Morgunblaðið - 01.05.2015, Qupperneq 32
FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
32
www.gilbert.is
FRISLAND CLASSIC
TÍMALAUS HÖNNUN
VIÐ KYNNUM
Eins og fram kemur á bls. 30 er
Kristján Finnbogason, varamark-
vörður FH-inga, elsti leikmaðurinn
sem er í hópi hjá liðunum tólf í
Pepsi-deild karla nú í upphafi Ís-
landsmótsins. Hann verður 44 ára
nú í maímánuði.
Kristján var 42 ára þegar hann lék
síðast leik í deildinni, með Fylki
gegn Víkingi frá Ólafsvík í sept-
ember 2013 og var aðeins eldri þá en
Dean Martin var í fyrrahaust þegar
hann lauk Íslandsmótinu með ÍBV,
nýorðinn 42 ára. Þá var Birkir Krist-
insson nýorðinn 42 ára þegar hann
lék í marki ÍBV gegn KR í ágúst
2006.
Kristján getur því bætt aldursmet
sitt í deildinni ef hann leysir Róbert
Örn Óskarsson af hólmi í leik í sum-
ar.
Gunnleifur Gunnleifsson, mark-
vörður Breiðabliks, er annars elstur
af leikmönnum deildarinnar, þ.e. af
þeim sem öruggt er að munu spila í
sumar, en hann verður fertugur í
júlí.
Jóhann Birnir Guðmundsson,
miðjumaður Keflvíkinga, kemur
næstur en hann verður 38 ára í des-
ember.
Þetta eru einu leikmennirnir,
fæddir fyrir 1980, sem eru eftir í
deildinni. Dean Martin, sem er
fæddur 1972, er búinn að leggja
skóna á hilluna, sem og Yngvi Magn-
ús Borgþórsson, fæddur 1975, sem
var líka í hópi Eyjamanna í fyrra.
vs@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
39 Gunnleifur Gunnleifsson verður
fertugur á miðju tímabilinu.
Aðeins þrír í deildinni
eru fæddir fyrir 1980
ERLENDIR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Liðin í Pepsi-deild karla hefja Ís-
landsmótið með samtals 43 erlenda
leikmenn í sínum hópum. Þeir eru
fimm fleiri en við upphaf Íslands-
mótsins 2014, þegar þeir voru 38
talsins, og einum fleiri en þegar
deildin fór af stað vorið 2013. Þá
voru þeir 42.
Þeim getur enn fjölgað þar sem
opið er fyrir félagaskiptin til 15. maí
og ekki ólíklegt að einhverjir eigi
eftir að bætast við áður en félaga-
skiptaglugganum er lokað. Eftir það
verður hægt að ná sér í liðsauka á
bilinu 15. júlí til 1. ágúst.
Tveir koma úr 1. deildinni
Af þessum 43 leikmönnum eru 16
nýir, sem hafa ekki leikið hér á landi
áður. Þrír þeirra, Darren Lough og
Arsenij Buinickij hjá ÍA og Samuel
Jimenez hjá Keflavík, léku í 1. deild-
inni í fyrra en Jimenez var með
Ólafsvíkingum í efstu deild 2013.
Þeir tveir erlendu leikmenn sem
spiluðu í deildinni í fyrra og höfðu
verið hér lengst, Dean Martin og
Paul McShane, eru horfnir á braut.
Martin lagði skóna á hilluna í haust
en hann spilaði 42 ára gamall með
Eyjamönnum í fyrra. McShane mun
leika með Reynismönnum í Sand-
gerði í 3. deildinni í sumar.
Jeffs hefur verið lengst allra
Þá er það enski miðjumaðurinn
Ian Jeffs sem hefur verið lengst
allra hér á landi en hann kom fyrst
til ÍBV árið 2003. Árið eftir kom
Matt Garner til Eyjamanna og hann
hefur verið lengst allra samfellt.
Garner er orðinn sjöundi leikjahæsti
leikmaður ÍBV í efstu deild frá upp-
hafi.
Sam Tillen, enski bakvörðurinn
hjá FH, leikur sitt áttunda tímabil
en hann spilaði með Fram fyrstu
fimm árin. Tillen missti reyndar af
síðasta tímabili eftir að hann fót-
brotnaði illa í Lengjubikarnum, en
er nú kominn á fulla ferð á ný.
Koma frá 24 þjóðum
Óhætt er að segja að fjölbreytnin
hafi aukist frá því í fyrra. Þá voru er-
lendu leikmennirnir í upphafi móts
frá sextán mismunandi þjóðum en
nú koma þeir frá 24 þjóðum.
Sú stóra breyting hefur líka orðið
að þá hófu átta bandarískir leik-
menn tímabilið með liðunum tólf en
nú er bara einn eftir, og sá var ekki í
hópi hinna átta í fyrra. Það er Mark
Magee, sem kom til Fjölnis frá
Tindastóli um mitt síðasta sumar.
Nú eru hinsvegar Danir fjölmenn-
astir. Þeir voru fjórir í mótsbyrjun í
fyrra en eru nú átta talsins. Þar af
þrír hjá KR og tveir hjá Víkingi.
Einn þeirra kemur aftur eftir
tveggja ára fjarveru, Rasmus
Christiansen, en hann lék áður með
ÍBV og er nú orðinn KR-ingur.
Englendingar eru áfram næst-
flestir en þeim fækkar úr sjö í sex.
Erlendu leikmennirnir koma frá
eftirtöldum löndum:
Danmörk ....................................... 8
England......................................... 6
Serbía ............................................ 3
Skotland ........................................ 3
Holland.......................................... 2
Trínidad og Tóbagó...................... 2
Belgía............................................. 2
Spánn............................................. 2
Bandaríkin .................................... 1
Bosnía............................................ 1
El Salvador ................................... 1
Færeyjar....................................... 1
Kamerún ....................................... 1
Kósóvó ........................................... 1
Króatía .......................................... 1
Litháen .......................................... 1
Makedónía .................................... 1
Malí ................................................ 1
Noregur......................................... 1
Senegal .......................................... 1
Tógó............................................... 1
Úganda.......................................... 1
Úrúgvæ ......................................... 1
Öll liðin eru með erlenda leikmenn
að þessu sinni. Eyjamenn eru með
átta, FH-ingar sjö og KR-ingar sex.
Breiðablik, Fylkir og Leiknir eru
hinsvegar aðeins með einn erlendan
leikmann hvert félag.
Fleiri erlendir en í fyrra
Nú hefja 43 Íslandsmótið en voru 38 fyrir ári Danirnir orðnir flestir en
Bandaríkjamönnum fækkar verulega Sextán hafa ekki spilað á Íslandi áður
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Marksækinn Jonathan Glenn frá Trínidad og Tóbagó lék í fyrsta skipti hér á landi síðasta sumar. Hann reyndist
Eyjamönnum vel og skoraði 12 mörk fyrir þá í deildinni. Hér á hann í höggi við Hauk Lárusson úr Fjölni.
Mér er enn í fersku minni þeg-
ar við guttarnir úr Mosfellssveit-
inni lögðum í langferð um helg-
ar, úr Holtahverfinu og á
Tungubakkavöll, með bolta í
poka. Að okkar mati löng för og
nánast háskaleg. Vaða þurfti ár
og jafnvel skakklappast yfir
mýrar og fen. Tungubakkavöllur
var okkar í augum stærsti og
flottasti fótboltavöllur sem til
var.
Eftirvæntingin var mikil
að ná á leiðarenda og skipta í
tvö lið. Peysur mörkuðu mark-
stangirnar. Endalínurnar tóku
mið af peysunum en meiri vafi
gat leikið á hvar hliðarlínurnar
lágu. Í minningunni var alltaf
gott veður.
Inn á Tungubakkavöll fengum
við sjaldnast að stíga til æfinga.
Malarvöllurinn við Varmá og
malbikaðir skólavellir voru okkar
aðalvettvangur. Tungubakkarnir
voru spari og eiginlega bara fyr-
ir hetjurnar í meistaraflokknum
sem klæddust gulum keppnis-
treyjum með stórum tölustöfum
á bakinu og auglýsingu frá Ála-
fossi hf. á bringunni.
Fyrir kom þegar leikur stóð
sem hæst að við vorum reknir
út af vellinum þar sem svæðið
var í einkaeigu og ekki í leigt til
sveitarfélagsins eða Aftureld-
ingar um helgarnar. Við vissum
af hættunni sem stafaði af
þessum helgarferðum okkar til
Paradísar. En hún var þess virði
þótt stundum þyrfti að hætta
leik þá hæst hann stóð.
Þrátt fyrir allt þetta ferðalag
og „hætturnar“ sem við lögðum
á okkur á leiðinni auk þeirra
ógnar að eiga á hættu að vera
reknir heim þá freistuðumst við
til að endurtaka leikinn. Stund-
um sluppum við, stundum ekki.
Leikur með bolta á grasvelli tog-
aði endalaust og gerir vonandi
enn hjá börnum dagsins í dag.
BAKVÖRÐUR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is