Morgunblaðið - 09.05.2015, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 09.05.2015, Qupperneq 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015 ✝ Sveinn fæddistá Hofsósi 26. september 1952. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 1. maí 2015. Sveinn átti tvo al- bræður, Rafn Sveinsson, f. 1955, og Jóhann Konráð Sveinsson, f. 1961, einnig átti hann tvo hálfbræður sammæðra, Ragnar Kristin Hjaltason, f. 1939, og Skjöld Skagfjörð Gunnarsson, f. 1946. Sveinn kvæntist Ólöfu Ástu Jónsdóttur 1973 og áttu þau saman tvö börn, þau skildu árið 1989. 1. Sigurbergur Sveinn, f. 1973, hann er kvæntur Sig- urbjörgu Björgvinsdóttur og sínum á sumrin og fór með hon- um á vertíðir á vetrum, hann helgaði sig fljótt sjónum, starf- aði hjá útgerðarfélaginu Nöf á Hofsósi á trollskipum þess fyrstu árin, síðan Útgerð- arfélagi Skagfirðinga á tog- urum þess, mestan hluta ævinn- ar, einnig var hann á Nökkva frá Blönduósi og Sigurborg frá Siglufirði, hann var oftast neta- maður, vaktformaður eða báts- maður allan sinn sjómannsferil, þekking á netavinnu var honum nærtæk, faðir hans og föð- urbróðir báðir menntaðir neta- gerðarmenn. Sveinn var hraust- ur og traustur maður, hann fórnaði sínum kröftum sjó- mannsstarfinu og kom alfarið í land fyrir nokkrum árum, þá orðinn heilsulaus og sjóninni farin að hraka sökum sykursýki er hrjáði hann síðustu árin. Útför Sveins fer fram frá Hofsóskirkju í dag, 9. maí 2015, kl. 14. eiga þau þjú börn, Rakel Ástu, f. 1993, Björgvin Daða, f. 1999 og Keren Sif, f. 2006, þau búa á Siglufirði. 2. Hulda Björk, f. 1977, er í sambúð með Smára Jónssyni og eiga þau saman tví- burana Þröst og Arndísi, f. 2013, hún á einnig frá fyrra sambandi Írenu Björk, f. 1999. Sveinn hóf sambúð með Helgu Benediktsdóttur árið 1989 en þau slitu samvistum 1994. Sveinn, sem gjarnan var kall- aður Lilli, ólst upp á Hofsósi og vann þar þau störf er til féllu, hann stundaði sjóinn með föður Sveinn Sveinsson bróðir okk- ar frá Hofsósi lést að morgni 1. maí. Sveinn var oftst nefndur Lilli, Lilli Klöru eða Lilli Sveins, af þeim er til hans þekktu, hann var fæddur í skúrnum í fjörunni og ólst þar upp til níu ára aldurs, eða þar til fjölskyldan flutti upp á bakk- ann, Lilli byrjaði snemma að fara með föður sínum á sjóinn, og skrifaði Björn frændi hans frá Bæ grein í Morgunblaðið með mynd af þeim stutta, þar sem hans var getið sem yngsta sjómannsins. Þegar hann stálp- aðist og fékk ekki að fara með í róður var það ekki óalgengt að hann stykki fram af bryggju- endanum þegar bátur föður hans var að koma inn í höfnina og varð faðirinn að gæta þess að fara nógu nálægt til þess að geta gripið hann. Miklar snjó- hengjur voru gjarnan af brekkubrúninni og var það leik- ur hans að hleypa þeim niður, lenti hann undir einni þeirra og var nærri kafnaður þegar for- eldrum hans fyrir algera tilvilj- un tókst að finna hann og grafa hann upp. Fjaran og bryggjan var hans leikvangur og varð hans líf allt mótað af því umhverfi, hann varð snemma uppátækjasamur og ekki óalgengt að þegar faðir hans kom í beitningarskúrinn þá var þar fyrir mikið magn af rytu sem hann hafði safnað þann daginn. Varla voru gerð prakkarastrik í Hofsósi á þess- um tíma nema Lilli kæmi þar eitthvað við sögu og voru uppá- tækin margvísleg, þótti foreldr- um hans nóg um og voru dæmi um að hann væri lokaður inni á kvöldin, en samt var hann kenndur við það sem miður fór í þorpinu það kvöldið, þannig var talið sjálfsagt að Lilli ætti alltaf sök á málum. Lilli var hraustur ungur mað- ur, mótaður af uppeldinu og vinnusemi frá unga aldri, hann þótti liðtækur í fótbolta og var á þeim tíma nefndur Lilli bomm þar sem hann sá um hreinsun í vörninni á sjóstígvélunum enda sérstakir skór ekki í boði. Þegar átti að mæta í fermingu fannst hann úti á rifi, að vitja um net með Einari Halls frænda sínum. Lilli stundaði sjóinn með föð- ur sínum og fór síðar með hon- um á vertíðir í síldarsöltun í Neskaupstað, til Keflavíkur þar sem aðallega var unnið í netum fyrir Keflavík hf., einnig á Hofsósi í netum fyrir Frosta sk. Hann stundaði síðan sjó- mennsku hjá útgerðarfyrirtæk- inu Nöf, Útgerðarfélagi Skaga- fjarðar og Nökkva Blönduósi. Pétri Jónssyni, forstjóra hjá Nöf, leist vel á strákinn og sá þar mikið sjómannsefni, vildi hann fá að senda hann í Stýri- mannaskólann en úr því varð ekki, bar hann því við að kunna ekki sund. Lilli varð því oftast netamaður, vaktformaður og bátsmaður á þeim bátum og togurum sem hann var á, marga vini eignaðist hann á sjómannsferlinum sem stóð frá fjórtán ára aldri þar til heilsu hans hrakaði fyrir nokkrum ár- um. Lilli var í sambúð með Ólöfu Ástu Jónsdóttur 1989 til 1994 og eignuðust þau tvö börn, Sig- urberg Svein og Huldu Björk. Síðustu árin voru honum erfið, heilsan og sjónin að mestu far- in, en alltaf hafði hann afla- fréttir, hverjir voru að róa og með hverjum, sannur sjómaður til lokadags. Við kveðjum þig, kæri bróð- ir, og færum afkomendum sam- úðarkveðjur. Rafn Sveinsson og Jóhann Konráð Sveinsson. Þegar gamall félagi er kvaddur rifjast margt upp um liðna tíð. Enginn sem ég hef kynnst frá barnæsku hefur ver- ið jafn uppátækjasamur og Sveinn sem alltaf var kallaður Lilli. Það fyrsta sem kemur upp í hugann er þegar hann rúllaði einni risastórri raf- magnsrúllu niður kaupfélags- brekkuna, af einhverjum óskilj- anlegum ástæðum breytti hún um stefnu, annars hefði hún farið í gegnum gamla kaup- félagið. Launin sem hann fékk fyrir uppátækið var að faðir hans henti honum í sjóinn, ósyndum stráknum. Þetta voru hans fyrstu kynni af sjónum sem hann átti svo eftir að eyða starfskröftum sínum á. Við Lilli sigldum saman til fjölda ára bæði á bátum og tog- urum uns leiðir okkar á sjónum skildi vegna veikinda hans. Það litla sem ég kann í veiðarfærum er það sem hann kenndi mér, saman höfum við lent í öllu því versta sem hægt er að hugsa sér til sjós það hefur bæði brunnið undan okkur skip, hálf- fyllst af sjó eftir að brotsjór lagði allt í rúst hjá okkur, en það sökk aldrei undan okkur. Það fer mér seint úr minni hugrekkið í Lilla þegar við vor- um saman á Skafta, bremsur biluðu á togspilunum og trollið rann stjórnlaust á ljóshraða í hafið. Þá sýndi Lilli þvílíkt hug- rekki, fór inn á milli spila í öll- um gauraganginum og náði að reka melspíru undir bremsu- borðana og stoppa tromlurnar áður en allt færi í sjóinn, með- an ósköpin gengu yfir hlupum við hinir um allt eins og rottur sem flýja sökkvandi skip. Eitt sinn var verið að taka gasflösku um borð í Skafta í Hafnafjarð- arhöfn, Lilli stekkur á skip- skranann og hífir hana hraust- lega um borð. Hann verður fyrir því óláni að hún slæst ut- an í skipið og stúturinn brotnar af með þvílíkum krafti og lát- um, flaskan tekur flugið upp í miðjan bæ en snýr aftur við niður að höfn og stefnir beint á brúna á Skafta, hafnarverðirnir hentu sér flatir á bryggjuna og skipstjórinn henti sér á brúar- gólfið skelfingu lostinn af ótta við að fá hana inn í brú. En að lokum tók flaskan stefnubreyt- ingu og endaði í sjónum aftan við skipið, þar slapp karl með skrekkinn. Aldrei mun ég gleyma því þegar ég var eitt sinn ræstur með þvílíkum öskr- um og köllum „maður fyrir borð“, það er maður í sjónum. Það voru erfiðar hugsanir sem fóru um huga minn þegar ég reif mig í föt og hljóp upp á dekk „nei, ekki Lilli“, það má ekki vera Lilli, hugsaði ég, hann sem er ósyndur og hefur aldrei komið í sundlaug, hann sem gekk eftir botninum og í land eftir að pabbi hans henti honum í sjóinn, þarna var of djúpt til þess að ganga í land. En viti menn, jú, það var Lilli, í hann höfðu slegist grandarav- írar svo hann flaug aftur úr skutrennunni á Skafta og í sjó- inn, það sló hratt í manni litla hjartað þar til við náðum að bjarga karlinum upp úr sjón- um. Þótt hann hafi verið kom- inn í land fór sjórinn aldrei úr huga hans, síðustu árin ræddi hann fátt annað við mig en afla- brögð og sjósókn og er ég nokkuð viss um að hann verður klár með nýtt skipsrúm fyrir okkur þegar við hittumst aftur og róum saman á lygnum him- nasjó. Megi góður Guð geyma góð- an dreng. Finnur Sigurbjörnsson, fv. skipsfélagi. Sveinn Sveinsson ✝ Þórir Þrast-arson fæddist á Ísafirði 8. október 1960. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 3. maí 2015. Foreldrar Þóris eru Þórunn Jóns- dóttir, f. 1941, og Þröstur Marzellíus- son, f. 1937. Þau skildu. Seinni eig- inmaður Þórunnar var Sigurður Karl Gunnarsson, f. 1946, d. 1992. Seinni eiginkona Þrastar er Halldóra Magnúsdóttir, f. 1937. Sonur hennar er Haraldur Hákonarson, f. 1965, maki hans er Þórunn G. Jónsdóttir og eiga þau fjögur börn. Systkin Þóris eru Sigríður Alberta Þrastardóttir, f. 1962, hún á tvö börn. Dagný Þrast- þeirra eru Ísak Einar, f. 26.6. 2008, og Jökull Ernir, f. 2.5. 2010. Fyrir á Kristinn dótturina Snædísi Birnu, f. 12.4. 1999. 2) Þröstur, f. 8.10. 1988, d. 24.3. 2013. Þórir ólst upp á Ísafirði til 10 ára aldurs, þá flutti hann, ásamt móður sinni og systrum, suður og bjó þar næstu fimm árin, en flutti þá vestur aftur. Þórir lauk námi í blikksmíði við Iðnskólann á Ísafirði. Hann starfaði hjá Blikksmiðju Erlendar meðan á námi stóð og lauk meistaranámi í greininni þaðan. Þórir starfaði áfram þar í nokkur ár eða allt þar til hann keypti fyrirtækið og rak það um tíma. Vann síðan hjá 3X Technology. Síðustu átta ár starfaði Þórir sem bifreiða- stjóri við póstflutninga, á meðan heilsa hans leyfði. Þórir var virkur liðsmaður í Slökkviliði Ísafjarðar til margra ára. Útför Þóris fer fram frá Ísa- fjarðarkirkju í dag, 9. maí 2015, kl. 14. ardóttir, f. 1963, maki hennar er Halldór Antonsson og eiga þau sex börn. Katrín Sig- urðardóttir, f. 1972, maki hennar er Tjörvi Ellert Perry, eiga þau þrjú börn. Gunnar Sigurðarson, f. 1974, maki hans er Aðalheiður Auður Bjarnardóttir og eiga þau fjög- ur börn. Þórir kvæntist 10. nóvember 1984 Ragnheiði Huldu Dav- íðson, f. 4.5. 1960. Foreldrar hennar voru Sólveig og Olav Davíðson, þau eru bæði látin. Börn Ragnheiðar og Þóris eru: 1) Hulda Ösp, f. 12.11. 1982. Maki hennar er Kristinn Óli Hallsson, f. 6.5. 1979. Börn Baráttunni lauk sl. sunnu- dag. Þórir frændi minn hringdi í mig um miðjan nóvember sl. þegar hann hafði orðið var við veikindin. Það hafa nokkrir ættingjar okkar greinst með höfuðmein, sem ég heyrði strax að var af öðrum toga hjá hon- um. Þórir fékk hjá mér upplýs- ingar um nöfn frændsystkin- anna og aldur þeirra, til að bera undir læknana, en hans mein reyndist ólæknandi. Með dyggri aðstoð Ragn- heiðar, eiginkonu hans, ásamt stórum hópi vina og vanda- manna gat Þórir dvalið heima fram að síðustu vikunni. Við Þórir nutum þess bæði að dvelja í húsi ömmu okkar og afa, þegar við vorum börn. Hann með föður sínum eftir að foreldrar hans slitu samvistir. Þegar Þórir og Ragnheiður höfðu stofnað heimili og eign- uðust Huldu Ösp, bjuggu þau í kjallaranum á Austurveginum hjá ömmu okkar. Rakel yngri dóttir mín og Hulda hafa verið vinkonur frá fyrstu tíð, enda fæddar sama árið og kynntust á ættaróðalinu. Síðar fluttu þau í næsta nágrenni við okkur og sést vel á milli húsanna. Við Ragnheiður erum góðar vin- konur eins og dæturnar og hef- ur verið mikill samgangur á milli fjölskyldnanna auk sam- eiginlegra vina okkar, þeirra Árnýjar og Snorra á Heklunni og sona þeirra. Við fórum saman á jólahlað- borð í nokkur ár, eða þangað til þau fóru að mæta með sínum vinnufélögum, en þá færðist þetta í að bjóða hvert öðru í snæðing við hin og þessi tæki- færi. Þórir var drengur góður, vinsæll og farsæll bílstjóri á Póstbílnum. Hann hafði auga með ýmsu á leið sinni, hjálpaði gjarnan öðrum sem komust ekki leiðar sinnar í ófærð. Oft var Ragnheiður í heim- sókn hjá mér eða ég hjá henni, þegar Þórir hringdi og lét vita af sér á leiðinni. Mér varð þá að orði að nú væri það „tilfinn- ingarskyldan“. Ástvinum þínum öllum ég sendi blóm fagurrautt úr brjósti mínu, legg það við sárin, læt tárin seytla í þess krónu, uns sorgin ljómar. Ekkert fær dáið af eðli þínu, ekkert skyggt ástúð þína. Sofðu í fangi ljóðs míns, sofðu í fangi lands þíns, glókollur bláeygur, guðs barn – (Jóhannes úr Kötlum) Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar, af Austurvegin- um. Áslaug og fjölskylda. Ég gleymi aldrei þeirri stund þegar ég kom inní stofu heima hjá mér sjö ára gamall og sá föður minn liggjandi á grúfu í sófanum með andlitið falið í púða. Og móðir mín bað mig að vera hljóðlátur – Höddi bróðir hans væri dáinn. Ég skildi ekki dauðann og ég skildi ekki hvers vegna þessi sterki pabbi lá hul- inn í sófanum og enginn mátti sjá í andlit hans. En ég skil það núna. Í þá daga rembdust karlmenn við að láta ekki aðra sjá tár falla úr augum sér. Sem betur fer eru nú aðrir tímar. Við megum öll gráta þegar á bjátar. Ég græt nú þungum tárum skrifandi þessi orð – minningarorð um náfrænda minn, jafnaldra og kæran æskuvin. Við sættum okkur við að missa afa og ömmu þótt vissu- lega vökni hvarmur hversu lengi sem maður hefur notið þeirra. Að standa frammi fyrir dauða föður eða móður er öllu erfiðara þótt við vitum að sá er lífsins gangur ef dauðann ber að á sanngjörnum tíma. Verst af öllu er þó, þegar foreldrar þurfa að fylgja barni sínu til grafar. Það þarf nú Tóta frænka mín að horfast í augu við, í ofanálag við önnur áföll sem hún hefur orðið fyrir. Ég veit að hún mun standast raunina rétt einsog áður – og hugga sig við að hún á fleiri að: Okkur öll sem erum vön hlýjum faðmi hennar og einlægum hlátri. Megi sá faðmur og lífsgleðin sem hún ber með sér gleðja okkur sem allra lengst. Þrátt fyrir allt. Hulda horfir á eftir föður sínum alltof ung. Ragnheiður sér á bak góðum eiginmanni. Harmur þeirra mæðgna er því óbærilegri að þær hafa svo ný- lega misst bróður og son. Ég bið stjórn heimsins að styrkja þær í sorginni sem bíður þeirra. Megið þið eygja hin ljósin í lífinu. Þrátt fyrir allt. Sigga mín og Dagný, Gunnar og Kata. Við skulum ylja okkur áfram við vináttuna sem við berum hvert til annars – og syngjum saman enn hærra þegar við hittumst næst, í gleði. Þrátt fyrir allt. Þresti og hans fólki sendi ég líka innilegustu samúðarkveðj- ur. Við fjölskyldan og vinir kveðjum með söknuði mætan mann. Þórir Þrastarson var maður af þeirri gerð sem hent- ar í skáldsögu hvenær sem væri, sem dæmigerð persóna um hinn fullkomna son. Mann- inn sem undi glaður við sitt á sínum stað og lét bara gott af sér leiða. Hann hefði getað verið að- alpersónan í eilífu verki Lao Tse, Bókinni um veginn. Eiginlega þarf ekki að hafa um hann nema fjögur orð, eins- og Íslendingasögur lýsa bestu mönnum: Hann var drengur góður. Ég hef svosem aldrei verið samkvæmur sjálfum mér og ætla að hafa orðin aðeins fleiri: Þórir ólst fyrstu árin upp á Ísa- firði. Hann flutti til Reykjavík- ur ungur með móður sinni og systrum. En svo skjótt sem hann náði fullorðinsaldri fór hann til baka í gamla plássið sitt þar sem hann bjó ham- ingjusamur það sem eftir var – þar sem hann vildi helst vera, þar sem hann vildi deyja – og dó. Og þar reyndist hann sam- félagi sínu góður þegn alla tíð, gáfum og hæfileikum gæddur, og einörðum vilja að hjálpa meðbræðrum. Hans verður ekki bara minnst fyrir að vera traustur og tryggur fjölskyldu- faðir, hagleiksmaður á allan hátt og sjálfstæður athafna- maður, átthagatrúr og sam- kvæmur sjálfum sér – við minnumst hans fyrst og fremst fyrir hlýjuna sem hann veitti. Ég á svo ótal margar góðar minningar um Þóri allt frá því ég man eftir mér. Ég ætla að deila þeim minningum með ást- vinum okkar beggja til dauða- dags. Í söng. Og gleði. Þrátt fyrir allt. Gunnar Þorsteinn Halldórsson. Þórir Þrastarson Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Útfararþjónusta síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.