Morgunblaðið - 01.05.2015, Page 18
FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
18
Hreinlætis- og rekstrarvörur
Hótelvörur
Servéttur og kerti
Salernispappír, handþurrkur
Plastpokar - skrjáfpokar, bréfpokar
Ál- og matarfilmur
Einnota glös, bakkar, box og hnífapör
Hanskar - gúmmí, plast, latex og vinyl
Hreinlætisvörur
Áhöld - statív, box
Pizzakassar o.fl.
Umhverfisvottaðar vörur
KEFLAVÍK
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Keflvíkingar hafa verið að hjakka í
sama farinu undanfarin ár eða eftir
að þeir köstuðu frá sér Íslandsmeist-
aratitlinum til FH-inga haustið 2008.
Suðurnesjaliðið lyfti sér um eitt sæti
í fyrra, frá árunum tveimur á undan,
og endaði í áttunda sætinu.
Keflvíkingar geta þakkað frá-
bærri byrjun að ekki fór illa en vond-
ar spár sparkspekinga fyrir mótið
virtust þjappa leikmönnum liðsins
saman. Keflvíkingar voru með fullt
hús eftir þrjár fyrstu umferðirnar en
síðan hrökk í baklás hjá Suð-
urnesjamönnunum. Þeir náðu aðeins
að vinna tvo leiki eftir það og þeir
sigrar litu dagsins ljós í tveimur síð-
ustu umferðunum. Þar með var sæt-
ið tryggt en mjög margir höfðu spáð
Keflavíkurliðinu falli úr deildinni.
Missir að Elíasi Má
Það verður ekki tekið af Keflvík-
ingum að baráttukrafturinn og vilj-
inn er svo sannarlega til staðar en
þeir hlutir duga ekki einir og sér.
Fyrir síðustu leiktíð þurftu Keflvík-
ingar að sjá á eftir Arnóri Ingva
Traustsyni út í atvinnumennsku.
Hæfleikaríkum leikmanni sem gerði
mikið fyrir Keflavíkurliðið. Það
sama hefur átt sér stað fyrir þessa
leiktíð. Elías Már Ómarsson, sem
var kjörinn efnilegsti leikmaður
Pepsi-deildarinnar, er farinn út í at-
vinnumennsku og hann skilur eftir
sig stórt skarð í liðinu. Elías var
besti maður Suðurnesjaliðsins sem
kom að flestum mörkum liðsins með
einum eða öðrum hætti.
Mikill liðsstyrkur
í Hólmari og Guðjóni
Góðu fréttirnar fyrir Keflavík-
urliðið eru hins vegar þær að tveir af
þeirra dáðustu drengjum eru komnir
aftur heim. Þetta eru þeir Guðjón
Árni Antoníusson og Hólmar Örn
Rúnarsson sem voru í stórum hlut-
verkum með liðinu þegar það gerði
harða atlögu að Íslandsmeistaratitl-
inum fyrir sjö árum. Þessir tveir
kappar styrkja hvaða lið sem er en
Guðjón Árni er þó enn talsvert spurn-
ingarmerki þar sem hann hefur lítið
spilað síðustu árin vegna höfuð-
meiðsla. Verði þeir Hólmar og Guðjón
Árni hins vegar í góðum gír verður
það liðinu mikill styrkur. Með þeim
kemur mikil reynsla og yfirvegun.
Þurfa aftur mörk frá Herði
Keflvíkingar þurfa líka mikið og
gott framlag frá framherjanum
Herði Sveinssyni. Hann skilaði
tveggja stafa tölu í fyrra hvað
markaskorun varðar og það er lífs-
nauðsynlegt fyrir liðið að Hörður
verði áfram á markaskónum.
Hryggjarstykkið í liðinu verða fyr-
irliðinn Haraldur Freyr Guðmunds-
son, Hólmar Örn og Hörður og mik-
ilvægt að þeir spili vel.
Það hafa oftar en ekki verið mikl-
ar sveiflur í leikjum Keflvíkinga en
takist Kristjáni Guðmundssyni að
stilla þeim sveiflum í hóf og Keflvík-
ingar gera hinn glæsilega heimavöll
sinn að gryfju er vel mögulegt fyrir
þá að færa sig ofar á töfluna og að
þeir endi mótið um miðja deild. En
þá þurfa líka hlutirnar að ganga vel
upp og liðið að spila á fullum krafti
allt tímabil en ekki bara í upphafi og
í lokin eins og á síðustu leiktíð.
Gætu þokað
sér ofar í ár
Ljósmynd/Víkurfréttir
Marksækinn Hörður Sveinsson var markahæsti leikmaður Keflvíkinga í
fyrra og þeir þurfa á því að halda að hann skori áfram reglulega.
Leikmenn
árið 2015
Efsta deild Lands-
Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá
1 Richard Arens 1990 0 0 0 Opheusden ‘15
12 Stefán G. Sigurjónsson 1987 0 0 0 Njarðvík ‘15
21 Sindri Kristinn Ólafsson 1997 2 0 0
Markverðir
Varnarmenn
6 Einar Orri Einarsson 1989 109 5 0
7 Jóhann B. Guðmundsson 1977 160 41 8 GAIS ‘08
8 Bojan Stefán Ljubicic 1992 69 5 0
16 Páll Olgeir Þorsteinsson 1995 17 0 0 Breiðabliki ‘15
17 Hólmar Örn Rúnarsson 1981 204 25 0 FH ‘15
18 Einar Þór Kjartansson 1996 0 0 0 *Njarðvík ‘15
19 Leonard Sigurðsson 1996 1 0 0 *Njarðvík ‘15
23 Sindri Snær Magnússon 1992 27 2 0 Breiðabliki ‘14
25 Frans Elvarsson 1990 62 7 0 *Njarðvík ‘11
Miðjumenn
9 Sigurbergur Elísson 1992 46 5 0
10 Hörður Sveinsson 1983 178 54 0 Val ‘12
11 Magnús S. Þorsteinsson 1982 220 34 0 Grindavík ‘06
15 Aron Freyr Róbertsson 1996 0 0 0 *Njarðvík ‘15
22 Indriði Áki Þorláksson 1995 27 8 0 FH ‘15
26 Ari Steinn Guðmundsson 1996 2 0 0
29 Fannar Orri Sævarsson 1997 5 0 0
Sóknarmenn
* var í láni
2 Samuel Jimenez 1988 10 0 0 Eldense ‘15
3 Magnús Þórir Matthíasson 1990 112 11 0 Fylki ‘13
4 Haraldur F. Guðmundsson 1981 148 4 2 Start ‘12
5 Kiko Insa 1988 15 1 0 Spánn ‘15
13 Unnar Már Unnarsson 1994 10 0 0
14 Alexander Magnússon 1989 42 3 0 Grindavík ‘15
20 Guðjón Árni Antoníusson 1983 188 16 1 FH ‘15
27 Patrekur Örn Friðriksson 1996 0 0 0
28 Arnór Smári Friðriksson 1996 0 0 0
Hafa hjakkað í sama farinu und-
anfarin ár Tveir reynsluboltar heim
Kristján Guð-
mundsson er
þjálfari Keflavík-
urliðsins en hann
tók við liðinu af
Zoran Daníel
Ljubicic í júní-
mánuði árið 2012.
Áður hafði Krist-
ján þjálfað Suð-
urnesjaliðið frá
2005 til 2009 og
undir hans stjórn varð liðið bik-
armeistari 2006 og endaði í öðru sæti
í deildinni eftir harðan slag fyrir FH
tveimur árum síðar. Kristján þjálf-
aði svo um tíma lið HB í Færeyjum
og fór þaðan til Vals þar sem var í
tvö ár áður en hann sneri aftur suður
með sjó.
Kristján verður áfram með Gunn-
ar Magnús Jónsson sem sinn aðstoð-
armann og þá hefur Þorkell Máni
Pétursson bæst í hópinn sem aðstoð-
arþjálfari en hann var í því hlutverki
hjá Keflavík seinni hluta tímabilsins
2013.
Keflvíkingar tefla fram hol-
lenskum markverði í ár. Sá heitir
Richard Arends og fyllir hann skarð
Svíans Jonasar Sandqvist. Arends
til trausts og halds verður hinn ungi
og efnilegi Sindri Kristinn Ólafsson.
Fyrirliðinn
Haraldur Freyr
Guðmundsson
verður á sínum
stað í hjarta varn-
arinnar og með
honum Spánverj-
inn Kiko Insa,
sem lék með Vík-
ingi Ólafsvík fyrir
tveimur árum.
Landi hans
Samuel Jimenez, Magnús Þórir
Matthíasson og hinn rúmlega tvítugi
Unnar Már Unnarsson koma til með
að spila í bakvarðarstöðunum að
mestu.
Tveir þungavigtarmenn koma til
að stjórna ferðinni á miðjunni en það
eru þeir Guðjón Árni Antoníusson
og Hólmar Örn Rúnarsson. Hólmar
hefur að vísu átt við meiðsli að stríða
og ekki líklegt að hann verði klár í
slaginn í byrjun móts. Sindri Snær
Magnússon, Frans Elvarsson, hinn
eitilharði Einar Orri Einarsson og
ellismellurinn Jóhann Birnir Guð-
mundsson eru aðrir kostir fyrir
Keflvíkinga á miðjunni.
Hörður Sveinsson kemur til með
að spila stóra rullu í sóknarleik
Keflavíkurliðsins og Indriði Áki
Þorláksson er kominn til liðsins og
er ætlað setja nokkur mörk. Á könt-
unum hafa Keflvíkingar úr að spila
heimamönnunum Bojan Stefáni
Ljubicic, Sigurbergi Elíssyni og
Magnúsi Sverri Þorsteinssyni.
Keflvíkingar hafa verið þekktir
fyrir að gefa ungum og efnilegum
strákum tækifæri og víst er að ein-
hverjum þeirra verður hent út í
djúpu laugina í sumar.
Keflavík
Kristján
Guðmundsson
Hólmar Örn
Rúnarsson
KOMNIR:
Alexander Magnússon frá Grindav.
Guðjón Árni Antoníusson frá FH
Hólmar Örn Rúnarsson frá FH
Indriði Áki Þorláksson frá FH (lán)
Kiko Insa frá spænsku félagi
Páll O. Þorsteinsson frá Breiðabl.
Richard Arends frá Opheusden
(Hollandi)
Samuel Jimenez frá Eldense (Sp.)
FARNIR:
Andri Fannar Freysson í Hauka
Anton F. Hauksson í Njarðvík (lán)
Aron R. Heiðdal í Stjörn. (úr láni)
Árni Freyr Ásgeirsson í Gróttu
Elías Már Ómarsson í Vålerenga
(Noregi)
Endre Ove Brenne til Noregs
Halldór K. Halldórsson í Leikni R.
Hilmar Hilmarsson í Stjör. (úr láni)
Jonas Sandqvist í Landskrona
(Svíþjóð)
Jón Tómas Rúnarsson í Hauka
Ray A. Jónsson í Global (Filippse.)
Theodór G. Halldórsson í Njarðvík
Breytingar á liði Keflavíkur