Fréttablaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 72
4. júlí 2015 LAUGARDAGUR| SPORT | 40
FÓTBOLTI Undanúrslit Borgunar-
bikars karla fara fram um helgina,
hefjast í dag með leik ÍBV og Fylkis
í Eyjum (klukkan 16.00) en lýkur á
Akureyri á mánudagskvöldið með
leik 1. deildarliðs KA og Fjölnis
(klukkan 18.00).
Stórleikirnir eru báðir á sunnu-
daginn þegar Víkingar taka á móti
Val í Fossvoginum klukkan 19.15 og
KR-ingar taka á móti FH í Frosta-
skjóli klukkan 20.00 en sá leikur er
í beinni á Stöð 2 Sport.
KR-ingar eru ríkjandi bikar-
meistarar og hafa unnið bikarinn
þrisvar á síðustu fjórum árum. FH-
liðið er aftur á móti komið í átta liða
úrslitin í fyrsta sinn í fimm ár eða
síðan að liðið varð bikarmeistari síð-
ast haustið 2010.
FH-ingar eru á leiðinni í bikarleik
í Vesturbænum í þriðja sinn frá 2010
og þeir hafa tapað hinum tveimur.
KR-liðið hefur fyrir löngu sannað
sig sem mikið bikarlið enda unnið
11 bikarleiki í röð á KR-velli og KR
á nú möguleika á undanúrslitunum
áttunda árið í röð.
Síðastir til að slá KR út úr bik-
arnum á KR-vellinum voru Vals-
menn í 16 liða úrslitunum sumarið
2007, en verðandi Íslandsmeistarar
það sumar unnu þá 3-0 sigur í víta-
keppni. Valur er eina liðið sem hefur
unnið bikarleik á móti KR á KR-vell-
inum undanfarinn áratug en Vals-
liðið sló KR einnig út á leið sinni að
bikarmeistaratitlinum 2005.
Heimir Guðjónsson hefur þjálfað
FH-liðið frá 2008 og gert liðið fjór-
um sinnum að Íslandsmeisturum.
Bikarinn hefur hins vegar aðeins
komið einu sinni í hús á þessum sjö
árum og enn fremur hefur FH-liðið
aðeins einu sinni komist í gegnum
átta liða úrslitin í þjálfaratíð hans.
FH-ingar hljóta vera orðnir hungr-
aðir í bikartitil.
KR og FH hafa mæst einu sinni
áður í Pepsi-deildinni í sumar og þá
unnu FH-ingar 3-1 sigur á KR-vell-
inum þrátt fyrir að vera undir á 72.
mínútu leiksins.
- óój
Í undanúrslit áttunda árið í röð?
KR mætir FH á morgun í risaleik átta liða úrslita Borgunarbikars karla í fótbolta.
KR
3 bikar meistara
titlar
95 prósent
sigurhlutfall
20 sigrar
1 tap
FÓTBOLTI Bandaríkin og Japan mætast í úrslitaleik HM í
Kanada á sunnudagskvöldið. Þessi sömu lið mættust einnig í
úrslitaleiknum fyrir fjórum árum, þar sem Japan hafði betur í
vítaspyrnukeppni. Leikurinn hefst klukkan 23.00.
Bandaríkin hafa ekki unnið HM síðan 1999 en merkisberi
liðsins á þessari eyðimerkurgöngu hefur verið framherjinn
öflugi Abby Wambach. Enginn leikmaður hefur skorað fleiri
mörk fyrir Bandaríkin en hún, eða 183 mörk. Wambach
er orðin 35 ára gömul og þetta er því alveg örugglega
hennar síðasta tækifæri til að vinna HM.
Wambach hefur oft verið í stærra hlutverki en á
HM í ár og óvíst er hvort hún verði í byrjunarliðinu á móti
Japan. En hún mun væntanlega koma eitthvað við sögu og það
væri vel við hæfi ef hún myndi kveðja með marki. Wambach
þarf aðeins eitt mark til að jafna markamet hinnar brasil-
ísku Mörtu á HM (15 mörk) og tvö til að slá það. - iþs
Kveður Wambach með HM-titli?
SUNNUDAG KL. 19:30
365.is Sími 1817
KR – FH ÁTTA LIÐA ÚRSLIT!
Tvö af sigurstranglegustu liðum Borgunarbikarsins mætast í átta
liða úrslitum á sunnudag. Sannkallaður risaslagur sem þú vilt
alls ekki missa af!
➜ Bikargengið síðan FH
vann KR síðast 2010
FH
Aldrei í
undanúrslitin
50 prósent
sigurhlutfall
4 sigrar
4 töp
SPORT
Landkönnuðurinn Eiður Smári
Eiður Smári Guðjohnsen er á leið til kínverska úrvalsdeildarfélagsins Shijiazhuang Ever Bright og mun spila með liðinu út þetta tíma-
bil. Markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi er þar með að fara að spila í áttunda landinu á litríkum ferli sínum.
FÓTBOLTI Bikarmeistarar Stjörnunnar og Selfoss
bættust í gær í hóp með Fylki yfir þau lið sem
hafa tryggt sér sæti í undanúrslitum Borgunar-
bikars kvenna. Bæði Stjarnan og Selfoss er komin
þangað annað árið í röð.
Stjarnan vann 3-2 sigur á Þór/KA í Garða-
bænum eftir að hafa komist í 3-0 í fyrri hálfleik
með mörkum Láru Kristínar Pedersen (2) og
Hörpu Þorsteinsdóttur. Klara Lindberg og Kayla
Grimsley minnkuðu muninn í seinni hálfleik og
Þór/KA var nálægt því að jafna.
Selfoss komst áfram eftir 3-1 sigur í vítakeppni
á móti ÍBV í Eyjum. Þetta er annað árið í röð sem
Selfoss slær ÍBV út í vító í bikarnum. Eyjakonur
skoruðu aðeins úr einni af fjórum vítaspyrnum
sínum, ein var varin og hinar tvær fóru yfir. - óój
Stjarnan og Selfoss komust í undanúrslit bikarsins í gærkvöldi
TVENNA Lára Kristín Pedersen var á skotskónum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Chelsea
England, A-deild
2000-2006
22 ára til 27 ára
186 leikir, 54 mörk
Tottenham
England, A-deild
2010
31 árs
11 leikir, 1 mark
Stoke City
England, A-deild
2010
32 ára
4 leikir, 0 mörk
Fulham
England, A-deild
2011
32 ára
10 leikir, 0 mörk
AS Mónakó
Frakkland, A-deild
2009
31 árs
9 leikir, 0 mörk
AEK Aþena
Grikkland, A-deild
2011-12
33 ára til 34 ára
10 leikir, 1 mark
Cercle Brugge
Belgía, A-deild
2012-2013
34 ára
13 leikir, 6 mörk
KR
Ísland, A-deild
1998
20 ára
6 leikir, 0 mörk
Club Brugge
Belgía, A-deild
2013-2014
35 ára
45 leikir, 5 mörk
➜ Eiður Smári Guðjohnsen er einn af mörgum frægum
fótboltamönnum sem hafa ákveðið að taka þátt í kínversku
„byltingunni“ en kínversku knattspyrnufélögin eru að bjóða
mönnum mjög flotta samninga. Eiður var því tilbúinn í að
yfirgefa Bolton í annað skiptið á ferlinum. Eiður Smári er nú
að skipta um félag í fjórtánda sinn á 22 ára ferli.
Barcelona
Spánn, A-deild
2006-2009
28 ára til 30 ára
72 leikir, 10 mörk
Bolton Wanderers
1) England, B-deild
1998-2000
19 ára til 21 árs
59 leikir, 19 mörk
2) England, B-deild
2015
36 ára
20 leikir, 5 mörk
Valur
Ísland, A-deild
1994
16 ára
17 leikir, 7 mörk
PSV Eindhoven
Holland, A-deild
1995-1997
17 ára til 19 ára
13 leikir, 3 mörk
Shijiazhuang
Ever Bright
Kína, A-deild
2015
37 ára
Næsti
áfanga-
staður
95%
50%
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
7
-C
9
A
C
1
7
5
7
-C
8
7
0
1
7
5
7
-C
7
3
4
1
7
5
7
-C
5
F
8
2
8
0
X
4
0
0
9
A
F
B
0
8
0
s
_
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K