Morgunblaðið - 01.05.2015, Side 16
FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
16
VEISTU HVAÐ ÞÚ ÁTT?
ÁFRAM BREIÐABLIK!
Vörður styður Blika og hvetur til góðra verka á vellinum í sumar.
BREIÐABLIK
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Tímabilið hjá Breiðabliki á síðustu
leiktíð var vonbrigði. Búist hafði verið
við Blikunum í baráttu um Evr-
ópusætið en niðurstaðan varð fallbar-
átta nær allt tímabilið og sjöunda sæt-
ið var hlutskipti Kópavogsliðsins. Það
var hálfgerður losarabragur á liðinu
eftir að tilkynnt var að Ólafur Krist-
jánsson, þjálfari Breiðabliksliðsins til
margra ára, myndi yfirgefa félagið í
byrjun júní og aðstoðarmaður hans,
Guðmundur Benediktsson, tæki við
stjórninni. Ólafur stýrði Blikunum í
fyrstu sex leikjunum og ekki er hægt
að segja að hann hafi skilið neitt sér-
staklega vel við því Breiðablik var að-
eins með fjögur stig eftir þessa sex
leiki. Árangur Ólafs með Blikaliðið yf-
ir það heila var annars mjög góður en
undir hans stjórn varð Breiðablik
bæði Íslandsmeistari og bikarmeistari
í fyrsta sinn í sögu félagsins og eft-
irtektarverk er að Breiðablik hefur
verið duglegt að selja leikmenn til er-
lendra liða. Þar má nefna menn eins
og Jóhann Berg Guðmundsson, Alfreð
Finnbogason, Guðmund Kristjánsson,
Sverri Inga Ingason, Finn Orra Mar-
geirsson og Árna Vilhjálmsson.
Blikarnir minnast hins vegar tíma-
bilsins í fyrra sem tímabils jafntefl-
anna. Liðið tapaði aðeins fimm leikj-
um, helmingi færri en Víkingar sem
höfnuðu í fjórða sæti og náðu Evr-
ópusæti, en sigurleikirnir urðu aðeins
5 en jafnteflin 12 talsins.
Tveir öflugir horfnir á braut
Það hafa orðið breytingar í Kópa-
voginum. Einn af dáðustu sonum fé-
lagsins, Arnar Grétarsson, er kominn í
þjálfarastólinn og hans hlutverk er að
lyfta þeim grænklæddu á hærri stall.
Tveir sterkir póstar hafa yfirgefið
Blikana, fyrirliðinn Finnur Orri Mar-
geirsson og framherjinn Árni Vil-
hjálmsson, markahæsti leikmaður liðs-
ins á síðustu leiktíð. Það er mikil
blóðtaka í þessum leikmönnum en
Breiðablik hefur á móti fengið leik-
menn eins og Arnþór Ara Atlason, sem
hefur sýnt flotta takta á undirbúnings-
tímabilinu, bosníska framherjann Ism-
ar Tandir og þá hafa Blikarnir end-
urheimt Kristin Jónsson, Ósvald Jarl
Traustason og miðvörðinn Kára Ár-
sælsson, sem var fyrirliði Blika þegar
þeir hömpuðu Íslandsmeistaratitlinum
í fyrsta og eina skipti árið 2010.
Mikilvægt að fá Kristin aftur
Það er mikill styrkur fyrir Breiða-
blik að fá Kristin aftur í sínar raðir en
bakvörðurinn knái er öflugur liðs-
maður og mikilvægur í uppspili liðsins
svo ekki sé talað um spyrnutækni
hans. Þá hafa Blikarnir endurheimt
marga af yngri leikmönnum sínum
sem voru í láni en líkt og undangengin
ár eru margir ungir og efnilegir til
staðar hjá Breiðabliki sem bíða þess
með óþreyju að komast út á stóra svið-
ið.
Með þann mannskap sem Breiða-
blik teflir fram í ár er varla hægt að
gera kröfu um að liðið blandi sér í tit-
ilbaráttu en það ætti að vera raunhæft
markmið hjá Arnari Grétarssyni og
strákunum hans að berjast um Evr-
ópusæti og stríða bestu liðum landsins.
Góður árangur á undirbúnings-
tímabilinu er ekki ávísun á gott gengi á
Íslandsmótinu en stuðningsmenn
Blika eru þó bjartsýnir enda hefur
Breiðabliksliðið sýnt flott tilþrif sem
hefur án efa aukið sjálfstraustið í lið-
inu.
Evrópusætið
er raunhæft
Morgunblaðið/Ómar
Vörnin Elfar Freyr Helgason er í stóru hlutverki í vörn Breiðabliks en hann
spilaði alla leiki liðsins í fyrra eftir tveggja ára dvöl erlendis.
Leikmenn
árið 2015
Efsta deild Lands-
Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá
* var í láni
1 Gunnleifur Gunnleifsson 1975 195 0 26 FH ‘13
12 Aron Snær Friðriksson 1997 0 0 0
24 Hlynur Örn Hlöðversson 1996 0 0 0 *Augnabliki ‘14
36 Arnaldur Karl Einarsson 1998 0 0 0
Markverðir
2 Ósvald Jarl Traustason 1995 15 1 0 Fram ‘15
4 Damir Muminovic 1990 53 4 0 Víkingi Ó. ‘14
5 Elfar Freyr Helgason 1989 72 2 1 Randers ‘13
6 Kári Ársælsson 1985 112 7 0 BÍ/Bolungarvík‘15
17 Alfons Sampsted 1998 0 0 0
21 Viktor Örn Margeirsson 1994 0 0 0 *HK ‘15
23 Kristinn Jónsson 1990 118 7 4 *Brommapojkarna‘15
29 Arnór S. Aðalsteinsson 1986 110 4 12 Hönefoss ‘14
31 Guðmundur Friðriksson 1994 3 0 0 *Selfossi ‘15
Varnarmenn
3 Oliver Sigurjónsson 1995 5 0 0 AGF ‘14
8 Arnþór Ari Atlason 1993 20 3 0 Fram ‘15
10 Guðjón Pétur Lýðsson 1987 98 25 0 Val ‘13
11 Olgeir Sigurgeirsson 1982 144 7 0 ÍBV ‘03
16 Ernir Bjarnason 1997 1 0 0
19 Gunnlaugur H. Birgisson 1995 1 0 0 Club Brugge ‘14
30 Andri Rafn Yeoman 1992 107 5 0
33 Gísli Eyjólfsson 1994 0 0 0 *Haukum ‘15
Miðjumenn
7 Höskuldur Gunnlaugsson 1994 17 1 0 *Augnabliki ‘14
9 Ismar Tandir 1995 0 0 0 Sacramento ‘15
13 Sólon Breki Leifsson 1998 0 0 0
22 Ellert Hreinsson 1986 92 25 0 Stjörnunni ‘13
27 Arnór Gauti Ragnarsson 1997 0 0 0
28 Davíð Kristján Ólafsson 1995 9 1 0 *Augnabliki ‘14
Sóknarmenn
Blikarnir mæta frískir til leiks
Arnar Grétarsson í brúnni
Arnar Grét-
arsson er nýr
þjálfari Breiða-
bliks en hann er
öllum hnútum
kunnugur hjá
Kópavogsliðinu.
Arnar er uppal-
inn Bliki sem lék
með meist-
araflokki félags-
ins 1988 til 1997
og aftur frá 2006 til 2009. Í millitíð-
inni reyndi Arnar fyrir sér í atvinnu-
mennskunni og lék með AEK Aþenu
og Lokeren. Hann lék 71 leik með ís-
lenska landsliðinu. Eftir að ferlinum
lauk var hann ráðinn yfirmaður
knattspyrnumála hjá AEK og fór
þaðan til Club Brügge í Belgíu í
sambærilegt starf.
Aðstoðarmaður Arnars er Krist-
ófer Sigurgeirsson, leikmaður
Breiðabliks til margra ára sem hefur
verið í starfi aðstoðarþjálfara hjá
Fjölni undanfarin ár.
Gunnleifur Vignir Gunnleifsson
stendur vaktina á milli stanganna
eins og undanfarin ár en Gunnleifur,
sem verður fertugur í sumar, er liði
sínu mikilvægur jafnt innan sem ut-
an vallar.
Í bakvarðarstöðunum eru Blik-
arnir með fyr-
irliðann Arnór
Svein Að-
alsteinsson
hægra megin og
Kristin Jónsson
vinstra megin og
þá eru Guð-
mundur Frið-
riksson og Ós-
vald Jarl
Traustason einn-
ig til staðar.
Damir Muminovic og Elfar Freyr
Helgason koma svo til með að spila
mest í hjarta varnarinnar en
reynsluboltinn Kári Ársælsson mun
bakka þá upp.
Guðjón Pétur Lýðsson og Andri
Rafn Yeoman verða í stórum hlut-
verkum í miðjuspili Blikanna ef að
líkum lætur og þeir Arnþór Ari
Atlason og Höskuldur Gunn-
laugsson eru sprækir ungir strákar
sem munu vonandi láta ljós sitt
skína í sumar sem og Oliver Sig-
urjónsson. Þá er Olgeir Sig-
urgeirsson enn til staðar en hann
getur leyst margar stöður á vell-
inum.
Ellert Hreinsson og Bosn-
íumaðurinn Ismar Tandir eru kost-
irnir í framherjastöðunum, en Ellert
raðaði inn mörkum á undirbúnings-
tímabilinu. Á köntunum geta leik-
menn eins og Gunnlaugur Hlynur
Birgisson og Davíð Kristján Ólafs-
son spilað. Arnar þjálfari hefur fleiri
kosti í þeim stöðum en Blikarnir
hafa í sínum röðum marga unga og
efnilega stráka sem koma örugglega
til að fá tækifæri til að sýna sig og
sanna í sumar.
Breiðablik
Arnar
Grétarsson
Kristinn
Jónsson
KOMNIR:
Arnþór Ari Atlason frá Fram
Guðmundur Friðriksson frá
Selfossi (úr láni)
Ismar Tandir frá Sacramento (Ba.)
Kári Ársælsson frá BÍ/Bolungarvík
Kristinn Jónsson frá Bromma-
pojkarna (Svíþjóð) (úr láni)
Ósvald Jarl Traustason frá Fram
Stefán Gíslason, hættur
Viktor Margeirsson frá HK (úr láni)
FARNIR:
Árni Vilhjálmsson í Lilleström
(Noregi)
Baldvin Sturluson í Stjörnuna
(úr láni)
Elfar Árni Aðalsteinsson í KA
Elvar Páll Sigurðsson í Leikni R.
Finnur Orri Margeirsson í
Lilleström (Noregi)
Gísli Páll Helgason í Þór
Jordan Halsman í Cowdenbeath
(Skotlandi)
Páll O. Þorsteinsson í Keflavík
Stefán Þór Pálsson í Víking R.
Tómas Óli Garðarsson í Val
Breytingar á liði Breiðabliks