Fréttablaðið - 14.05.2015, Side 19

Fréttablaðið - 14.05.2015, Side 19
FIMMTUDAGUR 14. maí 2015 | SKOÐUN | 19 Fyrstu kvótalögin voru samin á skrifstofum LÍÚ eins og rakið er í ritgerð Halldórs Jónssonar „Ákvarðanataka í sjávarútvegi og stjórnun fiskveiða“ í Samfélags- tíðindum 1990 (bls. 99-141). Fyrir liggja ljósir vitnisburðir um afleiðingar þessa. Styrmir Gunnarsson, fv. rit- stjóri Morgunblaðsins, segir í bók sinni Umsátrið (2009, bls. 206): „Handhafar kvótans urðu þeir valdamenn, sem máli skiptu í sjávarplássunum í kringum landið. Þeir höfðu líf plássanna í hendi sér. ... Þingmenn lands- byggðarkjördæmanna stóðu nær undantekningarlaust með kvóta- höfunum. Þeir vissu sem var, að snerust þeir gegn þeim, væri stjórnmálaferli þeirra lokið. ... Frambjóðendur í prófkjörum þurftu og þurfa að leita fjárstuðn- ings ..., þar á meðal hjá handhöf- um kvóta. Það jafngilti pólitísku sjálfsmorði að rísa upp gegn handhafa kvóta á landsbyggð- inni.“ Ef þú átt hús Vandinn hefur ágerzt. Nýlegt dæmi er ákvörðun ríkisstjórnar- innar 2009-2013 um að leggja ekki auðlindagjald á makrílveið- ar þótt ríkissjóður berðist í bökk- um eftir hrun eins og hann gerir enn. Önnur dæmi eru afturköllun áður ákveðinnar hækkunar veiði- gjalda 2013 og nú síðast makríl- frumvarpið, sem liggur fyrir Alþingi og kveður á um úthlutun kvóta með miklum afslætti til sex ára í senn frekar en til eins árs eins og hingað til. Hér er á ferðinni grímulaus tilraun til að binda hendur Alþingis fram í tímann til að hafa af þjóðinni réttmætan arð hennar af eign sinni – og það meðan t.d. heil- brigðiskerfið getur ekki sinnt frumskyldum sínum og landið logar í verkföllum. Makrílfrum- varpið, nái þjóðin ekki að bera hönd fyrir höfuð sér og stöðva það, gæti orðið upptakturinn að því að festa í sessi um langan aldur ranglætið, óhagkvæmnina og ófriðinn, sem stafar af fisk- veiðistjórnarkerfinu. Málið er einfalt. Ef þú átt hús, þá viltu ekki að tengdamóðir þín leigi það vini sínum langt fram í tímann fyrir brot af réttu verði. Fullt gjald Alþingi hefur brugðizt þjóðinni í kvótamálinu og einnig brugðizt alþjóðasamfélaginu. Tökum þjóðina fyrst. Nýja stjórnarskráin kveður á um „fullt gjald“ fyrir veiðiréttinn. Í greinargerð frumvarps Stjórn- lagaráðs er því vandlega lýst hvað í orðunum felst. Fullt gjald er markaðsgjald, þ.e. hæsta gjald sem nokkur er fús til að greiða á markaði með sama hætti og sjálfsagt þykir t.d. á húsnæðismarkaði. Þegar Alþingi hafði legið yfir stjórnarskrárfrumvarpinu í sjö til átta mánuði 2011-2012 kvaddi það stjórnlagaráðsmenn saman til aukafundar til að fá svör við nokkrum spurningum, m.a. þeirri spurningu hvort breyta mætti orðunum „fullt gjald“ í „sanngjarnt gjald“. Fundurinn svaraði spurningunni neitandi afdráttarlaust og einum rómi með þeim rökum að í eignar- réttar ákvæði frumvarpsins, sem er óbreytt frá 1944, er kveðið á um að „fullt verð“ skuli koma fyrir eignarnám. Til að gæta innra samræmis og gera öllum eignarrétti jafnhátt undir höfði þarf „fullt“ verð að standa í báðum ákvæðum. Við bætist að „sanngjarnt gjald“ mætti e.t.v. skoða sem stjórnarskrárvarinn afslátt handa útvegsmönnum. Alþingi lét sér segjast og „fullt gjald“ fékk að standa óbreytt þar til það gerðist á lokametrum með- ferðar frumvarpsins á Alþingi 2013 að í stað orðanna „gegn fullu gjaldi“ voru skyndilega komin orðin „gegn eðlilegu gjaldi“. Þingmenn eiga eftir að upplýsa hver laumaði þessari dulbúnu efnisbreytingu inn í frumvarpið eins og til að veita útvegsmönnum fyrirheit um stjórnarskrárvarinn afslátt. Mínar heimildir á Alþingi herma að breytingin hafi verið gerð að undirlagi þingmanna Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Þetta þarf að upplýsa. Mannréttindi Mannréttindanefnd SÞ birti bindandi álit 2007 þess efnis að fiskveiðistjórnarkerfið bryti gegn mannréttindum og fyrir- skipaði ríkisstjórninni að nema mannréttindabrotaþáttinn, þ.e. mismununina, brott úr kerfinu og greiða skaðabætur sjómönn- unum tveim sem höfðuðu málið, þeim Erlingi Sveini Haralds- syni og Erni Snævari Sveins- syni. Ríkisstjórnin lofaði mann- réttindanefndinni bót og betrun, m.a. með því að lögfesta nýja stjórnarskrá með auðlindaákvæði til að bregðast við vandanum. Auðlindaákvæðið í frumvarpi Stjórnlagaráðs tekur fullt tillit til álits mannréttindanefndarinn- ar. Nefndin brást við í góðri trú með því að fella málið niður 2012. En þá gerist það að ríkisstjórn- in svíkst aftan að mannrétt- indanefndinni með því að salta stjórnarskrárfrumvarpið sem var forsenda nefndarinnar fyrir niðurfellingu málsins. Fróðlegt verður að fylgjast með viðbrögð- um mannréttindanefndarinn- ar við þessum upplýsingum um háttalag Alþingis. Stjórnarskrár- félagið hefur sent nefndinni bréf um málið. Ef allt væri með felldu væri nýja stjórnarskráin sem 67% kjósenda samþykktu í þjóðar- atkvæðagreiðslunni 2012 nú þegar í gildi. Þá dygðu 23.000 undirskriftir kosningabærra manna til að setja makrílfrum- varp ríkisstjórnarinnar í þjóðar- atkvæði án milligöngu forseta Íslands. Undir skriftirnar eru þegar komnar upp fyrir 31.000. Þú getur sagt forsetanum skoðun þína, lesandi minn góður, með því að skrifa undir áskorun til hans á vefsetrinu thjodareign.is um að vísa málinu í þjóðaratkvæði. Þjóðareign.is Í DAG Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor Vandinn hefur ágerzt. Nýlegt dæmi er ákvörðun ríkis- stjórnarinnar 2009-2013 um að leggja ekki auðlinda- gjald á makrílveiðar þótt ríkissjóður berðist í bökkum eftir hrun eins og hann gerir enn. Árið er 2011 og uppi eru hugmyndir innan Háskóla Íslands um að endurvekja Stúdentakjallarann sem var fyrst opnaður árið 1975. Kjallarinn, eins og hann var kallaður, hafði þó lognast út af og honum loks lokað árið 2007 og enginn bar sem ætlaður var stúdentum hafði verið starfræktur í fjögur ár. Dagdrykkja og sötur– fyrirhyggja og skynsemi Hugmyndirnar um nýjan Stúd- entakjallara snúa að því að byggja við Háskólatorg, samkomustað og félagsmiðstöð stúdenta og kenn- ara við Háskóla Íslands. Ekki falla hugmyndirnar öllum í geð og uppi eru háværar efasemdarraddir um gagnsemi og gjöfulleika þess að opna stað á háskólasvæðinu sem býður upp á áfengi frá klukkan ellefu á daginn. Enda er það ljóst að verði þessar hugmyndir að veruleika hafi allir beint aðgengi að bjór og öðrum ólifnaði fyrir til- tölulega hóflegt gjald. Efasemdarraddirnar benda á það að ekki kunni allir að fara með áfengi og fari svo að nýr Stúdenta- kjallari verði byggður séu miklar líkur á því að stúdentar leggist í dagdrykkju og sötur. Yrði eðli þeirrar dagdrykkju að sötrararnir myndu svo mæta hífaðir í tíma, valda truflunum og skemma fyrir kennslu. Svo ekki sé nú talað um þá óhæfu að kennari yrði Bakkusi að bráð fyrir kennslustund; þvílíkt hneyksli! Árið 2011 eru horf urnar síður en svo góðar fyrir þessar efasemdarraddir en sama hvað tautar og raular virð- ast menn ætla að leggja í bygg- ingu kjallarans. Fyrir efasemdar- raddirnar hefur það sennilega verið ljúfsárt, því jafnvel þó kjall- arinn verði byggður mun reynslan veita þeim uppreisn æru og sýna af hversu mikilli fyrirhyggju og skynsemi þær töluðu. Fótboltaspilið brotnaði Skautum nú fram til ársins 2015 þegar kjallarinn hefur verið starf- ræktur í þrjú ár í þessu 15.000 manna samfélagi sem gæti staðið undir því að vera fimmta stærsta sveitarfélag landsins. Hver er staðan? Skyldu stúdentar og kenn- arar mæta hífaðir í tíma að jafn- aði? Syngja menn drykkjusöngva á göngum háskólans, léttir, ljúfir og kátir á góðum miðvikudegi? Nei, svo er það víst ekki. Að undanskildu einu atviki sem átti sér stað eftir haustfögnuð starfsmanna háskólans, þar sem fótboltaspilið brotnaði, muna rekstrar aðilar ekki eftir því að hlutirnir hafi nokkru sinni farið úr böndunum. Skemmst er frá því að segja að í öllum þeim kennslu- stundum sem undirritaður hefur sótt hafa samnemendur og kenn- arar verið allsgáðir og engar sögur er að segja af öðru háttalagi í öðrum deildum háskólans. Raunar er það svo að sárafáir eru eftir sem gangast við því að hafa viðrað efasemdir. Það minnir um margt á þær efasemdarraddir sem heyrðust þegar bjórbanninu var aflétt í mars 1989, að minnsta kosti þekki ég ekki þann mann sem vill kannast við að hafa verið á móti því. Spurningin er því sú; hvað verður um efasemdarraddirnar nú ef áfengi verður hleypt í búðir? Um aukið aðgengi að áfengi í Háskóla Íslands Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is SAMFÉLAG Ísak Rúnarsson hagfræðinemi við Háskóla Íslands ➜ Skyldu stúdentar og kennarar mæta hífaðir í tíma að jafnaði? Syngja menn drykkjusöngva á göngum háskólans, léttir, ljúfi r og kátir á góðum mið- vikudegi? 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 6 1 -B 3 8 C 1 7 6 1 -B 2 5 0 1 7 6 1 -B 1 1 4 1 7 6 1 -A F D 8 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 6 4 s _ 1 3 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.