og Bragi.
Smám saman varð svo
nafnaflóran æ fjölbreyttari
eins og kunnugt er.
Samt var lengi vel fátítt að börn væru skírð erlendum nöfnum, eins
og nú tíðkast og ég dauðvorkenni þeim sem sitja í mannanafnanefnd
sem þurfa iðulega að skera úr um hvort alls kyns nöfn séu gjaldgeng í
málinu, sum jafnvel skrifuð með erlendum rithætti. Nýlega heyrði ég
að nafninu Natalíe hefði verið hleypt í gegn og þótti furðulegt að
stúlkunafn með -e í endann hefði verið talið gott og gilt en það virðist
eiga sér fordæmi í nafninu Salóme, sem lengi hefur tíðkast og enginn
hefur mér vitanlega amast við.
Nafnið Salóme er komið beint úr biblíunni eins og mörg önnur sem
mjög hafa rutt sér til rúms á liðnum árum og áratugum, og þá er ég
kannski loks komin að efninu eða stúlkubarninu Jedók sem ég las um í
ritsafni Jónasar Jónassonar frá Hrafnagili. Þá var vel að merkja engin
mannanafnanefnd að störfum en blessuðum prestinum sem falið var að
skíra barnið þessu nafni varð svo hverft við að honum hraut blótsyrði
af vörum þegar hann spurði föðurinn að athöfninni lokinni: Hvernig í
fjandanum datt yður í hug að nefna barnið þetta? Faðirinn svaraði að
bragði að það væri komið beint úr biblíunni, nafn drottningar Sal-
ómons konungs. Ekki þóttist klerkur kannast við það enda kom víst í
ljós að orðið var þýðingarvilla. Líklega hefði þýðandi ekki skilið þýska
orðið jedoch og breytt því í mannsnafn. Biblían sem foreldrar litlu
stúlkunnar sóttu nafnið til, var víst nefnd Grútarbiblía, því að þar er
oftar en einu sinni fjallað um harmagrút Salómons konungs í stað
harmagráts og allmargar fleiri villur var víst þar að finna. En ekki hef
ég annars staðar rekist á stúlkunafnið Jedók og vona að svo verði ekki.
Af Guðmundi og Jedók
Tungutak
Guðrún Egilson
gudrun@verslo.is
Kosningarnar í Bretlandi í fyrradag og kosninga-baráttan sem á undan fór voru eins konar und-irstrikun á því, að þjóðir Evrópu eru í vaxandimæli að leita að sjálfum sér, uppruna sínum og
rótum.
Fyrir aldarfjórðungi var ekki óalgengt, ef ungur karl
eða ung kona voru spurð hvaðan þau væru, að fá svarið:
Ég er Evrópubúi (I am a European).
Nú er líklegra að fá svarið: Ég er Skoti eða ég er velsk-
ur eða ég er Katalóníumaður eða ég er Baski.
Hinn aldni fjárfestir, Georg Soros, sem er af ungversk-
um ættum sagði fyrir skömmu á ráðstefnu að hans kyn-
slóð hefði litið á sameiningu Evrópu sem stórkostlega
hugsjón. Nú væru stórir hópar ungs fólks, sem gengur
um atvinnulaust, þeirrar skoðunar að sameining Evrópu
væri óvinurinn.
Okkur hættir til að gleyma því að sjálfstæðisbarátta
Skota er ekki ný af nálinni. Þeir ásamt Írum og Walesbú-
um börðust fyrir sjálfstæði sínu á seinni hluta 19. aldar og
í upphafi 20. aldar og í raun og veru var það heimsstyrj-
öldin fyrri 1914, sem stöðvaði þá þróun. Írar brutust svo
til sjálfstæðis nokkrum árum eftir
að þeirri styrjöld lauk.
Nú eru Skotar að taka upp
þráðinn á ný og nánast fyrir-
sjáanlegt að fyrr en síðar endar sú
barátta með sjálfstæði Skotlands.
Það sama er að gerast víðar í
Evrópu og ekki bara í Baskalandi og í Katalóníu. Er
Belgía eitt ríki? Varla. Og í austurhluta Evrópu er mikil
gerjun. Það er ekki svo langt síðan Tékkar og Slóvakar
skildu að skiptum eftir átakamikla sjálfstæðisbaráttu
Tékkóslóvakíu fyrr á 20. öldinni.
Hvar eigum við Íslendingar heima í þessari breytilegu
veröld? Hið hefðbundna svar hefur jafnan verið að við
séum hluti af Evrópu. Þaðan erum við komin og þar liggja
rætur okkar, tungu okkar og menningar. Um það verður
ekki deilt.
Engu að síður er það veruleiki að lega lands okkar
skapar okkur sérstöðu, í sjálfu sér alveg eins og Erm-
arsundið skapar íbúum Bretlandseyja sérstöðu. Við búum
mitt á mili Evrópu og Norður-Ameríku. Það er líka veru-
leiki.
Við börðumst lengi fyrir sjálfstæði. Skilnaðurinn við
Dani var ekki hnökralaus. Og fyrsta ríkið sem viður-
kenndi íslenzka lýðveldið sem sjálfstætt ríki var Banda-
ríkin. Ekki Evrópuríki.
Reyndar hélt gamalt evrópskt nýlenduveldi áfram að
reyna að arðræna auðlindir okkar fram á síðari hluta 20.
aldar. Bretar áttu erfitt með að skilja að þeir voru ekki
lengur heimsveldi sem gat lifað á auðlindum annarra
þjóða. Og það voru heldur ekki Evrópuríki sem komu
okkur til hjálpar í þorskastríðunum. Hvað eftir annað
voru það Bandaríkin, sem að lokum settu Bretum stólinn
fyrir dyrnar.
Í heimsstyrjöldinni síðari og í kalda stríðinu í fjóra ára-
tugi eftir að henni lauk létu sovézkar flugvélar, sovézkir
kafbátar og sovézk herskip finna fyrir sér allt í kringum
Ísland.
Það voru ekki Evrópuríkin sem tryggðu öryggi okkar
þá. Það voru Bandaríkin.
Nú hafa nágrannar okkar og frændur á Norður-
löndum vaxandi áhyggjur af stórauknum hern-
aðarlegum umsvifum Rússa á ný í námunda við þá,
bæði í Eystrasalti og út af Norður-Noregi. Í nýrri
norskri skýrslu er talið óhjákvæmilegt að Norðmenn
bregðist við með því að auka herstyrk sinn og því spáð
að ógnandi nærvera Rússa geti náð til Svalbarða, sem
liggur ekki langt norður af Íslandi.
Ef hernaðarleg nærvera Rússa fer að nálgast Ísland
á ný hafa Evrópuríkin ekki afl til þess að tryggja ör-
yggi okkar einfaldlega vegna þess að þau hafa ekki
hernaðarlegt bolmagn til þess að tryggja eigið öryggi.
En Bandaríkjamenn eru ekki þeirrar skoðunar að
það sé sjálfsagt að þeir og þar með bandarískir skatt-
greiðendur standi undir vörnum
Evrópu. Þeir sem nýlega hafa talað
við æðstu ráðamenn í Noregi verða
þess varir að þeir hafa áhyggjur af
því að Bandaríkjamenn líti ekki
lengur á það sem sitt hlutverk að
tryggja öryggi Evrópu umfram
það sem leiðir af þátttöku þeirra í Atlantshafs-
bandalaginu.
Varnarsamningur okkar við Bandaríkin er hins veg-
ar í fullu gildi og það skiptir sköpum.
Í ljósi þessara röksemda er ljóst að hið hefðbundna
svar að við séum Evrópuríki og hljótum að deila örlög-
um með þeim þjóðum er úrelt, þegar horft er til hags-
muna íslenzku þjóðarinnar. Við erum vissulega ríki
með djúpar rætur í menningu Evrópu og eigum og vilj-
um eiga náin samskipti við Evrópuþjóðir.
En lega landsins, öryggishagsmunir okkar og fram-
tíðarhagsmunir á norðurslóðum gera það að verkum
að við eigum líka mikilla hagsmuna að gæta í sam-
skiptum við ríki Norður-Ameríku, bæði Bandaríkin og
Kanada.
Þess vegna er það röng áherzla að telja að sam-
skiptin við ríkin á meginlandi Evrópu hljóti að vera
kjarninn í utanríkisstefnu okkar. Þvert á móti hlýtur
hún að byggjast á eðlilegu jafnvægi í samskiptum okk-
ar við þessar tvær heimsálfur og áherzlan á ekki síður
að vera að rækta enn nánari samskipti við Bandaríkin
og byggja upp öflug samskipti við Kanada.
Gleymum því ekki að í Kanada býr stærsti hópur
fólks af íslenzku bergi brotinn utan heimalandsins.
Í þessu samhengi er mikilvægt að binda enda á
vandræðaganginn í samskiptum okkar við Evrópu-
sambandið. Það getur ekki verið á valdi ESB að
ákveða, hvort aðildarumsókn Íslands að Evrópusam-
bandinu hefur verið dregin til baka eða hvort hún
verður „tæknilega opin“ í tvö ár eins og talskona fram-
kvæmdastjórnarinnar sagði við blaðið European Voice
hinn 13. marz sl. og talsmaður ESB segir nú við Morg-
unblaðið að hafi verið rangt eftir haft.
Hvar eigum við heima?
Lega landsins skapar okkur
sérstöðu nú sem fyrr
Af innlendum
vettvangi …
Styrmir Gunnarsson
styrmir@styrmir.is
Svo virðist sem allt megi segja umÍslendinga erlendis. Kristín
Loftsdóttir skrifar í nýútkomnu
greinasafni um bankahrunið,
Gambling Debt, bls. 6-7: „Um miðja
nítjándu öld var Ísland eitt af fátæk-
ustu löndum Evrópu. Þótt það væri
fjárhagsleg byrði á Danmörku, hafði
það barist fyrir sjálfstæði í heila öld.
Lokabaráttan hófst um miðja
nítjándu öld undir áhrifum íslenskra
stúdenta í Kaupmannahöfn, sem
mótuðust af þjóðernisstefnu í Evr-
ópu. Á þessum tíma voru miðalda-
bókmenntir Íslendinga (sögurnar)
og tungan helstu þættirnir í því að
skapa sérstaka íslenska þjóðarvit-
und.“
Þetta er allt rangt nema það, að
Ísland var fátækt. Sjálfstæðisbar-
áttan hafði ekki staðið í heila öld í
kringum 1850, heldur hófst hún um
þetta leyti, ekki síst með „Hugvekju
til Íslendinga“ eftir Jón Sigurðsson
1848.
Í öðru lagi var Ísland ekki fjár-
hagsleg byrði á Danmörku, þótt
vissulega hafi gjöld danska ríkis-
sjóðsins vegna Íslands verið talsvert
hærri en tekjur af landinu um miðja
nítjándu öld. En eins og Jón Sig-
urðsson reiknaði út, hafði Danmörk
verið fjárhagsleg byrði á Íslandi
vegna einokunarverslunarinnar og
eignarnáms konungs á jörðum.
Í þriðja lagi háðu stúdentar í
Kaupmannahöfn ekki sjálfstæðis-
baráttuna, þótt þeir styddu hana
langflestir, heldur meiri hluti Al-
þingis undir forystu Jóns Sigurðs-
sonar og aðrir stuðningsmenn hans,
þar á meðal Tryggvi Gunnarsson og
Þorlákur Ó. Johnson.
Í fjórða lagi var sérstök íslensk
þjóðarvitund ekki sköpuð á nítjándu
öld, heldur hafði hún verið til frá
öndverðu. Þegar Haraldur blátönn
Danakonungur gerði íslenskt skip
upptækt á síðari helmingi tíundu
aldar, ortu Íslendingar um hann níð-
vísur. Þegar sænsk kona hafði orð á
því við Sighvat Þórðarson 1018, að
hann væri dökkeygari en gerðist í
Svíþjóð, orti hann um hin íslensku
augu sín. Íslendingar gerðu þegar
árið 1022 sáttmála við Noregskon-
ung um rétt sinn í Noregi. Íslend-
ingar litu aldrei á sig sem Norðmenn
og því síður Dani.
Í fimmta lagi hafði Arngrímur
lærði þegar á öndverðri sautjándu
öld bent á, að Íslendingar gætu verið
hreyknir af bókmenntum sínum og
tungu. Þetta var því ekkert nýtt.
Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Furðuskrif um
sjálfstæðisbaráttuna
ÁRMÚLA 38 – SÍMI 588 5010
Opið mánud. - föstud. 11-18 – laugardaga 12-14
iPAL Verð 34.995,-
Handa mömmu 24.995,-
GJÖFIN HANDA MÖMMU...