Morgunblaðið - 01.05.2015, Qupperneq 10
FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
10
lagaskiptin á fætur öðrum duttu í
hús. Mörg ný andlit eru mætt í Vík-
ina og leikmenn eins og Viktor
Bjarki Arnarsson, sem kannast vel
við sig og hefur sjaldan spilað betur
en í Víkingstreyjunni, Finnur Ólafs-
son og Hallgrímur Mar Stein-
grímsson eru öflugir spilarar sem
munu styrkja hópinn til mikilla
muna svo ekki sé nú talað um
danska sóknarmanninn Rolf Toft,
sem kom frá Íslandsmeisturum
Stjörnunnar. Þá binda Víkingar von-
ir við serbneska varnarmanninn Mil-
os Zivkovic sem kom til liðsins í vet-
ur. Það var lykilatriði fyrir Víkinga
að halda miðjumanninum Igor
Taskovic. Það tókst en Igor var kjöl-
festan í Víkingsliðinu í fyrra.
En Fossvogsliðið hefur líka þurft
að sjá á eftir góðum leikmönnum.
Ein aðalstjarna liðsins á síðustu leik-
tíð, Aron Elís Þrándarson, er kom-
inn í atvinnumennsku og þeir Krist-
inn Jóhannes Magnússon og
markvörðurinn Ingvar Þór Kale eru
farnir til annarra liða. Báðir léku
þeir alla leiki Víkings í fyrra. Danski
markvörðurinn Thomas Nielsen var
fenginn til að fylla skarð Ingvars.
Þurfa að bæta við mörkum
Það var hálfgerð markastífla hjá
Víkingunum á síðustu leiktíð en þeir
skoruðu 25 mörk og aðeins botnliðið
Þór skoraði minna. Á þessu þarf
Ólafur Þórðarson að gera bragarbót
og með tilkomu Rolf Tofts eru Vík-
ingar vongóðir um að mörkunum
fjölgi. Hann og Pape Mamadou Faye
ættu að geta hrellt varnir mótherj-
anna.
Miklar breyt-
ingar í Víkinni
Morgunblaðið/Eggert
Fyrirliðinn Serbneski miðjumaðurinn Igor Taskovic leikur sitt þriðja ár
með Víkingum og hann hefur verið þeim ákaflega dýrmætur.
Leikmenn
árið 2015
Efsta deild Lands-
Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá
* var í láni
1 Thomas Nielsen 1992 0 0 0 AaB ‘15
12 Denis Cardaklija 1988 8 0 0 Fram ‘15
30 Kristófer Karl Jensson 1996 0 0 0
Markverðir
3 Ívar Örn Jónsson 1994 17 1 0 HK ‘13
5 Tómas Guðmundsson 1992 8 1 0
6 Halldór Smári Sigurðsson 1988 29 0 0 *Berserkjum ‘07
11 Dofri Snorrason 1990 55 2 0 KR ‘13
16 Milos Zivkovic 1984 0 0 0 Novi Pazar ‘15
22 Alan Lowing 1988 78 0 0 Fram ‘14
25 Davíð Steinn Sigurðarson 1992 0 0 0 *KV ‘15
27 Davíð Örn Atlason 1994 0 0 0 *Dalvík/Reyni ‘15
Varnarmenn
4 Igor Taskovic 1982 21 3 0 Celik Niksic ‘13
7 Hallgrímur Mar Steingrímsson 1990 0 0 0 KA ‘15
8 Viktor Bjarki Arnarsson 1983 168 26 0 Fram ‘15
9 Haukur Baldvinsson 1990 97 10 0 Fram ‘15
13 Arnþór Ingi Kristinsson 1990 9 1 0 Hamri ‘13
14 Atli Fannar Jónsson 1995 22 2 0 ÍBV ‘15
17 Tómas Ingi Urbancic 1996 0 0 0 Reading ‘15
19 Erlingur Agnarsson 1998 0 0 0
21 Bjarni Páll Runólfsson 1996 1 0 0
23 Finnur Ólafsson 1984 110 6 0 Fylki ‘15
24 Stefán Bjarni Hjaltested 1997 5 1 0
28 Eiríkur Stefánsson 1996 5 0 0
29 Agnar Darri Sverrisson 1994 11 1 0 *BÍ/Bolungarvík‘15
Miðjumenn
10 Rolf Toft 1992 11 6 0 Stjörnunni ‘15
15 Andri Rúnar Bjarnason 1990 0 0 0 BÍ/Bolungarvík‘15
18 Stefán Þór Pálsson 1995 3 0 0 Breiðabliki ‘15
20 Pape Mamadou Faye 1991 75 19 0 Grindavík ‘13
Sóknarmenn
Spennandi tímabil í vændum hjá
Víkingum Fyrsti Evrópuleikur í 23 ár
VÍKINGUR
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Víkingur stimplaði sig inn í Pepsi-
deildina með glæsibrag á síðustu
leiktíð en flestum á óvart náðu Vík-
ingar sem nýliðar fjórða sæti deild-
arinnar og hrepptu þar með hið eft-
irsótta Evrópusæti. Magnaður
árangur hjá Ólafi Þórðarsyni og
lærisveinum hans en nú velta margir
því fyrir sér hvernig þeim röndóttu
tekst að fylgja eftir frábæru tíma-
bili. Það verður alla vega enginn
hægðarleikur fyrir Víkinga að toppa
árangur síðasta tímabils þó að
keppikefli þeirra hljóti að vera að
festa sig í sessi á meðal þeirra bestu.
Það hefur reynst Víkingum erfitt að
ná upp stöðugleika en nú eru allar
forsendur til þess að það geti tekist
og að liðið verði áfram í baráttu í efri
hluta deildarinnar.
Spennandi tímabil er í vændum
hjá Víkingum en í fyrsta sinn frá
árinu 1992 fá stuðningsmenn félags-
ins að sjá sína menn í Evrópukeppni.
Víkingar nær og fjær iða í skinninu
og það finnur undirritaður vel í
gegnum þrjá harða stuðningsmenn
félagsins sem starfa með honum.
Gústi og Siddi og Agnes Braga geta
vart beðið eftir að flautað verði til
leiks í Pepsi-deildinni og hvað þá að
vita hver verður andstæðingur liðs-
ins í Evrópudeildinni í sumar. Þau
hafa tröllatrú á sínum mönnum.
Víkingarnir hafa látið vel til sín
taka á leikmannamarkaðnum í vetur
og sér í lagi í haust þegar hver fé-
Ólafur Þórð-
arson og Milos
Milojevic eru
saman aðalþjálf-
arar Víkingsliðs-
ins. Ólafur hefur
hefur verið að-
alþjálfari liðsins
frá árinu 2012 og
síðustu tvö tíma-
bilin hefur Milos
verið aðstoð-
armaður hans. Undir lok síðustu
leiktíðar var svo gengið frá því að
þeir Ólafur og Milos yrðu saman
með liðið næstu tvö árin.
Ólafur er þrautreyndur en hann
hefur verið við þjálfun frá árinu 1999
og hefur stýrt liðum ÍA og Fylkis
auk Víkings. Milos er öllum hnútum
kunnugur í Víkinni en hann lék með
liðinu áður en hann fór út í þjálfun.
Milos hefur verið hér á landi í hart-
nær áratug og lék með Hamri og
Ægi áður en hann kom til Víkinga
árið 2010.
Tveir nýir markverðir komu til
Víkings í vetur. Denis Cardaklija frá
Fram og Daninn Thomas Nielsen.
Þeir koma til með að berjast um
markvarðarstöðuna sem Ingvar Þór
Kale skipaði á síðustu leiktíð en
Ingvar fór til Vals.
Dofri Snorra-
son og Ívar Örn
Jónsson koma til
með að verða
fyrstu kostir í
bakvarð-
arstöðurnar. Ívar
getur líka spilað á
kantinum sem og
Dofri og Halldór
Smári Sigurðs-
son í vinstri bak-
varðarstöðunni.
Miðvarðarpar númer eitt verður er-
lent, með Skotann Alan Lowing og
Serbann Milos Zivkovic. Tómas
Guðmundsson og Davíð Örn Atla-
son eru aðrir varnarmenn sem Vík-
ingar hafa yfir að ráða.
Á miðsvæðinu er nokkuð ljóst að
Igor Taskovic og Finnur Ólafsson
verði í veigamestu hlutverkunum og
með þeim Viktor Bjarki Arnarsson,
sem er kominn aftur heim í Víkinga,
og Akureyringurinn Hallgrímur
Mar Steingrímsson sem kom frá
KA-mönnum.
Daninn Rolf Toft og Pape Ma-
madou Faye eru leikmennirnir sem
Víkingar stóla á að setji flestu mörk-
in fyrir þá en eitt helsta vandamál
liðsins á síðustu leiktíð var að skora
mörk. Haukur Baldvinsson er fljót-
ur og lunkinn kantmaður og Stefán
Þór Pálsson er góður kostur í stöð-
unni fyrir aftan fremstu menn og
skoraði talsvert á undirbúnings-
tímabilinu. Þá er Andri Rúnar
Bjarnason til staðar hvað sókn-
arstöðurnar varðar en hann var
markahæsti leikmaður BÍ/
Bolungarvíkur í 1. deildinni á síð-
ustu leiktíð.
Víkingur
Ólafur Þórðarson
og Milos Milojevic
Rolf
Toft
KOMNIR:
Agnar Sverriss. frá BÍ (úr láni)
Andri R. Bjarnason frá BÍ/Bol.
Atli Fannar Jónsson frá ÍBV
Davíð Atlason frá Dalv. (úr láni)
Davíð Sigurðars. frá KV (úr láni)
Denis Cardaklija frá Fram
Finnur Ólafsson frá Fylki
Hallgrímur Steingrímsson frá KA
Haukur Baldvinsson frá Fram
Milos Zivkovic frá N.Pazar (Ser.)
Rolf Toft frá Stjörnunni
Stefán Þór Pálsson frá Breiðab.
Thomas Nielsen frá AaB (Dan.)
Tómas Ingi Urbancic frá Reading
(Englandi) (lán)
Viktor Bjarki Arnarsson frá Fram
FARNIR:
Aron Þrándarson í Aalesund (Nor.)
Ásgeir F. Ásgeirsson í BÍ/Bol. (lán)
Darri Steinn Konráðsson í Álftanes
Henry Monaghan, óvíst
Iliyan Garov í Marek Dup. (Búl.)
Ingvar Þór Kale í Val
Kjartan Dige Baldursson, hættur
Kristinn J. Magnússon í KR
Michael Abnett í Dulwich (Eng.)
Ómar Friðriksson í Fram (lán)
Óttar Steinn Magnússon í Hött
Páll Þorsteinsson í Breið. (úr láni)
Sigurður H. Björnsson í Hött (lán)
Todor Hristov í Arneas (Grikk.)
Viktor Jónsson í Þrótt R. (lán)
Breytingar á liði Víkings