Morgunblaðið - 09.05.2015, Side 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015
✝ Anna Brynhild-ur Árnadóttir
fæddist á Mjóeyri
við Eskifjörð 18.
september 1925.
Hún lést á dval-
arheimilinu Horn-
brekku 25. apríl
2015.
Foreldrar henn-
ar voru Jónína
Sesselja Guð-
mundsdóttir, hús-
freyja, f. í Sigmundarhúsum við
Eskifjörð 3.3. 1895, d. í Reykja-
vík 16.6. 1973, og Árni Pét-
ursson, húsa- og skipa-
smíðameistari, f. á Högnastaða-
stekk við Reyðarfjörð 30.6.
1893, d. í Reykjavík 9.9. 1972.
Anna var elst fjögurra systkina.
Látin eru Margrét Sesselja, f. á
Norðfirði 12.12. 1926, d. 7.5.
2007, og Pétur Jón, f. 20.8. 1930,
d. 13.8. 2010. Eftirlifandi er
Guðbjörg Bergþóra, f. 17.4.
1928.
Anna giftist 20. desember
1947 í Útskálakirkju Gunnlaugi
Tryggva Pálmasyni, bónda á
Hofi í Hörgárdal, f. á Hofi 28.2.
1923. Börn Önnu og Gunnlaugs:
1. Elín, f. 1947, grasafr. 2. Árni
Jón, rafm.tæknifr., f. 1948, maki
Ástu Hauksdóttur, f. 1965, Kar-
en Arna rafvirki, sambýlism.
Auðun Jóhann Elvarsson vél-
stjóri, dóttir hennar og fv. sam-
býlism., Óla Hrafns Olsens, El-
ísabet Emma. Synir Hannesar
og Hjördísar Ágúst Heiðar hug-
búnaðarverkfræðinemi, sam-
býlisk. Sandra Marín Gunn-
arsdóttir tölvunarfræðinemi;
Höskuldur Logi og Þorsteinn
Viðar. Dóttir Hjördísar Linda
Björk Hjördísar Gunnarsdóttir,
verslunarstjóri, sambýlism. Sig-
urvin Bjarnason sjávarlíffræð-
ingur. 6. Halldóra Soffía, f. 11.1.
1965, sjúkraþjálfari og spænsku-
fræðingur.
Anna fluttist á fyrsta ári með
fjölskyldu sinni til Norðfjarðar
og við tíu ára aldur til Keflavík-
ur og síðar Innri-Njarðvíkur. Á
unglingsárunum vann Anna m.a.
í fiski en síðar á Hótel Skjald-
breið og í Valhöll á Þingvöllum,
auk þess lærði hún kjólasaum.
Sumarið 1942 fór hún í vist til
séra Sigurðar Stefánssonar og
Maríu Ágústsdóttur á Möðru-
völlum í Hörgárdal og síðan aft-
ur 1946. Þar kynntist hún Gunn-
laugi. Heimili þeirra var fyrstu
tvö árin í Innri-Njarðvík en frá
1949 á Hofi í Hörgárdal þar sem
þau voru bændur frá 1950 til
1993. Síðustu þrjú árin hafa
Anna og Gunnlaugur dvalið á
Hornbrekku í Ólafsfirði.
Útför Önnu fer fram frá
Möðruvallakirkju í Hörgárdal í
dag, 9. maí 2015, kl.14.
Berglind Snorra-
dóttir, bókari, f.
1954. Dætur Anna
Geirlaug gull-
smíðanemi, sam-
býlism. Ragnar Már
Róbertsson, leik-
skólakennari, sonur
Úlfur Árni; og Eva
Alexandra sjúkra-
liði og mannfræði-
nemi, sambýlism.
Kári Pálsson þjóð-
fræðinemi. Sonur Berglindar
Rúnar Júlíus Smárason fjár-
m.verkfræðingur, maki Þórunn
Kristjánsdóttir, þau eiga þrjú
börn. 3. Soffía, f. 1954, d. 1955.
4. Pétur Þór, byggingarverk-
fræðingur, f. 1956, maki Jak-
obína Ingunn Ólafsdóttir stjórn-
sýslufræðingur, f. 1956. Synir
Gunnlaugur Ársæll, f. 1993, og
Elías Arnar, f. 1995, mennta-
skólanemar. Börn Jakobínu
Anna Sigríður Pálsdóttir læknir,
maki Jón Ari Arason há-
skólanemi, synir Hallgrímur Ari
og Páll Emil; og Sveinbjörn Her-
mann Pálsson. 5. Hannes Valur,
f. 1963, búfræðikandidat, maki
Hjördís Björk Þorsteinsdóttir
smiður, f. 1965. Dóttir Hannesar
og fv. sambýlisk., Matthildar
Móðir mín kær. Nú hefur þú
kvatt og ert farin í þá ferð sem
bíður okkar allra.
Ég minnist þess hve vel þið fað-
ir minn önnuðust mig á
uppvaxtarárunum. Þú vaknaðir
með mér á morgnana og hafðir til
föt, morgunmat og nesti þegar
þurfti. Ekki þýddi að senda strák-
inn í skólann eða aðrar ferðir
svangan eða illa til fara. Þið faðir
minn studduð mig í námi og starfi
og þú gættir þess að námið kæmi
á undan leiknum, regla sem vel
hefur reynst á ferðinni gegnum
lífið. Og ætíð var gott að koma
heim og dvelja um skamma eða
langa hríð í hlýju og kærleika.
Ykkur fæ ég seint fullþakkað.
En þó að á þessari stundu sé ég
fullur saknaðar veit ég að í minn-
ingunni lifir þú með mér um
ókomin ár.
Þinn
Pétur Þór.
Tilvera okkar er undarlegt
ferðalag. Þegar þú ert farin
streyma fram minningabrot, sum
hver greinileg en önnur óljósari,
enda er minnið skrítin skepna.
Fyrsti skóladagurinn minn er
ein fyrsta skýra minningin þar
sem ég var óttalega kvíðin yfir
þessum skóla og vildi helst ekki
fara í hann. Þá tókst þú á það ráð
að fara með mér í rútunni í skól-
ann. Þetta nægði til þess að ég
sættist á að hoppa út þegar þang-
að var komið.
Ein af hinum óljósari minning-
um, sem í raun samanstendur af
mörgum áþekkum minningum, er
hins vegar þegar þú varst búin að
klæða okkur tvö yngstu út og ætl-
aðir að eiga smástund í friði inni.
Við vorum þá gjörn á að koma
fljótt inn aftur eða þurftum endi-
lega að kíkja í dyrnar og spyrja
eftir einhverju því að þú vissir
alltaf hvar allt var. Þá varstu ekki
alltaf hin ánægðasta á svipinn,
sem var jú alveg skiljanlegt enda
ekki margar hvíldarstundir á
heimilinu, og við börn númer
fimm og sex.
Svo kunnir þú ekki að segja nei,
sagðir alltaf já við hinum ýmsu
aukaverkefnum sem þú varst beð-
in um, til dæmis að hjálpa konum í
sveitinni með saumaskap eða ann-
að, og hafðir þar af leiðandi enn
minni tíma fyrir þig sjálfa. En
þannig kenndir þú mér að segja
stundum nei, sem er góð lexía fyr-
ir lífið. Það var ekki fyrr en ég var
orðin unglingur að þú náðir að
sinna peysuprjóni eins og þig
langaði til, það er fyrir utan peys-
ur, sokka og vettlinga á allt heim-
ilisfólkið, og einhverja fleiri. Þá
prjónaðir þú peysur sem birtust á
síðum prjónablaða auk þess sem
þú hannaðir sjálf.
Síðan koma upp í hugann ótal
minningar tengdar handavinnu
þar sem þú kenndir mér að
prjóna, hekla, sauma út og sauma
í vél. Þá sýndir þú oft ótrúlegri
þolinmæði. Þessi kunnátta hefur
verið mér gott veganesti á ferða-
lagi mínu. Einnig þurftir þú að
grípa í þolinmæðissarpinn þegar
þú varst að sauma á mig föt, ég
hafði nefnilega oft afar nákvæmar
hugmyndir um hvernig viðkom-
andi flík átti að vera.
Saumaklúbbarnir voru alltaf
tilhlökkunarefni enda líktust veit-
ingarnar í þeim meira veitingum í
fermingarveislum en veitingum
fyrir nokkrar konur í sveitinni
eina kvöldstund. Það var alltaf til
nóg af tertuafgöngum til að gæða
sér á eftir þessar samkomur og í
því fólst tilhlökkunin.
Þú áttir líka nóg af áhyggjum
og við grínuðumst oft með það.
Hin síðustu ár varstu þó farin að
segjast vera hætt að hafa áhyggj-
ur, það þýddi ekkert að hafa þær.
Þó að þú hafir flutt rúmlega tví-
tug norður í Hörgárdalinn
gleymdir þú ekki æskustöðvunum
á Austfjörðum og „fyrir sunnan“ í
Njarðvíkunum og í Keflavík og
talaðir stundum um þær. Og
vatnslitamyndin af Mjóeyri við
Eskifjörð hékk á sínum stað á
veggnum. Mér var því alltaf ljóst
að ég var ekki hreinræktaður
Norðlendingur. Það er gott að
þekkja rætur sínar.
Elsku mamma, takk fyrir hálfr-
ar aldar ferðalag. Ég vona að þú
sért búin að finna þér fallega
rauða bandaskó á núverandi veru-
stað, eins og þá sem þú lánaðir
sem leikmuni en skiluðu sér ekki
aftur, og þú sást alltaf eftir.
Hvíl þú í friði.
Þín dóttir,
Halldóra Soffía.
Mig langar í nokkrum orðum
að minnast tengdamóður minnar
sem lést á dvalarheimilinu Horn-
brekku 25. apríl sl.
Það eru orðin 35 ár síðan ég sá
hana fyrst þá langt gengin með
Önnu mína og þegar við í fyrsta
sinn fórum norður með hana
kornunga og Anna tók nöfnu sína í
fangið var eins og þær hefðu alltaf
þekkst, svo vel undi hún sér hjá
henni.
Anna var af þeirri kynslóð sem
sannarlega man tímana tvenna og
efast ég um að húsmæður í dag
gætu hugsað sér jafn langan og
strangan vinnudag og þær urðu
að láta sér lynda. Hún eldaði,
saumaði, bakaði og prjónaði og
féll varla verk úr hendi á meðan
hún naut heilsunnar. Alltaf var
hún til staðar fyrir fjölskyldu sína
og hefði vaðið eld og brennistein
fyrir hana. Það var gott að koma
norður og vera um stund stikkfrí
og vera kallaður í mat og kaffi, því
helst ekkert mátti hjálpa henni
því við vorum í fríi. En ég hugsaði
stundum; hvenær á hún frí? Ég
hefði sannarlega viljað létta af
henni einhverju af heimilisstörf-
unum en það tók hún ekki í mál,
við áttum bara að njóta okkar. Allt
stóð eins og stafur á bók sem hún
lofaði og fannst mér stundum nóg
um fórnarlund hennar og hefði
hún kannski átt að hugsa um hvað
hana langaði sjálfa til að gera í líf-
inu. Það höfðu aðrir forgang og er
svona fólk sjaldgæft í dag.
Hún hafði mjög gaman af að
fylgjast með barnabörnum sínum
og talaði mikið um þau og vildi
vita hvað þau væru að fást við
hverju sinni. Hún hugsað mjög vel
um heimili sitt og eitt sinn spurði
ég hana: „Hvernig ferðu að því að
hafa teppin alltaf svona hvít og fín
og veggi eins og nýmálaða ár eftir
ár?“ Það stóð ekki á svari hjá
henni; „ég þríf með tusku og
fötu!“ Já, hún var á fjórum fótum
við teppaþrif á hverju vori, og
veggi þreif hún líka með tusku og
fötu. Myndi nú einhver nenna
þessu í dag? Ég er efins um það.
Anna missti heilsuna fyrir nokkr-
um árum og sjónin fór að mestu
leyti og Gunnlaugur hugsaði inni-
lega vel um hana og voru þau tvö í
kotinu í nokkur ár og hjálpaði
Gunnlaugur syni sínum sem tók
við búinu. Þau hjónin hafa und-
anfarin ár dvalið saman í herbergi
á Hornbrekku á Ólafsfirði og hef-
ur vel verið hugsað um þau. Ég
þakka Önnu samfylgdina undan-
farna áratugi og blessuð sé minn-
ing hennar.
Berglind og fjölskylda.
Anna Brynhildur
Árnadóttir
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
IngerRósÓlafsdóttir
Maðurinn minn og föðurbróðir okkar,
VATNAR VIÐARSSON
arkitekt,
F.A.Í., M.A.A.,
er látinn.
Útför hans verður gerð frá Fossvogskirkju
mánudaginn 11. maí kl. 15.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á neyðarsöfnun UNICEF á
Íslandi til styrktar nauðstöddum á jarðskjálftasvæðunum í
Nepal.
.
Brynja D. Runólfsdóttir,
Ulrik, Susanne, Emma og Frida,
Kjartan, Cecilie, Felix, Karla og Nola.
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
ÁSTRÍÐUR ODDNÝ SIGURÐARDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
kvaddi jarðvist sína á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð að morgni 30. apríl.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 11. maí kl. 15.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Náttúruverndarsamtök
Íslands.
.
Edda Janette Sigurðsson, Þorsteinn Hraundal,
Anna Gyða Gylfadóttir,
Gunnar Kristinn Gylfason,
Sif Ásthildur Guðbjartsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
SIGURVEIGAR ÖNNU
STEFÁNSDÓTTUR,
Gunnólfsgötu 8,
Ólafsfirði.
Sérstakar þakkir eru til starfsfólks
Hornbrekku, dvalarheimilis aldraðra Ólafsfirði.
.
Aðalsteinn S. Gíslason, Júlía V. Valdimarsdóttir,
Gísli Gíslason, Anna S. Einarsdóttir,
Björn Valur Gíslason, Þuríður L. Rósenbergsdóttir,
Kristín Jónína Gísladóttir, Steingrímur B. Erlingsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs sonar okkar og bróður,
HARALDAR SVEINS EYJÓLFSSONAR,
Stigahlíð 10,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Heimahlynningar Landspítalans fyrir einstaka hjálpsemi og
umhyggju.
.
Eyjólfur Þ. Haraldsson, Guðbjörg Edda Eggertsdóttir,
Eggert Eyjólfsson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
KRISTÍN MARÍA GRÍMSDÓTTIR,
Gullsmára 11,
Kópavogi,
sem lést sunnudaginn 3. maí á
Landspítalanum í Kópavogi, verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju miðvikudaginn 13. maí kl. 15.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á lungnadeild
Landspítalans, A6 Fossvogi.
.
Grímur Halldórsson, Hildur M. Blumenstein,
Guðrún E. Halldórsdóttir, Guðmundur Kr. Jóhanness.,
Ketill Arnar Halldórsson, Jóhanna H. Oddsdóttir,
Hrafnhildur Halldórsdóttir, Smári Ríkarðsson,
Halldór G. Björnsson,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Móðir okkar,
HÓLMFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Bólstaðarhlíð 41,
Reykjavík,
lést 19. apríl.
Útförin fór fram í kyrrþey.
.
Hrafn Baldursson,
Haukur Baldursson,
Jón Baldursson,
Bryndís Baldursdóttir.
Okkar ástkæra,
VILBORG MARTEINSDÓTTIR,
Glaðheimum 26,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans 23. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu. Fjölskyldan vill þakka fyrir auðsýndan
hlýhug. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð
Karitas.
.
Egill Harðarson,
Marta Halldórsdóttir, Tryggvi Örn Valsson,
Rakel Ýr, María Rán og Viktor Jökull,
Lilja Gísladóttir,
Marteinn Marteinsson, Michelle Marteinsson.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
INGÓLFUR HAUKSSON
frá Horni í Skorradal,
lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi 20. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákarhlíðar í Borgarnesi.
.
Börn og fjölskyldur þeirra.