Fréttablaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 24
4. júlí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24 Frumkvöðlar framtíðarinnar Startup Reykjavík stendur nú sem hæst, þar sem utanumhald fyrir unga frumkvöðla til að koma hugmyndum sínum í verk er í brennidepli. Um er að ræða samstarf Arion banka og Klak Innovit, en tíu verkefni eru valin ár hvert til að taka þátt. Að loknum undirbúningi, fræðslu og framkvæmd eru verkefnin kynnt fyrir mögulegum fjárfestum. „Hér er fyrsta haldbæra dæmið um lögleið- ingu deilihagkerfis á Íslandi,“ segir Sölvi Melax, annar þeirra sem standa á bak við fyr- irtækið Viking Cars, sem hefur þá sérstöðu í samanburði við aðra þátttakendur í Startup Reykjavík að það er komið á blússandi skrið og fagnaði í vikunni eins árs afmæli. En sömuleiðis fagnaði Viking Cars nýlega samþykktum lögum á Alþingi sem heimila leigumiðlun á ökutækjum. Viðskiptafræðingurinn Sölvi segir að léleg nýting á bílum á Íslandi og ískyggilega hátt verð hjá bílaleigum, sem sennilega sé hæst á Íslandi á heimsmælikvarða, hafi verið upp- spretta hugmyndar að markaðstorgi fyrir bíla. „Íslendingar eiga mikið af bílum og nýtingin er mjög léleg. Þegar fólk fer til að mynda í frí, eða nýtir sumarið í að hjóla á milli staða, stendur bíllinn oft ónotaður í innkeyrsl- unni,“ útskýrir Sölvi. Hann segist hafa brenn- andi áhuga á að hjálpa fjölskyldum í landinu við að skapa viðbótartekjur með bílnum með aðstoð deilihagkerfisins. „Þannig er verið að hámarka nýtinguna og fólk getur alveg ákveð- ið hversu lengi bíllinn er leigður,“ segir Sölvi og bætir við að útleigan sé miðuð við að lang- tímaleiga sé nokkrir dagar en skammtíma- leiga markist við klukkustundir. „Sé horft til Norðurlandanna eru fyrir- myndir vissulega til staðar. En þar er enginn risi. Við viljum verða þessi risi,“ segir Sölvi. Nýting einkabíla afar slök „Sé horft til Norðurlandanna eru fyrirmyndir vissulega til staðar. En þar er enginn risi. Við viljum verða þessi risi,“ segir Sölvi Melax. MARKAÐSTORG FYRIR BÍLA Þeir Bjarni Árnason og Sölvi Melax standa saman að baki Viking Car. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Þetta er náttúrulega algjörlega geðbiluð hug- mynd,“ segir Egill Sigurðarson, sem stendur að baki Delphi, ásamt þeim Jörundi Jörunds- syni, Þorgeiri Helgasyni, Frey Sverrissyni og Johan Sindra Hansen. Hafa þeir félagar verið viðloðandi hver annan síðan í menntaskóla svo þeir þekkjast afar vel. „Við ætlum okkur að nýta þekkingu fjöldans til að spá fyrir um tiltekna hluti í framtíðinni,“ segir Egill kátur í bragði. Munu þeir skapa flöt á netinu þar sem netverjar munu setja inn spurningar. Í framhaldinu fer svo fram lýð- ræðisleg kosning, en hún er lykilhlutverkið í hugmyndinni. „Þannig fáum við út ákveðið forspárgildi.“ Hópurinn samanstendur af raunvísindamönn- um og miklum og góðum skammti tölvunar- fræðinga, svo það verður að teljast óvenjulegt að spádómar hafi orðið fyrir valinu, en Íslend- ingar hafa einstakan smekk fyrir slíku svo markaðurinn er sannarlega til staðar. „Þetta hefur ekki verið gert áður og erum við svo- lítið að rekast á að ekki eru allir á einu máli varðandi hvernig við eigum að bera okkur að í að koma verkefninu á koppinn,“ segir Egill og skellir upp úr. „Okkur var alls ekki fúlasta alvara þegar við sóttum um, svo það kom á óvart að komast inn í Startup Reykjavík. Nú erum við farnir að hugsa stórt og af fullri alvöru. Markmiðið er að skapa vefsíðu eða smáforrit á pari við Reddit,“ skýtur Egill að. Raunvísindamennirnir spá Sóttu um í Startup án þess að vera full alvara, en eru nú farnir að hugsa risastórt og ætla sér að vera á pari við stærstu vefsíður heims. „Þetta gerðist eiginlega í einni góðri vísinda- ferð,“ segir Benjamín Björn Hinriksson, einn þeirra fjögurra sem mynda Ludis. Hópurinn samanstendur af þeim Grími Kristinssyni, Steinunni Mörtu Friðriksdóttur, Matthíasi Skildi Sigurðssyni og honum sjálfum. Lágu leiðir þeirra saman í Háskólanum í Reykja- vík þar sem öll eru á lokaári í tölvunarfræði. „Allt hefur gerst fremur hratt og við erum eiginlega ekki farin að trúa því enn að við skulum hafa komist inn í verkefnið,“ segir Björn. Aðspurður um tilkomu hugmyndar- innar segir Björn: „Maður er náttúrulega alltaf að leita að ástæðu til að sinna skóla- bókunum ekki þegar maður á að vera að því. Eftir að hafa setið tímunum saman fyrir framan myndvarpa, skaut þessi hugmynd upp í kollinum.“ Úr varð að hópurinn hefur undanfarið lagt nótt við dag til að búa til virkan leik, og hefur borðspilið Fimbulfamb verið þeirra helsta fyrirmynd. „Borðspilin eru svo fyrir- ferðarmikil og okkur langaði að spila saman án þess að hafa of mikið fyrir því,“ segir Björn og skellir upp úr. Ekki kom annað til greina en að koma Fimb- ulfambi að, en spilið er í uppáhaldi meðal með- lima hópsins. „Draumurinn yrði að skapa markaðstorg fyrir borðspil, en að okkur vit- andi er það ekki til í heiminum í dag. Það yrði því frábært að komast í samstarf við eitthvert fyrirtæki sem sinnir borðspilabransanum.“ Allt nema að sinna náminu Vilja gera fólki kleift að spila Fimbulfamb í sjónvarpinu þar sem snjall- síminn gegnir viðamiklu hlutverki. Draumurinn að búa til smáforrit. HUGSA STÓRT Egill Sigurðsson, Johan Sindri Hansen, Þorgeir Helgason og Jörundur Jörundsson hafa verið vinir síðan í menntaskóla og leggja nú spámennsku fyrir sig. FRÉTTABLAÐIÐ/ANSDREI/MARÍNÓ FIMBULFAMBSFÓLK Hugmyndin kviknaði í góðri vísindaferð og dró heldur betur dilk á eftir sér. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARÍNÓ „Meirihluti þess wasabi sem framreitt er á veitingahúsum á Íslandi er ekki alvöru. Það er búið til úr piparrót, sinnepi, matarlit og e-efn- um. Sem sérlegir áhugamenn um sushi tökum við málin í okkar hendur,“ segir Ragnar Atli Tómasson, en hann er í slagtogi með þeim Johan Sindra Hansen og Kristófer Þór Magn- ússyni, sem saman mynda Wasabi Iceland. „Ekta wasabi er búið til úr wasabi-jurtinni og þeir sem hana hafa smakkað finna muninn,“ útskýrir Ragnar. Segir hann hugmyndina hafa sprottið upp hjá þeim félögunum, sem fylgst hafa að í námi og útskrifuðust í vor með BS- gráður í verkfræði, í skólanum. „Við skoðuðum þetta vel og sáum að þetta hefur ekki verið gert hérna heima, þrátt fyrir að Íslendingar séu sólgnir í sushi. Að sama skapi langaði okkur að nýta menntun okkar. Þetta varð því lendingin.“ Segja þeir piltar ekkert því til fyrirstöðu að hefja ræktun á wasabi-jurtinni hérlendis, þrátt fyrir að flestir hugsi eflaust um hlýtt loftslag Asíu þegar slíka ræktun ber á góma. „Loftslagið á Íslandi er alls ekki svo galið. Ræktunin mun fara fram í gróðurhúsi svo hana má framkvæma á fjölmörgum stöð- um,“ útskýrir Ragnar og segir þremenn- ingana í óðaönn að finna heppilegan stað til að hefja ræktun. „Við ætlum að búa svo um hnútana að Ísland verði þekkt fyrir sitt frá- bæra wasabi og koma okkur þannig ræki- lega á kortið.“ Beint úr verkfræði í wasabi Verkfræðingarnir sem ætla að koma Íslandi á kortið fyrir gott wasabi leita nú logandi ljósi að hinum fullkomna stað til að hefja ræktun. SÉRLEGIR SUSHI-ÁHUGAMENN Johann Sindri Hansen, Kristófer Þór Magnússon og Ragnar Atli Tómasson munu komu íslenskum sushi-samáhugamönnum til bjargar og kynna til leiks alvöru wasabi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ➜ Delphi ætlar sér að koma upp vef- svæði þar sem fólk getur séð spár um til- tekna viðburði í framtíðinni. Þeir ætla sér að standa á pari við risamiðilinn Reddit. ➜ Viking Cars er vettvangur fyrir bíleigendur til að deila bílum sínum með öðrum á öruggan hátt gegn gjaldi. Þannig má stuðla að fullnýtingu einkabílsins á Íslandi. ➜ Ludus-verkefnið gengur út á að nútímavæða borðspil og er snjallsíminn hugsaður sem stjórntæki á meðan sjón- varpið gegnir hlutverki spilaborðsins. ➜ Wasabi Hópurinn ætlar að hefja ræktun á hágæða wasabi með íslenska vatninu og endurnýjanlegri orku. Guðrún Ansnes Þorvaldsdóttir gudrun@frettabladid.is 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 8 0 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 7 -0 4 2 C 1 7 5 7 -0 2 F 0 1 7 5 7 -0 1 B 4 1 7 5 7 -0 0 7 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 8 0 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.