Fréttablaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 4
4. júlí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4 29.06.2015 ➜ 05.07.2015 ALÞINGI Störfum Alþingis lauk í gær, rúmum mánuði á eftir áætl- un. Þingstörfin hafa einkennst af því í vikunni að samningar hafa náðst og hafa málin runnið í gegn á færibandi og fjölmörg ný lög verið sett. Aðeins tvö mál voru tekin fyrir á þinginu í gær, þennan síðasta starfsdag, makríll og afnám gjald- eyrishafta. Bæði málin urðu að lögum og voru send ríkisstjórn, enda hluti af samkomulagi flokk- anna um afgreiðslu mála. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, sleit þingi og fór yfir störfin í vetur. Hann benti á að Alþingi skæri sig úr þingum á Norðurlöndunum þannig, að mun meiri vinna færi fram í þingsal hér en þar og minni í nefndum. Þá kom hann inn á það hve þingstörf hefðu dregist. „Ég get ekki hér og nú leynt vonbrigðum mínum með það, persónulegum vonbrigðum, enda hef ég lagt á það áherslu að áætl- un standist og það ekki að ástæðu- lausu.“ Einar skoraði á þingmenn að standa við stóru orðin frá eldhús- dagsumræðunum og taka nú þing- störfin til gagngerrar endurskoð- unar. - kóp Alþingi hefur verið frestað eftir langan og strangan þingvetur: Höftin og makríllinn í höfn FORSETI ALÞINGIS Einar K. Guðfinnsson sagði 3. júlí vera merkisdag, enda væru haftafrumvörpin sem samþykkt voru þau merkustu sem lengi hefðu komið fram. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ði r á sk ilj a sé r r ét t t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð ve rð g et ur b re ys t á n fy rir va ra . Bodrum Frá kr. 105.900 m/allt innifalið 9. júlí í 11 nætur Netverð á mann frá kr. 105.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 149.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. Bitez Garden Life 47.450 Flugsæti frá kr. Óeining innan meirihluta um nýjar bæjarskrifstofur Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í Kópavogi telur eðlilegra að bæjarskrifstofur verði staðsettar í hjarta bæjarins en að flytja þær í turninn. Fyrirtæki sem studdi bæjarstjóra fjárhagslega í prófkjöri á hlut í Norðurturninum. NORÐURTURNINN Hugmyndir eru uppi um að Kópavogsbær flytji skrifstofur sínar í turninn. Hjúpur ehf., á hlut í turninum en eigendur fyrirtækisins studdu bæjarstjóra fjárhagslega í síðasta prófkjöri í gegnum annað fyrirtæki, Bygg ehf. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BIRKIR JÓN JÓNSSON er fyrirhugað við Hafursstaði í Skagabyggð. Heildarkostn- aður verk- efnisins er áætlaður 100 milljarðar króna. nýtt hágæða almenningssamgöngu- kerfi gæti verið tilbúin til notkunar. þarf ríkið að greiða í miska- bætur fyrir að veita ekki Snædísi Rán Hjartardóttur þá túlkaþjónustu sem hún þarf. eru í minna en 80% prósenta starfi við Landspítalann. greiddu Íslendingar í fyrra fyrir svefnlyf og slævandi lyf. aukning var á símtölum í Hjálparsíma Rauða krossins á fyrri hluta ársins miðað við í fyrra. var fjöldi þeirra sem biðu eftir hjúkrunarrými þann 1. maí síðastliðinn. 120 ÞÚSUND TONNA ÁLVER 70% hjúkrunarfræðinga 306 42% 500 þúsund krónur 440 milljónir króna 2022 er árið sem Borgarlínan FERÐAÞJÓNUSTA Gistinóttum á hótelum hér á landi fjölgaði um 20 prósent í maí milli ára. Alls voru gistinæturnar 216.500 samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Gistinóttum erlendra ferða- manna fjölgaði um 28 prósent en gistinóttum Íslendinga fækkaði um 12 prósent í maí. Gistinóttum á hótelum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði minnst, eða um 13 pró- sent, en mest á Austurlandi, eða um 59 prósent. Best var herbergjanýtingin á höfuðborgarsvæðinu eða 77 pró- sent. Þar á eftir á Suðurnesjum þar sem nýtingin var 73 prósent. - ih Færri gistinætur Íslendinga: Fimmtungi fleiri gistinætur HÓTEL SAGA Gistinóttum útlendinga fjölgaði um 28 prósent. Herbergjanýt- ingin var best á höfuðborgarsvæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI KÍNA Sex létust og að minnsta kosti sjötíu voru færðir slasaðir á sjúkrahús eftir jarðskjálfta í Pishan í Xinjiang-héraði Kína í gærdag. Jarðskjálftinn mældist 6,5 stig. „Ef margt fólk er komið saman á einum stað þegar jarðskjálfti ríður yfir getur orðið alvarlegt slys, en í þessu tilfelli urðu frek- ar fáir fyrir skaða svo þetta er ekki eins alvarlegt,“ sagði Sun Shihong, starfsmaður hjá kín- verskri jarðskjálftastofnun í sam- tali við fjölmiðla. - þea Hamfarir í Xinjiang-héraði: Sex létust í jarð- skjálfta í Kína SVEITARSTJÓRNARMÁL Óeining er innan meirihluta Sjálfstæðis- flokksins í Kópavogi um þá tilhög- un að færa bæjarskrifstofur sveit- arfélagsins úr gamla miðbænum í Norðurturn Smáralindar. Margrét Friðriksdóttir segir of geyst farið og telur mikilvægt að bæjarskrif- stofur sveitarfélagsins verði enn í rótgrónum miðbæ. Birkir Jón Jóns- son telur mikilvægara að grynnka á skuldum bæjarins í stað þess að stofna til nýrra skulda. Engar samningaviðræður eru hafnar milli bæjarins og eigenda fasteignarinnar. Sú tillaga sem var borin upp á síðasta fundi var um að bæjarstjóra yrði falið að hefja samn- ingaviðræður sem myndu síðan verða lagðar fyrir bæjarstjórn. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri segir málið fyrst hafa verið rætt í október í fyrra. „Það hafa ákveðnar þreifingar átt sér stað milli embætt- ismanna bæjarins og eigenda fast- eignarinnar. Ég hef ekki komið að þeim. Ég hefði viljað á síðasta fundi fá umboð til að hefja viðræður svo málið gæti tekið eitt skref í viðbót,“ segir Ármann. „Hér er um gríðarlega mikið hagsmunamál að ræða fyrir íbúa Kópavogs. Sveitarfélagið er eitt það skuldugasta á landinu og því eigum við að kappkosta að lækka skuldir sveitarfélagsins í stað þess að auka þær. Þess vegna vil ég skoða málið gaumgæfilega og hef lagt ítarleg- ar spurningar fyrir bæjarráð þar að lútandi. Það hefur verið stefna þessa meirihluta að lækka skuldir sveitarfélagsins og því vil ég ekki að þessi vegferð verði valin sem hefur þveröfug áhrif,“ segir Birkir Jón Jónsson, bæjarfulltrúi Framsókn- arflokksins. Margrét Frið- riksdóttir, einn bæjarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins, tekur í sama streng. „Mér finnst of geyst farið og ég var í hópi þeirra sem vildu skoða mál ið betur. Tveir fulltrúar meirihlut- ans greiddu atkvæði með frestun á síðasta fundi bæjarstjórnar. Skuld- ir sveitarfélagsins eru háar og því þurfum við að skoða mjög vel hvaða áhrif tilfærslan mun hafa. Ég vil að þetta sé gert faglega og að við gefum okkur góðan tíma,“ segir Margrét og minnir á að þetta sé í raun einnig skipulagsmál. „Við höfum byggt upp fallegan miðbæ með tónlistarhúsi og öðru og því er það mikilvægt að mínu mati að bæj- arskrifstofur séu einnig staðsettar í miðbænum.“ Eigendur turnsins eru fjölmarg- ir. Einn eigandi hans er einka- hlutafélagið Hjúpur, sem er dótt- urfyrirtæki Byggingafélags Gylfa og Gunnars, Bygg ehf. Fyrirtæk- ið studdi bæjarstjóra fjárhagslega í prófkjöri fyrir síðustu sveitar- stjórnarkosningar. Ármann segir engin tengsl milli sín og þessa fyrir- tækis. „Það hryggir mig ef verið er að tengja þetta saman,“ segir hann. „Ég hef ekki rætt við þessa menn í marga mánuði.“ sveinn@frettabladid.is Ég hefði viljað á síðasta fundi fá umboð til að hefja viðræður. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 8 0 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 6 -B F 0 C 1 7 5 6 -B D D 0 1 7 5 6 -B C 9 4 1 7 5 6 -B B 5 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 8 0 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.