Morgunblaðið - 01.05.2015, Síða 26

Morgunblaðið - 01.05.2015, Síða 26
FÓTBOLTINN 2015 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015 26 ÓskumLeikni Reykjavík góðs gengis í sumar og hvetjum fólk til aðmæta á völlinn og sýna stuðning Áfram Leiknir R Heimavöllurinn mikilvægur Samheldni, vinnusemi og bar- áttukraftur er einkenni á Leikn- isliðinu og það er góður kostur fyr- ir Breiðhyltinga að þeir hafa flestir spilað nokkur tímabil saman og þekkja því vel til hver annars. Leiknismenn verða að gera heimavöllinn „Ghettoground“ að vígi sínu. Þar er helsta vonin að innbyrða stigafjöldann sem dugar Leiknismönnum til að tolla í deild- inni. Eyjólfur og Hilmar lykilmenn Markvörðurinn Eyjólfur Tóm- asson og miðju- og sóknarmað- urinn Hilmar Árni Halldórsson áttu báðir frábært tímabil með Leiknisliðinu í fyrra og nýliðarnir þurfa nauðsynlega á því að halda að þessir lykilmenn verði í góðum gír. Það var sterkur leikur hjá Leiknismönnum að endurheimta miðvörðinn Halldór Kristin Hall- dórsson og þá verður fróðlegt að fylgjast með kamerúnska vinstri bakverðinum Charley Fomen sem var hársbreidd frá því að ganga til liðs við FH í fyrra. Hlutskipti Leiknismanna í sum- ar verður barátta í neðri hlutanum og það yrði mikill sigur fyrir Breiðholtsliðið ef það héldi sæti sínu í deildinni. Það hlýtur að verða keppikefli númer eitt tvö og þrjú hjá liðinu. Freyr og Davíð hafa óbilandi trú á sínu liði og ég veit að þeir eru búnir að undirbúa sína drengi af kostgæfni fyrir bar- áttuna í sumar. Breiddin er kannski ekki besti vinur Leiknismanna en verði ekki mikil skakkaföll á hópnum í sumar þá held ég að Leiknisliðið verði sýnd veiði en ekki gefin. Sýnd veiði en ekki gefin Morgunblaðið/Eva Björk Fyrirliðar Óttar Bjarni Guðmundsson og Ólafur Hrannar Kristjánsson lyftu bikarnum eftir sigur Leiknismanna í 1. deildinni á síðasta tímabili. Leikmenn árið 2015 Efsta deild Lands- Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá * var í láni 1 Arnar Freyr Ólafsson 1993 1 0 0 Fjölni ‘15 22 Eyjólfur Tómasson 1989 0 0 0 *Val ‘13 Markverðir 2 Skúli Bragason 1994 0 0 0 *Einherja ‘15 3 Eiríkur Ingi Magnússon 1991 0 0 0 KF ‘14 4 Halldór K. Halldórsson 1988 72 0 0 Keflavík ‘15 5 Edvard Börkur Óttharsson 1992 0 0 0 Tindastóli ‘14 20 Óttar Bjarni Guðmundsson 1990 0 0 0 *KB ‘09 23 Gestur Ingi Harðarson 1987 0 0 0 Berserkjum ‘13 26 Hrannar Bogi Jónsson 1993 0 0 0 *Reyni S. ‘15 30 Charley Fomen 1989 0 0 0 Clermont Foot‘15 Varnarmenn 7 Atli Arnarson 1993 0 0 0 Tindastóli ‘15 8 Sindri Björnsson 1995 0 0 0 10 Fannar Þór Arnarsson 1989 0 0 0 11 Brynjar Hlöðversson 1989 0 0 0 KB ‘07 21 Hilmar Árni Halldórsson 1992 0 0 0 25 Daði B. Halldórsson 1997 0 0 0 *KB ‘15 27 Magnús Már Einarsson 1989 0 0 0 Aftureldingu ‘14 Miðjumenn 6 Ólafur Hrannar Kristjánsson 1990 0 0 0 *KB ‘09 9 Kolbeinn Kárason 1991 57 16 0 Val ‘15 15 Kristján Páll Jónsson 1988 9 0 0 Fylki ‘13 16 Frymezim Veselaj 1995 0 0 0 18 Elvar Páll Sigurðsson 1991 18 2 0 Breiðabliki ‘15 Sóknarmenn  „Stolt Breiðholtsins“ á stóra sviðið  Mikil áskorun fyrir ungt og óreynt lið LEIKNIR Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Efra Breiðholtið er farið að skjálfa og nötra og skyldi engan undra því Leiknir, „stolt Breiðholtsins“ eins og stendur skýrum stöfum á vef félagsins og fellur ósjaldan út úr munni stuðningsmanna liðsins, er í fyrsta sinn í deild bestu liða lands- ins. Ævintýrið varð að veruleika síð- astliðið haust þegar Leiknir bar sigur úr býtum í 1. deildinni og það á afar sannfærandi hátt. Uppaldir og með hjartað á réttum stað Með leikmenn þar sem uppi- staðan er uppaldir Leiknismenn með hjartað á réttum stað tókst þeim að láta drauminn rætast og partíin þar sem Pepsi-deildarsæt- inu var fagnað stóðu yfir í marga daga í efra Breiðholtinu. Það tók örugglega sinn tíma fyrir þjálf- arana ungu þá Frey Alexand- ersson og Davíð Snorra Jónasson að rífa sína menn niður úr skýj- unum. Partíin eru nú löngu búin og nú tekur við afar krefjandi verkefni en að sama skapi skemmtileg áskorun fyrir nýliðana. Fæstir af leikmönnum Leiknis hafa spreytt sig í deild þeirra bestu og ég held að þeir sem og hinir hæfileikaríku þjálfarar liðsins átti sig á því að það mun verða á brattann að sækja í sumar. Þeir leikmenn sem áttu þátt í að tryggja liðinu úrvalsdeildarsætið í fyrra fá verðskuldað tækifæri en sú stefna var tekin af þjálfurunum og forráðamönnum félagsins að halda tryggð við þá. Það er vel og nú verða þessir leikmenn að sýna að þeir eru traustsins virði. Sömu þjálfarar stýra Leiknislið- inu og undanfarin tvö ár en það eru hinn 32 ára gamli Freyr Alexand- ersson og Davíð Snorri Jónasson, sem er 28 ára gamall og er þar með yngsti þjálf- arinn í Pepsi- deildinni í ár. Freyr hefur gegnt starfi þjálfara kvennalandsliðsins frá árinu 2013. Hann þjálfaði kvennalið Vals frá 2009 til 2011 og var aðstoðarþjálfari karlaliðs Vals tímabilið 2012 áður en hann sneri til heimahaganna en Freyr spilað með liði Leiknis frá árinu 2001 til 2007. Snorri á líka leiki með Leikni en fleiri með liði KB sem er nokkurs konar varalið Leikn- ismanna í 4. deildinni. Eyjólfur Tómasson er að- almarkvörður liðsins en hann var einn besti markvörður 1. deild- arinnar á síðustu leiktíð. Til vara er Arnar Freyr Ólafsson. Eiríkur Ingi Magnússon kemur til með að spila í hægri bakvarð- arstöðunni eins og í fyrra en vinstri bakvarðarstöðuna mun Kamerúinn Charley Fomen manna. Sá hefur m.a. verið í röð- um Marseille í Frakklandi. Hall- dór Kristinn Halldórsson og Óttar Bjarni Guðmundsson ættu að mynda sterkt mið- varðapar. Edvard Börkur Ótt- harsson er líka góður kostur í mið- varðarstöðunni en pilturinn sá hefur verið að glíma við meiðsli og ekki klárt í hvernig ástandi hann verður þegar flautað verður til leiks. Í miðjustöðunum mun örugglega mest mæða á Brynjari Hlöðvers- syni, Hilmari Árna Halldórssyni, Ólafi Hrannari Kristjánssyni og Sindra Björnssyni. Hilmar, Ólafur og Sindri eru allir marksæknir og geta hæglega spilað framar á vell- inum en þeir skoruðu samtals 25 mörk í 1. deildinni í fyrra, Sindri 13 og Hilmar 10. Leiknismenn eru líka með Fannar Þór Arnarsson sem mun örugglega koma við sögu. Í fremstu víglínu er líklegt að hinn stóri og stæðilegi Kolbeinn Kárason láti mikið að sér kveða en hann kom frá Valsmönnum fyrir tímabilið. Annar nýr leikmaður, Elvar Páll Sigurðsson, sem kom frá Breiða- bliki, kemur til með að spila á kant- inum sem og Kristján Páll Jónsson. Hinn tvítugi Frymezim Veselaj sem spilaði 5 leiki með Leiknismönnum í 1. deildinni á síðustu leiktíð ætlar sér svo örugglega að fá fleiri tæki- færi. Leiknir Davíð Snorri Jón- asson og Freyr Al- exandersson Halldór Kristinn Halldórsson KOMNIR: Arnar Freyr Ólafsson frá Fjölni Atli Arnarson frá Tindastóli Charley Fomen frá Clermont Foot (Frakklandi) Elvar Páll Sigurðsson frá Breiðab. Halldór K. Halldórsson frá Keflavík Hrannar Bogi Jónsson frá Reyni S. (úr láni) Kolbeinn Kárason frá Val Skúli Bragason frá Einherja (úr láni) FARNIR: Andri Fannar Stefánsson í Val (úr láni) Aron Daníelsson í KB (lán) Birkir Björnsson í Aftureld. (lán) Matthew Horth í Atlanta (Bandar.) Sævar F. Alexandersson í Aftureld. Breytingar á liði Leiknis

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.