Morgunblaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015
Nansý Davíðsdóttir varðiNorðurlandameistara-titil sinn í aldursflokki Cá Norðurlandamóti
stúlkna, sem fram fór í Kolding í
Danmörku um síðustu helgi. Nansý
hafði nokkra yfirburði fram yfir
stöllur sínar í flokknum og hlaut 4½
vinning af fimm mögulegum. Meðal
keppinauta hennar var Anna Craml-
ing Bellon, sem hlaut 3½ vinning í 2.
sæti, en hún er dóttir Piu Cramling,
skákdrottningar Svía, og spænska
stórmeistarans Juans Manuels Bel-
lons.
Keppt var í þremur aldurs-
flokkum í Danmörku og í þeim elsta,
sem skipaður var stúlkum fæddum
1994-1997, náði Hrund Hauksdóttir
efsta sæti ásamt Jessicu Bengtson
frá Svíþjóð, þær hlutu fjóra vinninga
af fimm mögulegum en Jessicu
Bengtson var dæmdur sigur eftir
stigaútreikning. Frammistaða
Hrundar er sérstaklega góð ef horft
er til þess að áður en mótið hófst var
hún númer 11 í stigaröðinni af 12
keppendum. Íslendingar áttu sex
keppendur í mótinu og allar bættu
stúlkurnar sig miðað við ætlaðan ár-
angur.
Spennandi Íslandsmót
hefst í Hörpu 14. maí
Háuloft, skemmtilegur salur efst í
Hörpu, verður vettvangur keppni
landsliðsflokks á Skákþingi Íslands
sem hefst hinn 14. maí. Mótið í ár
vekur sérstaka athygli fyrir þær
sakir að tveir Íslandsmeistarar frá
síðustu öld snúa nú aftur; stórmeist-
ararnir Jóhann Hjartarson, sem
tefldi á Akureyri 1997 og vann þá
sigur, og Jón L. Árnason, sem tefldi
síðast á Íslandsþingi í Garðabæ
haustið 1991, en hann varð Íslands-
meistari 16 ára gamall árið 1977.
Endurkoma þeirra á sér þær skýr-
ingar að í nóvember nk. teflir Ísland
fram „gullaldarliði“ á Evrópumóti
landsliða, en Ísland má sem móts-
haldari stilla upp tveimur liðum
a.m.k. Aðrir keppendur í landsliðs-
flokknum verða Íslandsmeistarinn
Guðmundur Kjartansson, Hannes
Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn
Grétarsson, Héðinn Steingrímsson,
Henrik Danielsen, Stefán Krist-
jánsson, Þröstur Þórhallsson, Bragi
Þorfinnsson, Sigurður Daði Sigfús-
son og Lenka Ptacnikova.
Leikur ársins
Hollenska tímaritið New in chess
heldur stöðu sinni sem virtasta
skáktímarit heims. Í síðasta hefti
þess er grein eftir Jan Timman um
leik ársins 2015. Slíkur leikur þarf að
vera nægilega fjarstæðukendur til
að hljóta slíkan sess í skáksögunni
og kom fyrir á Evrópumóti ein-
staklinga sem fram fór í Jerúsalem í
vetur sem leið:
EM 2015; 10. umferð:
Khismatullin – Eljanov
Staðan kom upp eftir 43. leik
Úkraínumannsins Eljanovs. Þó að
kóngur hans sé á vergangi blæs
heldur ekki byrlega í herbúðum
hvíts, t.d. 44. He1 Hf6! 45 f4+ Kh4
og svartur vinnur!
Hvítur lék: 44. Kg1!! og eftir
44. … Dxd1+ 45 Kh2 Hxc6 46.
De7+ Kh6 47. Df8+ Kg5 kom 48.
Dxf7! Hf8 (hvað annað?) 49. f4+
Kh6 50. Dxf6 De2 51. Df8+ Kh5 52.
Dg7! h6 53. De5+ Kh4 54. Df6+ Kh5
55. f5! gxf5 56. Dxf5+ Kh4 57. Dg6!
gafst svartur gafst upp. Það er engin
haldgóð vörn gegn hótuninni 58.
Dxh6+ Dh5 59. g3 mát. Þessi sigur
Rússans fleytti honum í 2.-4. sæti en
sigurvegari Evrópumótsins varð
landi hns Evgení Najaer. Eftir skák-
ina komust menn að því með aðstoð
öflugra skákreikna að besti leikur
svarts er annar fjarstæðukenndur
leikur, 44. … Hd5! til að finna hrókn-
um stað á f5.
Tvöfaldur sigur
á Norðurlanda-
móti stúlkna
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Helgi Árnason
Norðurlandameistari 14 ára og
yngri Nansý Davíðsdóttir
Gaman er að gleðjast
yfir góðum sumar-
dögum, njóta sólargeisl-
anna sem verma og
hafa þau áhrif að við
brosum framan í lífið og
tilveruna. En sólar-
geislarnir geta líka ver-
ið skaðlegir og því er
mikilvægt að verja sig
og sína og njóta sól-
arinnar á skynsamlegan
hátt.
Krabbameinsfélagið hefur frá því
árið 2004 verið í samstarfi við
Geislavarnir ríkisins, Embætti land-
læknis og húðlækna. Hópurinn hef-
ur starfað undir átaksheitinu
„Hættan er ljós“ og vann upp-
haflega fyrst og fremst að því að
upplýsa foreldra og forráðamenn
fermingarbarna um að börn ættu
ekki að fara í ljós. Stefna hópsins er
að stuðla að skynsamlegri hegðun
landsmanna í sól og að draga enn
frekar úr almennri notkun ljósa-
bekkja.
Árlega er gerð könnun átakshóps-
ins á ljósabekkjanotkun landsmanna
og haldið verður áfram að fræða um
afleiðingar óhóflegra sólbaða. Nið-
urstöður síðustu könnunar staðfesta
minnkandi notkun ljósabekkja hér á
landi og að fáir undir 18 ára aldri
fari í ljósabekki. Um 12% fullorð-
inna (eldri en 18 ára) notuðu ljósa-
bekki síðustu tólf mánuðina áður en
könnunin var gerð, en þessi tala var
um 30% árið 2004 þegar átakið
hófst. Í könnuninni var ennfremur
spurt hvort viðkomandi hefði brunn-
ið af völdum sólar eða ljósabekkja á
síðastliðnum tólf mánuðum. Með
bruna er átt við að roði myndist á
húð ásamt því að sviði sé til staðar.
Um 72% þeirra sem svöruðu höfðu
ekki brunnið sem er nokkuð há tala í
samanburði við tölur í erlendum
rannsóknum og tengist ef til vill því
hve útfjólublá geislun var lítil í sum-
ar vegna skýjafars. Samkvæmt taln-
ingu Geislavarna ríkisins á fjölda
ljósabekkja hefur ljósabekkjum
fækkað mjög mikið í Reykjavík.
Fyrir níu árum voru þeir 114 en eru
nú 66. Árið 1988 voru þeir yfir 200.
Krabbameinsfélagið er einnig í
norrænu samstarfi um varnir gegn
húðkrabbameini. Tíðni sortuæxla
hefur farið vaxandi á Norðurlönd-
unum á síðustu 30 árum. Á Íslandi
er tíðnin þó aðeins farin að lækka
eftir að hafa verið hér einna hæst.
Einn helsti áhættuþáttur sortuæxla
er sólbruni og ljósabekkjanotkun.
Ekki er ólíklegt að minnkandi notk-
un ljósabekkja eigi þátt í lækkandi
tíðni. Ísland var fyrst Norður-
landanna til að setja lög um 18 ára
aldurstakmark varðandi ljósabekki
en nú hafa Finnland
og Noregur bæst í
hópinn. Danir og Sví-
ar eru að vinna að því
sama. Norræna sam-
starfið felst í því að fá
ferðaþjónustuna,
ferðaskrifstofur, flug-
félög og fleiri í sam-
vinnu um að bæta
upplýsingar um ör-
yggi í sólinni og
hvernig skynsamlegt
er að njóta sólarinnar
á sem öruggastan
hátt. Einnig hefur
hópurinn með sér samstarf um
fleira sem viðkemur sólarvörnum.
Sérstaklega þarf að hafa í huga
varnir fyrir börn þegar þau eru úti í
sólinni. Húð barna er þynnri en full-
orðinna og er því viðkvæmari fyrir
skaðlegum áhrifum sólargeislunar.
Beint samband er á milli þess að
brenna endurtekið í sólinni sem
barn og þess að greinast seinna í líf-
inu með sortuæxli. Fatnaður, sól-
hattur, sólgleraugu, ríflegt af sól-
arvörn og skuggi eru mikilvæg
atriði að hafa í huga þegar börn eru
úti í sól. Einnig að forðast að vera
úti þegar sólin er hæst á lofti nema
þá í skugga. Börn yngri en eins árs
ættu ekki að vera í sól, þau þarf að
verja með passandi klæðnaði og
skugga.
Oft er bent á mikilvægi sólarinnar
til að fá D-vítamín úr sólarljósinu.
Talið er nægja fyrir barn að vera úti
í sól þrisvar í viku í 15 mínútur í
hvert skipti með bert andlit og
hendur til að það fái nægjanlegt
D-vítamín. Að sjálfsögðu þarf síðan
að tryggja D-vítamíninntöku allt ár-
ið með því að borða D-vítamínríka
fæðu.
Vertu fyrirmynd og kenndu börn-
um að bera virðingu fyrir sólinni.
Maí er alþjóðlegur árvekni-
mánuður gegn sortuæxlum
Eftir Guðlaugu
Birnu Guðjónsdóttur »Húð barna er þynnri
en fullorðinna og er
því viðkvæmari fyrir
skaðlegum áhrifum sól-
argeislunar.
Guðlaug Birna
Guðjónsdóttir
Höfundur er framkvæmdastjóri
Krabbameinsfélags Reykjavíkur.
Jón Hólm Stefánsson
Lögg. fasteigna-,
fyrirtækja- og skipasali
www.gljufurfasteign.is
TIL SÖLU er jörðin Gautavík 159107, Djúpavogshreppi, S.-Múlasýslu.
Stærð jarðarinnar er talin vera um 850 hektarar, þar af ræktuð tún um 30
ha. Á jörðinni er gott íbúðarhús á einni hæð að stærð 116,5 fermetrar. Góð
gripahús með góðri vinnuaðstöðu, þurrheyshlaða og mjög gott verkstæði,
en þar hefur m.a. verið rekin dekkjaþjónusta. Umhverfi jarðarinnar er fagurt.
Silungsveiði með ströndinni, sem og koli og rauðmagi, auk annarrar veiði
á firðinum. Aðstaða fyrir æðarvarp. Skotveiði á sjó og landi. Möguleiki á
raforkuframleiðslu í Ytri-Gautavíkurá. Um 36 km að Djúpavogi, um 34 km að
Breiðdalsvík og um 75 km að Egilsstöðum um Öxi.
Gautavíkur er getið í Njálu og Víglundarsögu. Í svonefndri Búðavík er að finna
lítt rannsakaðar verslunarminjar frá tímum Hansakaupmanna, en í Búðavík
er góð lendingaraðstaða við sjóinn. Sú aðstaða skapar ýmsa möguleika til
sjávarnytja. Um er að ræða athyglisverða jörð í fögru umhverfi.
Óskað er tilboða. Skipti á góðri húseign á höfuðborgarsvæðinu kemur til
greina..
Jörðin Gautavík í Berufirði til sölu
Nánari upplýsingar eru eingöngu veittar hjá fasteignasala með
tölvupósti jonholm@gljufur.is. Einkasala.