Fréttablaðið - 04.07.2015, Side 30
FÓLK|HELGIN
Veðurfræðingurinn góðkunni Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi
stormur, ferðaðist mikið um landið
sem barn í fylgd foreldra sinna.
Þau áttu hjólhýsi og þar sem hann
er yngstur fimm systkina var hann
alltaf með í för. Fyrir vikið kynnt-
ist hann landinu vel auk þess
sem hann segir öll ferðalögin hafi
vafalaust ráðið miklu um hvaða
lífsstarf hann valdi sér síðar á
lífleiðinni. „Fyrstu árin var hið
venjulega tjald allsráðandi en eftir
kaupin á hjólhýsinu jukust ferð-
irnar til muna. Foreldrar mínir áttu
einnig sumarbústað við Meðal-
fellsvatn í Kjós en hann var seldur
þegar mamma dó og keypti pabbi
sér þá fyrst fellihýsi og síðar hjól-
hýsi. Ég er ekki frá því að þessar
ferðir hafi ráðið miklu um háskóla-
skólagöngu mína seinna meir og
áhuga minn á náttúrunni, jörðinni
og veðrinu.“
Þegar Sigurður stofnaði eigin
fjölskyldu fylgdi ferðabakterían að
sjálfsögðu með. „Ég er líka mikill
bílaáhugamaður og við hjónin
fórum fyrsta hring okkar kringum
landið á stórum forláta Volvo
station 740. Þar var með í för sex
mánaða frumburður okkar og við
sváfum í bílnum og tjölduðum yfir
farangurinn.“
Með fleiri börnum og hækk-
andi tekjum fjárfesti fjölskyldan
fyrst í tjaldi, síðar í tjaldvagni og
að lokum fellihýsi árið 1999. „Við
vorum svo ánægð með fellihýsið
að við endurnýjuðum það 2003
og aftur árið 2009. Í lengri ferðum
var brunað um landið endilangt
og þversum og landið og lands-
byggðaþorpin skoðuð í ræmur.
Þannig tókum við tvo Vestfjarða-
hringi sem hreinlega eru ógleym-
anlegir og klárlega með skemmti-
legri ferðum um landið. Um helgar
var hins vegar skotist í styttri
útilegur.“
ELTA GÓÐA VEÐRIÐ
Helsti kostur þess að eiga eftir-
vagna á borð við tjaldvagn og
fellihýsi að mati Sigurðar er
hversu auðvelt er að elta góða
veðrið. „Við búum í landi þar sem
veður eru breytilegri en víðast
annars staðar á jörðinni. Og ef
maður sá kortin snúast upp í ein-
hverja brælu, svo ég tali nú ekki
um vætu í ofanálag, þá var maður
15 mínútur að ganga frá og skella
sér þangað sem veðrið var þolan-
legt eða jafnvel bara gott.“
Hann nefnir einnig það mikla
pláss sem er að finna í fellihýsum
auk þess sem þau hafa rafmagn,
ljós, ísskáp og jafnvel sjónvarp
þannig að engum ætti að leiðast.
„Veðrið skiptir ekki heldur alltaf
máli, ef það rigndi dunduðum við
eitthvað innivið, spiluðum eða
lásum bækur. Á þessum árum
eignuðumst við dýrmætar minn-
ingar þegar foreldrarnir voru
með í för eða vinafólk. Það er
ólýsanlegt að eignast minningar
með sínum nánustu úr ferðalög-
um því þá eru allir í sínu besta
skapi.“
Síðustu árin hefur fjölskyldan
dvalið meira í sumarbústað
fjölskyldunnar og minna í felli-
hýsinu. „Börnin vaxa úr grasi
og nenna síður að ferðast með
foreldrum sínum. Sjálf erum
við mikið erlendis, auk þess að
vera í bústaðnum, en mig langar
alltaf jafnmikið til að skella mér í
ferðalag í fellihýsinu. Þegar upp
er staðið er þessi ferðavagnatími
ómetanlegur í allri minningunni.
Þetta er hreint frábær leið til að
skoða landið sitt, maður sjálfur
og börnin búa að þessu alla ævi
og svo má ekki gleyma því að
maður hittir oft skemmtilegt fólk
á tjaldsvæðunum og sumir eru
vinir okkar í dag.“
Á MARGAR DÝRMÆTAR MINNINGAR
FERÐALÖG Siggi stormur hefur ferðast víða um landið með tjaldvagn, fellihýsi eða hjólhýsi í för. Hann segir þennan tíma
ómetanlegan og að öll fjölskyldan búi að honum alla ævi. Stór kostur við eftirvagna er að auðvelt er að elta uppi góða veðrið.
GOTT VEÐUR Hlýir sólargeislar ylja feðgunum á Akureyri fyrir nokkrum árum. MYND/ÚR EINKASAFNI
Kebabréttir eru vinsælir víða
um heim. Hægt er að gera
sitt eigið kebab. Kjötið er
steikt í bitum í stað þess að
vera skorið í fína strimla eins
og á alvöru kebab-stöðum.
Uppskriftin miðast við fjóra.
Það sem þarf
650 g gott nautakjöt
3 msk. rauðvínsedik
1 msk. sítrónusafi
2 tsk. hvítlauksduft
Salt og pipar
1/3 bolli ólífuolía
2 rauðlaukar, skornir í fjóra báta
Tómatar, skornir í báta
Paprika
Maísstönglar, skornir í þykkar
sneiðar
Setjið vínedik, sítrónusafa,
hvítlauksduft, salt, pipar og
olíu í stóra skál eða plast-
poka. Skerið kjötið niður
í hæfilega bita og setjið
í blönduna. Látið liggja í
blöndunni yfir nótt.
Leggið tréspjót í bleyti í
hálfa klukkustund áður en
þau fara á grillið. Þerrið
kjötið og raðið á spjótin
ásamt maís, tómötum,
lauk og papriku. Það má
breyta og nota aðrar græn-
metistegundir eða ávexti,
til dæmis ananas. Stráið
salti og pipar yfir. Setjið á
grillið í 10-15 mínútur og
snúið oft á tímabilinu.
GRILLNAUT MEÐ
GRÆNMETI Á SPJÓTI
GRILLSPJÓT Það er hægt að
raða á spjótin eftir vild.
Perur eru mjög ljúffengar þegar
þær hafa verið grillaðar. Þær henta
mjög vel í salat með gorgonzola-
osti, hnetum og blönduðu salati.
Þetta er klassísk útgáfa af salati
sem má breyta, til dæmis með
því að nota parmesanost líka.
Gorgonzola er þó ómissandi með
perum.
2 perur, skornar í sneiðar og grillaðar
Klettasalat eða blandað salat
50 g gorgonzola
Valhnetur
Fljótandi hunang
Parmesanostur, ef vill
Salt og nýmalaður pipar
Ólífuolía
Ristið valhnetur á þurri pönnu og
dreifið hunangi yfir þær. Skrælið
perurnar og skerið í sneiðar.
Leggið þær stutta stund á heitt
grill og grillið báðum megin.
Setjið salat á disk, leggið perurnar
yfir, því næst gorgonzola í bitum.
Dreifið smávegis ólífuolíu yfir sal-
atið. Loks er hnetunum dreift yfir,
saltað og piprað og smá bitum af
parmesan stráð yfir.
FRÁBÆRT SUMARSALAT
SUMARSALAT Frábært salat með grill-
uðum perum og gorgonzolaosti.
TIL SÖLU!
Verslunin hefur verið rekin um fimm ára skeið og er þekkt fyrir vandaðan kvenfatnað.
Verslunin er í 100m2 leiguhúsnæði og er með trygg og góð viðskiptasambönd.
Tuzzi hefur skapað sér ákveðna sérstöðu og á tryggan hóp viðskiptavina.
Áhugasamir hafi samband við tuzzi@tuzzi.is
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
7
-F
1
2
C
1
7
5
7
-E
F
F
0
1
7
5
7
-E
E
B
4
1
7
5
7
-E
D
7
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
8
0
s
_
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K