Morgunblaðið - 09.05.2015, Page 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015
Kristinn DaníelLee Gilsdorfer upplýs-
ingafulltrúi hjá
bandaríska sendi-
ráðinu. „Starf mitt
snýst aðallega um að
fylgjast með fréttum
og þýða þær fyrir
sendiherrann og þá í
Washington og
fræða þá um hvað er
að gerast hér.“
Kristinn er hálfur
Bandaríkjamaður og
fæddist í Kaliforníu.
„Faðir minn var
diplómat og við
bjuggum út um allan
heim og það var ekki
slæmt. Það er ekki
verra að að hafa ver-
ið í framhaldsskóla í
París og háskóla-
námi í Kanada og
Þýskalandi. Svo kom
ég alltaf til Íslands á
sumrin og jólunum
og var í 6. bekk og
10. bekk hérna.“
Kristinn kláraði BA-nám í sagnfræði í Concordia-háskóla í Mont-
réal. „Þar kynntist ég konunni minni, Fionu Elizabeth Oliver, sem
er þaðan og við bjuggum fyrst í Philadelphiu en fluttumst heim til
Íslands 2003.“ Fiona er enskukennari hjá Hjallastefnunni og er í
meistaranámi í kennslufræðum, Börn þeirra Kristins eru Kieran 11
ára og Amelía Rós 8 ára.
„Áhugamál mín eru þetta hefðbundna, líkamsrækt, vera úti í nátt-
úrunni og svo er alltaf skemmtilegt að fara í fótbolta. Einnig hef ég
mjög gaman af að ferðast og er ekki búinn að losa mig við að vilja
fljúga út um allan heim, held að það sé innbyggt í mig. Við förum
t.d. árlega til Bandaríkjanna til afa míns, sem er 96 ára og býr á
Virginia Beach, og heimsækjum tengdafjölskylduna og kynnum
Bandaríkin fyrir krökkunum.
Ég ætla að grilla kjöt í tilefni dagsins – ef það verður eitthvað
eftir í búðunum – og hafa það gott með fjölskyldu og vinum.“
Kristinn Gilsdorf er fertugur í dag
Fjölskyldan Frá Gleðigöngunni í fyrra.
Ferðalöngunin
hverfur ekkert
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Í dag, 9. maí, er sextugur Ólafur Kristmundsson,
eigandi Loftræstihreinsunar ehf., Vogagerði 19,
Reykjavík. Hann mun taka á móti vinum og vanda-
mönnum á heimili sínu á afmælisdaginn kl. 15. Verið
velkomin, fjölskylda og vinir.
Árnað heilla
60 ára
S
if fæddist í Reykjavík 9.5.
1965, bjó fyrstu fjögur ár-
in í Safamýri og síðan tvö
ár í Sæviðarsundi meðan
foreldrar hennar voru að
koma sér upp húsi í Undralandi í
Fossvogi: „Ég átti heima í Fossvog-
inum þar til ég flutti að heiman, rúm-
lega tvítug. Það var yndislegur stað-
ur, næstum uppi í sveit, og nálægt
Elliðaárdalnum sem var hluti af okkar
leiksvæði.“
Sif fór í sumarbúðir í Ölver eitt
sumar, tvisvar í Vindáshlíð og var eitt
sumar í sveit á Háreksstöðum í Borg-
arfirði.
Hún vann hjá föður sínum í Hverf-
iskjötbúðinni, Hverfisgötu 50: „Búðin
var stundum kölluð Harðfiskabúðin
en hún var þekkt fyrir harðfisk og
þorramat allt árið. Þar byrjaði ég að
vinna um helgar þegar ég var 9 ára,
byrjaði á að setja vörur í poka fyrir
viðskiptavini og varð mjög montin
þegar mér var treyst til að verða
kassadama. Ég vann þarna svo meira
og minna í öllum fríum þar til búðin
var seld þegar ég var rúmlega tvítug.“
Sif vann í sjoppu þegar hún var 12
ára hjá Sjönu frænku sinni í Búðardal,
passaði lítinn frænda í Búðardal
næsta sumar, lærði ung á píanó og
Sif Ægisdóttir, gullmiður og kaupmaður – 50 ára
Fjölskyldan Sif ásamt eiginmanni sínum Helga og börnum þeirra, Heklu og Nökkva í Dubai fyrir rúmu ári.
Rekur Hún og hún
á Skólavörðustíg
Gullsmiðurinn Sif vinnur aðallega úr eðalmálmum en hefur alltaf verið
dugleg að nota óhefðbundin efni með svo sem ull og bílrúðu.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.