Morgunblaðið - 01.05.2015, Side 34

Morgunblaðið - 01.05.2015, Side 34
KOMNIR HEIM Jóhann Ólafsson sport@mbl.is Á hverju ári snúa einhverjir þeirra íslensku atvinnumanna sem reynt hafa fyrir sér erlendis aftur heim til Íslands. Í ár komu tíu leikmenn til baka eftir ævintýri í atvinnumennsku erlendis. Einhverjir höfðu verið lengi úti en aðrir einungis í eitt ár. Í fyrra snéru sex atvinnumenn heim og því fjölgar þeim sem snúa heim í heimahagana. Halldór snýr heim Halldór Orri Björnsson er 28 ára gamall og uppalinn í Garðabænum. Halldór hafði einungis spilað fyrir Stjörnuna áður en hann ákvað að reyna fyrir sér í atvinnumennska síðasta ár. Ævintýrið úti gekk ekki sem skyldi og Halldór er því snúinn heim, þar sem hann mun eflaust styrkja lið Stjörnumanna mikið. Hversu öflugur verður Bjarni? Bjarni Þór Viðarsson, 27 ára, er snúinn heim eftir atvinnumennsku erlendis undanfarinn áratug. Sex- tán ára gamall fór hann til enska liðsins Everton þar sem hann dvaldi í fjögur ár. Spilaði hann fyr- ir unglinga- og varalið liðsins og var tvisvar sendur á lán frá liðinu. 2008 yfirgaf hann liðið frá Bítla- borginni og fór í smá Evrópureisu sem endaði hjá Silkeborg í Dan- mörku nú í vetur eftir nokkur ár þar. Guðmann valdi FH Guðmann Þórisson gekk aftur í raðir FH eftir ársdvöl erlendis. Guðmann, sem er 28 ára, er uppal- inn hjá Breiðabliki og lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki liðs- ins 18 ára gamall. Frá Blikum skipti hann yfir í FH árið 2012, þar sem hann varð Íslandsmeistari það ár. Á síðasta tímabili lék hann með liði Mjällby í Svíþjóð en er nú kom- inn heim og ætti að styrkja vörn Hafnarfjarðarliðsins. Flókið hjá Flóka Kristján Flóki Finnbogason, 20 ára, er snúinn heim í Hafnarfjörð- inn, eftir veru hjá FCK í Dan- mörku, og genginn til liðs við FH. Hann hafði leikið tvo leiki fyrir FH í Pepsi-deild karla, einn sum- arið 2012 og hinn 2013. Mikið fjaðrafok var í kringum heimkomu Kristjáns Flóka en Breiðablik taldi sig hafa munn- legan samning þess efnis að hann gengi til liðs við liðið. Hvort slíkur samningur var til staðar skal ósagt látið en móðir hans skrifaði undir fyrir hann hjá Fimleikafélaginu á endanum. Svarthvítur Skúli Jón Skúli Jón Friðgeirsson er snúinn aftur í Vesturbæinn eftir fremur mögur ár í atvinnumennsku. Skúli, sem er 26 ára gamall, steig sín fyrstu skref í meistaraflokki KR árið 2005 og spilaði með liðinu þar til hann fór til Svíþjóðar eftir sum- arið 2011. Þar gekk honum illa að festa sig í sessi. Skúli Jón varð bikarmeistari með KR 2008 og Ís- lands- og bikarmeistari 2011. Húsvíkingur í Vesturbæinn Pálmi Rafn Pálmason er 31 árs miðjumaður. Hann er uppalinn á Húsavík og lék með Völsungi þar til hann gekk til liðs við KA árið 2003. Árið 2005 flutti hann suður og lék með Valsmönnum í fjögur tímabil. Var hann hluti af Íslands- meistaraliði Vals 2007. Hann fór til Noregs 2008 þar sem hann hefur leikið með Stabæk og Lilleström, þar til hann kom heim í vetur. Kristinn er Bliki Kristinn Jónsson er 25 ára bak- vörður. Hann hefur spilað allan sinn feril fyrir Breiðablik, fyrir ut- an síðasta tímabil þegar hann lék með Brommapojkarna í Svíþjóð á láni. Hann varð bikarmeistari með Blikum 2009 og Íslandsmeistari með liðinu ári síðar. Ásgeir aftur í Árbæinn Ásgeir Börkur Ásgeirsson, miðju- maðurinn öflugi, er kominn aftur til liðs við Fylkismenn eftir að hafa spilað eitt ár með GAIS í sænsku B-deildinni. Mikilvægi hans fyrir Fylkisliðið þekkja flestir. Þá eru tveir ungir leikmenn í viðbót komnir heim. Orri Sigurður Ómarsson, sem fór frá HK til AGF í Danmörku fyrir fjórum árum, er genginn til liðs við Val og Tómas Ingi Urbancic er kominn til Vík- ings, uppeldisfélags síns, sem láns- maður frá Reading á Englandi. Morgunblaðið/Eva Björk Fyrirliði Pálmi Rafn Pálmason gekk í raðir KR þar sem hann var samstundis gerður að fyrirliða. Tíu sneru heim í vetur  Bjarni Þór Viðarsson og Pálmi Rafn Pálmason eru komnir í FH og KR eftir langa dvöl erlendis  Halldór, Guðmann, Skúli, Kristinn og Ásgeir sneru aftur Morgunblaðið/Eva Björk Endurkoma Halldór Orri Björnsson missti af ævin- týralegu tímabili hjá Stjörnunni en er kominn heim. FÓTBOLTINN 2015 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015 34 gekk í raðir Lilleström, sem Rúnar Kristinsson þjálfar og Sigurður Ragnar Eyjólfsson er aðstoð- arþjálfari. Rúnar lét af störfum sem þjálfari KR og Sigurður Ragn- ar hætti hjá Eyjamönnum. Aron Elís Þrándarson, sókn- armiðjumaðurinn stórefnilegi, hélt af landi brott frá Víkingum og gekk í raðir Aalesund í Noregi. Finnur Orri Margeirsson yfirgaf Breiðablik og gekk í raðir Lille- ström, til Rúnars og Sigurðar Ragnars. Reyndar var það með við- komu í Hafnarfirði, þar sem hann stoppaði stutt hjá FH-ingum seint á síðasta ári. KR missti þrjá KR-ingar misstu þrjá leikmenn og þjálfarann sinn í atvinnu- mennsku. Haukur Heiðar Hauks- son, var einn besti leikmaður KR á síðasta tímabili og vann sér sæti í A-landsliði karla. Hann gekk til liðs við AIK í Svíþjóð. Baldur Sigurðsson, fyrirliði KR, ákvað að reyna fyrir sér í Dan- FARNIR ÚT Jóhann Ólafsson sport@mbl.is Nokkrir sterkir leikmenn yf- irgáfu sín lið eftir síðasta tímabil og héldu á vit ævintýranna í at- vinnumennskunni. Alls fóru tíu leikmenn af landi brott í vetur og spila nú með erlendum félagsliðum, tveimur færri en fyrir síðasta tíma- bil. Óhætt er að segja að flestir þeirra hafi verið með bestu leik- mönnum síðasta tímabils, þar á meðal bæði besti og efnilegasti leikmaður Íslandsmótsins 2014. Ingvar Jónsson, markvörður Stjörnunnar og besti leikmaður Ís- landsmótsins, yfirgaf liðið og hélt til Start í Noregi. Elías Már Ómarsson, sókn- armaður Keflvíkinga og efnilegasti leikmaður Íslandsmótsins, hélt í víking til Vålerenga í Noregi. Blikar misstu sinn markahæsta mann út en Árni Vilhjálmsson mörku. Gekk hann í raðir Sönder- jyskE þar í landi. Emil Atlason, sóknarmaðurinn ungi, yfirgaf KR og hélt til Preus- sen Münster í þýsku C-deildinni. Hann er á lánssamningi sem gildir út tímabilið í Þýskalandi. Óskar Örn Hauksson fór til FC Edmonton í Kanada í vetur en er kominn aftur eftir stutta dvöl þar og leikur með KR í sumar. Arnar Bragi Bergsson fór frá ÍBV til sænska félagsins GAIS og Ray Anthony Jónsson yfirgaf Keflavík og hélt til Filippseyja þar sem hann spilar í ár. Að lokum fóru tveir þjálfarar ut- an, eins og kom fram hér að ofan. Rúnar Kristinsson gekk frá borði í KR eftir farsælan tíma en undir hans stjórn vann liðið þrjá bik- armeistaratitla og Íslandsmeist- aratitilinn tvisvar. Rúnar er tekinn við liði Lilleström í Noregi. Sigurður Ragnar Eyjólfsson er aðstoðarmaður Rúnars hjá Lille- ström. Hann hætti hjá ÍBV eftir að hafa þjálfað liðið síðasta sumar. Morgunblaðið/Ómar Bestur Ingvar Jónsson var valinn besti leikmaður síðasta Íslandsmóts. Tíu héldu af landi brott  Þrír KR-ingar og þjálfarinn freistuðu gæfunnar erlendis  Sá besti og sá efnilegasti leika báðir í Noregi á þessu ári Ég fór í háloftin snemma í morgun með spúsu minni á leið okkar til Sevilla. Ég missi því af fyrstu umferð Pepsi-deild- arinnar og það hefur ekki gerst frá því ég komst til vits og ára. Mér, sem er mikill fótbolta- áhugamaður, þykir leiðinlegt að geta ekki drukkið í mig fyrstu leikina í deildinni og verið á staðnum en ég mun þó fylgjast með úr fjarlægð eftir bestu getu með hjálp netsins. Væntanlega verða þó einhverjir sem öfunda mig því ég var svo heppinn að vinna ferð til Sevilla og annað kvöld verð ég ásamt betri helm- ingnum á Estadio Ramón Sánc- hez-vellinum í Sevilla þar sem heimamenn, sjálfir Evrópudeild- armeistararnir, taka á móti Evr- ópumeisturum Real Madrid í spænsku deildinni. Vafalaust myndu margir vilja vera í mínum sporum. Vera viðstaddur leik þar sem heims- klassa fótboltamenn leika listir sínar í vel yfir 20 gráðum en hætt er við því að þeir áhorf- endur sem leggja leið sína á leikina í Pepsi-deildinni í fyrstu umferðinni þurfi að kappklæða sig fyrir norðangarranum. Eins og gengur og gerist koma menn og fara í boltanum. Það verður til dæmis mjög skrýtið að sjá KR-liðið í sumar án Mývetningsins Baldurs Sig- urðssonar en ég veit að stuðningsmenn FH eru mjög sáttir að Baldur spili ekki lengur í deildinni. Enda hefur hann svo sannarlega gert Hafnarfjarð- arliðinu marga skráveifuna í gegnum árin og skorað ófá mörkin í viðureignum liðanna. Ég kallaði eftir því í bak- verði í sama blaði fyrir ári að við fengjum spennandi Íslands- mót fram á síðustu stundu og mér varð að ósk minni. Hreinn úrslitaleikur FH og Stjörnunnar um titilinn og honum hefur eng- inn gleymt, hvorki Stjörnumenn, FH-ingar né aðrir fótbolta- áhugamenn. Gleðilegt fótbolta- sumar. BAKVÖRÐUR Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.