Morgunblaðið - 01.05.2015, Qupperneq 27
DEILDABIKAR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Breiðablik varð deildabikarmeistari
í vor í annað sinn á síðustu þremur
árum, með sigri á 1. deildar liði KA í
úrslitaleik. Breiðablik hefur átt
góðu gengi að fagna í keppninni og
komist í úrslitaleikinn þrjú ár í röð,
og í fimm af síðustu sjö skiptum, en
hins vegar aðeins landað titlinum
tvisvar. Það var Ellert Hreinsson
sem skoraði eina markið í sigrinum
á KA, snemma leiks.
FH hefur oftast allra orðið deilda-
bikarmeistari frá því að keppnin fór
fyrst fram árið 1996, eða sex sinn-
um. KR kemur næst með 5 titla, ÍA
hefur unnið þrjá og bæði Valur og
nú Breiðablik hafa unnið keppnina
tvisvar. Grindavík og ÍBV hafa unn-
ið einu sinni hvort lið.
Breiðablik lék til úrslita gegn ÍA
þegar keppnin fór fyrst fram fyrir
19 árum. Blikar þurftu svo að bíða
fram til ársins 2009 með að ná þang-
að aftur en hafa eins og áður segir
verið reglulegir gestir í úrslita-
leiknum síðan þá.
Fjallabaksleið hjá KA
KA lék í fyrsta sinn til úrslita, eft-
ir að hafa farið sannkallaða fjalla-
baksleið þangað því liðið var í 5.
sæti síns riðils. En eftir að bæði
Leiknir R. og KR drógu sig úr
keppni komst KA í 8 liða úrslitin í
staðinn. Þar vann KA Fylki og svo
ÍA í undanúrslitum, og varð því
fyrsta 1. deildar liðið sem spilar um
gullverðlaunin frá því að Keflavík
gerði það árið 2003, þegar Keflvík-
ingar töpuðu fyrir ÍA eftir víta-
spyrnukeppni.
Árangur í deildabikarnum er eng-
in ávísun á góðan árangur í Pepsi-
deildinni. Þegar Blikar urðu deilda-
bikarmeistarar í fyrsta sinn árið
2013 höfnuðu þeir í 4. sæti Pepsi-
deildarinnar, 13 stigum á eftir
meisturum KR. FH (2004, 2006 og
2009), ÍA (1996) og ÍBV (1997) eru
einu liðin sem hafa unnið deildabik-
arinn og Íslandsmeistaratitilinn á
sama ári.
Tveir á þremur árum
Breiðablik vann KA með marki Ellerts Hreinssonar Fimmti
úrslitaleikur Kópavogsliðsins og annar sigurinn á sjö árum
Morgunblaðið/Eva Björk
Deildabikarinn Arnór Sveinn Aðalsteinsson fyrirliði Breiðabliks tók við Lengjubikarnum eftir sigurinn á KA.
FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
27
Kynntu þér málið
á netsofnun.is
Fjáröflun meðNetsöfnunhittir beint ímark!
Góður
ávinningur
Einfalt
Árangursrík
fjáröflunarleið
fyrir þig eða hópinn þinn!
Fljótlegt
Öruggt
Netsöfnun.is býður félögum, fyrirtækjum og einstaklingum
aðgang að einfaldri lausn til þess að standa að fjáröflun.
Aðeins 923 áhorfendur mættu að meðaltali á
leik í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð. Það var í
fyrsta sinn frá árinu 2002 sem áhorfendur voru
að meðaltali færri en 1.000, og aðsóknin var
raunar sú versta frá árinu 2000, hverju sem
um er að kenna.
Meðalfjöldi áhorfenda var langmestur á
heimaleikjum FH-inga, eða 1.741. Næstmest
var aðsóknin á heimaleiki KR, 1.238, og á
heimaleiki Breiðabliks mættu að meðaltali
1.038 áhorfendur. Á heimaleikjum hinna níu
liðanna var aðsóknin undir 1.000 áhorfendum.
Fæstir mættu á heimaleiki ÍBV eða 512 að
meðaltali, sem var mikil fækkun frá árinu 2013
þegar 981 áhorfandi mætti. Næstfæstir mættu
á heimaleiki Þórs, 607, og jafnframt voru fæst-
ir áhorfendur að meðaltali á útileikjum Þórs,
eða 591 talsins.
Færri áhorfendur hjá Stjörnunni
Athyglisvert er að aðsókn á heimaleiki Ís-
landsmeistara Stjörnunnar minnkaði lítillega
frá árinu 2013, en 969 manns mættu að með-
altali á Samsung-völlinn. Stjörnumenn voru
hins vegar manna duglegastir að mæta á úti-
leiki en að meðaltali voru 1.415 áhorfendur á
útileikjum Stjörnunnar.
Á milli leiktíðanna 2013 og 2014 fjölgaði
áhorfendum á heimaleikjum FH og Keflavík-
ur, en fækkaði annars staðar. Mesta fækkunin
var hjá KR en þar fór aðsóknin úr 1.863 í 1.238
að meðaltali á leik, og fækkaði því um 625
áhorfendur að meðaltali. Áberandi var hve
mjög dró úr aðsókn á heimaleiki KR á loka-
spretti Íslandsmótsins en á tvo síðustu leikina,
gegn ÍBV og Þór, mættu aðeins um 300-400
manns.
Met í Kaplakrika í lokaumferðinni
Ef horft er til einstakra leikja var langmesta
aðsóknin á úrslitaleik FH og Stjörnunnar í
lokaumferðinni en þangað mættu 6.450 áhorf-
endur, sem er met í Kaplakrika. Næstflestir
mættu á leik KR og Vals eða 2.128. Minnsta
aðsóknin var á leik Vals og Þórs í þriðju síð-
ustu umferð en þá mættu aðeins 145 áhorf-
endur.
Áhorfendatölur liðanna í deildinni árið 2014
voru sem hér segir, aukning eða fækkun frá
2013 í svigum:
1. FH (+245) 1.741
2. KR (–625) 1.238
3. Breiðablik (–97) 1.038
4. Víkingur R. (–106) 990
5. Stjarnan (–73) 969
6. Keflavík (+51) 923
7. Fylkir (–166) 895
8. Valur (–361) 789
9. Fram (–91) 688
10. Fjölnir (–220) 687
11. Þór (–242) 607
12. ÍBV (–469) 512
sindris@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Áhorfendur Stuðningsmenn Stjörnunnar
voru að vonum kátir allt síðasta tímabil.
Áhorfendur ekki færri frá 2000