Morgunblaðið - 01.05.2015, Side 12
FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
12
landsmeistari í fyrsta sinn en alls
gerði hann Hafnarfjarðarliðið að Ís-
landsmeisturum í þrígang. Fyrsta
verk Ólafs eftir að hann tók til starfa
hjá Val var að auka breiddina í liðinu
og það hefur honum tekist bærilega.
Valsmenn hafa fengið til sín
nokkra leikmenn sem gætu gert það
gott í sumar en þar má nefna Skaga-
manninn Andra Adolphsson, Tómas
Óla Garðarsson, Einar Karl Ingvars-
son og Orra Sigurð Ómarsson og þá
hafa þeir kallað til baka úr láni leik-
menn eins og Andra Fannar Stef-
ánsson og Matarr Jobe. Baldvin
Sturluson er einnig góð viðbót í hóp-
inn sem og markvörðurinn Ingvar
Þór Kale.
Það voru góðar fréttir fyrir Vals-
menn að ná að halda skoska miðju-
manninum Iain Williamson og
sænska framherjanum Patrick Ped-
ersen. Það skiptir miklu fyrir þá rauð-
klæddu að þeir verði í góðum gír sem
og driffjöðrin á miðjunni, baráttu-
hundurinn Haukur Páll Sigurðsson.
Heimavöllurinn
þarf að gefa betur
Ég held að ég verði að hryggja
stuðningsmenn Vals og ekki síst
Bödda Bergs með því að telja að Val-
ur muni ekki blanda sér í neina bar-
áttu um Íslandsmeistaratitilinn í ár
en þeir gætu tekið eitt skref áfram og
gert atlögu að Evrópusæti. Til þess
þurfa þó Valsarar heldur betur að
hressa við gengi sitt á heimavelli.
Valsmönnum hefur ekki gengið vel að
safna stigum á Vodafone-velli sínum
á síðustu tímabilum. Sex tapleikir á
heimavelli í deildinni í fyrra eru til
merkis um það og ef ég þekki Óla Jó
rétt þá mun hann gera allt sem í hans
valdi stendur til að breyta þessu.
Möguleiki á
Evrópusæti
Morgunblaðið/Golli
Fyrirliðinn Haukur Páll Sigurðsson hefur verið í stóru hlutverki á miðju
Vals undanfarin ár og leikið lengst núverandi leikmanna á Hlíðarenda.
Leikmenn
árið 2015
Efsta deild Lands-
Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá
* var í láni
1 Ingvar Þór Kale 1983 119 0 0 Víkingi R. ‘15
12 Anton Ari Einarsson 1994 6 0 0 *Tindastóll ‘14
Markverðir
5 Baldvin Sturluson 1989 77 7 0 Stjörnunni ‘15
13 Darri Sigþórsson 1997 0 0 0
14 Gunnar Gunnarsson 1993 10 1 0 Gróttu ‘14
15 Þórður Steinar Hreiðarsson 1986 83 5 0 Locarno ‘14
20 Orri Sigurður Ómarsson 1995 0 0 0 AGF ‘15
21 Bjarni Ólafur Eiríksson 1982 147 7 21 Stabæk ‘13
26 Hilmar Þór Hilmarsson 1990 21 1 0 Stjörnunni ‘15
Varnarmenn
3 Iain Williamson 1988 39 4 0 Grindavík ‘13
4 Einar Karl Ingvarsson 1993 29 2 0 *Grindavík ‘15
7 Haukur Páll Sigurðsson 1987 120 22 1 Þrótti R. ‘10
10 Kristinn Freyr Sigurðsson 1991 75 7 0 Fjölni ‘12
17 Andri Adolphsson 1992 39 2 0 ÍA ‘15
19 Marteinn Högni Elíasson 1996 0 0 0
23 Andri Fannar Stefánsson 1991 51 0 0 *Leikni R. ‘15
Miðjumenn
6 Daði Bergsson 1995 4 3 0 NEC Nijmegen‘14
8 Kristinn Ingi Halldórsson 1989 89 18 0 Fram ‘14
9 Patrick Pedersen 1991 22 11 0 Vendsyssel ‘14
11 Sigurður Egill Lárusson 1992 49 5 0 Víkingi R. ‘13
16 Tómas Óli Garðarsson 1993 64 5 0 Breiðabliki ‘15
18 Haukur Ásberg Hilmarsson 1995 7 1 0
29 Ragnar Þór Gunnarsson 1994 5 1 0 *Selfossi ‘15
Sóknarmenn
Óli Jó mættur í brúna á Hlíðarenda
Ekki toppbarátta en geta náð ofar
VALUR
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Stuðningsmenn Vals eru orðnir
óþreyjufullir að bíða eftir að þeirra
menn blandi sér af einhverju viti í
baráttuna um stóru titlana en í ár eru
átta ár liðin því að Valur fagnaði Ís-
landsmeistaratitlinum síðast og þá
verða tíu ár frá síðasta bikarmeist-
aratitli félagsins. Einn leikmaður er
eftir úr Íslandsmeistaraliði Vals 2007,
varnarmaðurinn reyndi Bjarni Ólafur
Eiríksson en Sigurbjörn Hreiðarsson
var líka í þessu liði. Nú er Sigurbjörn
kominn í þjálfarateymi félagsins.
Fimmta sætið er að verða frátekið
fyrir Hlíðarendaliðið en í því sæti
hafnaði Valur í fyrra og það í þriðja
sinn á síðustu fjórum árum. Það hefur
ekki vantað metnaðinn og á köflum
yfirlýsingar frá forráðamönnum Vals
að koma Valsmönnum aftur í fremstu
röð en það hefur ekki tekist sem
skyldi. Eftir miklar breytingar á milli
ára, tímabil eftir tímabil, var meiri ró
í þeim efnum hjá Valsmönnum fyrir
síðustu leiktíð og svipað hefur verið
uppi á teningnum í ár. Það er góðs viti
fyrir Valsmenn enda erfitt að búa til
gott lið ef breytingar eru of miklar á
milli tímabila.
Þjálfaraskipti hafa líka verið nokk-
uð tíð á Hlíðarenda og sú varð raunin
eftir síðustu leiktíð. Magnús Gylfason
sem hafði verið við stjórnvölinn í tvö
ár steig til hliðar og var Ólafur Jó-
hannesson ráðinn í hans stað. Óla
þarf vart að kynna fyrir íslenskum
knattspyrnuáhugamönnum. Hann er
einn reyndasti þjálfari landsins og
kom FH-ingum fyrstur allra á kortið
en undir hans stjórn varð FH Ís-
Ólafur Davíð Jó-
hannesson var
ráðinn nýr þjálf-
ari Valsmanna í
vetur en þessi 58
ára gamli Hafn-
firðingur hefur
víða komið við á
þjálfaraferli sín-
um sem hófst hjá
Einherja á
Vopnafirði árið
1982. Eftir átta ára hlé er Ólafur
mættur til starfa í efstu deild. Ólafur
var við stjórnvölinn hjá FH frá 2003
til 2007 og var síðan landsliðsþjálfari
í fjögur ár.
Síðustu þrjú tímabilin þjálfaði
Ólafur lið Haukanna í 1. deildinni en
Ólafur er uppalinn Haukamaður.
Hann hefur einnig spilað með Val og
varð Íslandsmeistari með liðinu árið
1987. Aðstoðarmaður hans hjá
Haukum var Sigurbjörn Hreið-
arsson en nú eru þeir saman hjá Val.
Sigurbjörn þekkir hvern krók og
kima að Hlíðarenda enda leikmaður
liðsins til fjölda ára og leikjahæsti
maður þess frá upphafi.
Valsmenn hafa tvo mjög fram-
bærilega markverði í sínum röðum.
Ingvar Þór Kale kom frá Víkingi og
væntanlega verður hann markvörð-
ur númer eitt en
Anton Ari Ein-
arsson mun veita
honum harða
samkeppni.
Baldvin
Sturluson kemur
til með að spila í
hægri bakvarð-
arstöðunni en
verði hann ekki
búinn að ná sér af
meiðslum mun
Andri Fannar Stefánsson leysa þá
stöðu. Bjarni Ólafur Eiríksson verð-
ur á sínum stað í vinstri bakvarð-
arstöðunni og í miðvarðarstöðunum
Þórður Steinar Hreiðarsson og hinn
ungi Orri Sigurður Ómarsson, sem
kom frá danska liðinu AGF. Gunnar
Gunnarsson er einnig liðtækur mið-
vörður.
Á miðjunni er líklegt að Haukur
Páll Sigurðsson og Skotinn Iain
Williamson verði í stærstu og veiga-
mestu hlutverkunum. Báðir algjörir
lykilmenn í Valsliðinu. Kristinn
Freyr Sigurðsson og Einar Karl
Ingvarsson munu spila líka á mið-
svæðinu og þar getur Andri Fannar
líka spilað.
Í framherjastöðunum eru Vals-
menn með Patrick Pedersen, sem
skoraði 6 mörk í 13 leikjum í fyrra,
og hinn fótfráa Kristin Inga Hall-
dórsson sem hefur glímt við meiðsli.
Í kantstöðunum eru Valsarar vel
mannaðir og með mikla breidd en
þar eru leikmenn eins og Sigurður
Egill Lárusson, Andri Adolphsson,
Daði Bergsson, Tómas Óli Garð-
arsson og Haukur Ásberg Hilm-
arsson.
Valur
Ólafur
Jóhannesson
Þórður Steinar
Hreiðarsson
KOMNIR:
Andri Adolphsson frá ÍA
Andri Fannar Stefánsson frá
Leikni R. (úr láni)
Baldvin Sturluson frá Stjörnunni
Einar Karl Ingvarsson frá
Grindavík (úr láni)
Hilmar Þór Hilmarsson frá Stjörn.
Ingvar Þór Kale frá Víkingi R.
Orri S. Ómarsson frá AGF (Dan.)
Ragnar Þór Gunnarsson frá
Selfossi (úr láni)
Tómas Óli Garðarsson frá Breiðab.
FARNIR:
Arnar Sveinn Geirsson í Víking Ó.
Ásgeir Þór Magnússon, hættur
Billy Berntsson í Qormi (Möltu)
Fjalar Þorgeirsson, hættur
Halldór Hermann Jónsson í KA
Kolbeinn Kárason í Leikni R.
Lucas Ohlander í Motala (Svíþjóð)
Magnús Már Lúðvíksson í Fram
Matarr Jobe, óvíst
Tonny Mawejje í Haugesund
(Noregi) (úr láni)
Breytingar á liði Vals
Sófinn er í senn glæsilegur og þægilegur.
Hann er með hand eða rafstýrðum
hvíldarstólum í öllum sætum.
ISABELLA hægindasófi
Nettur og þægilegur tungusófi. Hann er einnig
fáanlegur sem hvíldarstóll, tveggja eða þriggja
sæta og öll sæti stillanleg.
DIVA tungusófi
Alklæddur leðri eða í slitsterku tauáklæði. sófinn
er fáanlegur í fjöldamörgum útfærslum svo sem
tveggja, þriggja eða fjögura sæta. Öll sæti fáanleg
með rafstýrðum skemlum.
ERMES hægindasófi
Góðir hvíldarstólar með háu baki og
stillanlegum hnakkapúða fyrir auka
stuðning. Margir litir í boði.
Ezzy og MOBIUS hvíldarstólar
Komdu í heimsókn
–og uppfylltu drauma þína um betri hvíld LÚR Hlíðasmára 1 201 Kópavogi Sími 554 6969 lur@lur.is www.lur.is
Nettir sófar og stólar með hallandi baki,
sem mega standa nánast upp við vegg.