Morgunblaðið - 01.05.2015, Page 4
FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
4
vörðurinn Ingvar Jónsson, skilur
vissulega eftir sig stórt skarð en á
dögunum fundu Stjörnumenn eft-
irmann hans, færeyska landsliðs-
markvörðinn Gunnar Nielsen. Hann
ætti að ráða vel við að fylla skarð
Ingvars. Danska tríóið Martin
Rauschenberg, Niclas Vemmelund
og Rolf Toft, hafa allir sagt skilið við
meistarana en allir skiluðu þeir góðu
framlagi með liðinu í fyrra.
Stjörnumönnum hefur hins vegar
borist fínn liðsauki. Halldór Orri
Björnsson er kominn aftur heim og
það er mikill liðsstyrkur í honum
enda Halldór góður leikmaður sem
kann hvergi betur við sig en í
Stjörnutreyjunni. Það var snjall
leikur hjá Stjörnumönnum að fá
danska framherjann Jeppe Hansen
aftur til liðs við sig, meann sem skor-
aði 6 mörk í 9 leikjum í fyrra, og þá
hefur liðið fengið varnarmanninn
sterka Brynjar Gauta Guðjónsson í
stað Rauschenberg.
Daninn Michael Præst, sem missti
úr síðari hluta tímabilsins vegna
meiðsla, er allur að koma til og gæti
orðið klár í byrjun móts, framherj-
inn stóri og stæðilegi Garðar Jó-
hannsson er orðinn heill heilsu og
bakvörðurinn Jóhann Laxdal er á
góðum batavegi en hann sleit kross-
band snemma á síðustu leiktíð. Með
þessa þrjá leikmenn heila eru
Stjörnumennirnir orðnir ansi vel
mannaðir og til alls líklegir.
Rúnar Páll Sigmundsson var
óhræddur að gefa ungum leik-
mönnum Stjörnunnar tækifæri á
síðustu leiktíð og það kemur þeim
svo sannarlega til góða í sumar.
Strákar eins og Þorri Geir Rún-
arsson eru árinu eldri og margir
yngri leikmenn liðsins banka á dyrn-
ar og bíða eftir því að fá tækifæri á
stóra sviðinu.
Vel mannaðir
meistarar
Morgunblaðið/Ómar
Stjörnumaður eitt Daníel Laxdal hefur leikið með Stjörnunni í rúman ára-
tug og lagt þung lóð á vogarskálarnar við að gera liðið að Íslandsmeistara.
Leikmenn
árið 2015
Efsta deild Lands-
Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá
* var í láni
1 Gunnar Nielsen 1986 0 0 26 Motherwell ‘15
13 Arnar Darri Pétursson 1991 3 0 0 *Víkingi Ó. ‘15
25 Sveinn S. Jóhannesson 1995 2 0 0 *Skínanda ‘13
Markverðir
2 Brynjar Gauti Guðjónsson 1992 75 5 0 ÍBV ‘15
3 Aron R. Heiðdal 1995 7 1 0 *Keflavík ‘15
4 Jóhann Laxdal 1990 107 10 1 Ull/Kisa ‘14
9 Daníel Laxdal 1986 130 4 0
14 Hörður Árnason 1989 92 1 1 HK ‘11
24 Brynjar Már Björnsson 1995 0 0 0 *Skínanda ‘14
Varnarmenn
5 Michael Præst 1986 31 1 0 FC Fyn ‘13
6 Þorri Geir Rúnarsson 1995 17 0 0
7 Atli Jóhannsson 1982 233 21 0 KR ‘10
8 Pablo Punyed 1990 31 3 3 Fylki ‘14
12 Heiðar Ægisson 1995 13 0 0 *Skínanda ‘14
21 Snorri Páll Blöndal 1994 14 0 0
23 Halldór Orri Björnsson 1987 106 47 2 Falkenberg ‘15
30 Kári Pétursson 1996 0 0 0 *Skínanda ‘14
Miðjumenn
10 Veigar Páll Gunnarsson 1980 93 27 34 Stabæk ‘13
11 Arnar Már Björgvinsson 1990 84 22 0 Breiðabliki ‘14
17 Ólafur Karl Finsen 1992 79 21 2 Selfossi ‘13
18 Jón Arnar Barðdal 1995 4 0 0 *Skínanda ‘14
19 Jeppe Hansen 1989 9 6 0 Fredericia ‘15
20 Atli Freyr Ottesen 1995 8 0 0 *Skínanda ‘14
22 Þórhallur Kári Knútsson 1995 1 0 0 *Skínanda ‘13
26 Kristófer Konráðsson 1998 0 0 0
27 Garðar Jóhannsson 1980 129 40 8 Strömsgodset‘11
Sóknarmenn
Tekst Stjörnunni að fylgja eftir ævin-
týrinu? Endurheimta sterka menn
STJARNAN
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Í umfjöllun um lið Stjörnunnar á
sama tíma á þessum stað fyrir ári
síðan skrifaði undirritaður að það
gæti orðið erfitt fyrir Garðabæj-
arliðið að bæta ofan á leiktíðina frá
árinu áður en þá hafnaði Stjarnan í
þriðja sæti og tryggði sér Evr-
ópusæti í fyrsta skipti í sögu félags-
ins. Stjörnumenn gáfu mér og mörg-
um öðrum hins vegar langt nef.
Tímabilið varð hreint út sagt eitt
stórt ævintýri og mögnuð frammi-
staða Stjörnuliðsins verður lengi í
minnum höfð. Ekki nóg að liðið stóð
uppi sem Íslandsmeistari í fyrsta
skipti heldur fór það í gegnum Ís-
landsmótið án þess að tapa leik og
náði frábærum árangri í Evr-
ópukeppni en fyrst íslenskra liða
náði það að spila í fjórum umferðum
í Evrópudeildinni og sló þar út lið á
borð við Motherwell frá Skotlandi og
Lech Poznan frá Póllandi.
Lítið í umræðunni
Á undirbúningstímabilinu hafa
ríkjandi Íslandsmeistarar verið
minna á milli tannanna hjá spark-
fræðingum en hefð er fyrir hvað
meistaralið varðar þegar spáð er í
spilin fyrir mót. Flestir þeirra hafa
nefnt FH á nafn sem væntanlega
kandídata að Íslandsmeistaratitl-
inum og á síðustu dögum hafa KR-
ingar komið inn í þá umræðu. Færri
virðast hafa trú á Stjörnunni en það
er engum blöðum um það að fletta
að sá mannskapur sem Stjarnan hef-
ur yfir að ráða er feikilega öflugur
og er síst lakari heldur en í fyrra.
Besti leikmaður liðsins á síðustu
leiktíð og leikmaður ársins, mark-
Rúnar Páll Sig-
mundsson stýrir
liði Stjörnunnar
annað árið í röð
en hann var áður
aðstoðarmaður
Loga Ólafssonar.
Rúnar, sem er 41
árs gamall og lék
á árum áður með
Stjörnunni, stýrði
HK í efstu deild
seinni hluta tímabilsins 2008 og í 1.
deild ári síðan. Þá var hann þjálfari
norska liðsins Levanger í tvö ár áður
hann sneri aftur heim til Íslands fyr-
ir þremur árum.
Líkt og á síðustu leiktíð verður
Brynjar Björn Gunnarsson aðstoð-
armaður Rúnars en Brynjar er
margreyndur landsliðsmaður og at-
vinnumaður til margra ára. Hann og
Rúnar Páll náðu afar vel saman og
bökkuðu hvor annan vel upp.
Færeyski landsliðsmarkvörðurinn
Gunnar Nielsen mun verja mark Ís-
landsmeistaranna í sumar og fær
það vandaverk að fylla skarð Ingv-
ars Jónssonar sem átti frábært
tímabil í fyrra og var útnefndur besti
leikmaður Pepsi-deildarinnar. Hinn
tvítugi Sveinn Sigurður Jóhannes-
son verður Gunnari til trausts og
halds.
Þórhallur Kári
Knútsson, tvítug-
ur strákur uppal-
inn hjá Stjörn-
unni, mun byrja í
stöðu hægri bak-
varðar en ekki er
reiknað með að
Jóhann Laxdal
verði klár í slag-
inn fyrr en í júní.
Hörður Árnason
verður í vinstri bakvarðarstöðunni
sem hann leysti svo vel af hendi á
síðustu leiktíð. Daníel Laxdal verður
miðvörður líkt og undanfarin ár og
nú með Brynjar Gauta Guðjónsson
sér við hlið.
Atli Jóhannsson, Þorri Geir Rún-
arsson, Pablo Punyed og Michael
Præst verða líklega í helstu hlut-
verkunum á miðri miðjunni en
Præst er að koma til baka eftir erfið
meiðsli. Snorri Páll Blöndal er einn-
ig til staðar.
Sóknarsveit Stjörnumanna er vel
skipuð með Ólaf Karl Finsen, Arnar
Má Björgvinsson, Veigar Pál Gunn-
arsson, Halldór Orra Björnsson,
Garðar Jóhannsson og Danann
Jeppe Hansen. Veigar getur spilað
fyrir aftan fremstu menn þar sem
hann nýtist vel í holunni frægu en
Rúnar Páll þjálfari hefur marga
góða kosti að spila úr hvað sóknar-
leikinn varðar.
Stjarnan á marga unga og efni-
lega leikmenn sem fá eflaust eld-
skírnina í Pepsi-deildinni í sumar en
þeir hafa fengið góða reynslu með
varaliði félagsins, Skínanda, sem
leikur í 4. deild.
Stjarnan
Rúnar Páll
Sigmundsson
Michael
Præst
KOMNIR:
Arnar Darri Pétursson frá
Víkingi Ó. (úr láni)
Aron Heiðdal frá Keflavík (úr láni)
Brynjar Gauti Guðjónsson frá ÍBV
Halldór Orri Björnsson frá
Falkenberg (Sví)
Jeppe Hansen frá Fredericia (Dan)
Gunnar Nielsen frá Motherwell
(Skotlandi)
FARNIR:
Baldvin Sturluson í Val
Daníel Andri Baldursson í Aftureld.
Hilmar Þór Hilmarsson í Val
Ingvar Jónsson í Start (Noregi)
Martin Rauschenberg í Gefle (Sví)
Niclas Vemmelund í danskt félag
Rolf Toft í Víking R.
Breytingar á liði Stjörnunnar