Morgunblaðið - 01.05.2015, Side 35
35FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
DARE WHAT THE N I GHT OFFERS YOU
mundsson, aðstoðarþjálfari ÍBV,
varð Íslandsmeistari með ÍBV árið
1997 og með FH 2005, 2006, 2008 og
2009.
Að lokum hefur Reynir Leósson,
aðstoðarþjálfari Fylkis, orðið Ís-
landsmeistari sem leikmaður. Hann
kom við sögu í einum leik þegar ÍA
vann Íslandsmótið árið 1996 en lék
síðan lykilhlutverk árið 2001 þegar
Skagamenn urðu meistarar eftir úr-
slitaleik gegn Eyjamönnum í loka-
umferðinni.
Heimir langlífastur
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH,
er sá þjálfari í deildinni sem hefur
verið lengst með sama liðið. Hann
tók við FH-ingum fyrir tímabilið
2008 og er því að hefja sitt áttunda
tímabil sem þjálfari liðsins. Jóhannes
Harðarson, þjálfari ÍBV, og Arnar
Grétarsson, þjálfari Breiðabliks,
þreyta frumraun sína í þjálfun hér á
landi í sumar. Arnar hefur ekki þjálf-
að meistaraflokkslið áður en Jóhann-
es hefur undanfarin ár verið þjálfari
norska C-deildarliðsins Flekkeröy.
Skagamenn sigursælir
Fimm af þjálfurum liðanna tólf í
deildinni í ár hafa leikið með Skaga-
mönnum. Það eru Heimir Guð-
jónsson (FH), Bjarni Guðjónsson
(KR), Ólafur Þórðarson (Víkingi),
Jóhannes Harðarson (ÍBV) og Gunn-
laugur Jónsson (ÍA).
Skagamenn voru gríðarlega sig-
ursælir á 10. áratug síðustu aldar og
unnu Íslandsmeistaratitilinn 1992-
1996 og einu sinni á þessari öld, árið
2001.
Allir ofangreindir þjálfarar nema
Heimir urðu meistarar á leik-
mannaárum sínum uppi á Skaga.
Bjarni varð meistari árin 1995 og
1996. Ólafur Þórðarson varð meistari
árin 1993-1996 og 2001. Gunnlaugur
Jónsson vann titilinn 1994-1996 og
2001. Jóhannes varð meistari með
Skagaliðinu árin 1995 og 1996.
Úrslitaleikurinn 1996
Bjarni, Ólafur og Gunnlaugur voru
allir í byrjunarliði ÍA sem sigraði KR
4:1 í úrslitaleik Íslandsmótsins 1996.
Jóhannes sat á bekknum. Liðin voru
jöfn fyrir lokaumferðina og KR-
ingum dugði jafntefli til að tryggja
sér titilinn í fyrsta skipti í 28 ár.
Skagamenn voru ekki á þeim bux-
unum og sigruðu frekar örugglega
fyrir framan 5.801 áhorfanda.
Heimir Guðjónsson var í byrjunar-
liði KR í umræddum leik, sem og að-
stoðarþjálfarar Stjörnunnar og KR í
ár, þeir Brynjar Björn Gunnarsson
og Guðmundur Benediktsson.
Ólafur og Heimir sigursælastir
Hafa unnið flesta titla sem þjálfarar Ólafur Þórðar og Rúnar Páll hafa líka unnið meistaratitilinn
Fimm þjálfaranna hafa orðið meistarar sem leikmenn, fjórir þeirra með Skagamönnum
Morgunblaðið/Eva Björk
Heim Arnar Grétarsson ákvað að snúa heim og taka við sem aðalþjálfari hjá
sínu félagi, Breiðabliki. Liðið vann deildabikarinn undir hans stjórn í vor.
Morgunblaðið/Eggert
Kominn aftur Ólafur Jóhannesson snýr aftur í efstu deild eftir að hafa stýrt
landsliðinu og Haukum í 1. deild. Hann gerði FH þrisvar að Íslandsmeistara.
ÞJÁLFARARNIR
Jóhann Ólafsson
sport@mbl.is
Fjórir af þjálfurum liðanna tólf í
Pepsi-deild karla í sumar hafa stýrt
liði til Íslandsmeistaratitils. Ólafur
Jóhannesson stýrði FH til sigurs
2004-2006, Heimir Guðjónsson hefur
unnið Íslandsmótið, einnig sem þjálf-
ari FH, 2008, 2009 og 2012, Ólafur
Þórðarson gerði Skagamenn að
meisturum 2001 og Rúnar Páll Sig-
mundsson stýrði Stjörnunni eft-
irminnilega til Íslandsmeistaratitils á
síðasta ári. Ólafur Þórðarson og
Heimir hafa einnig báðir orðið Ís-
landsmeistarar sem leikmenn og
þjálfarar.
Aðrir þjálfarar í deildinni sem hafa
orðið Íslandsmeistarar sem leik-
menn, auk Ólafs Þ. og Heimis, eru
Gunnlaugur Jónsson með ÍA, Bjarni
Guðjónsson með KR og ÍA og Jó-
hannes Harðarson með ÍA.
Nýir menn í brúnni
Fjórir af þjálfurunum tólf eru að
hefja sitt fyrsta tímabil sem þjálfarar
sinna liða. Það eru Bjarni Guð-
jónsson þjálfari KR, en hann þjálfaði
Fram í fyrra með litlum árangri,
Ólafur Jóhannesson sem tók við
Valsmönnum eftir síðasta tímabil,
Arnar Grétarsson sem er kominn
heim og spreytir sig á þjálfun hjá
Breiðabliki og Jóhannes Harðarson
sem tekinn er við stjórnartaumunum
í Eyjum.
Sprækir aðstoðarþjálfarar
Sex aðstoðarmenn þjálfara hafa
orðið Íslandsmeistarar sem leik-
menn. Einn þeirra er ennþá spilandi
en það er Ólafur Páll Snorrason, að-
stoðarþjálfari Fjölnis. Hann varð Ís-
landsmeistari með FH 2005, 2006,
2009 og 2012.
Hinir eru Brynjar Björn Gunnars-
son, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar.
Varð hann Íslandsmeistari með KR
árið 2013 og lagði skóna á hilluna eft-
ir það. Guðmundur Benediktsson, að-
stoðarþjálfari KR, varð Íslands-
meistari með KR árin 1999, 2000 og
2003 og Val árið 2007. Sigurbjörn
Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals,
var fyrirliði þegar Valur varð Ís-
landsmeistari 2007. Tryggvi Guð-
Stjarnan: Rúnar Páll Sigmundsson,
40 ára, 34 leikir sem þjálfari í efstu
deild, einn meistaratitill.
FH: Heimir Guðjónsson, 46 ára, 154
leikir í efstu deild, þrír meist-
aratitlar, einn bikarsigur.
KR: Bjarni Guðjónsson, 36 ára, 22
leikir í efstu deild.
Víkingur: Ólafur Þórðarson, 49 ára,
202 leikir í efstu deild, einn meist-
aratitill, og Milos Milojevic, 32 ára,
nýliði.
Valur: Ólafur Jóhannesson, 57 ára,
175 leikir í efstu deild, þrír meist-
aratitlar, einn bikarsigur.
Fylkir: Ásmundur Arnarsson, 43
ára, 110 leikir í efstu deild.
Breiðablik: Arnar Grétarsson, 43
ára, nýliði.
Keflavík: Kristján Guðmundsson, 50
ára, 197 leikir í efstu deild, einn bik-
arsigur.
Fjölnir: Ágúst Þór Gylfason, 43 ára,
22 leikir í efstu deild.
ÍBV: Jóhannes Harðarson, 38 ára,
nýliði í efstu deild.
Leiknir: Freyr Alexandersson, 32
ára, og Davíð Snorri Jónasson, 28
ára, nýliðar í efstu deild.
ÍA: Gunnlaugur Jónsson, 40 ára, 22
leikir í efstu deild.
Þjálfararnir
árið 2015