Morgunblaðið - 09.05.2015, Qupperneq 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015
Kórar Grafarvogskirkju halda sam-
eiginlega vortónleika í dag kl. 17 í
kirkjunni. Tónleikarnir eru tileink-
aðir tónskáldunum Jóni Ásgeirs-
syni og Gunnari Þórðarsyni.
Kór Grafarvogskirkju, Vox Po-
puli og Stúlknakór Reykjavíkur í
Grafarvogskirkju koma fram ásamt
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Jóhanni
Friðgeiri Valdimarssyni og átta
manna hljómsveit. Stjórnandi tón-
leikanna er Hilmar Örn Agnarsson.
Flutt verða sígild dægurlög
Gunnars ásamt köflum úr Brynj-
ólfsmessu, en sú messa var upp-
taktur að óperunni Ragnheiði.
Flutt verður biblíukantatan „Leyf-
ið börnunum að koma til mín“ eftir
Jón Ásgeirsson auk þekktra og sí-
gildra kórlaga eftir Jón. Ber að
geta þess að Brynjólfsmessan var
frumflutt í Grafarvogskirkju árið
2006 undir stjórn Hákons Leifs-
sonar með Kór Grafarvogskirkju,
Skálholtskórnum og Kór Keflavík-
urkirkju, ásamt einsöngvurum og
hljómsveit.
Hilmar Örn Agnarsson, stjórn-
andi tónleikana, segir það vera kór-
um Grafarvogskirkju sérstakt
ánægjuefni að heiðra þessa tvo
snillinga íslenskrar tónsköpunar á
sjötugsafmælisári Gunnars og átt-
ugasta og sjöunda afmælisári Jóns,
sem jafnframt er sóknarbarn Graf-
arvogssóknar.
Hákon Leifsson er stjórnandi
Kórs Grafarvogskirkju, Margrét
Pálmadóttir er stjórnandi Stúlkna-
kórs Reykjavíkur í Grafarvogs-
kirkju og Hilmar Örn Agnarsson er
stjórnandi Vox Populi.
Aðgangseyrir er kr. 2.500 og fer
miðasala fram í Grafarvogskirkju.
Voruppskeruhátíð kóra
Grafarvogskirkju
Tónskáldin Tónleikarnir í í dag eru tileinkaðir tónskáldunum Jóni Ásgeirs-
syni og Gunnari Þórðarsyni. Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson.
Írska rósin
Svöl Róisín Murphy er vinsæl … en veit ekki af því!
hún út Overpowered, straumlínu-
lagaðri plötu sem fékk enn betri
dóma en frumburðurinn þó að vin-
sældalistar hafi ekki beint logað.
Hennar tími
Það er lenska að mæla virkni
dægurtónlistarmanna í fjölda
breiðskífna, mælikvarði sem er orð-
inn dálítið úreltur á tækniöld.
Murphy hefur nefnilega verið allt
annað en óvirk á þessum átta árum
og tónlistinni hefur hún sinnt reglu-
bundið meðfram öðrum aðkallandi
störfum en hún er nú tveggja barna
móðir. Þannig gaf hún út nokkur
stök lög árið 2009 og hefur líka
komið að samstarfi við hina og
þessa tónlistarmenn, hvort heldur
sem gestasöngvari eða meðhöf-
undur. Nokkuð sérstök stuttskífa
kom svo út í fyrra, Mi Senti, þar
sem Murphy syngur sex lög á
ítölsku en tungumálið talar hún
ekki. Tiltækið stýrist af því að unn-
usti hennar og meðupptökustjóri er
ítalskur, Sebastian Properzi. Nýja
platan, sem er tilefni þessara
skrifa, kemur svo út eftir helgi og
kallast Hairless Toys. Murphy hef-
ur lítið tjáð sig um vinnsluna, hún
komi hins vegar frá „dýpri“ stað en
fyrri verk.
Gagnrýnendur, sumir hverjir,
hafa kvartað yfir því að Murphy
eigi skilið rýmra pláss í popp-
meðvitund almennings og setja
hana skýlaust á stall með Kate
Bush og Florence Welch. Hver veit,
kannski er hennar tími kominn
núna. Ég þykist þó vita að henni sé
slétt sama. Hún lötrar sem fyrr í
gegnum þetta allt saman með þessa
yfirmáta svölu værukærð að vopni.
»Hún fyllir upp ísalinn hvert sem hún
fer en tekur ekki eftir
því, líkt og hún leyfi sér
ekki að fullnýta sjarm-
ann sem hún býr yfir.
Róisín Murphy gefur út plötu eftir átta ára hlé Þessi
fyrrverandi söngkona Moloko býr yfir óræðum sjarma
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Róisín Murphy er töff. Ég segi ekki
meir, svona í blábyrjun. Hún er ein
af þessu fólki sem býr yfir aðsóps-
mikilli áru, er ofursvöl án þess að
hafa nokkuð fyrir því að því er virð-
ist. Náðarvald hefur þetta verið
nefnt upp á íslensku. Síðasta sóló-
plata Murphy kom út fyrir átta ár-
um og reytingur af smáskífum síð-
an þá en alltaf er hún þó í
sviðsljósinu. Eitt af því sem heldur
henni þar er staða hennar sem
tískutákn en ófáar greinar hafa
birst um hversu nösk hún er á það
sem er „inni“ og hvað ekki auk þess
sem hún hefur unnið með hinum og
þessum tískugúrúum undanfarin
ár. Hún ber sig í þessum efnum eins
og öðrum með stóískri ró og það
stafar af henni hálfgert fálæti. Hún
fyllir upp í salinn hvert sem hún fer
en tekur ekki eftir því, líkt og hún
leyfi sér ekki að fullnýta sjarmann
sem hún býr yfir. Sú hefting er eðli-
leg og gríðarlega heillandi. Það er
eitthvert óútskýranlegt „mojo“ í
gangi hérna sem erfitt er að koma
böndum á. Eru það sultuslöku gen-
in frá Írlandi sem valda þessu?
Rafpopp
Nú eru einhverjir farnir að
spyrja: Ókei, gott og blessað, en
hver er þessi kona eiginlega sem
Arnar getur ekki á heilum sér tekið
yfir? Róisín Murphy gat sér fyrst
orð sem söngkona rafpoppssveit-
arinnar Moloko sem gaf út fyrstu
plötu sína, Do You Like My Tight
Sweater?, árið 1995. Tónlist sveit-
arinnar smellpassaði inn í dans-
vænt svalheitapopp tíunda áratug-
arins og plöturnar I Am Not A
Doctor (1998) og Things To Make
And Do (2000) treystu hana frekar í
sessi. Á plötunum er að finna tvo
stærstu smelli Moloko, „The Time
Is Now“ og „Sing It Back“.
Moloko þraut örendi 2004 en
strax sama ár lagði Murphy á ráðin
um sólóefni og naut fulltingis hús-
meistarans Matthews Herberts.
Breiðskífan Ruby Blue (2005) þótti
helst til súr og seldist illa þótt hún
hafi fengið tvo þumla upp frá gagn-
rýnendum. Tveimur árum síðar gaf
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Lau 9/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00 Mið 3/6 kl. 19:00
Sun 10/5 kl. 19:00 Fös 22/5 kl. 19:00 Fim 4/6 kl. 19:00
Mið 13/5 kl. 19:00 Mán 25/5 kl. 13:00 Ath kl
13
Fös 5/6 kl. 19:00
Fim 14/5 kl. 19:00 Mið 27/5 kl. 19:00 Lau 6/6 kl. 19:00
Fös 15/5 kl. 19:00 Fös 29/5 kl. 19:00 Sun 7/6 kl. 19:00
Sun 17/5 kl. 19:00 Lau 30/5 kl. 19:00 Mið 10/6 kl. 19:00
Mið 20/5 kl. 19:00 Sun 31/5 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 10/5 kl. 13:00 Sun 17/5 kl. 13:00
Síðustu sýningar leikársins
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Lau 9/5 kl. 20:00 20.k. Mið 13/5 kl. 20:00 22.k. Fim 21/5 kl. 20:00
Sun 10/5 kl. 20:00 21.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k. Fös 22/5 kl. 20:00
Þri 12/5 kl. 20:00 aukas. Fös 15/5 kl. 20:00 aukas. Fim 28/5 kl. 20:00
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 16/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Beint í æð (Stóra sviðið)
Lau 16/5 kl. 20:00
Síðasta sýning!
Peggy Pickit sér andlit guðs (Litla sviðið)
Lau 9/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00 Fös 22/5 kl. 20:00
Sun 10/5 kl. 20:00 Fim 21/5 kl. 20:00 Lau 30/5 kl. 20:00
Urrandi fersk háðsádeila frá einu umtalaðasta leikskáldi Evrópu
Hystory (Litla sviðið)
Fim 14/5 kl. 20:00 Mið 20/5 kl. 20:00 auka.
Fös 15/5 kl. 20:00 Sun 31/5 kl. 20:00 auka.
Nýtt íslenskt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur
Blæði (Stóra sviðið)
Þri 19/5 kl. 20:00 Mán 25/5 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00
Aðeins þessar þrjár sýningar
Beint í æð! –★★★★ , S.J. F.bl.
leikhusid.is
FJALLA-EYVINDUR OG HALLA – ★★★★ – SV, MBL
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Fjalla - Eyvindur og Halla (Stóra sviðið)
Lau 9/5 kl. 19:30 14.sýn Fös 29/5 kl. 19:30 Lokas.
Allra síðustu sýningar.
Svartar fjaðrir (Stóra sviðið)
Mið 13/5 kl. 19:30 Frums. Mið 20/5 kl. 19:30 3.sýn Sun 31/5 kl. 19:30 6.sýn
Fös 15/5 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/5 kl. 19:30 5.sýn
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Sun 10/5 kl. 13:30 lokas.
Síðasta sýning!
Fetta bretta (Kúlan)
Sun 17/5 kl. 14:00 Sun 17/5 kl. 15:00
Falleg sýning fyrir börn á aldrinum 6 mánaða til 3 ára.
Leitin að Jörundi (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 10/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00
Sápuópera um hundadagakonung
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Eldhúsið (Salurinn)
Lau 23/5 kl. 14:00
Síðbúin rannsókn (Aðalsalur)
Þri 12/5 kl. 20:00 Fös 15/5 kl. 20:00
Both Sitting Duet og Body Not Fit For Purpose (Salurinn)
Lau 30/5 kl. 20:00
The Border (Salurinn)
Mán 18/5 kl. 20:00 Þri 19/5 kl. 20:00
Endatafl (Salurinn)
Fim 14/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00
Lau 16/5 kl. 20:00 Sun 24/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Hávamál (Salurinn)
Mið 27/5 kl. 20:00 Sun 31/5 kl. 16:00 Sun 31/5 kl. 20:00