Fréttablaðið - 14.05.2015, Side 31
KYNNING − AUGLÝSING Skólar & námskeið14. MAÍ 2015 FIMMTUDAGUR 3
Forritun er hið nýja læsi. Þjóð-irnar í kringum okkur eru f lestar búnar að átta sig á
því. Því miður er íslenska mennta-
kerfið sumpart eftirbátur annarra,“
segir Rakel Sölvadóttir, stofnandi
og framkvæmdastjóri Skema, sem
stendur fyrir tækni- og forritunar-
námskeiðum fyrir börn og ung-
linga í sumar.
Rakel bendir á að í gildandi
aðalnámskrá fyrir grunnskóla
sé talað um að börn eigi að nota
tækni en lítil sem engin áhersla sé
á að þau geti tamið hana eða skap-
að hana sjálf.
Hversu gömul geta börn lært að
forrita? „Að læra forritun er að
læra tungumál. Í raun gilda svip-
uð lögmál um hana og annað slíkt
nám. Því fyrr sem maður byrjar,
því betra. Þar með er ekki sagt að
það sé endilega æskilegt að hola
litlum börnum fyrir framan skjái
og lyklaborð og láta þau skrifa
kóða. Yngstu börnin læra hugs-
unina á bak við forritun í gegnum
leik. Þegar þau eru aðeins eldri
læra þau að yfirfæra forritunina á
myndrænan veruleika. Loks geta
þau skrifað kóða.“
Hvernig er staða forritunar á
Íslandi? „Til allrar hamingju gerir
fólk sér almennt grein fyrir því að
tækniheimurinn er ekki að fara
neitt. Við sjáum líka í kringum
okkur dæmi þess hverju fólk fær
áorkað sem tileinkar sér þessa
færni. Mörg af glæsilegustu fyrir-
tækjum landsins grundvalla starf
sitt á forritun. Samfélagið veit að
þetta er mikilvægt og foreldrar
sérstaklega.“
Geta öll börn lært að forrita? „Já.
Strax um 1980 varð ljóst að for-
ritunarnám er börnum gagn-
legt. Um leið varð þó líka ljóst að
verulega vantaði upp á kennslu-
fræði forritunar. Síðustu þrjátíu
ár hefur kennslan verið minni og
byrjað seinna en æskilegt er. Það
hafa orðið gríðarlegar framfarir í
kennslufræði forritunar og í dag
eiga öll börn að geta lært hana.
Skema snýst um nákvæmlega
þetta, að flétta saman það sem
við vitum um forritun, sálfræði og
kennslufræði til að tryggja að börn
fái bestu mögulegu kennslu.“
Hvernig hefur kennslan gengið?
„Um 4.500 börn hafa setið nám-
skeið hjá Skema. Það er gríðarlega
há tala sem vakið hefur mikla
athygli erlendis, sérstaklega í
Bandaríkjunum. Þá hafa nem-
endur okkar náð góðum árangri,
t.d. í alþjóðlegum forritunarsam-
keppnum. Það hefur enn aukið
áhugann. Loks sjáum við það að
börnin sem komið hafa ítrekað
á námskeið eru farin að reyna á
skólakerfið. Þau koma með það
góðan grunn upp í framhalds-
skóla að það er krefjandi við-
fangsefni fyrir skólana að mæta
þeim þar. Sem er auðvitað frábært
og sannar að þetta er ekki bara að
virka, heldur virka vel.“
Fyrir hverja eru sumarnámskeiðin?
„Námskeiðin eru sérhönnuð fyrir
sjö til sextán ára. Hægt er að sjá
yfirlit og panta sæti á námskeiði
á Skema.is. Við erum alltaf með
ákveðin grunnnámskeið en auk
þess fjölgar sífellt námskeiðum
sem eru sérhönnuð til að byggja
brú milli áhugasviðs barnanna
og þeirrar hæfni sem þau þurfa
að hafa til að bera í 21. aldar sam-
félagi. Sjö ára barn sem mætir á
námskeið í sumar fer út á vinnu-
markaðinn um miðja þessa öld.
Manneskja sem ekki skilur for-
ritun þá verður ólæs á mikilvæga
þætti samfélagsins.“
Nauðsynleg hæfni á 21. öldinni
Rakel Sölvadóttir, stofnandi Skema, segir mikilvægt að læra forritun snemma. Í sumar heldur Skema tækni- og forritunarnámskeið fyrir
börn og unglinga. MYND/GVA
Það hafa orðið
gríðarlegar
framfarir í kennslufræði
forritunar og í dag eiga
öll börn að geta lært að
forrita.
Rakel Sölvadóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Skema, er nýkomin frá Bandaríkjunum þar sem hún kynnti sér nýjustu stefnur og
strauma í upplýsingatækni og kennslu. Í sumar mun Skema halda fjölmörg tækni- og forritunarnámskeið fyrir börn á aldrinum 7-16 ára.
Tæknisumar Skema
Júní Águst
13.-14. 15.-19. 22.-26 29.-3.
Júlí
4.-5 6.-10. 13.-17. 20.-24 27.-31 4.-7. 10.-14. 17.-21.
Leikjaforritun
Grunnur 7-10 ára
Leikjaforritun
Grunnur 11-14 ára
Leikjaforritun
Kodu GameLab 7-10 ára
Tækjaforritun
Grunnur 7-10 ára
Tækjaforritun
Grunnur 10-13 ára
Tæknistelpur
10-13 ára
Vefsíðugerð
11-16 ára
Tölvutætingur
11-16 ára
Myndbandagerð
10-16 ára
Appþróun
10-13 ára
Appþróun
13-16 ára
Unity 3D
13-16 ára
Unity 3D framhald
13-16 ára
Júní Águst
8.-12. 15.-19. 22.-26
Júlí
6.-10. 13.-17. 20.-24 27.-31 4.-7. 10.-14.
Minecraft Grunnur
7-9 ára
Minecraft Grunnur
10-13 ára
Minecraft Hönnun
7-9 ára
Minecraft Hönnun
10-13 ára
Minecraft
Myndbandagerð
10-16 ára
Minecraft Forritun
10-16 ára
SKAPANDI Minecraft
NAmskeID
< www.skema.is | skraning@skema.is | Tæknisetur Skema, Síðumúli 23 | 562-2200 >
Nánari upplýsingar og skráning
< Skrán
ing í ful
lum gan
gi >
www.sk
ema.is
Nýtt!
Nýtt!
Nýtt!
Nýtt!
Nýtt!
Nýtt!
Nýtt!
Nýtt!
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
1
-2
4
5
C
1
7
6
1
-2
3
2
0
1
7
6
1
-2
1
E
4
1
7
6
1
-2
0
A
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K