Morgunblaðið - 09.05.2015, Side 39
sagt öllum frá hvað allir hinir
hefðu fyrir stafni. Þú varst rík af
stórri og flottri fjölskyldu, vinum
og vandamönnum og því hafðirðu
oft orð á. Stundum sagðistu ekki
skilja af hverju allir væru svona
góðir við ykkur, en það skildi ég
vel. Þú varst alltaf meira fyrir það
að gefa en þiggja.
Mér þykir vænt um að hafa get-
að rétt ykkur afa smá hjálparhönd
nú í seinni tíð á ýmsan hátt og allt-
af hafðirðu orð á því að það myndi
mér hlotnast gott fyrir og það veit
ég.
Þér þótti einstaklega vænt um
uppruna þinn og úr þeim visku-
brunni varstu dugleg að miðla,
virðingin fyrir náunganum og
gömlu góðu gildin þín geymi ég í
hjarta mínu og munu þau fylgja
mér í gegnum lífið, ásamt virðingu
þinni fyrir trúnni, sem var þér
ávallt svo kær.
Með gríðarlegum söknuði,
miklum kærleik, aðdáun og virð-
ingu kveð ég þig elsku amma mín,
þú varst mér glæsileg fyrirmynd
og stórkostlegur karakter. Ég
mun sakna nærveru þinnar, lífs-
gleðinnar, umhyggjunnar og
elskulegheitanna, en hugga mig
við allt það mikla sem þú gafst af
þér til mín, Björgvins og litlu
strákanna minna. Fallegu mynd-
ina af þér geymum við í hug okkar
og hjarta.
Takk fyrir alla þína væntum-
þykju í minn garð alla tíð. Ég
treysti á þig að fylgjast með okkur
öllum og ég veit að þú gerir það.
Guð geymi þig elsku amma.
Þín
Harpa Rut.
Það er svo skrítið hve tíminn
líður hratt. Það var fyrir tæpum
30 árum sem ég sá Öbbu í fyrsta
sinn, hún var þá á líkum aldri og
ég er nú. Við höfðum komið kvöld-
ið áður, alflutt til Dalvíkur. Um
morguninn kíkti ég út um glugga
og þar sá ég þau vera að dútla í
næsta garði, Öbbu og Kató, hann
að raka saman laufum, hún að
kíkja á smágróðurinn í júníbyrjun.
Fljótlega þaut fjögurra ára gaur-
inn minn beint yfir til þeirra. Ég
fylgdi á eftir, bæði til að sækja
hann og eins til að kynna mig fyrir
nýju nágrönnunum. Ég mátti
kynna mig en ég mátti ekki sækja
strákinn. Það var nú víst í lagi að
hann hjálpaði þeim, ég þyrfti líka
næði til að koma okkur fyrir. Eftir
það áttum við okkar annað Dalvík-
urheimili hjá Öbbu og Kató. Þarna
var líka grunnurinn lagður að vin-
áttu okkar, vináttu sem engan
skugga bar á öll þessi ár, vináttu
sem ég þakka endalaust fyrir. Það
var alltaf opið inn til þeirra og
margar ferðir átti ég upp stigann í
Hafnargötunni og inn í eldhúsið til
hennar. Abba var höfðingi, alltaf
glöð, alltaf fín og alltaf hjálpsöm.
Húslykillinn okkar var öll okk-
ar Dalvíkurár geymdur í skál í
holinu hjá Öbbu og Kató, ekki
ástæða til annars, við vorum jú ná-
grannar, ég norðanvið og þau
sunnanvið. Ég fylgdist með
krökkunum hennar sem hún var
svo stolt af í gegnum hana og jafn-
vel þótt ég þekkti þau ekki þá
þekkti ég þau samt. Svo komu
ömmubörnin hennar, Abba var
ekki minna stolt af þeim og ég
fylgdist með. Svo snérist þetta við
þegar mínir krakkar stækkuðu og
þegar ég eignaðist ömmubörn þá
spurði hún, ég svaraði og hún
fylgdist með. Eftir að ég flutti frá
Dalvík hittumst við mikið sjaldnar
en áður. Þá tók síminn við, stund-
um með stuttum en stundum með
löngum símtölum. En núna er
Abba mín farin og síminn hljóður.
Ég heimsæki Öbbu ekki oftar og
símtölin frá mér í hennar síma
verða ekki fleiri.
Vinátta eins og við Abba áttum
er ekki algeng og fyrir hana mun
ég alltaf þakka. Ég vona, Abba
mín, að alveg þar til við hittumst
aftur líði þér vel í landinu hand-
anvið, landinu sem er hvorki norð-
anvið né sunnanvið, bara handan-
við. Eins og við kvöddumst alltaf
kveð ég þig núna. Takk fyrir allt
og allt og allt.
Hulda norðanvið.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Hljóðfæri
Húsnæði óskast
Einbýli eða 4-5 herb. íbúð óskast
Þýska sendiráðið óskar eftir einbýli
eða íbúð 4-5 herb. án húsgagna, 2
baðherb., m. bílskúr til leigu frá
01.08.2015 í 4 ár, í Reykjavík,
Kópavogi eða Seltjarnarnesi.
Uppl. s. 530-1100.
Myndir og grunnteikningar sendist á:
info@reykjavik.diplo.de
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Íþróttir
Verðlaunagripir
- gjafavara -áletranir
Bikarar, verðlaunapeningar, barm-
merki, orður, póstkassaplötur,
plötur á leiði, gæludýramerki,
starfsgreinastyttur.
Fannar,
Smiðjuvegi 6, Rauð gata,
Kópavogi, sími 5516488
Til sölu
Rotþrær-vatnsgeymar-
lindarbrunnar.
Rotþrær og siturlagnir.
Heildar lausnir - réttar lausnir.
Heitir Pottar.
Lífrænar skolphreinsistöðvar.
Borgarplast.is,
Mosfellsbæ, sími 561 2211
Verslun
Giftingar- og trúlofunarhringar
frá ERNU
Handsmíðuð hringapör úr silfri með
alexandrite-steini sem gefur mikið
litaflóð. Verð 27.500 á pari með
áletrun.
ERNA, Skipholti 3,
s. 5520775, www.erna.is
Þjónusta
! " #$ %&& ' ''
((()*)
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Varúð!
Þessi gæs gengur laus um
miðbæ Rvk í dag.
Vinsamlegast ekki styggja
hana fyrir brúðkaupið.
SUMARLEGIR OG SÆTIR
Teg. RAPTURE - þunnur, haldgóður
í 32-38 D, DD, E, F, FF, G, GG skálum
á kr. 9.985.
Teg. DECO - létt fylltur í 30-38 D,
DD, E, F, FF, G skálum á kr. 9.980.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
Teg. 171 Mjúkar og þægilegar
dömu-mokkasínur úr leðri og
skinnfóðraðar. Litir: hvítt, beige,
grátt, rautt og svart. Stærðir: 36-42.
Verð: 14.685.
Teg. 83 Mjúkar og þægilegar dömu-
mokkasínur úr leðri, fóðraðar. Litir:
svart og rautt. Stærðir: 36-42
Verð: 14.685.
.
Teg. 55 Mjúkar og þægilegar dömu-
mokkasínur úr leðri, skinnfóðraðar.
Stærðir: 36-42.
Verð: 14.685.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
Sendum um allt land
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Veiði
!"# !$%%
Hópbílar
!
"#
$
%
&#'( !)
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Mótorhjól
YAMAHA 1100 DRAG STAR
ÁRGERÐ 2005
Gullmoli sem hefur verið séð vel um,
YAMAHA 1100 Drag Star, árgerð
2005. Ekið 7.300 km. Verð 990.000.
Uppl. í síma 858 8178.
Húsviðhald
Tökum að okkur viðhald, við-
gerðir og nýsmíði fasteigna
fyrir fyritæki húsfélög og einstak-
linga. Fagmenn á öllum sviðum.
Tilboð/ tímavinna. S. 858 - 3373.
brbygg@simnet.is
Hreinsa þakrennur,
laga vatnstjón, ryð á
þökum og tek að mér
ýmis smærri verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Kerrur
Humbaur gæða álkerrur
Bjóðum þessar léttu og sterku
álkerrur frá Humbaur Þýskalandi á
kr. 149.900. Gerð1380. Stærð 201 x
102 cm, burður 750 kg brúttó og 628
kg nettó. Skoðið heimasíðu okkar.
www.Topplausnir.is
Upplýsingar í síma 5177718.
Smiðjuvegur 40, gul gata.
Kópavogi.
Til leigu
Lokastígur, 101
Miðbær/Vesturbær —
Herbergi
Herbergi sem eru lítil, 10 til 15 fm
með húsgögnum, sameiginlegt eld-
hús, þráðlaust internet, baðherbergi
með sturtu. Langtímaleiga sem þýðir
12 mánuðir og lengur, kr. 60.000 til
70.000 þúsund. Kr 50.000 trygging
vegna skemmda . Tveir mánuðir fyrir-
fram. Laust . Senda póst .
osbotn@gmail.com
TILBOÐ - TILBOÐ - TILBOÐ
Verulega mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stakar stærðir. TILBOÐSVERÐ: 3.500.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Sumarbústaðalóðir
til sölu í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með
aðgangi að heitu og köldu vatni í
vinsælu sumarhúsahverfi í landi
Vaðness í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi ca 45 km frá Rvk. Vaxtalaust
lán. Allar nánari upplýsingar gefur
Jón í síma 896-1864.
Er með stálgrindarhús til sölu
24 m á breidd og 60 m á lengd. Húsið
er tilbúið til uppsetningar.
Húsið er einangrað með ull og
álklæðningu að utan.
Upplýsingar í síma 820-3439.