Morgunblaðið - 01.05.2015, Side 38

Morgunblaðið - 01.05.2015, Side 38
FÓTBOLTINN 2015 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015 38 velli? „Það er hvergi leiðinlegt að dæma, það er miserfitt að dæma.“ Mér persónulega finnst mjög gaman að dæma í Frostaskjólinu þar sem áhorfendurnir eru alveg ofan í manni. Einnig er mjög gam- an að fara til Vestmannaeyja en það er mjög erfiður völlur. Mér finnst alltaf erfitt en mjög skemmtilegt að dæma í Eyjum, það er pressa á manni þar.“ Garðari finnst viðhorf fólks í garð dómara hafa verið voða svipað öll þau ár sem hann hefur dæmt. Tækni nú- tímans geri fólki auðveldara að láta skoðanir sínar í ljós. „Þetta hefur breyst svo mikið með facebook og twitter og öllu þessu. Það er orðið miklu auðveldara að hrauna yfir dómara, nú geturðu það ekki bara á vellinum.“ Garðar segist persónu- lega ekki heyra þetta á vellinum og kippi sér ekkert upp við þetta. Ekki geti allir verið sáttir við störf dóm- arans. Saknaði hringiðunnar Garðar var hættur í dómgæsl- unni en sneri fljótlega til baka. Hann dæmdi ekkert sumarið 2010 og kom til baka seint sumarið 2011. En af hverju kom hann aftur? „Ég var alveg hættur. Síðan varð ég meiðslafrír og dauðlangaði að koma aftur á völlinn.“ Segir hann fé- lagsskapinn í kringum dómgæsluna vera frábæran og hann hafi saknað þess að vera í hringiðu leiksins. „Ég saknaði strákanna úr fótbolt- anum og fótboltans. Fyrst var ég eftirlitsdómari en svo saknaði ég þessa alls bara meir og meir.“ Stemningin í kringum dómarana er því góð og þeir líta á sig sem eitt lið. Dómararnir eru, líkt og leik- menn, farnir að hlakka til að hefja leik á Íslandsmótinu í sumar. „Ég er alltaf spenntur fyrir nýju móti. Það er gaman að byrja, maður er bara eins og beljurnar á vorin. Það er rosalega gaman að komast á völlinn aftur,“ segir Garðar Örn Hinriksson dómari sem iðar í skinninu að flauta á leikmenn í Pepsi-deild karla í sumar. Morgunblaðið/Golli Virðing Garðar Örn Hinriksson að störfum í leik Stjörnunnar og Fjölnis þar sem Gunnar Már Guðmundsson virðist vera að klaga Veigar Pál Gunnarsson fyrir dómaranum. Garðar er að hefja sitt sautjánda tímabil í efstu deild. Veturinn er hundleiðinlegur  Garðar Örn Hinriksson er reyndasti dómarinn í ár  Er að hefja sitt sautjánda tímabil í efstu deild  Hleypur um 11-12 kílómetra í hverjum leik  Auðveldara að hrauna yfir dómarana en áður DÓMARINN Jóhann Ólafsson sport@mbl.is „Það er hundleiðinlegt að vera dómari á veturna. Við hefjum æf- ingar í byrjun nóvember og þetta eru endalaus hlaup og æfingar. Það er ekki mikið meira sem við getum gert, við leikum okkur ekki með bolta eins og leikmennirnir,“ segir Garðar Örn Hinriksson dómari í Pepsi-deild karla. Hann hefur dæmt í 16 ár í efstu deild karla og er því reynslumikill í faginu. Dómarar reyna að halda fjölbreytni í æfingum til að hlaupa ekki í endalausa hringi. Einnig hitt- ast dómarar tvisvar í viku yfir vetr- artímann og æfa saman. Þess á milli þurfa menn að halda sér sjálf- ir í góðu formi. Liðin spila mikið af æfingum, sem dómararnir flauta af krafti. Sama frí og hjá leikmönnum „Liðin hefja æfingaleiki sína í nóvember og við byrjum að dæma þá. Við tökum sama frímánuð og leikmennirnir, október.“ Dómarar verða að vera í toppstandi til að geta dæmt leik, enda þurfa þeir helst að vera með nefið ofan í öllum vafaatriðum leiksins. „Hlaup í leik hafa ekki verið mæld hérna heima, enda höfum við ekki græjurnar til þess. En ég held að þetta séu svona 11-12 kílómetrar sem við hlaupum í leik.“ Dómarar eru sendir í þolpróf fyrir tímabil og á miðju keppnistímabili. Þegar við- talið var tekið var þolprófinu ekki lokið. „Ég er alltaf stressaður fyrir þolpróf. Alveg sama hversu góðu formi ég er í, maður finnur alltaf fyrir stressi.“ Umhverfið hefur gjörbreyst Dómararnir eru miklir fótbolta- áhugamenn og ræða boltann mikið sín á milli, ekki bara dómgæslu. „Við værum í röngu fagi ef við hefðum ekki áhuga á boltanum.“ Garðar segir umhverfi dómara hafa gjörbreyst síðan hann hóf dómgæslu. „Aðhaldið er miklu meira. Við förum á fleiri ráðstefnur, þolprófin eru fleiri og það er miklu meiri stuðningur frá KSÍ og dóm- aranefndinni svo þetta er búið að breytast töluvert.“ En skyldi Garðari finnast erfitt að dæma á einhverjum sérstökum vetur til Sviss þar sem við dvöldum samtals í átján daga. Þar vorum við undir handleiðslu fyrrverandi dóm- ara.“ Ívar og félagar dæmdu leiki og hlutu kennslu. „Það er verið að móta unga dómara í Evrópu. Virkilega skemmtilegt og rosalega krefjandi verkefni.“ Ívar er í toppstandi enda þurfa dómarar að vera í góðu formi, líkt og leikmennirnir. „Nálægðin skiptir máli, við þurfum að geta haldið í við flæði leiksins.“ Eldri og reyndari dómarar hafa tekið hinum unga vel. „Það er auðvelt að komast inn í þennan hóp, þetta er allt mjög gott fólk.“ Vill fleiri en færri áhorfendur En hefur dómarinn ungi rekist á einhverja velli sem sérstaklega erfitt er að dæma á? „Nei, það eru engir sérstakir vellir. En mér finnst oft erfitt að dæma þegar áhorfendur eru fáir því þá verður andrúmsloftið oft allt öðruvísi inni á vellinum. Það verður oft persónulegra.“ Honum finnst leikmenn líka oft hegða sér betur þegar vellirnir eru fullir. UEFA mótar unga dómara Í vetur tók Ívar þátt í verkefni á vegum UEFA. „Ég og tveir aðstoð- ardómarar vorum svo heppnir að taka þátt í þvi. Fórum við tvisvar í Jóhann Ólafsson sport@mbl.is Ívar Orri Kristjánsson er yngsti dómari Pepsi-deildar karla í sumar, 25 ára gamall. „Ég dæmdi minn fyrsta leik í efstu deild í lokaumferð- inni 2013 og nokkra leiki í fyrra. Vonandi dæmi ég marga í ár.“ Hann byrjaði að dæma fyrir al- gjöra tilviljun árið 2010. „Þá var ég að spila með Skallagrími, var meidd- ur og plataður á dómaranámskeið.“ Ívar lék upp alla yngri flokkana og tvö ár í meistaraflokki Skallagríms og telur það hjálpa sér í dómgæsl- unni. „Vissulega, geri ég mér grein fyrir því um hvað leikurinn snýst.“ Hann hlakkar mikið til sumarsins og býst við að allir sem komi að fót- boltanum muni njóta þess. „Ég er virkilega spenntur fyrir sumrinu og held að það verði góð skemmtun fyrir dómara, leikmenn og áhorfendur.“ Er með þykkan skráp Að endingu spyr blaðamaður hvort það geti ekki tekið á að heyra fólk hreyta í mann fúkyrðum. Ívar segir svo ekki vera. „Ef ég gerði það þá væri ég einhversstaðar annars staðar í lífinu. Dómarar þurfa þykk- an skráp og ákveða hvað þeir vilja heyra og hvað ekki.,“ sagði Ívar Orri Kristjánsson. Morgunblaðið/Eva Björk Ungur Ívar Orri Kristjánsson er sá yngsti í deildinni í ár. Erfitt að dæma þegar áhorfendur eru fáir  Ívar Orri Kristjánsson er yngsti dómarinn í deildinni en fékk reynslu í fyrra Kristinn Jakobsson, reyndasti dómari landsins undanfarin ár, lagði flautuna á hilluna að loknu síðasta tímabili. Hans síðasti leik- ur á Íslandsmótinu var úrslita- leikur FH og Stjörnunnar í loka- umferð Pepsi-deildar karla. Í hans stað kemur jafnaldri hans, Pétur Guðmundsson, en aðr- ir dómarar sem hefja tímabilið eru þeir sömu og í fyrra. Pétur dæmdi einn leik í deildinni undir lok Ís- landsmótsins í fyrra. Það eru eftirtaldir dómarar, ald- ur og leikjafjöldi í efstu deild fylgir: Erlendur Eiríksson 44/113 Garðar Örn Hinriksson 43/161 Guðmundur Á.Guðm.ss. 41/44 Gunnar Jarl Jónsson 31/72 Ívar Orri Kristjánsson 25/7 Pétur Guðmundsson 45/1 Valdimar Pálsson 45/9 Valgeir Valgeirsson 40/59 Vilhjálmur A. Þórarinss. 30/52 Þorvaldur Árnason 33/83 Þóroddur Hjaltalín 37/93 Örvar Sær Gíslason 41/49 Pétur er 45 ára nýliði Vilhjálmur Alvar Þórarinsson er nýr FIFA-dómari Íslands en hann bættist í þann hóp í byrjun þessa árs. Kristinn Jakobsson hætti í árslok 2014 vegna aldurs. Björn Valdimarsson og Jovana Cosic eru nýir FIFA-aðstoðardóm- arar en Sigurður Óli Þórleifsson er hættur. Eftirtaldir eru nú á lista FIFA, Alþjóða knattspyrnu- sambandsins: FIFA-dómarar: Gunnar Jarl Jónsson Vilhjálmur Alvar Þórarinsson Þorvaldur Árnason Þóroddur Hjaltalín FIFA-aðstoðardómarar: Áskell Þór Gíslason Birkir Sigurðarson Björn Valdimarsson Frosti Viðar Gunnarsson Gunnar Sverrir Gunnarsson Gylfi Már Sigurðsson Jovana Cosic Jóhann Gunnar Guðmundsson Rúna Kristín Stefánsdóttir. Vilhjálmur í stað Kristins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.