Morgunblaðið - 01.05.2015, Síða 21
21FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
Eftir að hafa landað sínum fyrsta
stóra titli með því að verða Íslands-
meistarar síðasta haust léku
Stjörnumenn um Meistarabikarinn í
fyrsta sinn nú í aðdraganda Íslands-
mótsins 2015. Þeir unnu bikarmeist-
ara KR 1:0 og lyftu þar með verð-
launagrip á loft í annað sinn á hálfu
ári.
Segja má að sigurmarkið hafi
komið úr óvæntri átt en það gerði
hinn tæplega tvítugi Þórhallur Kári
Knútsson tíu mínútum fyrir leikslok,
eftir að hafa komið inn á sem vara-
maður. Þórhallur Kári kom inn á
sem varamaður í einum leik með
meistaraflokknum síðasta sumar en
gegndi stóru hlutverki í 2. flokki
Stjörnunnar, sem varð bæði Íslands-
og bikarmeistari.
KR og FH höfðu skipt með sér
sigri í Meistarakeppninni síðustu sex
ár, eða frá því að Valur fagnaði sigri
gegn FH árið 2008. Valsmenn hafa
oftast fagnað sigri í þessum árlega
leik eða átta sinnum, og Keflavík,
Fram og FH hafa unnið sex sinnum
hvert. KR hefur unnið fimm sinnum
líkt og ÍA.
Það gerðist síðast árið 2009 að lið
sem vann Meistarakeppnina stóð svo
uppi sem Íslandsmeistari um haust-
ið, þegar FH-ingar náðu því.
sindris@mbl.is
Stjarnan fagnaði í frumrauninni
Sigraði KR 1:0
í Meistarakeppni
KSÍ Rauf ein-
okun KR og FH
Morgunblaðið/Eva Björk
Meistarakeppnin Daníel Laxdal, fyrirliði Stjörnunnar, lyfti bikarnum eftir að Garðbæingar unnu KR 1:0 í Kórnum.
Pepsi-deild karla
Stjarnan 22 15 7 0 42:21 52
FH 22 15 6 1 46:17 51
KR 22 13 4 5 40:24 43
Víkingur R. 22 9 3 10 25:29 30
Valur 22 8 4 10 31:36 28
Fylkir 22 8 4 10 34:40 28
Breiðablik 22 5 12 5 36:33 27
Keflavík 22 6 7 9 29:32 25
Fjölnir 22 5 8 9 33:36 23
ÍBV 22 5 7 10 28:38 22
–––––––––––––––––––––––––––––––––––––
Fram 22 6 3 13 30:48 21
Þór 22 3 3 16 24:44 12
Markahæstir í Pepsi-deild:
Gary Martin, KR.......................................... 13
Jonathan Glenn, ÍBV................................... 12
Ólafur Karl Finsen, Stjörnunni.................. 11
Hörður Sveinsson, Keflavík........................ 10
Árni Vilhjálmsson, Breiðabliki ................... 10
Atli Guðnason, FH....................................... 10
1. deild karla
Leiknir R. 22 14 6 2 43:19 48
ÍA 22 14 1 7 46:24 43
–––––––––––––––––––––––––––––––––––––
Þróttur R. 22 11 4 7 35:27 37
Víkingur Ó. 22 11 3 8 38:32 36
Grindavík 22 10 5 7 39:24 35
HK 22 9 7 6 34:28 34
Haukar 22 9 5 8 37:32 32
KA 22 8 7 7 42:33 31
Selfoss 22 7 5 10 24:33 26
BÍ/Bolungarvík 22 7 4 11 34:45 25
–––––––––––––––––––––––––––––––––––––
KV 22 5 3 14 34:53 18
Tindastóll 22 0 4 18 15:71 4
Markahæstir í 1. deild:
Garðar B. Gunnlaugsson, ÍA ...................... 19
Sindri Björnsson, Leikni R......................... 13
Eyþór Helgi Birgisson, Víkingi Ó .............. 11
Guðmundur Atli Steinþórsson, HK ........... 10
Arsenij Buinickij, KA .................................. 10
Hilmar Árni Halldórsson, Leikni R ........... 10
2. deild karla
Fjarðabyggð 22 15 6 1 53:20 51
Grótta 22 14 2 6 49:36 44
–––––––––––––––––––––––––––––––––––––
ÍR 22 11 7 4 41:24 40
Huginn 22 11 4 7 47:37 37
Sindri 22 9 3 10 34:37 30
Dalvík/Reynir 22 7 6 9 28:33 27
KF 22 8 3 11 29:39 27
Njarðvík 22 6 6 10 36:42 24
Ægir 22 7 3 12 22:35 24
Afturelding 22 6 4 12 35:36 22
–––––––––––––––––––––––––––––––––––––
Völsungur 22 6 4 12 35:51 22
Reynir S. 22 6 4 12 30:49 22
Höttur og Leiknir á Fáskrúðsfirði taka
sæti Völsungs og Reynis í 2. deild 2015.
Markahæstir í 2. deild:
Brynjar Jónasson, Fjarðabyggð ................ 19
Alexander Davorsson, Aftureldingu.......... 15
Alvaro Montejo, Hugin ............................... 13
Jón Gísli Ström, ÍR...................................... 13
Björn Axel Guðjónsson, Njarðvík .............. 12
Lokastöður
árið 2014
Skallagrímur er eina félagið sem
hefur leikið í efstu deild og jafnframt
spilað í öllum fimm deildum Íslands-
mótsins. Fimmta deildin, eða 4.
deild, var tekin upp árið 2013 en þar
leika Borgnesingar í dag. Skalla-
grímur lék í efstu deild 1997 og hafði
þá farið upp um þrjár deildir á sjö
árum. Félagið var hinsvegar komið
niður í neðstu deild á ný árið 2003.
Víkingur Ólafsvík, ÍR, Haukar,
Völsungur, HK, Fjölnir, Víðir, Leift-
ur og Stjarnan hafa öll leikið í fjór-
um deildum Íslandsmótsins.
Tveir erlendir leikmenn stóðu sig
svo vel í Pepsi-deildinni í fyrra að
þeir voru valdir í landslið þjóða
sinna í fyrsta skipti síðasta haust.
Það voru Pablo Punyed, Íslands-
meistari með Stjörnunni, sem var
valinn í landslið El Salvador, og Jo-
nathan Glenn úr ÍBV, næst-
markahæsti leikmaður deildarinnar,
sem var valinn í landslið Trínidad og
Tóbagó.
Þessi frami hjá Punyed og Glenn
gæti reynst Stjörnunni og ÍBV dýr-
keyptur. Bæði El Salvador og Tríni-
dad og Tóbagó eru komin í loka-
keppni Norður- og Mið-Ameríku-
mótsins sem fer fram í Kanada og
Bandaríkjunum 7. til 26. júlí. Mögu-
legt er að þeir verði þar með sínum
landsliðum.
SAGAN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Leiknir úr Reykjavík verður 29. fé-
lagið til að eiga lið í efstu deild karla
í knattspyrnu hér á landi en Leiknis-
menn þreyta frumraun sína í deild-
inni þegar þeir heimsækja Valsmenn
í fyrstu umferðinni sunnudaginn 3.
maí.
Leiknir vann sannfærandi sigur í
1. deildinni í fyrra og verður níunda
félagið úr Reykjavík til að spila í
deildinni, á eftir KR, Fram, Val, Vík-
ingi, Fylki, Þrótti, ÍR og Fjölni. Þar
með hafa öll félög í Reykjavík sem
eru með yngriflokkastarf náð að
leika í hópi þeirra bestu.
Fara uppfyrir ÍR í september
Leiknismenn munu í september
fara uppfyrir granna sína í Breið-
holtinu, ÍR-inga, hvað leikjafjölda
varðar. ÍR-ingar léku í tíu liða efstu
deild árið 1998 og spiluðu því 18 leiki
á þessu eina tímabili sínu í hópi
þeirra bestu en Leiknismenn verða
komnir með 22 leiki í mótslok.
KR-ingar eiga flesta leiki að baki
frá upphafi Íslandsmótsins, árið
1912, en þeir hafa spilað 1.062 leiki,
frá upphafi mótsins og eftir að
deildaskiptingin var tekin upp árið
1955. KR hefur aðeins verið eitt
tímabil utan efstu deildar en það var
árið 1978.
Valur og Fram náðu bæði að spila
sinn 1.000. leik á síðasta tímabili.
Valsmenn náðu þeim áfanga strax í
fyrstu umferð deildarinnar, þegar
þeir lögðu KR-inga á Þróttarvelli í
Laugardal, en Framarar léku sinn
þúsundasta leik þegar þeir gerðu
jafntefli við Breiðablik á sama velli í
fimmtu umferð.
Nokkur bið verður á því að fleiri
félög komist í þúsund leikja klúbbinn
en Skagamenn og Keflvíkingar eru
næstir á listanum og hafa spilað á ní-
unda hundrað leiki.
Níu félög hafa náð 500 leikjum,
Breiðablik náði þeim áfanga síðasta
sumar, en talsvert er í að tíunda lið
komist í þann leikjafjölda.
FH næst í þúsund stigin?
Þegar horft er á samanlögð stig
eru KR-ingar með talsvert forskot á
Valsmenn en síðan koma Skagamenn
og Framarar. Sex félög hafa náð þús-
und stigum, Keflavík og ÍBV eru hin
tvö, en útlit er fyrir að FH verði sjö-
unda félagið sem nær því takmarki.
Þó ekki á þessu ári.
Eftirtalin 28 félög hafa leikið á Ís-
landsmótinu 1912-1954 og í efstu
deild frá 1955. Leikjafjöldi og stig
fylgja, og liðunum er raðað eftir
stigafjölda.
Þess ber að geta að stigin í heild
eru reiknuð samkvæmt þremur
stigum fyrir sigur en sú regla var
tekin upp hér á landi árið 1984.
Fram að því voru gefin tvö stig
fyrir sigur.
Leikir Stig
1. KR 1062 1745
2. Valur 1021 1619
3. ÍA 866 1467
4. Fram 1017 1434
5. Keflavík 823 1124
6. ÍBV 715 1029
7. FH 562 905
8. Breiðablik 536 667
9. Víkingur R. 585 641
10. Fylkir 352 481
11. Grindavík 326 379
12. Þór 318 350
13. Stjarnan 240 319
14. KA 255 287
15. Þróttur R. 265 227
16. ÍBA 177 194
17. Leiftur 126 159
18. Fjölnir 66 69
19. Víðir 72 61
20. ÍBÍ 46 39
21. Selfoss 44 38
22. HK 40 34
23. Völsungur 36 26
24. Haukar 40 26
25. ÍR 18 17
26. Víkingur Ó. 22 17
27. Skallagrímur 18 15
28. ÍBH 21 7
Stjarnan og Fjölnir lyftu sér
bæði upp um eitt sæti á þessum
lista á síðasta ári.
ÍBA var sameiginlegt lið Þórs
og KA á Akureyri sem lék síðast
árið 1974. Þór og KA hófu keppni í
3. deild árið eftir.
ÍBÍ var lið Ísfirðinga sem lék
undir þeim merkjum til 1987. BÍ
hóf keppni í 4. deild árið eftir.
ÍBH var sameiginlegt lið FH
og Hauka í Hafnarfirði sem lék
síðast 1963. FH og Haukar hófu
keppni í 2. deild árið eftir.
Leiknir er 29. félagið
Níunda Reykjavíkurliðið sem spilar í efstu deild KR-ingar eru leikja- og stiga-
hæstir frá upphafi Valur og Fram komust bæði í eitt þúsund leikina í fyrra
Morgunblaðið/Eva Björk
Nýliðar Leiknir úr Reykjavík hefur aldrei áður leikið í efstu deild og það verð-
ur eflaust vel mætt á leikina í Efra-Breiðholti í sumar.
eitt&
annað