Morgunblaðið - 01.05.2015, Síða 8
FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
8
armaður, Guðmundur Benediktsson,
hafa reynt eftir bestu getu að finna
leikmenn til að stoppa í götin og hafa
notið liðsinnið Danans Henriks Böd-
kers. Bödker, sem var duglegur að
koma löndum sínum að hjá Stjörn-
unni og það gæða leikmönnum, hefur
látið til sín taka í Vesturbænum og
KR-ingar munu tefla fram þremur
Dönum í liði sínu í sumar. „Danskir
dagar í Vesturbænum“ ætti að hljóma
vel í fyrirsögn standi þeir Sören Fre-
deriksen, Rasmus Christiansen og
Jacob Schoop undir væntingum.
Kræktu í einn stærsta bitann
Varnarmaðurinn Skúli Jón Frið-
geirsson er aftur kominn heim í heið-
ardalinn og verður KR-ingum góður
liðsstyrkur innan sem utan vallar og
þá má ekki gleyma því að þeir rönd-
óttu kræktu í einn stærsta bitann á
leikmannamarkaðnum þegar þeir
fengu miðjumanninn Pálma Rafn
Pálmason frá Lilleström. Pálmi er
leikmaður í háum gæðaflokki og mun
örugglega spila stóra rullu í KR-liðinu
í sumar. Þá þurfa KR-ingar gott
framlag frá Gary Martin sem stóð
uppi sem markakóngur á síðustu leik-
tíð en góðu fréttirnar fyrir stuðnings-
menn KR eru þær að Englendingnum
tókst ekki að heilla forráðamenn
þeirra liða sem hann reyndi fyrir sér
hjá í vetur.
Leikmannahópur KR er kannski
ekki eins stór og sterkur og hjá að-
alkeppninautunum í FH og Stjörn-
unni en falli nýju mennirnir vel inn í
hópinn eru KR-ingar til alls líklegir.
Þjálfarinn Bjarni Guðjónsson á hins
vegar eftir að sanna sig. Bjarni fékk
eldskírnina í þjálfarastarfinu á síðasta
ári en hlutskipti hans var að falla með
Framarana. Lærdómsríkt tímabil hjá
fyrrverandi fyrirliða KR-liðsins en
hann er reynslunni ríkari.
Blóðtaka í
Vesturbænum
Morgunblaðið/Eva Björk
Bikarmeistarar Aron Bjarki Jósepsson með markakónginn Gary Martin á
bakinu eftir að KR landaði bikarmeistaratitlinum síðasta sumar.
Leikmenn
árið 2015
Efsta deild Lands-
Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá
* var í láni
1 Stefán Logi Magnússon 1980 63 0 10 Ull/Kisa ‘14
12 Hörður Fannar Björgvinsson 1997 5 0 0 Fram ‘15
13 Sindri Snær Jensson 1986 37 0 0 Val ‘14
Markverðir
2 Grétar S. Sigurðarson 1982 218 25 0 Víkingi R. ‘08
3 Rasmus Christiansen 1989 64 3 0 Ull/Kisa ‘15
4 Gonzalo Balbi 1992 14 0 0 Terrassa ‘14
5 Skúli Jón Friðgeirsson 1988 102 3 4 Gefle ‘15
6 Gunnar Þór Gunnarsson 1985 78 1 3 Norrköping ‘11
18 Aron Bjarki Jósepsson 1989 46 4 0 *Völsungi ‘11
Varnarmenn
8 Jónas Guðni Sævarsson 1983 154 5 7 Halmstad ‘12
10 Pálmi Rafn Pálmason 1984 79 23 18 Lilleström ‘15
11 Almarr Ormarsson 1988 131 29 0 Fram ‘14
16 Kristinn J. Magnússon 1984 92 1 0 Víkingi R. ‘15
20 Jacob Schoop 1988 0 0 0 OB ‘15
23 Atli Sigurjónsson 1991 60 3 0 Þór ‘12
24 Farid Zato 1992 38 1 3 Víkingi Ó. ‘14
26 Björn Þorláksson 1995 2 0 0 *KV ‘14
28 Atli Hrafn Andrason 1999 0 0 0
29 Júlí Karlsson 1996 0 0 0
Miðjumenn
7 Gary John Martin 1990 65 33 0 ÍA ‘12
9 Þorsteinn Már Ragnarsson 1990 48 9 0 *Víkingi Ó. ‘15
19 Sören Frederiksen 1989 0 0 0 AaB ‘15
22 Óskar Örn Hauksson 1984 200 42 2 *Edmonton ‘15
27 Guðmundur A. Tryggvason 1999 0 0 0
Sóknarmenn
Stórar og miklar kanónur horfnar á
braut Danskir dagar í Frostaskjólinu
KR
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Eftir fjögur farsæl ár í Frostaskjól-
inu er Rúnar Kristinsson horfinn á
braut og það kemur í hlut Bjarna
Guðjónssonar, fyrrverandi fyrirliða
liðsins, að gera atlögu að stóru titl-
unum með KR-liðið í sumar. Tveir
Íslandsmeistaratitlar og þrír bik-
armeistaratitlar var uppskera Rún-
ars með KR-ingana og það bíður því
Bjarna krefjandi verkefni í Vest-
urbænum að fylgja þessum árangri
eftir og svara kröfum stuðnings-
manna sem sætta sig ekki við neitt
annað en að vera bestir.
Gervigrasvöllurinn í Laugardal
var vettvangur fyrstu tveggja heima-
leikja KR á síðustu leiktíð og upp-
skeran út úr þeim leikjum gegn Val
og FH var ekkert stig. Þessi byrjun
reyndist KR-ingum dýrkeypt og 14
töpuð stig í fyrri umferðinni gerðu
það að verkum að meistaravörnin var
nær óvinnandi vegur. Þriðja sætið
varð niðurstaðan og þó svo að bik-
armeistaratitillinn hafi farið á loft hjá
liðinu var tímabilið hálfgerð von-
brigði.
Lykilmenn horfnir á braut
Það eru sterkir leikmenn sem KR-
ingar hafa mátt sjá á eftir. Baldur
Sigurðsson, Haukur Heiðar Hauks-
son, Guðmundur Reynir Gunnarsson
og Emil Atlason eru farnir til ann-
arra liða og seint á síðustu leiktíð yf-
irgaf Kjartan Henry Finnbogason
Vesturbæjarliðið. Engir smákarlar
þarna á ferð en góðu fréttirnar fyrir
vesturbæjarliðið eru þær að Óskar
Örn Hauksson er kominn heim eftir
stutta dvöl í Kanada.
Bjarni og hans hundtryggi aðstoð-
KR-ingar tefla
fram nýju þjálf-
arateymi. Bjarni
Guðjónsson er
orðinn aðalþjálf-
ari liðsins í stað
Rúnars Krist-
inssonar og fetar
þar með í fótspor
föður síns Guð-
jóns Þórðarsonar
sem þjálfaði KR-
liðið tímabilin 1994 og 1995. Bjarni,
sem spilaði í mörg ár með KR og var
fyrirliði liðsins, þjálfaði Fram á síð-
ustu leiktíð. Guðmundur Benedikts-
son, annar fyrrverandi leikmaður
KR, er aðstoðarmaður Bjarna en
Guðmundur var aðstoðarþjálfari
Breiðabliks og tók svo við þjálfun
liðsins í júní eftir að Ólafur Krist-
jánsson var ráðinn þjálfari Nord-
sjælland.
Stefán Logi Magnússon mun
standa á milli stanganna hjá KR-
ingum eins og í fyrra en hlutverk
Sindra Snæs Jenssonar og hins efni-
lega Harðar Fannars Björgvins-
sonar verður að veita Stefáni sam-
keppni.
Gonzalo Balbi og Aron Bjarki
Jósepsson hafa spilað í hægri bak-
varðarstöðunni á undirbúnings-
tímabilinu og
Gunnar Þór Gun-
arsson hefur
leyst vinstri bak-
varðarstöðuna.
Rasmus Christi-
ansen og Skúli
Jón Friðgeirsson
eru fyrstu kostir í
miðvarðastöð-
urnar en reynslu-
boltinn Grétar
Sigfinnur Sig-
urðarson er einnig til staðar og þá
hefur Aron Bjarki oft spilað í stöðu
miðvarðar.
Daninn Jacob Schoop, Pálmi
Rafn Pálmason og Jónas Guðni
Sævarsson verða líklegast í aðal-
hlutverkunum á miðjunni en KR
hefur einnig úr að spila þeim Almari
Ormarssyni, Kristni Jóhannesi
Magnússyni og Atla Sigurjónssyni,
sem hefur þó ekkert spilað á undir-
búningstímabilinu vegna meiðsla.
Það hefur Farid Zato heldur ekki
gert en meiðsli hafa einnig verið að
hrjá Tógómanninn.
Óskar Örn Hauksson, sem er
kominn heim eftir stutta dvöl í Kan-
ada, Daninn Sören Fredriksen,
markakóngurinn Gary Martin og
Grundfirðingurinn Þorsteinn Már
Ragnarsson eru kostirnir sem KR-
ingar hafa í fremstu víglínunni.
Ungir og efnilegir leikmenn hafa
fengið að spreyta sig með KR-liðinu
á undirbúningstímabilinu og strákar
eins og Guðmundur Andri
Tryggvason, sonur Tryggva Guð-
mundssonar, og Atli Hrafn Andra-
son gætu fengið að taka sín fyrstu
skref í Pepsi-deildinni í sumar.
KR
Bjarni
Guðjónsson
Pálmi Rafn
Pálmason
KOMNIR:
Hörður F. Björgvinsson frá Fram
Kristinn Magnússon frá Víkingi R.
Pálmi Rafn Pálmason frá
Lilleström (Noregi)
Rasmus Christiansen frá Ull/Kisa
(Noregi)
Skúli Jón Friðgeirssom frá Gefle
(Svíþjóð)
Sören Frederiksen frá AaB (Dan.)
Jacob Schoop frá OB (Danmörku)
Þorsteinn Már Ragnarsson frá
Víkingi Ó. (úr láni)
FARNIR:
Baldur Sigurðsson í SönderjyskE
(Danmörku)
Egill Jónsson í Víking Ó. (lán)
Emil Atlason í Münster (Þýsk.)
Guðmundur Reynir Gunnarsson í
Víking Ó. (lán)
Haukur H. Hauksson í AIK (Sví.)
Torfi Karl Ólafsson í Víking Ó.
Breytingar á liði KR