Morgunblaðið - 01.05.2015, Síða 28
FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
28
ÍA
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Ég veit að mörgu fótbolta-
áhugafólki þykir ákaflega vænt
um að ÍA sé komið í hóp þeirra
bestu á nýjan leik, og hversu oft
hefur maður ekki heyrt það að
Skagamenn eigi hvergi annars
staðar heima?
Í sögulegu samhengi er ÍA stór-
veldi í íslenskum fótbolta. 18 Ís-
landsmeistaratitlar og 9 bik-
armeistaratitlar eru vitnisburður
um það.
Skagamenn hafa hinsvegar ver-
ið titlalausir í vel á annan áratug,
urðu síðast Íslandsmeistarar árið
2001, og sú staðreynd að liðið hef-
ur verið að rokka á milli úrvals-
deildar og 1. deildar undanfarin ár
hefur gert það af verkum að unga
kynslóðin í dag veit lítið sem ekk-
ert um afrek Akurnesinga.
11 stig var uppskeran síðast
Skagamenn eiga ekki beint góð-
ar minningar frá síðustu veru
sinni í deild þeirra bestu. Ellefu
stig var uppskeran í deildinni
tímabilið 2013 og gamla stórveldið
frá Akranesi kolféll eftir tveggja
ára dvöl í deildinni. Gunnlaugur
Jónsson, miðvörður liðsins til
margra ára og mikill leiðtogi og
sigurvegari, sneri aftur á heima-
slóðir og tók við þjálfun síns
gamla liðs.
Honum tókst í fyrstu tilraun að
stýra liðinu upp í Pepsi-deildina
og verkefni Gunnlaugs er nú að
festa liðið í sessi og taka burt jó-
jó-stimpilinn sem hefur markað
það undanfarin ár.
Skagamenn hafa kannski ekki
mestu breiddina en hópurinn sem
Gunnlaugur hefur úr að spila er
samstilltur. Vissulega átti maður
von á að Skagamenn yrðu líflegri
á leikmannamarkaðnum og myndu
styrkja og stækka hóp sinn meira
en raun ber vitni en á móti hefur
liðið náð að halda flestum leik-
mönnum sem léku með liðinu í
fyrra.
Það er alltaf kostur þegar
breytingar á milli ára eru litlar en
fyrir nýliða hefði verið nauðsyn-
legt að fá frekari liðsstyrk.
Erfitt próf strax
í fyrstu umferðinni
Strax í fyrstu umferð Pepsi-
deildarinnar þreyta Skagamenn-
irnir ansi erfitt próf. Þeir taka á
móti sjálfum Íslandsmeisturum
Stjörnunnar, liði sem tapaði ekki
einum einasta leik í deildinni á
síðustu leiktíð. Ef þessi heimsókn
meistaranna er ekki góð „mótiver-
ing“ fyrir leikmenn liðsins þá verð
ég illa svikinn.
Skagastrákarnir fá upplagt
tækifæri til að stimpla sig inn í
deildina með glæsibrag og öðlast
um leið sjálfstraust sem er svo
mikilvægt fyrir nýliða.
ÍA krækti sér í góðan bita í vet-
ur þegar það fékk litháíska fram-
herjann Arsenij Buinickij og sókn-
ardúettinn með hann og Garðar
Bergmann Gunnlaugsson ætti að
geta orðið ansi skæður. Nái þeir
vel saman og skori jafn mikið og
þeir gerðu í 1. deildinni á síðustu
leiktíð mun það hjálpa mikið til
fyrir þá gulklæddu að halda sæti
sínu í deildinni. Garðar varð
markakóngur með 19 mörk og
Buinickij skoraði 10 fyrir KA-
menn.
Skagamenn þurfa að fá allt það
besta út úr leikmönnum sínum
eigi liðið að festa sig í sessi en
hundtryggir stuðningsmenn liðsins
verða að sýna sínum mönnum þol-
inmæði og styðja þá í gegnum
súrt og sætt á komandi leiktíð, því
hún verður enginn dans á rósum.
Markmið nýliðanna er að halda
sæti sínu og það verður erfitt og
krefjandi fyrir þá.
Erfitt og krefj-
andi verkefni
Morgunblaðið/ÞórirTryggvason
Marksækinn Garðar Gunnlaugsson skoraði 19 mörk í 1. deildinni í fyrra og
hefur verið drjúgur með liðinu í vetur. ÍA þarf á mörkunum hans að halda.
Leikmenn
árið 2015
Efsta deild Lands-
Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá
* var í láni
1 Páll Gísli Jónsson 1983 60 0 0 Breiðabliki ‘05
12 Árni Snær Ólafsson 1991 14 0 0
30 Marteinn Örn Halldórsson 1991 0 0 0 Reyni S. ‘15
Markverðir
3 Sindri S. Kristinsson 1994 0 0 0
4 Arnór Snær Guðmundsson 1993 0 0 0 Aftureldingu ‘14
5 Ármann Smári Björnsson 1981 109 16 6 Hartlepool ‘12
15 Teitur Pétursson 1993 0 0 0 *KF ‘14
16 Þórður Þ. Þórðarson 1995 0 0 0
20 Gylfi Veigar Gylfason 1993 0 0 0 *Kára ‘14
24 Árni Þór Árnason 1997 0 0 0 *Kára ‘15
27 Darren Lough 1989 0 0 0 KA ‘14
Varnarmenn
6 Ingimar Elí Hlynsson 1992 0 0 0 BÍ/Bolungarvík‘14
8 Hallur Flosason 1993 20 1 0
11 Arnar Már Guðjónsson 1987 43 6 0 KA ‘10
18 Albert Hafsteinsson 1996 0 0 0
31 Marko Andelkovic 1984 0 0 0 Viitorul ‘15
Miðjumenn
9 Garðar B. Gunnlaugsson 1983 99 32 0 Unterhaching ‘12
10 Jón Vilhelm Ákason 1986 139 21 0 Val ‘12
13 Arsenij Buinickij 1985 0 0 0 KA ‘15
14 Ólafur Valur Valdimarsson 1990 17 2 0
19 Eggert Kári Karlsson 1991 27 3 0
22 Steinar Þorsteinsson 1997 0 0 0
23 Ásgeir Marteinsson 1994 13 3 0 Fram ‘15
Sóknarmenn
Skagamenn mættir á nýjan leik
Kominn tími til að festa sig í sessi
Gunnlaugur
Jónsson er á sínu
öðru ári sem
þjálfari ÍA en
undir hans stjórn
höfnuðu Skaga-
menn í öðru sæti
1. deildarinnar á
síðustu leiktíð og
tryggðu sér sæti í
Pepsi-deildinni.
Gunnlaugur er 40
ára gamall og lék á árum áður með
Skagamönnum, þar sem hann var
m.a. fyrirliði síðasta meistaraliðs ÍA
árið 2001. Gunnlaugur hóf þjálf-
araferil sinn hjá Selfossi árið 2009 og
hefur einnig þjálfað lið Vals, KA og
HK. Jón Þór Hauksson er aðstoð-
arþjálfari Skagamanna líkt og á síð-
ustu leiktíð en hann er heimamaður
sem lék nokkra leiki með ÍA í kring-
um aldamótin.
Árni Snær Ólason stendur vaktina
í marki Akurnesinga eins og í 1.
deildinni í fyrra og honum til trausts
og halds verður hinn reynslumikli
Páll Gísli Jónsson.
Þórður Þorsteinn Þórðarson hef-
ur spilað í hægri bakvarðarstöðunni
á undirbúningstímabilinu. Tvítugur
strákur þar á ferð sem er af góðu fót-
boltakyni en faðir hans, Þórður Þórð-
arson, lék lengi í
marki ÍA og var
þjálfari liðsins í
nokkur ár. Eng-
lendingurinn
Darren Lough er
vinstri bakvörður
liðsins en hann
lék alla leiki
Skagamanna í
fyrra. Ármann
Smári Björnsson
og Arnór Snær
Guðmundsson koma til með að
mynda miðvarðarparið en Ármann
Smári getur líka brugðið sér í sókn-
ina og spilað sem fremsti maður en
mikil ógn stendur af Hornfirðingnum
stóra og stæðilega í vítateig and-
stæðinganna.
Á miðjunni eru Skagamenn með
Serbann Marko Andelkovic sem
kom til liðsins í vetur og er ætlað
stórt hlutverk. Eggert Kári Karls-
son, Jón Vilhelm Ákason, Ásgeir
Marteinsson, Arnar Már Guð-
jónsson og hinn ungi Albert Haf-
steinsson koma til með að spila
miðju- og kantstöðurnar og þá er
Ingimar Elí Hlynsson einnig til stað-
ar.
Garðar Bergmann Gunnlaugsson
og Arsenij Buinckij munu skipa
framherjastöðurnar. Tveir miklir
markaskorarar sem Skagamenn
stóla á að verði á skotskónum í sum-
ar. Samanlagt skoruðu þeir 29 mörk í
1. deildinni á síðustu leiktíð, Garðar
19 og Buinckij 10.
Akurnesingar eiga slatta af ungum
og efnilegum spilurum sem bíða eftir
því að fá tækifæri hjá Gunnlaugi og
einhverjir þeirra gætu sprungið út.
ÍA
Gunnlaugur
Jónsson
Ármann Smári
Björnsson
KOMNIR:
Arsenij Buinickij frá KA
Ásgeir Marteinsson frá Fram
Marko Andelkovic frá Viitorul
Constanta (Rúmeníu)
Marteinn Halldórsson frá Reyni S.
FARNIR:
Andri Adolphsson í Val
Hjörtur J. Hjartarson í Augnablik
Jón Björgvin Kristjánsson í Gróttu
Wentzel S. Kamban í Aftureldingu
Breytingar á liði ÍA