Fréttablaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 28
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Hleypið mér út úr þessu partíi,“ rappaði Helgi Hrafn Pírati á Alþingi og
vitnaði þar í texta úr lagi Jónasar
Sigurðssonar og Ritvéla framtíð-
arinnar. „Ég hef eingöngu fengið
góð viðbrögð,“ svaraði Helgi
Hrafn þegar hann var spurður
hvort hann væri ekki sáttur
við þá athygli sem ræðan fékk.
„Tíminn er ansi naumur sem við
höfum í þessum umræðum og ég
talaði óþarflega hratt því maður
flýtir sér sjálfkrafa ef hætta er á
að maður skerði tíma samflokks-
manna sinna, þótt ég hafi reynd-
ar haft nægan tíma,“ segir hann.
Hvað með rappið? „Ég veit
ekki hvað hæstvirtur Jónas
Sigurðsson segir um að kalla
þetta rapp. Vissulega var þetta
þó einhvers konar talsöngur. Ég
hef aldrei rappað,“ segir Helgi
Hrafn sem þó hefur bæði samið
lög og texta frá barnsaldri. „Það
hefur bara verið fyrir sjálfan mig,
aðallega,“ útskýrir hann og bætir
við að hann hafi haft hug á að
fara út í tónlist á unglingsaldri en
þá hafi tölvurnar tekið yfir. Helgi
Hrafn spilar aðallega á píanó
en einnig á gítar. Hann segist
hafa fengið góðan stuðning hjá
foreldrum sínum til að eignast
hljóðfæri. „Það var mikilvægt
fyrir mig.“ Faðir hans er vel
þekktur hljóðmaður, Gunnar
Smári Helgason, en hann hefur
komið að mörgum helstu plötum
og kvikmyndum landsins í
gegnum árin.
TÓNLISTIN OG TÖLVUR
Helgi Hrafn segir að aðaláhuga-
málið hafi verið tónlist, tölvur
og nú pólitík. „Ég stórefast um
að ég eigi eftir að gefa tónlistina
mína út,“ segir hann en svo ein-
kennilega vill til að hann hefur
aldrei samið tónlist á tölvu og
því ekki blandað saman áhuga-
málunum. Þegar hann er spurður
hvort hann gæti hugsað sér að
setja tónlistina í hendurnar á ein-
hverjum góðum tónlistarmanni
hugsar hann sig um og svarar:
„Ég bara þori ekki að fara með
það, en það gæti vel gerst.“
Það verður fátt um svör
þegar spurningarnar beinast
að helginni og hvað hann ætli
að gera sér til ánægju. „Staðan
á þinginu er þannig að það er
ekki hægt að ákveða tíma sinn
fram í tímann. Það er farið að sjá
fyrir endann á þingstörfum en
maður hefur lært að fríið kemur
ekki fyrr en það er komið. Það
er mjög líklegt að ég þurfi að
vinna um helgina, ekki endilega
í þingsal, heldur fara yfir mörg
mál sem hafa safnast upp. Þegar
þinginu lýkur ætla ég að reyna að
slappa af í nokkra daga en síðan
bíða mörg verkefni. Ef ég get
hliðrað til reyni ég að gera eitt-
hvað skemmtilegt.“
ÓVENJULEGT BÓNORÐ
Eins og mörgum er í fersku minni
fékk Helgi Hrafn óvænt bónorð
frá unnustu sinni, Ingu Auð-
björgu Kristjánsdóttur í vetur.
Bónorðið fór fram í bænum
Rieneck í Þýskalandi með hjálp
hóps fólks sem bjó til svokallað
„flashmob“ eða hópdans við
Eurovision-lag. Bónorðið kom
flatt upp á Helga sem auðvitað
svaraði játandi. Brúðkaupið er
fyrirhugað á næsta ári. „Við eig-
um marga vini sem búa erlendis
og þurftum því að skipuleggja
giftinguna með góðum fyrir-
vara. Ég hefði reyndar verið til í
giftingu sama dag og bónorðið
kom upp en við ákváðum að hafa
þetta svona,“ segir hann. „Ég
vonast síðan til að við komumst
í brúðkaupsferð,“ upplýsir hann
en segist þó ekki vera tilbúinn til
að ræða það frekar. „Ég vil helst
ekki segja frá einhverju sem er
ekki komið á hreint.“
VANTAR MEIRI TÆKNI
Helgi Hrafn starfaði sem forritari
áður en hann gerðist þingmaður.
Hann segist forrita mikið í frí-
stundum til að halda kunnátt-
unni við. „Forritun breytist mjög
ört og það er nauðsynlegt að
fylgjast vel með. Svo er alveg sér-
staklega gaman að forrita þegar
maður gerir það fyrir sjálfan sig,“
segir hann. Þá hefur Helgi for-
ritað töluvert á Alþingi, til dæmis
gerði hann síðuna ventill.is en
þar getur almenningur skráð sig
með eða á móti málum sem eru
til umfjöllunar í þinginu. „Það
mætti klárlega efla nútímatækni
í störfum þingsins en það er
ákveðið vandamál hversu frum-
stæð gögnin eru. Einfaldur hlutur
eins og að fletta upp í frum-
vörpum er tæknilega flókinn, en
þannig ætti það ekki að þurfa að
vera. Það er mjög góð tölvudeild
á Alþingi sem ég hef átt góð sam-
skipti við. Ég get gefið henni
og sérstaklega einum forritara
hennar mín bestu meðmæli.
Hins vegar er það formið sjálft
sem er gamaldags, til dæmis að
leggja fram frumvarp gefur ekki
tækifæri til þess að nýta tæknina
til fulls. Margt er þó að breytast
hægt og sígandi í átt að nútím-
anum. Það eru fáir tölvunördar á
þinginu og þess vegna átta ekki
allir sig á möguleikum sem eru til
staðar.“
MÓÐGAST EKKI
Helgi Hrafn er í pólitík af lífi og
sál. Þó finnst honum ekki alltaf
skemmtilegt að vera í þessu
starfi. Hann hefur engu að síður
hug á að halda áfram eftir næstu
kosningar eins og er. Flokkur
hans er sá stærsti á landinu.
„Mér finnst starfi Pírata á engan
hátt lokið í sambandi við þingið.
Ég er ósáttur við margt varðandi
stjórnarskrá og þingsköp. Þetta
er gallað kerfi eins og það er
núna. Mér finnst til dæmis mikil-
vægt að ræða meira samskipti
ríkisstjórnar og þingmanna í
minnihluta,“ segir hann. Þess má
geta að skráðir félagar Pírata eru
nú tæpir tvö þúsund.
Þegar Helgi Hrafn er spurður
hvort hann sé viðkvæmur fyrir
gagnrýni, svarar hann því neit-
andi. „Nei, ég sé enga ástæðu til
að vera viðkvæmur fyrir henni.
Þegar maður býður sig fram á
þing er það til að hafa áhrif. Þá
tileinkar maður sér þetta starf
að heilum hug. Ef umræðan er
málefnaleg má læra af henni, en
ef hún er ómálefnaleg er engin
ástæða til að taka hana inn á sig.
Það er engin ástæða til að móðg-
ast. Ég hugsa að ég hafi harðan
skráp, enda eineltisbarn. Ef mað-
ur kemst í gegnum mikla erfið-
leika gera þeir mann sterkari.
Það er eins og að lenda í alvar-
legum veikindum en sleppa þó
úr þeim þokkalega óskaddaður, í
miklum erfiðleikum eru tækifæri
til að læra hluti sem annars gefst
aldrei færi á.“ ■ elin@365.is
SEMUR LÖG OG TEXTA Í FRÍSTUNDUM
VEKUR ATHYGLI Helgi Hrafn Gunnarsson alþingismaður vakti mikla athygli með ræðu sinni í eldhúsdagsumræðum á Alþingi á
miðvikudagskvöld. Sérstaklega þegar hann rappaði texta í lok ræðunnar.
EKKI RAPPARI „Ég hef aldrei rappað,“ segir Helgi Hrafn sem er þó með tónlistina í blóðinu. Hér er hann með unnustu sinni, Ingu Auðbjörgu Kristjánsdóttur. MYND/ANDRI MARINÓ
BRÚÐKAUP Á NÆSTA ÁRI Helgi Hrafn fékk óvænt bónorð frá kærustunni í vetur sem
vakti mikla athygli. MYND/ANDRI MARINÓ
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum
Nánari upplýsingar www.SUPERBEETS.is Umboð: vitex ehf - Upplýsingasími 896 6949
Betra blóðflæði
Rauðrófu kristall 100% náttúrulegt
Einstök virkni og gæði - þú finnur muninn
Nitric Oxide Superbeets
allt að 5 sinnum öflugri
1. dós superbeets jafngildir
30 flöskum af 500 ml rauðrófusafa
Íslensk vottun á
virkni NO3
Sýni rannsóknarstofa - Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide. SUPERBEETS örvar
Nitri c Oxide framleiðslu strax. Bætt blóðflæði og aukin súrefnisupptaka hefur jákvæð
áhrif á alla starfsemi líkamans, þ.m.t. hjarta og æðakerfi.
ATH: Breyting nítrats úr fæðu í Nitric Oxide. (NO) byrjar í munni, þess vegna er
SuperBeets tekið inn í vökvaformi, en ekki töfluformi.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
7
-B
5
E
C
1
7
5
7
-B
4
B
0
1
7
5
7
-B
3
7
4
1
7
5
7
-B
2
3
8
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
0
8
0
s
_
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K