Fréttablaðið - 12.05.2015, Blaðsíða 38
12. maí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Tónleikaröð hljómsveitarinnar Of
Monsters and Men hófst fyrir viku
síðan og hélt sveitin sex tónleika
í fyrstu vikunni. Fyrstu tónleik-
arnir voru í Toronto í Kanada en
sveitin hélt þaðan til Bandaríkj-
anna og treður þar upp í fjölmörg-
um borgum alveg fram í júnímán-
uð. Sveitin nýtur mikilla vinsælda
vestanhafs og keppast aðdáend-
ur við að lofa hana á samfélags-
miðlum. Fjölmiðlar hafa einnig
farið fögrum orðum um tónleika
sveitarinnar og er hún sögð vera
í feiknaformi.
Töfrar í loftinu
Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað
um þá tónleika sem sveitin hefur
haldið. Í umsögn miðilsins Blare
Magazine kemur fram að svo
virðist sem töfrar hafi verið í loft-
inu á meðan sveitin lék fyrir tón-
leikagesti. Uppistaða tónleikanna á
ferðalaginu eru lög af nýrri plötu
Of Monsters and Men, sem ber tit-
ilinn Beneath the Skin og kemur út
í júní. „Áhorfendur, sem voru eins
konar tilraunadýr fyrir nýtt efni
sveitarinnar, elskuðu hverja ein-
ustu stund. Í lok hvers lags fögn-
uðu þeir af miklum krafti og roðn-
uðu hljómsveitarmeðlimir vegna
þess hve vel áhorfendur tóku í nýju
lögin,“ segir blaðamaður miðilsins
Live in Limbo, um tónleika sveitar-
innar í Toronto fyrir viku. Hann
segir sviðsmyndina hafa verið frá-
bæra og að hin nýju lög sveitarinn-
ar hafi hljómað ótrúlega vel.
Líkir Arnari við Phil Collins
Blaðamaður Live in Limbo fór af
mikilli nákvæmni yfir tónleika
sveitarinnar. Hann segir til að
mynda frá því þegar Nanna Bryndís
Hilmarsdóttir söngkona bað áhorf-
endur um að standa upp í lok eins
lagsins. Áhorfendur tóku Nönnu á
orðinu og enginn sat í kjölfar orða
hennar. Blaðamaðurinn hrósaði
Arnari Róenkranz Hilmarssyni í
hástert. Hann líkir stíl Arnars við
trommarann fræga, Phil Collins,
sem er líklega þekktastur sem með-
limur sveitarinnar Genesis.
En að mati blaðamannsins stóð
Ragnhildur Gunnarsdóttir upp úr.
Fjölhæfni Ragnhildar vakti mikla
athygli blaðamanns en hún lék á
fjögur hljóðfæri og söng bakradd-
ir á tónleikunum.
Æstir aðdáendur
Á samfélagsmiðlum á borð við
Instagram og Twitter má vel
skynja aðdáun margra á sveitinni
íslensku. Þegar nafn sveitarinn-
ar er slegið inn í leitarvélar sam-
félagsmiðlanna sést aragarúi af
lofi frá æstum aðdáendum. Undan-
farna viku hafa á bilinu fimm
hundruð til eitt þúsund tíst birst
daglega um sveitina á Twitter.
Tístum um sveitina hefur fjölgað
talsvert frá því að tónleikaferða-
lagið hófst.
Vinsældir sveitarinnar á Insta-
gram eru síst minni. Þar birtast
hundruð mynda og myndbanda
daglega sem merkt eru sveitinni.
Flestar myndanna og myndband-
anna eru af tónleikum sveitarinn-
ar og er ljóst að hún nýtur mikillar
hylli og að aðdáendur eru ákaf-
lega sáttir með frammistöðu Of
Monsters and Men.
kjartanatli@frettabladid.is
Aðdáendur á Instagram
trylltir yfi r tónleikaröð
Tónleikar sveitarinnar Of Monsters and Men fá frábæra dóma og eru aðdáendur
í skýjunum. Á Twitter birtast frá fi mm hundruð til þúsund tíst á degi hverjum.
➜ Blaðamaður Live in Limbo
hrósaði Arnari Róenkranz
Hilmarssyni í hástert. Hann
líkir stíl Arnars við trommar-
ann fræga, Phil Collins, sem er
líklega þekktastur sem með-
limur sveitarinnar Genesis.
ÆSTIR AÐDÁENDUR OF MONSTERS AND MEN Á INSTAGRAM
Stærsti fasteignavefur landsins
fasteignir.is
„Ég er lítið fyrir skyndibita. En mitt
uppáhald er Fresco á Suðurlands-
braut eða Local í Smáralind. Ég fæ
mér alltaf mismunandi. En ef ég er
að svindla stórlega, vel ég Kentucky
Fried Chicken, en sárasjaldan.“
Heiðar Jónsson, snyrtir.
BESTI BITINN
„Fólk verður nú að fá eitthvað meira til að
hlusta á frá okkur heldur en bara Unbroken,“
segir söngkonan og Eurovision-prinsessan
okkar María Ólafsdóttir en hún og upptöku-
teymið StopWaitGo senda frá sér EP-plötu í
vikunni. Um er að ræða fyrstu sameiginlegu
EP-plötu Maríu og StopWaitGo. „Ég var alveg
óþekkt fyrir Eurovision þannig að það er lítið
til af tónlist með mér og þurftum við því að
gefa þetta út svo fólk fái ekki algjört ógeð á
mér,“ segir María létt í lundu og hlær.
Á plötunni eru tvö ný lög sem bera titlana,
Dancing in the Storm og Wild as Summer-
love. Ásamt þeim inniheldur platan einnig tvö
ný remix af laginu Unbroken, sem og upp-
runalegu útgáfuna af Eurovision-framlag-
inu okkar. „Við erum mjög ánægð með nýju
lögin og frumfluttum þau bæði í Kringlunni á
laugar daginn. Þau eru bæði í stíl við Unbro-
ken,“ útskýrir María.
Hún hefur í nógu að snúast þessa dagana
þar sem að hún æfir nú af kappi fyrir Euro-
vision-keppnina sem fram fer 21. maí og 23.
maí í Vín í Austurríki. „Við erum að fara út
núna á miðvikudaginn og ég er orðin mjög
spennt og hlakka mikið til að stíga á svið.“ - kak
Tvö ný lög á plötu frá Maríu Ólafs
Eurovision-farinn María Ólafsdóttir og StopWaitGo senda frá sér EP-plötu.
NÝ PLATA María Ólafsdóttir og StopWaitGo senda frá
sér sína fyrstu EP plötu.
MYND/JÓNATAN GRÉTARSSON
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
E
-3
F
B
C
1
7
5
E
-3
E
8
0
1
7
5
E
-3
D
4
4
1
7
5
E
-3
C
0
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K